Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 16
aukageta, sem er háð tilviljun hvort verður barn í brók. Það er úrelt rómantík og heimskuleg ein- földun að hugsa sér að skáld séu svo bundin á klafa tjáningarþarfar sinnar, að þau yrki og semji enda- laust þótt ekkert komi í aðra hönd. Íslensk stofnanaleikhús hafa ámilli sinna handa nær millj-arð króna af opinberu fé áári hverju. Af þessum fjár- munum fer minnstur hlutinn til sköpunar nýrra íslenskra leikrita. Lauslega áætlað eru það um 2% sem renna til íslenskra leikritahöf- unda. Enginn yrði glaðari en ég ef hægt yrði að reka þessa tölu ofan í mig og segja hana hærri. Ekki skal efast um tilgang þess fyrir íslenska menningu, að halda úti glæsilegum leikhúsum og kostnaður við leik- sýningar með fullkomnum umbún- aði er mikill og verður ekki horft í hann, þegar að öllu er staðið af kunnáttu og listrænum metnaði. Það er hins vegar vafasamur metn- aður að leggja allt í sölurnar fyrir glæsilegar sýningar á erlendum leikverkum, sem sprottin eru úr öðrum jarðvegi en okkar eigin, samin af höfundum sem fundið hafa hjá sér þörf til að tjá sig á sínu tungumáli við sitt fólk. Hvat- inn að þeirra sköpun var ekki fólg- inn í löngun til að tjá sig við áhorf- endur í leikhúsi uppi á Íslandi. Í þeirra augum er það viðbót- arávinningur ef íslenskir leik- húsgestir finna samhljóm við verk þeirra, eftir að búið er að snara því yfir á íslensku. Hið sama á við um íslenska höfunda. Þeir skrifa ekki með erlenda áhorfendur í huga. Þeir skrifa með íslenskt umhverfi í huga og tjáningin er fólgin í skiln- ingi þeirra á aðstæðum okkar, skil- greiningu á því lífi sem við lifum hér núna og hvers konar fólk og hvers konar samskipti eru sérstök fyrir okkur við upphaf nýrrar ald- ar. Íslenskt leikhús, sem sniðgeng- ur höfunda sína og vanrækir það hlutverk sitt að ala þá upp, stendur ekki undir nafni. Íslensk leiklist stendur ekki undir nafni í formi leikara, sem leika erlend leikrit í íslenskri þýðingu. Hornsteinn ís- lenskrar leiklistar eru leikritin sem samin eru hér og nú. Ef mótbáran er sú að ekkiberist nægilega mörgnothæf leikrit til leik-húsanna, er það sök þeirra sjálfra en ekki höfundanna. Þá er verið að treysta á að úr penna áhugamanna renni nothæfur leiktexti. Það er borin von. Leik- húsunum ber skylda til að endur- skoða stefnu sína og beina þeim fjármunum, sem þeim eru veittir, til sköpunar íslenskra leikrita. Það getur þýtt að leikhúsin verði um- deildari. Það getur þýtt að áhorf- endur greini á um ágæti verkanna. Það getur þýtt að almenningur taki afstöðu til íslenskrar leiklistar. Það getur þýtt að höfundar verði ráð- andi afl í íslensku leikhúsi. Það getur þýtt að leikhúsið verði mark- tækt í umræðunni. Það getur þýtt að leikhúsið verði ekki einungis spegill samfélags – okkar eða ann- arra – heldur eigi það frumkvæði að umræðu. Það getur þýtt að leik- húsið hafi áhrif. Það getur þýtt að leikhúsið verið óvinsælt meðal hópa og einstaklinga í samfélaginu. Það getur þýtt að íslenskt leikhús öðlist þann sess sem því ber. Það getur þýtt að hornsteinn ís- lensks leikhúss, íslensk leikskáld, verði ekki sú hornreka sem þau hafa verið – þrátt fyrir allan fag- urgala um annað – og þeim verði búin nauðsynleg skilyrði til að skapa þau leikverk sem gullöld krefst. Það er lítilmótlegt hlutverk að vera innflytjandi erlendrar gull- aldar í leikritun. Mun svipmeira væri að finna eigin gullöld stað og efla hana. V IÐ LIFUM á gull- öld leikhússins. Aldrei hafa jafn- margir lagt fyrir sig leikritun og á vorum tímum, aldrei hafa jafn- mörg ný leikrit verið frumsýnd ár- lega og undanfarin 20 ár eða svo. Aldrei hafa jafnmargar leiksýn- ingar verið á fjölunum samtímis í landi voru og aldrei hafa jafn- margir sótt leiksýningar og á vor- um tímum. Ef þetta er ekki gullöld hvað er það þá?