Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 59
FYRSTA skógarganga sumarsins,
í röð níu gangna á vegum skóg-
ræktarfélaganna, verður í kvöld,
fimmtudaginn 31. maí.
Skógargöngurnar eru skipu-
lagðar í samvinnu við Ferðafélag
Íslands og Búnaðarbanka Íslands.
Gangan er í umsjón Skógræktar-
félags Suðurnesja. Göngufólk
kemur saman við nýmörk félags-
ins við Rósaselsvötn og hefst gang-
an kl. 20.30. Eftir að hafa skoðað
ungskóginn við Rósaselsvötn verð-
ur farið að Vatnsholti. Þar fá þátt-
takendur hressingu í skjóli skóg-
arins. Leiðsögumaður verður
Halldór Magnússon, formaður
Skógræktarfélags Suðurnesja.
Þátttakendur af höfuðborg-
arsvæðinu eru hvattir til þess að
vera vistvænir í verki og fjöl-
menna í rútuferð sem leggur upp
frá húsi Ferðafélags Íslands,
Mörkinni 6, kl. 19.45 stundvíslega.
Gjald fyrir rútuferð verður kr.
1000. Fyrir þá sem fara á eigin
fararskjótum skal upplýst að þeg-
ar komið er að hringtorgi austan
flugstöðvar er sveigt til hægri út
úr hringtorginu og blasir þá skilti
Skógræktarfélags Suðurnesja við
skammt frá hringtorginu. Skorað
er á Suðurnesjabúa að slást í för
með skógargönguhópnum.“
Níu skógargöngur ráðgerðar í sumar
Fyrsta skógarganga sumarsins: Suðurnes–Háibjalli. Fyrsta skógar-
ganga sumarsins, í röð níu gangna á vegum skógræktarfélaganna, verð-
ur í kvöld, fimmtudaginn 31. maí.
Suðurnes –
Háibjalli
Ranglega farið
með nafn
Ranglega var farið með nafn
Bjarna Bjarnasonar, fulltrúa
forstjóra Olíufélagsins hf., í
Morgunblaðinu í gær. Eru
hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Fólk frá RKÍ
lék slasaða
Á slysaæfingu á Hafravatns-
vegi á þriðjudag lék fólk frá
Rauða krossi Íslands slasaða,
en ekki Landsbjörg eins og
sagði í frétt um æfinguna. Beð-
ist er velvirðingar á mistökun-
um.
LEIÐRÉTT
HEIMSÞORP – Samtök gegn kyn-
þáttafordómum á Íslandi hafa sent
frá sér ályktun þar sem fagnað er að-
gerðum ríkissaksóknara gegn þeim
er hafa uppi meiðandi ummæli um
útlendinga á Íslandi.
„Uppörvandi er að vita til þess að
ríkissaksóknari hefur vakandi auga
fyrir slíkum árásum gegn innflytj-
endum í fjölmiðlum. Þetta leggur
áherslu á þann boðskap Heimsþorps
að kynþáttafordómar séu ekki skoð-
un heldur ólöglegt og siðlaust at-
hæfi. Megi málaferlin, sem í hönd
fara, verða til þess að opna augu al-
mennings fyrir því að hver sá sem
lætur meiðandi athugasemd um aðra
manneskju frá sér fara, eingöngu
vegna þjóðernis eða litarháttar
hennar, veldur henni skaða og hefur
því gerst sekur um glæp,“ segir í
ályktuninni.
Fagna aðgerð-
um gegn kyn-
þáttafordómum
FRÆÐSLUNET Suðurlands efnir
til námstefnu, í samvinnu við Félag
raforkubænda o.fl., um uppbyggingu
og rekstur smávirkjana í sveitum
föstudaginn 15. júní kl. 10–16.
Námstefnan verður haldin að
Austurvegi 56 á Selfossi.
Á námstefnu um hliðstætt efni
sem haldin var á Kirkjubæjar-
klaustri sl. vor var ákveðið að koma
saman að ári þegar fyrir lægi frum-
varp til nýrra raforkulaga og fara þá
ítarlega yfir málið. Nú er frumvarpið
komið fram og um leið tími á nýjan
fund.
Á námstefnunni munu Hjálmar
Árnason, formaður iðnaðarnefndar
Alþingis, ásamt fulltrúa iðnaðar-
ráðuneytisins fjalla um frumvarpið
og áhrif þess á raforkubúskap lands-
manna, þ.m.t. á væntanlegan rekstur
smávirkjana.
