Morgunblaðið - 31.05.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 31.05.2001, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VERKFALLIÐ, sem hófstá miðnætti í gær, nær tilheilsugæslustöðva ogsjúkrahúsa um allt land og eru áhrif þess veruleg. Þurft hef- ur að senda sjúklinga heim af Land- spítalanum – háskólasjúkrahúsi þar sem 254 sjúkrarýmum hefur verið lokað. Dag- og göngudeildastarf- semi hefur að mestu leyti legið niðri, en ellefu deildum hefur verið lokað vegna verkfallsins, þar á með- al fjórum á skurðlækningasviði og tveimur á lyflækningasviði. Einnig hefur starfsemin verið skert á Greinsásdeild, barna-, öldrunar- og geðdeildum svo dæmi séu tekin. Rúmlega 1.800 hjúkrunarfræðingar eru í verkfalli, en Herdís Sveins- dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir erfitt að segja til um hversu margir hjúkr- unarfræðingar hafi lagt niður störf, þar sem vinnuskýrslur hafi enn ekki borist frá sjúkrahúsunum, en ákveðinn fjöldi starfsmanna sinnir bráðaþjónustu. 1.140 hjúkrunar- fræðingar starfa á Landspítalan- um, en aðeins 350 þeirra eru í verk- falli. Anna Stefánsdóttir, hjúkr- unarforstjóri Landspítala – há- skólasjúkrahúss, segir að aðeins bráðaskurðaðgerðir séu gerðar og að allt sem megi bíða, sé látið bíða. Allri bráðamóttöku er sinnt, bæði á Hringbraut og í Fossvogi. Verulega dregur úr heimahjúkrun Á heilsugæslustöðvunum er þjónusta takmörkuð og liggja ung- barnaeftirlit og mæðraskoðun niðri verkfallsdagana og hefur verið dregið verulega úr heimahjúkrun. Guðmundur Einarsson, forstjóri heilsugæslunnar í Reykjavík og ná- grenni, segir að rúmlega 150 hjúkr- unarfræðingar starfi á vegum heilsugæslunnar og að meirihluti þeirra sinni heimahjúkrun. Hann segir þetta bagalegt fyrir marga skjólstæðinga heimahjúkrunarinn- ar, en að ástandið verði ekki svo al- varlegt að neyðarástand skapist á svo stuttum tíma. Áhrifa verkfallsins mun þó víða gæta mikið lengur en þá tvo sólar- hringa sem það stendur. Anna segir að viku áður en verkfallið skall á hafi verið byrjað að undirbúa það með því að senda sjúklinga heim, fækka aðgerðum og flytja sjúklinga sem ekki gátu farið heim milli deilda. Hún segir að alls hafi 400 að- gerðum verið frestað og að biðlistar eftir aðgerðum ættu því að lengjast í verkfallinu. Anna segir það slæmt þar sem færri aðgerðir séu gerðar á sumrin. Svo tekur einnig tíma að koma starfseminni aftur í gang að verkfalli loknu. Anna telur að í fyrsta lagi um miðja næstu viku verði starfsemin komin í fyrra horf. Fjöldi undanþágna hefur verið afgreiddur Heilbrigðisstofnanir geta sótt um undanþágu frá verkfalli fyrir ákveðna hjúkrunarfræðinga. Tveggja manna undan- þágunefnd starfar á vegum Félags hjúkrunarfræðinga og hafa rúmlega hundrað umsóknir borist frá heil- brigðisstofnunum um allt land og hefur meirihluti þeirra verið samþykktur. Anna segir að Landspítal- inn hafi sótt um undanþágu fyrir 80 hjúkrunarfræðinga og að sviðstjórar á hjúkr- unarsviði fundi reglulega um ástandið og skoði á hvaða deildum þurfi að biðja um undanþágu. Anna segir samstarf spítalans við verkfallsstjórnun Félags hjúkrunarfræðinga hafa verið mjög gott. „Ætlunin með verkfallinu er ekki að lama allt starf sem er unnið á sjúkrahúsunum,“ segir Herdís. „Tilgangur þess er að koma af stað umræðu um kjör hjúkrunarfræðinga og sýna samn- inganefnd ríkisins að hjúkrunar- fræðingar eru ekki tilbúnir að detta niður í launum.