Morgunblaðið - 31.05.2001, Side 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Umfangsmiklar end-
urbætur standa yfir á
72,5 kV tengivirki
Landsvirkjunar á
Rangárvöllum á Ak-
ureyri, þar sem gamla
tengivirkið uppfyllir
ekki lengur þær kröf-
ur sem gerðar eru til
afhendingaröryggis
og sveigjanleika.
Ráðist var í að
byggja lofteinangrað
tengivirki innanhúss,
sem leysir að fullu af
núverandi tengivirki
sem er utanhúss.
Verklok eru áætluð
um miðjan júní nk. en
heildarkostnaður við
verkið er áætlaður um
260 milljónir króna.
Tengivirkið fæðir nú Akureyri,
Dalvík, Ólafsfjörð, Siglufjörð, Eyja-
fjarðarsveit, Svalbarðsströnd og
Fnjóskadal.
Gengið var frá samningum við
Fjölni ehf. á Akureyri um að reisa
nýtt hús utan um búnaðinn. Fram-
kvæmdir hófust í byrjun júlí í fyrra
og var verkinu að mestu lokið um
miðjan febrúar sl. Alstom í Sviss sér
um framleiðslu og uppsetningu á öll-
um rafbúnaði. Uppsetning búnaðar-
ins hófst um miðjan mars sl. og réð
Alstom fyrirtækið Rafeyri ehf. á Ak-
ureyri sem undirverktaka við upp-
setningu og prófun á búnaðinum.
Davíð Hafsteinsson framkvæmda-
stjóri Rafeyrar sagði að samningur-
inn við Alstom væri mjög mikil-
vægur. Fyrirtækið hefði nær
eingöngu verið í skiparafmagni til
þessa en vegna samdráttar á því
sviði væru menn farnir að snúa sér
að einhverju öðru. „Við höfum fengið
allöggildingu, sem gerir okkur kleift
að vinna við verkefni sem þetta.“
sagði Davíð.
Umfangsmiklar framkvæmdir Landsvirkjunar á Rangárvöllum
Tengivirki
endurnýjað og
fært undir þak
Morgunblaðið/Kristján
Í tengslum við flutning á tengivirki Landsvirkjunar á Rangárvöllum
undir þak var 66 kV háspennustrengur lagður í jörð við nýja húsið.
Hörður Jóhannsson, rafvirki hjá Rafeyri, vinn-
ur við uppsetningu á búnaðinum í nýju húsi
Landsvirkjunar á Rangárvöllum.
Morgunblaðið/Kristján
ÞRJÚ ungmenni, tveir piltar og
stúlka, slösuðust mikið er bíll þeirra
fór út af Grenivíkurvegi og valt
nokkrar veltur skammt sunnan við
Ártún aðfaranótt miðvikudags.
Ökumaður bílsins er grunaður um
ölvun en ekki lá fyrir hvort ungmenn-
in voru í bílbeltum.
Jón Knudsen varðstjóri hjá
Slökkviliði Akureyrar sagði að að-
koman á slysstað hefði verið frekar
ljót en þó heldur skárri en fyrsta til-
kynning um slysið gaf til kynna. „Til-
kynningin var um 5–6 mikið slasaða
og þar af tveir fastir í bílnum. Á slys-
stað kom svo í ljós að þrír voru í bíln-
um og enginn þeirra fastur.“
Jón sagði ljóst að bíllinn hefði verið
á mikilli ferð, hann valt langt út fyrir
veg, upp í móti yfir öryggissvæði og
upp á tún, þar sem honum hvolfdi.
Þrír sjúkrabílar og tækjabíll
Slökkviliðs Akureyrar fóru á slysstað
en þá voru ungmennin komin út úr
bílnum. Stúlkan slasaðist mest, hún
m.a. lær- og viðbeinsbrotnaði og
skarst illa á fæti en piltarnir skárust í
andliti og á höfði. Öll voru þau flutt á
slysadeild FSA, þar sem stúlkan
gekkst undir aðgerð í gærmorgun.
Þetta er önnur bílveltan í Eyjafirði
í vikunni og í báðum tilfellum eru
ökumenn grunaðir um ölvun við akst-
ur.
Bílvelta á
Grenivíkurvegi
Þrjú ung-
menni slös-
uðust mikið
♦ ♦ ♦
TVÆR nýjar sýningar verða opn-
aðar í Safnasafninu á Svalbarðs-
strönd laugardaginn 2. júní kl. 14.
Önnur sýningin er útisýning í að-
liggjandi görðum á máluðum fugl-
um eftir yngstu nemendur Vals-
árskóla. Þeir voru gerðir undir
leiðsögn Jennýjar Karlsdóttur
kennara. Sú sýning verður opin í
allt sumar.
Hin sýningin er einkasýning
Kristínar Jónsdóttur frá Munka-
þverá. Hún stundaði framhaldsnám
í Kaupmannahöfn og París og hef-
ur haldið einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum, m.a. í Ung-
verjalandi, Póllandi, Þýskalandi,
Júgóslavíu, Skandinavíu, Frakk-
landi, Hollandi og Bandaríkjunum.
Sýningu Kristínar lýkur 6. júlí
næstkomandi. Safnasafnið er opið
daglega frá kl. 10 til 18 og er að-
gangseyrir 300 krónur.
Sýning á verkum barna úr Vals-
árskóla verður í Safnasafninu á
Svalbarðsströnd í sumar.
Tvær nýjar
sýningar í
Safnasafninu
SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur
helgarskákmót um hvítasunnuhelg-
ina en með mótinu er þess minnst
að 100 ár eru liðin frá stofnun Tafl-
félags Akureyrar.
Veitt verða peningaverðlaun fyrir
þrjú efstu sætin. Fjölmargir kepp-
endur víðs vegar af landinu mæta
til leiks, þar á meðal stórmeistarar.
Hér er því um einstakan skákvið-
burð að ræða sem vafalaust á eftir
að gleðja norðlenska skákáhuga-
menn.
Mótið fer fram í sal Lundarskóla
og hefst föstudaginn 1. júní kl. 20
en þá verða tefldar þrjár umferðir,
25 mínútna skákir. Á laugardag og
sunnudag verða tefldar kappskákir,
alls fjórar umferðir, sem hefjast kl.
11 og 17 báða dagana. Alls verða
tefldar 7 umferðir á mótinu eftir
svissneska monrad-kerfinu.
Þetta mót Skákfélags Akureyrar
er jafnframt liður í helgarmótaröð
Skáksambands Íslands, annað í röð-
inni af fimm helgarmótum sam-
bandsins.
Helgarskákmót
Skákfélags Akureyrar
Stórmeist-
arar mæta
til leiks