Einar Pálsson atvinnuráðgjafi
mun fjalla um ýmsar fjárhagslegar
og skipulagslegar forsendur, Elliði
Hreinsson framkvæmdastjóri fjallar
um tæknilegu hliðina og segir frá
hliðstæðum verkefnum sem Íslands-
virkjun er að fást við erlendis, Krist-
inn Einarsson vatnafræðingur
fjallar um áætlun rennslis til smá-
virkjana, fulltrúi RARIK mun fjalla
um áhrif smávirkjana á arðsemi
dreifikerfis og Ólafur Eggertsson,
raforkubóndi og formaður Félags
raforkubænda, segir frá sinni
reynslu. Í lokin eru svo pallborðs-
umræður.
Námstefnunni lýkur svo með aðal-
fundi Félags raforkubænda um kl.
19.00 um kvöldið.
Námstefna
um uppbygg-
ingu og rekstur
smávirkjana
13 NEMENDUR voru útskrifaðir frá
Stóriðjuskóla ISAL þann 22. maí. Þetta
er í fjórða skipti sem stóriðjugreinar
eru útskrifaðir frá skólanum og alls
hafa 59 starfsmenn ISAL lokið námi við
Stóriðjuskólann. Að þessu sinni fengu
þrír nemendur viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur. Jón Friðrik Jóns-
son var skóladúx með aðaleinkunnina
9,33 og semi-dúx var Jóhann Bragi
Hermannsson með aðaleinkunnina
8,76. Þriðju viðurkenninguna fékk
Hörður Gestsson með aðaleinkunnina
8,48. Þá fengu þrír nemendur sérstaka
viðurkenningu fyrir 100% mætingu á
námstímanum, þeir Guðsteinn Elvar
Helgason, Jón Friðrik Jónsson og Stef-
án H. Finnbogason.
Útskrift í Stór-
iðjuskólanum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SUMARSTARFSEMI Árbæjar-
safns hefst föstudaginn 1. júní.
Gömlu húsin verða opnuð á nýjan
leik, leiðsögumennirnir klæðast
búningum sínum og handverksfólk-
ið tekur til við störf sín. Dagskráin
í sumar er fjölbreytt, sérstakir við-
burðir verða alla sunnudaga og
tónleikar á laugardögum.
Einnig hefur Möguleikhúsið
gengið til samstarfs við safnið og
verða því leiksýningar tvo sunnu-
daga í sumar. Mikil áhersla verður
lögð á skemmtilegt barnastarf,
bæði fyrir hópa og einstaklinga, og
ekki má gleyma húsdýrunum á
svæðinu sem gleðja gesti.
„Opnunardaginn, þann 1. júní,
verður sérstök opnunarathöfn
klukkan 15. Þá verður ný heima-
síða safnsins opnuð en heimasíðan
var unnin í samvinnu við strik.is.
Nýjar sýningar verða opnaðar í
Efstabæ og Hábæ og eldri sýn-
ingar hafa verið endurbættar. Nýtt
Listmunahorn verður opnað inn af
Krambúðinni og í húsinu Líkn hef-
ur fræðslustofa safnsins verið end-
urbætt. Þar er að finna upplýs-
ingar um húsin í safninu og
starfsemi safnsins. Þar er því upp-
lagt fyrir gesti að byrja heimsókn-
ina í safnið. Við minnum einnig á
kjarnasýningu safnsins: Saga
Reykjavíkur – frá býli til borgar
en þar er rakin saga höfuðborg-
arinnar frá landnámi til nútímans.
Í Dillonshúsi verður boðið upp á
ljúffengar og þjóðlegar veitingar,
heitt súkkulaði með rjóma, pönnu-
kökur, flatkökur og fleira góð-
meti.“
Árbæjarsafn verður opið í sumar
sem hér segir: laugardaga og
sunnudaga frá kl.10–18 og þriðju-
daga til föstudaga frá kl. 9–17. Á
mánudögum verður Árbærinn op-
inn frá kl. 11–16. Aðgangseyrir er
krónur 500 fyrir fullorðna. Ókeypis
er fyrir börn að 18 ára aldri og elli-
lífeyrisþega.
Sumarstarf
Árbæjarsafns
að hefjast
SAMTÖK iðnaðarins (SI), fyrir hönd
starfsgreinahóps SI í prenti, og
Samband íslenskra auglýsingastofa
(SÍA) hafa sent menntamálaráðherra
sameiginlegt bréf þar sem farið er
fram á að reglugerð um innheimtu
höfundargjalda verði felld úr gildi.