“ Í dag hafa samn- ingar hjúkrunarfræðinga verið lausir í sjö mánuði og segir Herdís samningaferlið hafa gengið mjög treglega. Síðasti samningafundur í deilunni var á þriðjudag og verður næsti fundur ekki fyrr en að verk- falli loknu, á morgun, föstudag. Öflug verkfallsvarsla hefur verið um allt land frá því verkfallið hófst, að sögn Herdísar. „Við erum búin að fá nokkrar tilkynningar um verkfallsbrot sem hafa ver uð. Það er bara á einum s ekki hefur náð saman. Á ungssjúkrahúsinu á Akure ur starfsmannastjóri hj þrátt fyrir verkfallið. Hann á neyðarlistunum og við hö að eftir því að sótt verði anþágu fyrir hann. En kvæmdastjóri FSA vill ek um undanþágu og hefu ákveðið að starfsmannastjó að vinna, þrátt fyrir verkfa hún og bætir við að brot kært. Áður en verkfallið hó tekin ljósrit af vinnuskýrsl um deildum og er bannað a vaktaskýrslum. Herdís s ekki megi t.d. kalla út ljósm Síðari dagur tveggja sólarhringa verkfalls h Starfsemin víða Um 400 skurðaðgerðum hefur verið að og 11 deildum verið lokað á La spítalanum vegna verkfalls hjúkru fræðinga. Verkfallsréttur þeirra takmarkaður og er bráðaþjónustu haldið úti eins og Nína Björk Jónsd komst að þegar hún leit inn á brá móttökuna í Fossvoginum. Verkfallsstjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á fundi í gær. Öflugri verkfallsgæslu er haldið Morgunblað Lilja Rós Einarsdóttir, hjúkruna ingur á Landspítalanum í Fo stendur vaktina í verkfallinu. H að setja gifs á Kristján Pétur Ma son, 11 ára, sem datt á hlaupahjó ar Morgunblaðið bar að garði í ÞÝÐINGAR GEGN MENNINGAR- LEGRI EINSLEITNI ÁGREININGUR UM ELDFLAUGAVARNIR Eldflaugavarnaáætlun Banda-ríkjamanna er umdeild ogtókst Colin Powell, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, ekki að sann- færa utanríkisráðherra annarra Atl- antshafsbandalagsríkja um ágæti hennar þegar þeir hittust í Búdapest á þriðjudag. Hugmyndin um varnir gegn kjarn- orkuflaugum er ekki ný af nálinni. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti lagði fram geimvarnaáætlun á níunda áratugnum. Bill Clinton var með eld- flaugavarnir á dagskrá og nú hefur George Bush hleypt auknum þunga í málið. Um það ríkir hins vegar ekki eining og var haft eftir embættismönn- um í gær að á fundinum með Powell hefðu Frakkar og Þjóðverjar hreyft mestum mótbárum. Bandaríkjamenn vísa til þess að stöðugt verði auðveldara að smíða kjarnorkuvopn og hætta stafi af utangarðsríkjum á borð við Írak, Íran og Norður-Kóreu. Eldflaugavörnum myndi fylgja ákveðinn fælingarmátt- ur. Á móti má benda á það að kjarnorku- vopnum þarf ekki endilega að koma fyrir í flaugum. Það væri rétt eins hægt að smygla þeim í ferðatöskum og setja saman og sprengja í bandarískri stórborg miðri án þess að hægt yrði að koma við eldflaugavörnum. Banda- ríkjamenn hafa svarað því til að það sé annað mál, í það minnsta yrði búið að gera hættuna af kjarnorkuflaugaárás að engu. Á fundinum í Búdapest náðist ekki samstaða um að setja orðin „sameigin- leg ógnun“ í lokayfirlýsinguna. Powell gerði hins vegar lítið úr ágreiningnum á blaðamannafundi og kvaðst geta sagt með vissu að menn gerðu sér grein fyr- ir að ógnin væri fyrir hendi, væru bara ekki sammála um hversu mikil eða bráð hún væri. Síðan bætti hann við: „Það væri ábyrgðarleysi af Banda- ríkjamönnum, sem þjóð með getuna til að gera eitthvað vegna slíkrar ógnun- ar, að gera ekki neitt.