Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 18
LISTIR 18 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SIGNÝ Sæmundsdóttir, sópransöng- kona og Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanóleikari, verða með næstu þriðju- dagstónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi. Á tónleikun- um frumflytja þær tvö lög eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð eftir Ma- dame Béatrice Cantoni. Atli Heimir Sveinsson segir þessi nýju sönglög sín löng; um sjö til átta mínútur hvort, eins og hann hafi verið að gera svolítið að undanförnu. En hver er Madame Béatrice Cantoni? Skáld og sendiherrafrú „Béatrice Cantoni var gift Robert Cantoni, sem var sendiherra Frakka á Íslandi. Þetta var mjög menning- arlegt fólk og hafði mikinn áhuga á ís- lenskri menningu og menningarsam- skiptum Íslendinga og Frakka. Béatrice Cantoni var hið ágætasta skáld, og hafði töluvert samband við skáld og tónlistarmenn hér. Hún var mikil áhugamanneskja um tónlist og hennar fjölskylda öll. Ég samdi þessi lög við ljóð eftir hana. Svo stóð alltaf til að flytja þetta, en það hefur dregist þar til núna.“ Atli Heimir segir að til séu mjög fallegar þýðingar eftir Sig- urður Pálsson á þessum ljóðum, og þær munu fylgja með í tónleikapró- grammi á tónleikunum í Sigurjóns- safni. „Þetta eru nútímaleg ljóð, í hinni frönsku ljóðahefð tuttugustu aldar; mjög tjáningarrík og myndræn og ég held að músíkin endurspegli dá- lítið af því, – oft mjög innhverf. Béat- rice er trúuð; trú, heimspeki og hug- leiðsla eru henni mjög hugleikin mál og tónlistin er svolítið í þeim stíl. Can- toni hjónanna var mikið saknað þegar þó fóru héðan fyrir tveimur árum. Við Signý höfum unnið mjög mikið sam- an. Hún söng í óperu minni Tungl- skinseyjunni, sem var frumflutt í Kína og söng Jónasarlögin mín. Signý er í geysifínu formi núna. Ég heyrði lögin mín á æfingu hjá þeim í morgun og var mjög hrifinn. Ástarljóð, orðaleikir og Interview Signý Sæmundsdóttir segir ljóð Madame Béatrice mjög sérstök. „Það má kannski segja að þetta séu hug- leiðingar skáldsins um lífið. Ljóðin eru mjög impressjónísk og myndræn; hún dregur upp sérkennilegar mynd- ir og fléttar þær saman. Maður þarf svo að púsla myndunum saman til að fá heildarmynd ljóðsins. Atli Heimir semur lögin svolítið í þessum stíl. Söngvarinn er mikið með talsöng á móti myndum í hljóðfærinu og falleg- ar og mjúkar laglínur brjóta þetta upp. Þetta er afskaplega fínleg músík og maður þarf að setja sig svolítið í franskar stellingar fyrir þetta tilfinn- ingaspil.“ Eftir frumflutning á lögum Atla Heimis Sveinssonar verður áfram haldið á franskri tungu, fyrst með þremur ljóðasöngvum eftir Ernest Chausson: Kólibrífuglinum, Ítalskri serenöðu og Le temps des lilas, en Signý segir að það sé djúp tilfinning í þessum ljóðum og lög Chaussons al- veg frábær. „Svo erum við með þrjú lög eftir Poulenc, allt við mjög fallega texta. Fyrsta ljóðið heitir einfaldlega C og er fallegt ástarljóð, þá koma Fêt- es galantes, orðaleikur um allt og ekk- ert, þar sem ímyndunaraflinu er gef- inn laus taumurinn og loks Les Chemins d’Amour, – eða vegir ástar- innar, sem er eitt þekktasta lag Poul- encs. Inn á milli setjum við grúppu af lögum eftir Karl O. Runólfsson, að- eins jarðbundnari lög, við mjög fal- lega texta. Þetta eru lögin Síðasti dansinn, Heimþrá, Allar vildu meyj- arnar, Ferðalok og loks Interview eða Spjallað við spóa.