Í bréfinu kemur m.a. fram að SI og
SÍA telja að hér sé um hættulegt for-
dæmi að ræða og engin ástæða til að
ætla annað en að aðrir sigli í kjölfarið
og fari fram á skatt af þessu tagi. Þar
segir enn fremur að reglugerðin sé
tímaskekkja og geri fyrir fram ráð
fyrir að menn misnoti þá vöru sem
þeir kaupa og hún sé í hróplegu ósam-
ræmi við yfirlýsta stefnu ríkisstjórn-
arinnar um að lækka skatta á fyrir-
tæki. Engin skynsemi virðist í því að
taka þennan vöruflokk út sérstaklega
og skattleggja vegna hugsanlegrar
misnotkunar. Bent er á að gjaldið
komi einkum við fyrirtæki í prent- og
grafískum iðnaði með þrennum hætti;
vegna álagningar gjalds á geisladiska,
segulbönd og geislabrennara. Þessi
aðföng eru nauðsynlegur hluti af
starfsemi fyrirtækjanna en fram-
leiðslu þeirra er í flestum tilvikum
komið til viðskiptavina með því að
nota geislabrennara til að skrifa efnið
á geisladiska. Þá eru afrit varðveitt á
segulböndum og geisladiskum.
Einnig kemur fram í bréfinu að ár-
leg gjaldtaka vegna reglugerðarinnar
geti numið tugum milljóna króna á
greinar eins og prent, auglýsingagerð
og hugbúnað sem hljóti að teljast
framlag þessara greina til tónlistar-
og kvikmyndaiðnaðarins.
SI og SÍA mótmæla sameiginlega
innheimtu höfundargjalda
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Íbúðalána-
sjóði vegna fréttar í blaðinu í gær um
breyttar reglur um húsbréfavið-
skipti:
„Útlánaaukning Íbúðalánasjóðs er
áætluð 1,5 til 1,8 milljarðar á árinu
2001 vegna fyrirhugaðrar hækkunar
á hámarksfjárhæðum húsbréfalána.
Endurskoðuð áætlun gerir ráð fyrir
útlánaaukningu um 2,5 til 3,0 millj-
arða á ársgrundvelli, en ekki 4 millj-
arða eins og fram kom í viðtali við
framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs í
Morgunblaðinu í gær.
Hins vegar hefði útlánaaukning á
ársgrundvelli orðið 3,5 til 4 milljarð-
ar ef breytingar hefðu einnig verið
gerðar á viðmiðun við brunabótamat
eins og stjórn Íbúðalánasjóðs lagði
til. Vegna andstöðu Seðlabankans
varð ekki úr að slík breyting yrði
gerð.
Undirstrika ber að ekki er um að
ræða útgjöld Íbúðalánasjóðs eins og
skilja má á fyrirsögn Morgunblaðs-
ins, heldur er um útlán að ræða.
Breytingar á hámarksfjárhæð hús-
bréfa mun engin áhrif hafa á útgjöld
Íbúðalánasjóðs, en að líkindum
munu tekjur hans aukast lítillega
vegna þeirra.
Þá ber að leiðrétta misskilning
sem borið hefur á varðandi breyting-
ar á ákvæðum um endurkaup íbúða.
Fram til þessa hafa seljendur
íbúða ekki getað keypt sömu íbúð
aftur fyrr en þremur árum eftir að
afsal hefur verið gefið út. Með fyr-
irhugaðri reglugerðarbreytingu er
slakað á þessari reglu á þann hátt að
seljandi íbúðar getur keypt íbúðina
aftur með fyrirgreiðslu Íbúðalána-
sjóðs ef hann hefur gefið út afsal til
kaupanda og sjálfur keypt eign í
millitíðinni af þriðja aðila og fengið
afsal þeirrar íbúðar í hendur.“
Útlánaaukn-
ingin 1,5 millj-
arðar á árinu
Yfirlýsing
frá Íbúðalánasjóði
♦ ♦ ♦
STYRKUR unga fólksins verður í
Menntaskólanum við Sund föstu-
dagskvöldið 1. júní kl. 21 og verður
opið hús fyrir ungt fólk.
Í boði er dans, tónlist, rapp, körfu-
bolti, leikir og margt skemmtilegt.
Skemmtun fyrir
unga fólkið
Buxur
Neðst á Skólavörðustíg