Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 1
121. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 31. MAÍ 2001
ÞING Indónesíu samþykkti í gær
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða vítur á Abdurrahman Wah-
id forseta og krafðist þess að hann
yrði ákærður til embættismissis.
Andstæðingar Wahids spáðu því
að hann léti af embætti ekki síðar
en í ágúst. Öryggissveitir börðust
við þúsundir stuðningsmanna for-
setans sem reyndu að ráðast inn í
þinghúsið í Jakarta til að krefjast
þess að þingið yrði leyst upp. Einn
maður beið bana í átökum lögreglu
og stuðningsmanna forsetans í
heimahéraði hans, Austur-Jövu.
Fulltrúaþing Indónesíu (DPR)
samþykkti ályktun um vítur á for-
setann með 365 atkvæðum gegn
fjórum. Í ályktuninni var formlega
óskað eftir því að æðsta löggjaf-
arsamkunda landsins, svokallað
Ráðgjafarþing (MPR), kæmi sam-
an til að ákveða hvort svipta bæri
Wahid forsetaembættinu. Ráðgjaf-
arþingið er skipað 500 þingmönn-
um DPR og 200 fulltrúum héraðs-
þinga og ýmissa indónesískra
samtaka.
Ákveði MPR að víkja Wahid frá
á helsti andstæðingur hans,
Megawati Sukarnoputri vara-
forseti, að taka við forsetaembætt-
inu.
Óeirðir við þinghúsið
Talsmaður Wahids sagði að
hann hefði ekki í hyggju að segja
af sér eða taka aftur hótun sína
um að lýsa yfir neyðarástandi og
leysa þingið upp.
Um 6.000 stuðningsmenn Wah-
ids, margir þeirra vopnaðir hnífum
og bareflum, gengu að þing-
húsinu í gær til að krefjast þing-
rofs. Um þúsund þeirra brutust í
gegnum girðingu við bygginguna
en lögreglunni tókst að stöðva þá
með því að skjóta viðvörunar-
skotum og slá varðhring um þing-
húsið.
Stuðningsmenn Wahids hafa
einnig kveikt í kirkjum og skrif-
stofum andstæðinga forsetans í
nokkrum bæjum á Austur-Jövu
síðustu þrjá daga. 600 hermenn
voru sendir til bæjarins Pasuruan
í gær og þeir hleyptu af byssum til
að dreifa hópum stuðningsmanna
forsetans. Einn mótmælendanna
beið bana og fjórir særðust.
Reuters
Lögreglumenn reyna að hindra að stuðningsmenn forseta Indónesíu brjótist í gegnum girðingu við þinghúsið í
Jakarta. Öryggissveitum tókst að koma í veg fyrir að stuðningsmenn forsetans réðust inn í bygginguna.
Þing Indónesíu samþykkir vítur á forseta landsins
Vill lögsækja Wahid
til embættismissis
Jakarta. AP.
RONALD Dumas, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakklands, var í gær
dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir
að hafa notið góðs
af greiðslum úr
ólöglegum sjóði
franska olíu-
félagsins Elf, sem
talið er að hafi
verið notaður til
mútugreiðslna og
ýmissa vafasamra
viðskipta. Dumas
fékk einnig
tveggja ára skil-
orðsbundinn fangelsisdóm og var
dæmdur til að greiða milljón franka,
andvirði rúmra 13 milljóna króna, í
sekt.
Alfred Sirven, fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Elf, sem var í eigu ríkisins,
var dæmdur í fjögurra ára fangelsi og
sektaður um tvær milljónir franka,
andvirði 27 milljóna króna. Lögfræð-
ingar Dumas og Sirvens sögðu að þeir
myndu áfrýja dómunum strax.
Hjákonan fyrrverandi
fékk þyngri dóm
Fyrrverandi hjákona Dumas,
Christine Deviers-Joncour, var
dæmd í eins og hálfs árs fangelsi og til
að greiða 1,5 millj-
ónir franka, 20
milljónir króna, í
sekt, auk þess
sem hún fékk eins
og hálfs árs skil-
orðsbundinn fang-
elsisdóm. Sirven
er sagður hafa
greitt Deviers-
Joncour 65 millj-
ónir franka, 870
milljónir króna, til að hafa áhrif á
ákvarðanir Dumas á árunum 1989–
93, þegar hann var utanríkisráðherra.