“ Signý Sæmundsdóttir segir tón- leikana ekta sumartónleika, það sé mikil birta og litadýrð í þessari tón- list. Tvö lög eftir Atla Heimi Sveinsson frumflutt í Sigurjónssafni Hljóðfærið málar myndir sem fal- legar mjúkar lag- línur brjóta upp Morgunblaðið/Jim Smart Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona, Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari og Atli Heimir Sveinsson tónskáld saman komin á æfingu. FERÐAFÉLAG Íslands hefur gefið út árbók óslitið frá 1928 eða í rúm sjötíu ár. Í flestum þeirra er ít- arlega gerð grein fyrir ákveðnum svæðum, landslagi og leiðum lýst, rakin saga byggðar og megindrættir í náttúrufari auk annars fróðleiks sem fellur til í hvert sinn. Árbækurnar eru löngu orðnar sígildar og fjölfróðasta Íslandslýsing sem völ er á. Að þessu sinni fjallar árbókin ann- ars vegar um Kjöl, hálendið á milli Langjökuls og Hofsjökuls og hins vegar um jöklana sjálfa, útverðina í austri og vestri. Fyrri hlutinn er sýnu lengri og hann ritar Arnór Karlsson, bóndi í Arnarholti í Biskupstungum. Um jökla við Kjöl ritar Oddur Sig- urðsson jarðfræðingur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem árbók fjallar um há- lendið á milli jöklanna. Árið 1929 kom bókin Kjalvegur, Kerlingarfjöll 1942 og Kjalvegur hinn forni 1971. Síðast- nefnda bókin hefur einkum verið mönnum til leiðsagnar á Kili fram til þessa enda vel skrifuð af gagnkunn- ugum manni, Hallgrími Jónassyni. Kjölur er, eins og flestum er kunn- ugt, víðáttumikið skarð á milli Lang- jökuls og Hofsjökuls og nær frá Hvítá og Jökulfalli í suðri til Seyðisár og Svörtukvíslar í norðri. Alfaraleið hef- ur legið um Kjöl frá fyrstu tíð því að þar er stytzt á milli Norður- og Suð- urlands og leiðir greiðar að undan- skildum vatnsföllunum Hvítá og Blöndu. Víða sjást djúpar götur, forn örnefni eru við hvert fótmál og ljósar menjar um dvöl manna. Því er margt forvitnilegt að skoða og ekki er síðra að dvelja þar áhyggjulaus í faðmi fjalla. Náttúrufegurð er við brugðið og fjallasýn er mikil á Kili. Það er því að vonum að umferð yfir Kjöl hefur aukizt mikið hin síðari ár. Umtalsverðar bætur hafa verið gerðar á vegi og er hann yfirleitt fær öllum bílum á sumrin. Margir fara á hestum þvert yfir og þá er vinsæl gönguleið á milli Hvítárness og Hveravalla með viðkomu í Þver- brekknamúla og Þjófadölum. Þá er ógetið vetrarferða en þær njóta síaukinna vinsælda. Enda þótt þrjátíu ár séu ekki ýkja langur tími hefur margt breytzt frá því Hallgrímur reit lýsingu sína. Hún er enn í fullu gildi en hér hefur svo sannarlega bætzt við allnokkur fróð- leikur, ekki sízt um jöklana. Það leynir sér heldur ekki að höfundar gerþekkja þessar slóðir. Telja verður ólíklegt að nokkur maður hafi oftar farið á Hofsjökul en Oddur Sigurðs- son. Sagan af Kili er sögð af manni sem er alinn upp við rætur hálendisins, hefur tekið þátt í vorrekstrum sauð- fjár og fjallferðum í hálfa öld og ung- ur heillast án efa af sögu um greiðar ferðir Guðmundar á Gýgjarhóli. Hann er fróður um örnefni og fer að líkindum eftir gamalli venju Tungna- manna. Athygli vekur að hann nefnir ekki Hvítársand á milli Jökulfalls og Svartár en tekur upp nýnefnin Gunn- arshólma, Baldurshaga og Girðingar- vík í Hvítárvatni sem eiga þarna alls ekki við. Sá er hér ritar sigldi nokkr- um sinnum á vatninu með hinum mesta sómamanni, Gunnari Högna- syni, meðal annars inn í Karlsdrátt en leyfir sér samt að draga í efa rétt- mæti örnefnisins. Eins er með nafnið Yztu-Nöf á Hveravöllum, en ekki verður annað sagt um þá öðlinga, sem þar dvöldu, að þeir héldu ávallt vöku