Morgunblaðið - 31.05.2001, Side 22
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÓNLISTARHÓPAR í Snæfellsbæ
tóku sig til og héldu sameiginlega
tónleika fyrir skömmu í Röst á Hell-
issandi. Flest lögin og textarnir sem
hóparnir fluttu voru frumsamin af
einhverjum úr hljómsveitunum eða
þeim nákomnum.
Fyrst kom á svið Ólína Gunn-
laugsdóttir frá Hellnum og söng lög
með textum sem hún hefur sjálf
samið. Aðstoðarmenn hennar voru
fjórir í baksöng og undirleik. Þá
tóku við fimm vaskir menn úr Stað-
arsveit undir hljómsveitarnafninu
Hundslappadrífa og spiluðu og
sungu af hjartans lyst. Næstir komu
Siggi Hösk og Steini K. frá Ólafsvík
og sungu og spiluðu lög eftir Sigga.
Að lokum lék hljómsveitin BÍT á
Hellissandi, þau fluttu að mestu lög
eftir stjórnandann Þorkel Cýrusson.
Söngvari hljómsveitarinnar er Sig-
urbjörg Hilmarsdóttir.
Hljómleikarnir voru ágætlega
sóttir og undirtektir gesta mjög
góðar. Að lokum lét svo tónlistar-
fólkið undan óskum áheyrenda og
fór allt á sviðið og lék þar og söng í
um það bil klukkustund við mikinn
fögnuð.
Fluttu frumsamin
lög og texta
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Ólína Gunnlaugsdóttir og félagar fluttu lög með textum eftir hana sjálfa.
Hellissandur
FRAMHALDSSKÓLANUM á
Laugum sleit Valgerður Gunnars-
dóttir skólameistari síðastliðinn laug-
ardag og lauk þar með þrettánda
starfsári skólans. Útskrifaðir voru 12
stúdentar og þar af voru þrír úr Ár-
neshreppi á Ströndum, munu það
vera 5% íbúa hreppsins.
Í vetur voru tæplega 100 nemendur
í skólunum og þrátt fyrir kennara-
verkfallið luku þeir flestir tilskildum
prófum að vori. Nemendur eldri ár-
ganga skólans fjölmenntu við skóla-
slitin og fluttu ávörp og færðu gjafir.
Þar á meðal fyrsta orgelið sem kom í
skólann nýuppgert og hljómaði vel.
Við athöfina fluttu nemendur og fleiri
ýmis hljómlistaratriði.
Nemendur skólans tóku þátt í leik-
sýningum Umf. Eflingar og vöktu þar
margir mikla eftirtekt en sýnd voru
fleiri en eitt leikverk, við mjög góða
aðsókn og dóma.
Morgunblaðið/Silli
Útskriftarnemendur Framhaldsskólans á Laugum ásamt skólameistaranum Valgerði Gunnarsdóttur.
Stúdentar
frá
Laugum
Laugar
ÞÓTT hægt gangi
við lagfæringu
göngustíga í þjóð-
garðinum í Skafta-
felli þokast samt
stundum aðeins.
Þessir menn voru að
gera nýja göngubrú
og laga aðra á
gönguleið um Mors-
árdal þegar tíð-
indamaður Morg-
unblaðsins rakst á þá
um daginn.Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Ný
göngu-
brú
Fagurhólsmýri
MIKILL fögnuður greip um sig
hjá krökkunum í áttunda bekk í
Höfðaskóla á Skagaströnd þegar
þeim var tilkynnt að þau hefðu
unnið ferð til Danmerkur ásamt
sjöunda og áttunda bekk grunn-
skólans á Hólum í Hjaltadal í sam-
keppni á vegum Krabbameins-
félags Reykjavíkur og Tóbaks-
varnarnefndar. Hér var um
Evrópusamkeppni meðal reyk-
lausra 7. og 8. bekkja að ræða og
tóku yfir 300 bekkir á landinu
þátt í keppninni, sem stóð yfir í
allan vetur.
Keppnin fólst í því að senda inn
tillögur að fræðsluefni um skað-
semi tóbaks, auglýsingum eða
öðrum áróðri gegn tóbaksnotkun,
auk þess að sjálfsögðu að snerta
ekki tóbak sjálf. Að sögn skipu-
leggjenda keppninnar bárust þeim
margar góðar tillögur og hlutu
margir aðrir bekkir smærri verð-
laun. Framlag Hólaskóla til
keppninnar var Reykingaspilið og
geisladiskur með lagi.
Ráku áróður gegn reykingum
Krakkarnir úr Höfðaskóla
sendu þrjú tölublöð af tóbaksvarn-
aráróðri heim í hvert hús í byggð-
arlaginu, unnu tóbaksvarnar-
plaköt og hengdu upp á fjölförn-
um stöðum og bjuggu til sniðugan
skúlptúr, „reykingar = brenna
peninga“, sem þau komu fyrir í
matvöruverslun staðarins. Einnig
ráku þau áróður gegn reykingum
við skólasystkini sín. Svo fór að
lokum að þessir tveir bekkir hlutu
jafnmörg stig hjá dómnefnd, sem
fór yfir tillögurnar, og var því
ákveðið að bekkirnir skyldu báðir
hljóta fyrsta vinning. Vinning-
urinn er fólginn í fjögurra daga
ferð í Laliland á Lálandi nú í byrj-
un júní. Laliland er stór skemmti-
garður með alls konar leik-
tækjum, ekki síst vatnsleik-
tækjum, og er sannarlega
draumastaður fyrir krakka á
þessum aldri. Þaðan er einnig
stutt í næsta dýragarð og annars
konar afþreyingu. Einn kennari
mun fara með frá hvorum skóla
ásamt fulltrúa skipuleggjenda
keppninnar.
Unnu ferð
til Dan-
merkur
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Sigursælir krakkar úr 8. bekk Höfðaskóla bíða nú óþreyjufullir eftir að
komast til Danmerkur að skemmta sér.
Skagaströnd
Að sögn skólastjórans, Elínborgar
Sigurgeirsdóttur, er gróska í starf-
semi skólans. Kennarar auk hennar
eru sex og er kennt á strengja-,
blásturs- og slagverkshljóðfæri,
píanó og gítar auk söngs. Í fyrstu
þremur bekkjum grunnskólans er
kenndur blokkflautuleikur. Nem-
endur sem luku stigi í vor eru tutt-
ugu, á 1. til 5. stigi. Tveir af kenn-
urum skólans hafa jafnframt
kennslu stundað tónlistarnám í
Reykjavík og er það vel, þar sem við-
horf til menntunar tónlistarkennara
á nokkuð erfitt uppdráttar.
TÓNLISTARSKÓLI V-Hún. hélt
þrenna tónleika nú á vordögum. Um
eitt hundrað manns eru skráðir sem
nemendur í skólann og er það hátt
hlutfall af íbúum héraðsins, sem eru
á þrettánda hundrað.
Skólinn starfar á Hvammstanga,
Laugarbakka og á Reykjum í Hrúta-
firði og voru tónleikarnir á öllum
kennslustöðunum. Fram komu 82
flytjendur á þessum tónleikum.
Nokkrir nemendur sækja skólann úr
Bæjarhreppi, vestan Hrútafjarðar.
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Blásarasveit Tónlistarskóla V-Hún. ásamt stjórnanda sínum, Jan Michelski.
Vortónleikar
Tónlistarskólans
Hvammstangi