Morgunblaðið - 31.05.2001, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.05.2001, Qupperneq 20
SUÐURNES 20 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ „ÍSLENDINGAR ættu því að koma meira hingað suður með sjó, á Reykjanesið, og njóta þess sem við getum boðið,“ sagði Kristján Páls- son, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja, á blaðamannafundi samtakanna í gær. Fundurinn fór fram um borð í hvalaskoðunarbátn- um Moby Dick í Keflavíkurhöfn og þar var kynnt ýmislegt af því sem ferðafólki stendur til boða á Reykja- nesi. Fram kom hjá Kristjáni að Íslend- ingar eru aðeins um 20-30% af þeim gestum sem koma á Suðurnesin. „Skilaboðin héðan eru því skýr, hér er flest hægt að sjá eða upplifa sem hægt er annars staðar á landinu, jafnvel jökla, sagði Kristján. Johan D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Reykjanesbæjar, sagði að lögð yrði aukin áhersla á að fá innlenda ferða- menn til að koma á Reykjanesið. Unnið er að stefnumörkun í ferða- málum á Reykjanesi og eru megin- markmið fimm. Að fjölga ferða- mönnum allt árið um kring og lengja dvöl þeirra, að fjölga áningarstöðum og að auka fjölbreytni afþreyingar. Einnig að Reykjanes verði þekkt sem eitt besta hvalaskoðunarsvæði landsins og að þar verði höfuðstöðv- ar heilsutengdrar ferðaþjónustu á Íslandi. Margar faldar perlur Á fundinum voru kynntir gisti- möguleikar á Reykjanesi. Tvö hótel eru í Reykjanesbæ auk gistiheimila, og hótels við Bláa lónið. Tvö fyrir- tæki bjóða upp á hvalaskoðun og hef- ur starfsemin farið vaxandi, auk þess sem farið er að bjóða upp á sérstakar skoðunarferðir með hópferðabifreið- um undir heitinu Dekur og djamm. Sagt var frá Bláa lóninu, sem er mik- ilvægur punktur í ferðaþjónustu svæðisins og heilsutengdri ferða- þjónustu í tengslum við hana. Einnig var vakin athygli á ýmsum möguleikum á sviði menningar- tengdrar ferðaþjónustu. Á Reykja- nesi eru til dæmis fimm kirkjur frá 19. öld og fjöldi safna og ferðasumr- inu lýkur með menningarhátíðinni Ljósanótt í Reykjanesbæ í byrjun september. Bent var á hafnirnar, þar sem allt iðar af lífi og ýmsa afþrey- ingarmöguleika, svo sem útreiðar- túra og hestakerruferðir í Grindavík og Go-kart brautina í Njarðvík. Þá var vakin athygli á miklu fuglalífi, meðal annars á Garðskaga og fjöl- breyttri náttúru Reykjanessins. Úti- vistarmöguleikar eru miklir. Þannig er merkt gönguleið, Reykjavegur, frá Reykjanestá og upp að Hengli og á svæðinu eru fjórir golfvellir, svo nokkuð sé nefnt. Helga Ingimundardóttir, sem ger- ir út Moby Dick, sagði að Reykjanes- ið væri nánast óplægður akur í ferða- málum og sagði að þar væru margar faldar perlur, sem ástæða væri til að hvetja ferðafólk til að skoða. Margar leyndar ferðamannaperlur eru á Reykjanesinu Johan D. Jónsson ferðamálafulltrúi með ferðakort af Reykjanesi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjöldi ferðaþjónustufólks kynnti kosti Reykjanessins sem ferðamannasvæðis á fundi um borð í Moby Dick. Vilja fá fleiri inn- lenda ferðamenn Reykjanes KRISTJÁN Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja, sagði á blaðamannafundi í gær að ef fjölskyldan eða einstak- lingurinn vildi ferðast á bíl um Reykjanes væri um margt að velja. Sjálfur vildi hann bjóða upp á eftirtalda tíu mismunandi ferðamatseðla: Fara í Go-kart-brautina, veiði í Seltjörn, grill í Sólbrekku- skógi, sund í Bláa lóninu. Fara í gönguferð um Reykja- veg frá Reykjanesvita þar sem er ævintýralegt landslag með leirhverum, grónu hrauni, eld- vörpum og hellum og enda dag- inn með ferð í hestakerru og góðum kvöldverði í Grindavík. Sigla í hvalaskoðun, fara í Go-kart, golf í Leirunni og njóta matar og gistingar í Keflavík. Skoða fugla á Hafnarbergi, á Garðskaga, á Fitjum í Njarðvík og gista á tjaldsvæði. Fara á sjóstöng, í sund með hvölum og þeysa á sjóketti frá Keflavík. Skoða kirkjur og koma við í Stekkjarkoti í Njarðvík og borða í Reykjanesbæ. Skoða sædýrasafnið í Höfn- un, Fræðasetrið í Sandgerði og fara í fjöruferð í nágrenni Sandgerðis með Reyni Sveins- syni. Skoða byggðasafn Suður- nesja í Reykjanesbæ, sjóminja- safnið í Garði og safn Slysa- varnafélags Íslands í Garði. Skoða vitana á Reykjanesi en þeir eru á Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd, Garð- skagaviti, Sandgerðisviti, Staf- nesviti, Reykjanesviti og Hóps- nesviti í Grindavík. Fara í jarðfræðiferð, skoða hvernig Reykjaneshryggurinn varð til og hvar plöturnar þrýstast í sundur, önnur til Evrópu og hin til Ameríku. Skoða stærstu gufuborholu í Evrópu og elddyngjurnar