Morgunblaðið - 24.06.2001, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 24. JÚNÍ 2001
141. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Associated Press
Ben Bradlee er goðsögn í
blaðamannaheiminum.
Hann starfaði hjá News-
week í París og síðar í
Washington áður en
hann fór til The
Washington Post. Hann
ar m.a. aðalritstjóri blaðsins þegar blaðamenn
ess hófu rannsókn á Watergate-málinu.
óhannes Kr. Kristjánsson hitti Bradlee að máli. /2
Goðsögn í heimi fjölmiðla
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
24. júní 2001
B
Ástæður margar,
flóknar og
samverkandi
22
20
10
Þrír dagar
í Þernuvík
Engar
pataðgerðir
SÉRFRÆÐINGANEFND Heimsviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) hefur úrskurðað að
bandarísk lög um skattafrádrætti útflutnings-
fyrirtækja brjóti í bága við viðskiptareglur
stofnunarinnar, að sögn embættismanna í Brus-
sel og Washington. Verði úrskurðurinn stað-
festur getur hann orðið til þess að Evrópusam-
bandið grípi til refsiaðgerða gegn bandarískum
útflutningsfyrirtækjum og að Bandaríkjastjórn
svari í sömu mynt.
Evrópusambandið segir að stór útflutnings-
fyrirtæki í Bandaríkjunum, svo sem Boeing og
Microsoft, fái margra milljarða dala skattaaf-
slætti á grundvelli laganna. Sérfræðinganefndin
komst að þeirri niðurstöðu að afslættirnir væru
ólöglegir útflutningsstyrkir og brytu í bága við
nokkra viðskiptasamninga, að sögn heimildar-
mannanna. „Þetta er mikill ósigur fyrir Banda-
ríkin,“ sagði einn þeirra.
Nefndin lagði til að Heimsviðskiptastofnunin
mæltist til þess að bandarísk stjórnvöld af-
næmu styrki sem hún teldi brjóta í bága við al-
þjóðlega viðskiptasamninga.
ESB hótar refsiaðgerðum
Úrskurðurinn var sendur Bandaríkjastjórn
og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem
eiga að leggja fram athugasemdir áður en hann
verður birtur 13. ágúst. Engum bráðabirgðaúr-
skurði WTO hefur verið breytt verulega í
stuttri sögu stofnunarinnar.
Bandaríkjastjórn hefur rétt til að áfrýja úr-
skurðinum eftir birtingu hans og Evrópusam-
bandið getur því ekki gripið til refsiaðgerða
fyrr en í byrjun næsta árs.
Evrópusambandið hefur óskað eftir heimild
Heimsviðskiptastofnunarinnar til að grípa til
harðra refsiaðgerða vegna deilunnar. Robert
Zoellick, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, lét
þau orð falla nýlega að ef gripið yrði til slíkra
aðgerða mætti lýsa þeim sem „kjarnorkuárás“ á
heimsviðskiptakerfið.
Sérfræðinganefnd WTO úrskurðar í deilu um bandaríska útflutningsstyrki
Sagðir brjóta í bága við
viðskiptasamninga
Brussel, Washington. Reuters.
RÍKISSAKSÓKNARI Bret-
lands rannsakaði í gær hvort
dagblað í Manchester hefði
brotið lögbann með því að birta
upplýsingar um dvalarstaði
tveggja átján ára unglinga, sem
myrtu tveggja ára dreng, James
Bulger, þegar þeir voru tíu ára.
Daginn áður hafði bresk náð-
unarnefnd ákveðið að leysa ung-
lingana úr haldi. Bannað hefur
verið að birta upplýsingar um
ný nöfn þeirra eða dvalarstaði til
að draga úr líkum á að þeir verði
ofsóttir.
Breski ríkissaksóknarinn
kvaðst í gær vera að íhuga
ákæru á hendur dagblaðinu
Manchester Evening News fyr-
ir að brjóta þetta bann með því
að birta vísbendingar um dval-
arstaði unglinganna. Verði blað-
ið lögsótt á það yfir höfði sér
sektardóm og hugsanlegt er að
ritstjórinn verði dæmdur í fang-
elsi.