sinni, svo að nafnið er ekki alls kostar rétt. Það vita þeir, sem til þekkja að með þess- ari nafngift er ekki sögð nema hálf saga. Lýsingar á náttúrufari eru að mestu teknar úr öðrum ritum. Guð- mundur Kjartansson jarðfræðingur lýsti landmótun frá ísöld, sem hér er vitnað til. Nokkuð er frásögnin slitin sundur og gefur því ekki jafn heildstæða mynd og Guðmundur ætlaðist til. Vel hefði farið á að birta nokkrar af frá- bærum teikningum Guðmundar. Þá er stutt yfirlit yfir flóru á Kili (en ekki gróður eins og fyrirsögn greinir), og síðan eru skrár yfir tegundir hápl- antna á vissum stöðum í viðeigandi köflum. Ekki er þess þó getið, að hin sjaldgæfa dvergtungljurt vex í hrauni skammt sunnan við Hveravelli. Merkilegast mun þó mörgum þykja að í Þverbrekkum vex birki á strjál- ingi. Þótt það séu aðeins kræklur og legður er það eigi að síður óræk sönn- un fyrir víðáttumeiri útbreiðslu birkis fyrr á öldum. Sjaldan er vikið að gróðri og skemmdum á honum eins og víða má sjá, til dæmis með vest- urjaðri Suðurhrauns. Fuglalífi eru gerð góð skil og raunaleg er refasag- an á Hveravöllum, sem eykur ekki hróður grenjaskyttna. Ferðaleiðum yfir Kjöl er lýst eins og vera ber. Löngum voru reiðleiðir tvær, hér nefndar Gamli-Kjalvegur vestri og Gamli-Kjalvegur eystri. Varlegt er að fullyrða um of, en þó minnir þann, sem hér ritar, að gamlir menn í Biskupstungum hafi kennt þessar leiðir annars vegar við að fara Þjófadali og hins vegar Kjalhraun, sem þótti öllu seinfarnari. Kaflinn um búskaparnytjar er einkar fróðlegur. Gaman verður að fylgjast með störfum óbyggðanefnd- ar, þegar aftur verður tekizt á um eignarhald á afréttinum og þá hvort niðurstaða aukadómþings á Hvera- völlum 1983 hafi einhverja lagastoð. Í kaflanum koma og fram ýmis atriði, sem hafa ekki verið skráð áður og eru mikils virði. Þess hefði mátt geta hér að fólk af höfuðborgarsvæðinu fer gjarna upp á Kjöl til að tína heilsu- plöntur í þeirri trú að þar séu þær ómengaðar. Í viðarmesta kaflanum »Skyggnst um á Kili« er staldrað við á einum þrjátíu stöðum, staðháttum lýst og greint frá því, sem markverðast má telja. Þá er og minnzt á flesta bauta- steina á Kjalvegi, en það er orðin brýn þörf á að stemma stigu við þeirri áráttu að reisa slíka minnisvarða í há- lendinu. Hér nýtur höfundurinn sín bezt og þar á hann heima eins og í Fögruhlíð, Gránunesi, Svartárbotnum og á Hveravöllum. Þá eru ágætar og gagnlegar lýsingar á Svörtutungum og Austurkróki, en ekki leggja marg- ir leið sína þangað. Oft fleygar höf- undur frásögn sína með sögum, bæði alkunnum og líka öðrum, sem eru á fárra vitorði. Enn og aftur er sögð sagan af Reynistaðarbræðrum og reimleikum í sæluhúsi í Hvítárnesi. Fullmikið er gert úr draugagangi í húsinu og ýmsir hafa logið upp sögum sem síðan hefur verið trúað. Má minna á sögu Theódórs Friðriksson- ar, sem var skálavörður sumarið 1942, um ríku Þóru, en enginn fótur er fyrir henni. Þá er vert að minnast á að stíll höfundar er látlaus, laus við tilgerð en alls ekki fábreyttur. Um fimmtungur árbókarinnar er eftir Odd Sigurðsson og ber heitið Kjalverðir – jöklar við Kjöl. Höfund- ur hefur tínt til gríðarmikinn fróðleik sem hefur ekki verið aðgengilegur fyrr en nú enda eru fáir menn kunn- ugri íslenzkum jöklum en hann. Í fyrstu er saga jökulnafna rakin og reynt að greiða nokkuð úr flækju nafna í gömlum ritum. Vissulega er það efni í sérstaka samantekt eins og höfundur bendir á en hér er meginat- riðum vel lýst. Ekki láta þó allir sann- færast um að líta