“ Í framhaldi af því mætti spyrja hvers vegna Bandaríkjamenn ættu ekki að koma sér upp eldflaugavörnum fyrst þeir hafa efni á því og þetta eru þeirra peningar. Málið er ekki hins vegar ekki svo einfalt og setur þar gagneldflaugasátt- málinn frá 1972 strik í reikninginn. Þar er um að ræða milliríkjasamning, sem staðfestur hefur verið á Bandaríkja- þingi. Það yrði álitshnekkir fyrir Bandaríkjamenn að rifta slíkum samn- ingi einhliða og þeim hefur ekki tekist að sýna Rússum fram á að rétt sé að leggja hann til hliðar. Rússar vilja koma í veg fyrir það að eldflaugavarnir Bandaríkjamanna verði svo öflugar að þeirra kjarnorkuvopn verði gagnslaus og missi fælingarmátt sinn. Þetta er ein ástæðan fyrir því að ýmsir óttast að eldflaugavarnaáætlun- in gæti orðið til þess að auka óstöð- ugleika í heiminum. Eldflaugavarnaáætlunin virðist hins vegar vera að fá mótbyr á nýjum víg- stöðvum. Á meðan Powell var að reyna að sannfæra starfsbræður sína í NATO hafa myndast blikur á lofti heima fyrir. Demókratar eru nú að sækja í sig veðr- ið eftir að hafa náð völdum í öldunga- deildinni og eru nú farnir að gefa til kynna að ekki sé hægt að verja þann fjáraustur, sem eldflaugavarnaáætlun- in myndi leiða af sér. Stjórn Bush þarf því ekki aðeins að sannfæra umheim- inn um ágæti eldflaugavarna, hún á líka eftir að tryggja sér fjármagnið. Því mætti halda fram að þýðingarhafi aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Yfirgnæfandi áhrif engil- saxneskrar tungu og menningar hafa leitt til menningarlegrar einsleitni í hinum vestræna heimi og þótt víðar væri leitað. Portúgalski rithöfundurinn Rui Zink kvað svo sterkt að orði á málþingi um þýðingar í Prag fyrir skömmu að við værum öll Ameríkanar. Þótt það sé of- hermi leyndist sannleikskorn í orðum Zinks sem benti á að við töluðum öll ensku og hefðum öll séð fleiri kvik- myndir um amerískan veruleika en okkar eigin. Hann hefði til dæmis ekki séð kvikmynd um portúgölsku ný- lendustríðin en hann hefði séð fjöl- margar myndir um Víetnamstríðið. „Samt stóðu nýlendustríðin mun leng- ur en stríðið í Víetnam,“ bætti Zink við. Öflugt þýðingastarf er ein leið til þess að vinna gegn einsleitninni. Þýð- ingar eru beinlínis tæki til þess að vernda bókmenntir í heimi sem virðist verða einsleitari með degi hverjum þar sem þær skapa samræðu milli ólíkra menningarheima, eins og talað var um á áðurnefndu málþingi. Í þeim sam- ræðum gegna lítil málsvæði ekki minna hlutverki en hin stærri, öll sjón- arhornin eru jafngild. Staða lítilla og í sumum tilfellum af- skekktra málsvæða er hins vegar erfið. Þrátt fyrir góðan vilja er ekki hlaupið að því að fá bókmenntir þeirra þýddar á margmennistungur. Á það raunar sérstaklega við um ensku en hvorki Bretar né Bandaríkjamenn eru sérlega áhugasamir um erlendar bókmenntir. Aðeins tæp 3% útgefinna bóka í Eng- landi eru þýðingar svo dæmi sé nefnt. Að sama skapi bera litlir markaðir ekki útgáfu þýðinga á erlendum bókmennt- um jafnvel og hinir stóru. Þýðingum erlendra bókmennta á fámennistungur eru því líka skorður settar. Hérlendis hefur mikið starf verið unnið með þýðingum á erlendum bók- menntum á síðustu áratugum. Mörg af öndvegisverkum heimsbókmenntanna hafa verið færð í íslenskan búning. Þetta starf hefur tvímælalaust eflt ís- lenskar bókmenntir og sannað gildi sitt. Sömuleiðis hefur verið unnið að því að auka útflutning á íslenskum bók- menntum, bæði með öflugu starfi ein- stakra forlaga og eflingu Bókmennta- kynningarsjóðs. Ein af niðurstöðum málþingsins í Prag var sú að mikilvægi þessa starfs sé augljóst en til þess að halda því úti á árangursríkan hátt þyrfti meðal ann- ars að efla samstarf milli málsvæða, efla kennslu á tungum lítilla málsvæða erlendis, að markvisst þyrfti að auka áhuga lesenda á þýðingum og varast að þröngir hagsmunir eða þröng sjónar- horn réðu því hvað væri þýtt og hvað ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.