Morgunblaðið - 31.05.2001, Qupperneq 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 23
FÓLK lét úrhellisrigningu og rok
ekki á sig fá þegar nýtt upplýs-
ingaskilti var afhjúpað við Söng-
helli á Jökulhálsi í sunnanverðum
Snæfellsbæ fyrr í mánuðinum.
Það voru þeir Árni Johnsen þing-
maður og formaður samgöngu-
nefndar Alþingis og Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra sem í
sameiningu afhjúpuðu skiltið.
Samgönguráðherra sagði við það
tækifæri að það væri mikilvægt
fyrir ferðaþjónustuna að ferða-
mannastaðir væru vel merktir og
gæfu haldgóðar upplýsingar. Því
fagnaði hann þessu framtaki
heimamanna, en Ferðaþjónustan
Snjófell á Arnarstapa og Ferða-
skrifstofa Leiðarljóss á Hellnum
létu útbúa skiltið, sem Ferða-
málaráð Íslands veitti styrk til.
Fyrirtækin stóðu að þessari
framkvæmd vegna þess hversu
illa ferðamönnum hefur gengið að
finna Sönghelli. Vegagerðin að-
stoðaði við uppsetningu skiltisins
og Snæfellsbær sá um snyrtingu í
kringum hellinn.
Árni Johnsen sagði að svo
skemmtilega hefði viljað til að
hann var þarna á ferð á síðasta
ári og hefði þá komið í hellinn og
sungið þar. Jafnframt hefði hann
heyrt af framtaki heimamanna og
stungið upp á söng í tengslum við
afhjúpun skiltisins.
Eftir athöfn við nýja skiltið var
haldið í Sönghelli sjálfan. Þar
komu þeir sér fyrir Grettir
Björnsson harmonikkuleikari og
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
tenórsöngvari og eins margir
gestir og hellirinn rúmaði. Þegar
einhver sagði að áreiðanlega
hefðu sjaldan jafnmargir verið í
hellinum í einu sagði Jóhann Frið-
geir í léttum dúr það ekkert undr-
unarefni, því hann syngi alltaf
fyrir fullu húsi. Mikil hvelfing er í
hellinum og hljómburður því afar
góður og tenórinn söng hvert lag-
ið á fætur öðru við gífurlegan
fögnuð viðstaddra. Hann endaði
dagskrá sína á því að syngja
Hamraborgina og ætlaði lófataki
aldrei að linna eftir söng hans.
En þótt dagskrá Jóhanns Frið-
geirs og Grettis væri lokið var
söngnum ekki lokið. Formaður
samgöngunefndar og ráðherrann
drógu fram gítarana og spiluðu,
ásamt Gretti, undir fjöldasöng
sem Árni leiddi og óhætt er að
segja að veggirnir hafi talað
dvergmáli meðan sá söngur
hljómaði. Að athöfn lokinni var
Árna og Sturlu, ásamt fylgdarliði,
boðið að skoða ferðaþjónustufyr-
irtæki á Hellnum og Arnarstapa
og síðan beið þeirra kaffihlaðborð
á Snjófelli.
Ferðamannastaðir í Snæfellsbæ
Sönghellir er
kominn á kortið
Hellnar/Snæfellsbær
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Árni Johnsen, þingmaður og formaður samgöngunefndar Alþingis, og
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhjúpa skiltið í sameiningu.
Tenórinn Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson söng fyrir fullu húsi.
Árni Johnsen þingmaður og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
tóku lagið saman.
FORELDRAFÉLAG Borgarhóls-
skóla stóð fyrir fjölskyldudegi við
skólann fyrir skömmu, þetta hefur
verið árviss samkoma frá því félagið
var stofnað. Þarna var farið í leiki,
boðið upp á andlitsmálningu o.fl.
ásamt ýmsum veitingum, m.a. grill-
uðu foreldrar pylsur. Félagar úr
Kiwanisklúbbnum Skjálfanda komu
að venju og færðu öllum börnum í
fyrsta bekk reiðhjólahjálma og flögg
á hjólin að gjöf.
Lögreglan mætti á svæðið en Að-
alsteinn Júlíusson lögreglumaður
sýndi börnunum hjálm sem ungur
reiðhjólamaður var með á höfði fyrir
skömmu er hann lenti á ljósastaur.
Sagði Aðalsteinn að þakka mætti
hjálminum að ekki fór verr í því til-
viki sem og mörgum öðrum. Börnin
tóku öll undir það þegar lögreglan
brýndi fyrir þeim að hafa alltaf
hjálma við hjólreiðar, á hjólaskaut-
um og þess háttar leiktækjum. Þá
var brýnt fyrir foreldrum að halda
vöku sinni í þessum efnum.
Því næst buðu lögreglumenirnir
börnunum í fyrsta bekk í reiptog og
eftir harða baráttu höfðu börnin bet-
ur og lögreglan lá í valnum. Að þessu
loknu fór fram reiðhjólaskoðun.
Höfðu lögreglumennirnir í nógu að
snúast því biðraðir mynduðust á
skólaplaninu. Allir vildu fá skoðun á
hjólin sín og helst af öllu miða líka
sem sýndi að allt væri í stakasta lagi.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Krakkarnir í fyrsta bekk lögðu lögregluna að velli í reiptogi.
Kiwanismenn gáfu reiðhjólahjálma og flögg
Lögreglan skoðaði
reiðhjól barnanna
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Aðalsteinn Júlíusson sýnir
hjálminn, Hreiðar Hreiðarsson
og Brynjúlfur Sigurðsson fylgj-
ast með.
UM helgina var haldinn stofnfundur
Samfylkingarfélags Snæfellsness.
Félaginu er ætlað að auka samvinnu
samfylkingarmanna á Snæfellsnesi
bæði í þjóðmálum og sveitarstjórn-
armálum. Karl Jóhann Jónhannsson
frá Grundarfirði var kjörinn formað-
ur en stjórnarmenn eru níu og eru
frá öllum byggðarlögum á Nesinu.
Að loknum aðalfundarstörfum voru
almennar umræður og varð mönnum
tíðrætt um jarðhitamál á Nesinu og
töldu brýnt að finna þann jarðhita
sem þar er að hafa og virkja hann.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Karl Jóhann Jóhannsson,
formaður.
Samfylk-
ingarfélag
Snæfells-
ness stofnað
Grundarfjörður