á orðið »suður- jökla« sem sérnafn. Síðan koma kafl- ar þar sem greint er frá eðli jökla, skriðhraða, mældum breytingum, af- komu jökla, jökulhlaupum og ösku- lögum í jöklum. Hér er fjallað á skýr- an og ljósan hátt um frumatriði í jöklafræði og ekki sízt hvernig hreyf- ingu jökuls er háttað með tilliti til hjarnmarka. Að lokum er rakin ítarlega saga rannsókna á jöklum við Kjöl og sagt frá hvað lesa má úr gögnum sem safnast við síendurteknar mælingar. Allt er efnið vel fram sett og höfundi til sóma. Allmargar myndir og kort prýða árbókina. Myndirnar eru flestar all- góðar og sumar ágætar. Uppröðun mynda er talsvert ábótavant og ekki alltaf haganlega fyrir komið á síðum (sjá t.d. bls. 74 og 75, 104 og 105). Myndatextar hafa því miður verið settir inn á fáeinar myndir og er það til mikillar óprýði og kemur vonandi ekki fyrir aftur. Kort og aðrir upp- drættir eru listilega gerð. Árbók Ferðafélags Íslands 2001 er svo sannarlega fróðlegt og eigulegt rit. Mega höfundar báðir vera stoltir af skrifum sínum. Ótvírætt mun ár- bók þessi koma að miklum notum hvort sem menn ferðast yfir Kjöl eða kjósa að fara um jökla, jafnframt því að vera mjög ánægjuleg lesning fyrir þá sem heima sitja. BÆKUR N á t t ú r u f r æ ð i r i t Á Kili eftir Arnór Karlsson og Kjalverðir – jöklar við Kjöl eftir Odd Sigurðsson. 241 bls. Útgefandi er Ferðafélag Íslands. Reykjavík 2000. KJÖLUR OG KJALVERÐIR Norður kaldan Kjöl Ágúst H. Bjarnason  TÍMARIT Máls og menningar er komið út og er þetta 2. tölublað tímaritsins í nýjum búningi. Í tíma- ritinu eru m.a. greinar um náttúru og menningu, hagfræði kynlífsins, bókmenntir, myndlist, vísindi, minn- ingar, hagfræði, skáldskapur og skoðanir. Þorvarður Árnason, náttúrufræð- ingur, stýrir hringborðsumræðum listamanna og vísindamanna þar sem rætt er um umhverfisvitund, náttúruvernd og samspil lista og vís- inda við náttúruna. Rætt er hvernig listamenn geta örvast af vísindum og vísindamenn af listum. Þátttakendur eru Pétur Gunnarsson, rithöfundur, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, grasa- fræðingur, Halldór Ásgeirsson, myndlistarmaður og Guðmundur E. Sigvaldason, jarðfræðingur. Anne Brydon, mannfræðingur, fjallar um rannsóknir sínar á sjálfs- mynd Íslendinga út frá viðhorfum þeirra til náttúrunnar. Sólmundur Ari Björnsson hagfræðingur fjallar um kynhegðun mannsins. Hann kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að konur tapi á banni við fjölkvæni. Hann lýsir hjónabandinu sem við- skiptasamningi en bendir á að kostn- aðurinn við að vera samkynhneigður hafi lækkað og kostnaður karla við framhjáhald aukist. Ragnar Hall- dórsson, kvikmyndagerðarmaður, svarar grein Ásgríms Sverrissonar um Ara Magg og Leni Riefenstahl úr síðasta tölublaði og heldur áfram að ræða um frelsi listamanna til að sækja sér hugmyndir í gamlar stefn- ur og strauma. Björn Th. Björnsson rifjar upp hernámsárin, þegar hann var reddari á Hvalfjarðarströnd, Ár- mann Jakobsson skrifar grein um Dagfinn dýralækni og alheims- tungumálið. Birt er sigursagan úr smásagnasamkeppni strik.is, fjallað er um Salman Rushdie og nýja bók hans, bítkynslóðin í Bandaríkjunum kemur við sögu sem og ungir mynd- listamenn á Íslandi sem gerðust inn- brotsþjófar eina nótt. Ritstjóri tímaritsins er Brynhild- ur Þórarinsdóttir. Ólöf Birna Garð- arsdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir sáu um útlit blaðsins en flestar myndir tók Páll Stefánsson. Tímarit

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.