„Við höfum aldrei brotið lög-
bann af ásettu ráði og höfum
haft samband við ríkissaksókn-
arann,“ sagði í yfirlýsingu frá
dagblaðinu. Fréttin var tekin af
vefsíðu blaðsins á Netinu.
Bulger-morðið
Rannsakað
hvort blað
hafi brotið
lögbann
London. Reuters, AFP.
BANDARÍKJASTJÓRN skipaði í
gær bandaríska sjóhernum á
Persaflóasvæðinu að vera í við-
bragðsstöðu vegna hugsanlegra
hermdarverka öfgamanna. Banda-
rískir ferðamenn erlendis voru
einnig varaðir við því að þeir
kynnu að vera í hættu.
Embættismenn í Washington
sögðu að bandarísk herskip í Bar-
ein hefðu fengið fyrirmæli um að
leggja úr höfn og að æfingum
bandarískra sjóliða í Jórdaníu
hefði verið aflýst.
Embættismennirnir sögðu að
Bandaríkjastjórn hefði fengið trú-
verðugar upplýsingar um að hætta
væri á hermdarverkum öfgamanna
sem tengdust Sádi-Arabanum
Osama bin Laden sem er talinn
hafa staðið fyrir mannskæðum
hermdarverkum.
Persaflói
Bandaríski
flotinn í
viðbragðs-
stöðu
Washington. Reuters, AP.
JÓHANNES Páll II páfi fór í umdeilda heimsókn til
Úkraínu í gær og hóf hana með því að biðja úkraínsku
rétttrúnaðarkirkjuna fyrirgefningar á misgerðum kaþ-
ólsku kirkjunnar fyrr á tímum. Hann fullvisaði einnig
gestgjafa sína um að markmiðið með ferðinni væri ekki
að fá Úkraínumenn til að snúast til kaþólskrar trúar.
Þetta er fyrsta heimsókn páfa til Úkraínu og hún á
að standa í fimm daga. Þúsundir manna, undir forystu
rétttrúnaðarpresta, hafa mótmælt heimsókninni í Kiev
síðustu daga, sakað kaþólsku kirkjuna um að hafa stol-
ið eigum rétttrúnaðarkirkjunnar og tælt um sex millj-
ónir Úkraínumanna til að taka kaþólska trú. Búist er
við að hundruð manna sæki bænafundi um helgina til
að biðja fyrir því að páfi fari ekki á helga staði rétt-
trúnaðarkirkjunnar í Úkraínu.
Páfi og Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu, eru hér
umkringdir börnum á flugvellinum í Kiev þegar páfi
kom þangað í gær.
Reuters
Páfi í umdeildri heimsókn í Úkraínu
BRESKA stjórnin hyggst breyta
stefnu sinni í deilunni um hvalveiðar
og styðja tillögu um að heimila tak-
markaðar hvalveiðar í atvinnuskyni,
að sögn breska dagblaðsins The In-
dependent.
Bretar beittu sér fyrir banni við
hvalveiðum en eru nú sagðir hlynntir
því að hrefnu- og hnúfubaksveiðar
verði heimilaðar að nýju.
The Independent segir að breska
stjórnin hyggist tilkynna þessa
stefnubreytingu á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í London í næsta
mánuði.
Sagðir
styðja
hvalveiðar
BRESK kona, sem hélt rang-
lega að ástmaður hennar hefði
farið til Tyrklands til að kvæn-
ast annarri konu, hefndi sín
með því að kasta skjalatösku
hans ofan í skipaskurð en í
henni var andvirði tæpra 13
milljóna króna.
Konan var ákærð fyrir þjófn-
að eftir að ástmaðurinn sneri
aftur til Bretlands. Hún kvaðst
hafa vitað að peningar væru í
skjalatöskunni en ekki hversu
miklir. Köfurum lögreglunnar
tókst ekki að finna töskuna.
Dómarinn í málinu dæmdi
konuna í skilorðsbundið fang-
elsi.
Fleygði 13
milljónum
London. The Daily Telegraph.