Háleyjarbungu og Skálafell. „Verði ykkur að góðu,“ sagði Kristján að lokum. Tíu ferðamatseðlar AFTURKIPPUR virðist kominn í áform vélsmiðjunnar Norma hf. í Garðabæ um að byggja iðnaðarhús- næði í Vogunum og flytja starfsem- ina þangað vegna þess að starfsleyfi fyrir slíka starfsemi er gefið út til fjögurra ára í senn. Vatnleysustrandarhreppur hefur skipulagt nýtt iðnaðarhverfi utan við Voga. Ráðist var í það nú vegna áforma Norma hf. sem rekur vél- smiðju og plastverksmiðju í Garðabæ að flytja starfsemi sína þangað. Hef- ur Normi fengið stærstu lóðina á svæðinu, hugðist reisa þar 2000 fer- metra hús í upphafi og flytja starf- semina um áramótin. Veikur grunnur til fjárfestingar Fyrirtækið er fjörutíu ára gamalt en Sævar Svavarsson framkvæmda- stjóri segir að fyrir tíu árum hafi það verið beðið um að sækja um starfs- leyfi vegna rekstursins í Garðabæ. Það hafi verið gert en síðan hafi ekk- ert heyrst frá heilbrigðiseftirlitinu. Fyrirtækið seldi landið og þar á nú að reisa umdeilt Bryggjuhverfi. Normi fékk lóð í Hafnarfirði og hugð- ist flytja starfsemina þangað. Þá fékk það starfsleyfi út á gömlu umsókn- ina, til fimm ára fyrir vélsmiðjuna og til tíu ára fyrir plastverksmiðjuna. Segist Sævar hafa verið óánægður með þetta og svo hafi komið upp önn- ur atriði, meðal annars varðandi lóð- ina, sem gerðu það að verkum að hann hafi viljað fara með fyrirtækið í Vogana enda verið tekið vel á móti þeim þar. Unnið hefur verið að teikningum og öðrum undirbúningi húsbygging- ar í Vogum. Minnugur afskipta heil- brigðiseftirlitsins hafi hann þó viljað kanna starfsleyfismálin og fengið þau svör hjá Heilbrigðiseftirliti Suð- urnesja að samkvæmt reglugerð yrði starfsleyfi ekki gefið út nema til fjög- urra ára. Það yrði síðan endurnýjað. „Mín reynsla af opinberum aðilum er hins vegar sú að ég treysti þessu ekki. Það gæti verið komin einhver óvild eftir fjögur ár og settar kröfur sem ekki væri hægt að uppfylla. Þessi starfsemi er algerlega meng- unarlaus. Ég hefði að sjálfsögðu ekk- ert á móti því að starfsleyfið yrði aft- urkallað ef við brytum af okkur. Það fer enginn út í 200 til 250 milljóna króna fjárfestingu á svona veikum grunni. Ég held að niðurstaðan hljóti að vera sú að við hættum við upp- byggingu og hættum jafnvel alveg rekstri,“ sagði Sævar. Hann vekur jafnframt athygli á því að stóriðjufyr- irtæki fengju starfsleyfi til mun lengri tíma. Samkvæmt reglugerð Magnús Guðjónsson, forstöðumað- ur Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, segir að umrædd starfsemi falli undir reglugerð um starfsleyfi fyrir at- vinnurekstur sem geti haft í för með sér mengun, en hún var gefin út í október árið 1999. Í umræddri reglu- gerð kemur fram að starfsleyfi skuli gefa út til tiltekins tíma og endur- skoða á fjögurra ára fresti. Magnús segir að stofnunin hafi eft- irlit með 600 fyrirtækjum og þau séu öll á fjögurra ára leyfi. Endurskoð- unin sé nauðsynleg til að hægt sé að taka tillit til breyttra aðstæðna, svo sem breyttra reglna, nýrra efna á markaði og hugsanlegra breytinga á rekstri fyrirtækanna. Vissulega geti kröfur til fyrirtækjanna verið hertar við endurskoðun starfsleyfa en ekki sé gripið til þess óyndisúrræðis að loka þeim nema í algerum undan- tekningartilvikum, þegar starfsemin ógni öryggi eða heilsu starfsfólks eða lífríkinu sé hætta búin. Afar sjald- gæft sé að grípa hafi þurft til slíkra úrræða. Óöryggi vegna fjögurra ára starfsleyfis Vogar Afturkippur í áform Norma í Vogum MYND júnímánaðar verður af- hjúpuð í Kjarna næstkomandi föstu- dag, 1. júní. Er það málverkið Nak- in strönd eftir Hermann Árnason. Nakin strönd er áttunda verkið í kynningarátaki Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanes- bæjar á myndlistarmönnum bæj- arins. Myndin verður til sýnis í Kjarna, Hafnargötu 57, allan mán- uðinn og fer síðan yfir á Hótel Keflavík og verður þar út júlímán- uð. Í fréttatilkynningu frá menn- ingarfulltrúa Reykjanesbæjar er vakin athygli á því að á síðarnefnda staðnum er enn hægt að sjá verk maímánaðar en það er eftir Ástu Árnadóttur. Listamaður júnímánaðar, Her- mann Árnason, er fæddur í Kefla- vík 5. maí 1960 og hefur búið þar meira og minna alla ævi. Hann er sjálfmenntaður í myndlist en hefur sótt námskeið víða, meðal annars á vegum Baðstofunnar á árunum 1980 til 1982. Hermann hefur hald- ið þrjár einkasýningar og tekið þátt í einni samsýningu. Hermann Árnason, myndlistarmaður júnímánaðar, við Nakta strönd. Nakin strönd er mynd júnímánaðar Reykjanesbær
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.