Dumas, sem var náinn vinur Francois
Mitterrands, þáverandi forseta, var
dæmdur fyrir að hafa notið góðs af
þessum greiðslum, m.a. notað dýra
íbúð sem hjákonan keypti í París.
Kaupsýslumaðurinn Gilbert Miara,
annar fyrrverandi ástmaður Deviers-
Joncour, var dæmdur í eins og hálfs
árs fangelsi og til að greiða milljón
franka í sekt.
Dumas
dæmdur
í fangelsi
París. AFP.
Roland
Dumas
Christine De-
viers-Joncour
ÁSTSJÚKUR api hefur valdið
miklu uppnámi í bænum Kund-
esale á Sri Lanka en þar eltir
hann ungar stúlkur á röndum.
Íbúar bæjarins ná ekki upp í
nef sér fyrir reiði og hneykslan á
apanum sem er stöðugt á eftir
ungum stúlkum og þegar hann
sér sér færi á, stekkur hann á
þær og faðmar svo fast, að ekki
dugir annað en lemja hann með
lurk til að hann sleppi takinu.
Auk þess sést hann oft á harða-
hlaupum á eftir læðum og tíkum
og hefur þá í frammi ýmsa
ósæmilega tilburði. Íbúarnir
telja að skýringin á þessari sjúk-
legu ástleitni sé óhóflegt sykur-
át, því apinn er einnig útsmoginn
súkkulaði- og sælgætisþjófur.
Óforskamm-
aður api
Colombo. Reuters.
NÝJUSTU skoðanakannanir í Bretlandi benda til þess
að Íhaldsflokkurinn gjaldi mikið afhroð í þingkosning-
unum eftir viku. Könnun ICM-stofnunarinnar bendir til
þess að forskot Verkamannaflokksins á íhaldsmenn
hafi aukist um sex prósentustig á einni viku og sé nú 19
prósentustig.
Verði þetta niðurstaða kosninganna fær Verka-
mannaflokkurinn 267 sæta meirihluta í neðri deild
þingsins, að sögn ICM. Yrði það mesti þingmeirihluti í
Bretlandi frá samsteypustjórn íhaldsmanna, frjáls-
lyndra og minnihluta Verkamannaflokksins árið 1931.
Verkamannaflokkurinn fékk 179 sæta meirihluta í síð-
ustu þingkosningum árið 1997.
Tony Blair forsætisráðherra og eiginkona hans,
Cherie, fylgjast hér með björgunaræfingu í höfuð-
stöðvum sjúkrabíla Staffordshire á Mið-Englandi þar
sem þau voru á kosningaferðalagi í gær.
Hagur Blairs
vænkast enn
Reuters Thatcher/29
YASSER Arafat, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, óskaði í
gær eftir því að alþjóðlegir eftirlits-
menn yrðu „tafarlaust“ sendir til
Ísraels og heimastjórnarsvæða Pal-
estínumanna til þess að hjálpa til við
að binda enda á átökin þar.
„Við þurfum nauðsynlega á að
halda eftirlits-
mönnum frá Evr-
ópusambandinu,
Sameinuðu þjóð-
unum, ríkjunum
sem hafa beitt sér
fyrir friðarvið-
ræðum og hvað-
anæva til að
stöðva ofbeldið og
vernda friðarum-
leitanirnar,“ sagði Arafat eftir að
hafa átt fund með Göran Persson,
forsætisráðherra Svíþjóðar, í Kaup-
mannahöfn. Hann sagði „mikið
liggja við“ að eftirlitsmenn yrðu
sendir til Mið-Austurlanda og bætti
við: „Ég bið Evrópusambandið og
vini okkar um hjálp.“
Bandaríkjamenn beittu í mars sl.
neitunarvaldi gegn ályktun sem
Sameinuðu þjóðirnar höfðu sam-
þykkt um að sendir yrðu eftirlits-
menn á vegum samtakanna til Mið-
Austurlanda. Ísraelar höfðu þá lagst
gegn ályktuninni.
Persson vildi ekkert segja um
beiðni Arafats um eftirlitsmenn. Poul
Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, tók aftur á móti undir
orð Arafats, eftir að hafa átt fund
með honum síðar í gær. Kvaðst hann
telja að alþjóðlegt eftirlit, auk Mitch-
ell-skýrslunnar svonefndu, gæti riðið
baggamuninn í að koma á friði fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Arafat
biður um
eftir-
litsmenn
Kaupmannahöfn. AFP.
Yasser Arafat