“ Þetta er ekki tilvitnun í einn eða neinn. Þetta er hugleiðing í kjölfar greinar eftir breskan leikhúsmann, sem ég las um daginn. Hann er að sjálfsögðu að tala um sitt eigið land, England, en ekki Ísland, enda hefur hann aldrei komið hingað og hefur vafa- laust ekki háar hugmyndir um hvers konar leiklist er fram- in hér. Ef hann telur þá að hér sé leiklist yfirleitt. En það er auka- atriði. Hér er leikhúsið jafn mik- ilvægt og annars staðar, ekki mik- ilvægt fyrir þá sem annars staðar eru, heldur þá sem hér eru. Leiklist er tjáningarmáti.Leiklist er listræn aðferðtil að koma hugsun,skoðunum og tilfinn- ingum á framfæri en jafnframt er leiklist samskiptamáti. Leiklist er samtal milli listamannanna og áhorfendanna. Leiklist á sér stað á því augnabliki sem hún gerist – þetta er margþvæld klisja sem gleymist þó ávallt í hita augna- bliksins – rifjast svo aftur upp síð- ar þegar reynt er að endurskapa upplifunina í orðum eða hugsun. Það er vissulega hægt að skil- greina leiklist niður í sínar smæstu einingar og margnefndur galdur leikhússins er líkari sjónhverfingu að því leyti, að hana má læra og útskýra, en hún er jafn áhrifamikil í hvert sinn sem hún er framin af kunnáttu og einlægni. Leiklist snýst ekki eingöngu um tilfinningalega tjáningu leikarans á sviðinu að viðstöddum hópi áhorf- enda – algengur misskilningur hjá leikurum reyndar – heldur er hún samþjappað afsprengi persónu- legrar tjáningar höfundarins, túlk- unarlegrar tjáningar leikstjórans og allra annarra listrænna höfunda sýningarinnar. Leikararnir standa síðan frammi fyrir áhorfendum, með annan fótinn í persónulegri tjáningu höfundarins og hinn í sinni eigin túlkun og allra hinna, sem lögðu þeim til umgjörð og búninga og úr því verður sá við- burður sem við köllum leiksýningu í daglegu tali. Stundum er sagt að alla þessa þætti mætti fjarlægja nema leikarann og enn hefðum við leiklist. Sá sem heldur slíku fram horfir eitthvað annað en til síðustu 2500 ára í vestrænu leikhúsi, þar sem texti höfundar er undirstaðan sem byggt er á. Leikarinn getur samið sinn texta sjálfur og er þá jafngildur höfundur og hver annar; hann getur jafnvel spunnið textann jafnóðum upp úr sér en texti er það engu að síður. Gagnvart áhorf- andanum er munurinn oftast nær fólginn í lakari texta eftir því sem hann er vanhugsaðri og takmark- ast ávallt við málkennd leikarans, sem getur verið upp og ofan eins og gengur. Aldrei hafa jafnmargirskrifað fyrir leikhús og ávorum tímum. Við getumhælt okkur af því, en engu að síður er afraksturinn síð- ustu misserin harla lítill og ef horft er til þeirra eingöngu, sem lagt hafa fyrir sig leikritun og ekkert annað þá eru þeir litlu fleiri en fingur annarrar handar. Ólafur Haukur Símonarson, Árni Ibsen, Hrafnhildur Hagalín, Birgir Sig- urðsson, Bjarni Jónsson, Steinunn Jóhannesdóttir eru nöfn sem koma fyrst upp í hugann. Ýmsir fleiri hafa fengist og eru að fást við leik- ritun með öðrum skrifum eða öðr- um störfum og dregur það ekki úr gildi þeirra en staðreyndin er sú að fáir – ef nokkrir – höfunda okkar hafa af því fullkomna framfærslu að skrifa leikrit og leikrænan texta. Kannski er umfang íslenskr- ar leiklistar ekki meira en svo, en ég vil þó leyfa mér að álykta að áherslur í verkefnavali og listrænni stjórn íslenskra leikhúsa – lesist Leikfélags Akureyrar, Borgarleik- húss og Þjóðleikhúss – ráði þar mestu. Afrakstur af starfi leikritahöf- unda er ekki mældur í fjölda leik- rita sem berast leikhúsunum, eða af sýningum nýrra verka sem ber fyrir augu áhorfanda á hverju leik- ári. Atvinnuhöfundar hafa ekki ráð á því að skrifa leikrit ár eftir ár fyrir skúffu leikhússtjóranna. Þeir verða þá að snúa sér að öðrum skrifum til að geta framfleytt sér. Leikritunin verður þá eins konar Hornsteinn íslensks leikhúss gerður hornreka Morgunblaðið/Golli „Hornsteinn íslensks leikhúss eru íslensk leikskáld.“ Úr Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur. AF LISTUM Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is LISTIR 16 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÝNING fjögurra listamanna verð- ur opnuð í Nýlistasafninu í dag, sunnudag, kl. 16. Þeir eru Daníel Þorkell Magnússon í Gryfju, Ómar Smári Kristinsson á palli, Karen Kirsten í forsal og Philip von Knorring í Súm-sal. Sýning Daníels Þorkels sam- anstendur af þremur verkum, sem listamaðurinn kallar hluti úr dverg- ríki. Hann segir um sýninguna: „Ríkið hefur enga ákveðna hnatt- læga staðsetningu og þar af leið- andi ógerningur að ferðast þangað. Á hinn bóginn má byggja yfir í dvergríkið brú í huganum. Í grund- vallaratriðum er það einhvers kon- ar ferðalag með áfangastað.“ Sýning Ómars Smára ber heitið „Eins og“. Listamaðurinn segir þetta um sýninguna: „Aðal leið manneskjunnar til að þróast sem slík er að gera eins og – lesa eins og kennari, skrifa eins og stóri bróðir, tala eins og prófessor, teikna eins og Leonardo Da Vinci. Ég er engin undantekning; verkin á sýningunni minna á þroskaferli mitt, þó nýleg séu.“ Sýning bandarísku listakon- unnar Karen Kersten ber heitið „Some Combination Therefore Of“. Karen sýnir skúlptúra sem minna á lífræn form úr dýraríkinu og eru þess eðlis að gestir geta breytt stað- setningu þeirra, fært þá til. Með hverjum þeirra fylgir hvílustaður þeim ætlaðir. Karen sýnir einnig ljósmyndaverk sem tengjast þrí- víðum verkum hennar. Finnski listamaðurinn Philip von Knorring sýnir margmiðlunarverk samansett úr sjónvarpsskermum, steypurörum og tölvuskjá. Dvergríki og þróun Morgunblaðið/Jim Smart Tveir af fjórum listamönnum sem opna sýningu í Nýlistasafn- inu: Daníel Þ. Magnússon og Karen Kersten. ÓSKAR Guðjónsson saxófónleikari og Eyþór Gunnarsson píanóleikari leika perlur Jóns Múla Árnasonar í Edinborgarhúsinu á þriðjudag kl. 20.30. Á tónleikunum leika þeir nokkur af ástsælustu lögum Jóns Múla Árnasonar af plötu þeirra Keldu- landið. Eyþór mun leika á nýjan flygil í salnum á annarri hæð hússins. Aðgangseyrir kr. 1.500.- Keldulandið í Edinborgarhúsi HLJÓMSVEITIN Þelóníus leikur á kaffi Ozio í Lækjargötu í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 21.30. Hljóm- sveitin sem skipuð er þeim Steinari Sigurðarsyni saxófónleikara, Hannesi Helgasyni píanóleikara, Ragnari Emilssyni gítarleikara, Sveini Áka Sveinssyni bassaleikara og Þorvaldi Þór Þorvaldssyni trommuleikara. Hljómsveitin hefur verið starfrækt í níu mánuði og með- limir hennar eru allir nemar í FÍH nema einn sem er útskrifaður. Þeir félagar flytja lög eftir meistarana Theolonius Monk og Joe Henderson. Aðgangseyrir er 600 krónur. Þelóníus á Ozio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.