Morgunblaðið - 24.06.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 24.06.2001, Síða 19
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 19 Acidophilus FRÁ Apótekin Fyrir meltinguna og maga með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla Fríhöfnin Mörgum sinnum sterkara Styrkir til hljóðeinangrunar íbúðarhúsa við umferðargötur Auglýst er eftir umsóknum um styrki til úrbóta á hljóðeinangrun íbúðarhúsa við umferðargötur í Reykjavík. Úrbætur miðast fyrst og fremst við endurbætur á gluggum húshliða sem snúa að götu. Íbúðir, þar sem umferðarhávaði er mestur, hafa forgang. Umsóknum um styrki til framkvæmda skal skilað til skrifstofu borgarverkfræðingsins í Reykjavík, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir 27. júlí nk. Þar liggja frammi umsóknareyðublöð og reglur um styrkveitingar. Þeim, sem koma til álita við styrkveitingu, verður veitt ráðgjöf um framkvæmdir. Þeir sem áður hafa lagt inn umsókn þurfa ekki að sækja um aftur. Borgarstjórinn í Reykjavík. Borgarverkfræðingur MARIUS Brenciu kom, sá og sigr- aði – tvisvar sinnum. Þessi geðþekki, rúmenski tenór fékk hvor tveggju aðalverðlaunin í Cardiff Singer of the World-söngkeppninni, sem BBC heldur í höfuðborg Wales og líka ljóðaverðlaunin. Það er í fyrsta skipti sem sami söngvarinn hlýtur hvor tveggju verðlaunin og verður vísast ekki leikið eftir í bráð. Það var vísast flutningur hans á aríu Lenskys úr óperu Tjækovskís, Eugen Onegin, sem tryggði honum aðalverðlaunin og svo ljóðaverðlaunin er hann söng meðal annars Die Nacht eftir Strauss. En eins og alltaf sýndist sitt hverjum og sumum fannst hann bara vera enn einn bel canto ten- órinn, sem pressaði röddina um of. En bandarísku söngkonunni Barb- öru Bonney, sem ræddi frammistöðu keppenda í beinni útsendingu frá keppninni, fannst Lensky hans hríf- andi og Strauss-inn hans einstakur. Elina Garanca frá Lettlandi, fyrsti lettneski keppandinn til að komast áfram í undanúrslit, var ann- ars talin líklegur sigurvegari og það mátti heyra á Bonney að hún hafði búist við sigri Garanca. En dóm- nefndin þar sem söngvarar eins og Peter Kraus, Gundula Janowitz, Joanne Sutherland og Marilyne Horne sátu, féll greinilega kylliflöt fyrir Brenciu. Strembin keppnisvika Fyrsti sigurvegarinn í keppninni, sem var haldin í fyrsta skipti fyrir átján árum, lofaði strax góðu um að í keppninni yrði ungt hæfileikafólk uppgötvað. Hin finnska Karita Matt- ila sigraði þá á sannfærandi hátt og hefur síðan átt glæsilegan feril. Hún er nýbúin að syngja í London, bæði á tónleikum og í Spaðadrottningunni á Covent Garden og gagnrýnendur máttu vart vatni halda af hrifningu. Keppnin stendur í viku, þar sem 25 söngvarar, valdir úr hópi mörg hundruð vongóðra ungra söngvara eru valdir til að flytja tvær aríur og þrjú ljóð á fimm tónleikum. Úr þess- um hópi eru valdir fimm söngvarar í úrslitakeppnina. Þarna koma fjöl- margir umboðsmenn og óperustjór- ar til að hlusta eftir réttu fólki svo keppnin er fjarska mikilvægur pall- ur fyrir unga söngvara. Tónleikarnir eru vel sóttir og veita góða vísbend- ingu um hversu góðir söngvararnir eru í að ná til áheyrenda sem er mik- ilvæg vísbending um hæfileika þeirra. Það dugir ekki bara að hafa lagleg hljóð, heldur verður söngvari að hafa hæfileikann til að miðla efn- inu og snerta áheyrendur með söng sínum. Þeir fimm sem komust í úrslit í þetta skiptið voru auk þeirra Bren- ciu og Garanca þau Ekaterina Semenchuk frá Rúss- landi, Markus Brück frá Þýskalandi og Nat- alie Christie frá Ástr- alíu, en hún er fyrsti keppandinn þaðan. Christie fékk það van- þakkláta hlutverk að syngja fyrst á keppnis- kvöldinu og tókst ekki sérlega vel upp. Hún hafði náð mikl- um vinsældum meðal áhorfenda þegar hún kom fram í vikunni, en taugaóstyrkur virtist há henni keppniskvöld- ið. Bonney þótti ekki mikið til um frammistöðu hennar því hún ætti enn mikið ólært og það hefði kannski fremur verið óvitur- legt en bíræfið af henni að taka þátt. Og hún virtist heldur ekki skilja að Christie komst í úrslit. Hin rússneska Semenchuk er þeg- ar orðin þroskuð söngkona og Bonn- ey fannst hún geta allt. Tækni henn- ar væri óaðfinnanleg og hún næði bæði fram dökkum og ljósum hlið- um. Hún söng þrjú rússnesk ljóð af mikilli tilfinningu og virtist geta komið til greina við að fá ljóðaverð- launin. Brück byrjaði á þýskum arfi, Wolfram úr Tann- häuser og náði honum meistaralega. Þýskum ljóðum skilaði hann sömuleiðis á hrífandi hátt og sýndi í lokin að hann kann fleira en þýska fagið með aríu úr Grímudansleik Ver- dis. Eftir þetta héldu margir að maðurinn með hárið hlyti að fá önnur hvor verðlaunin, en viðurnefnið kemur af miklum riddara- makka, sem hann hef- ur ekki viljað klippa eftir að hann safnaði hári fyrir Wagner-hlutverk fyrir nokkrum árum. Lærdómsríkt fyrir unga söngvara „Ég vildi vera fluga á veggnum til að sjá hvernig þessi stelpa æfir sig,“ sagði Bonney full aðdáunar yfir frammistöðu Garanca. Bonney átti ekki orð yfir hvað hún syngi fyr- irhafnarlaust, bara eins og hún gæti ekki annað. En það dugði ekki til þótt það sé enginn vafi á að einhverj- ir umboðsmenn og óperustjórar muni hafa samband við Garanca. En þótt það komist ekki allir þátt- takendur í úrslit, hvað þá að þeir sigri, er þátttakan dýrmæt reynsla því þarna eru svo margir reyndir úr tónlistarheiminum sem eru ósparir á góð ráð. Og auga er haft á öllu. Dóm- ararnir meta hvernig efnisskráin sé valin, hvort hún falli að söngvaran- um, reynslu hans og karakter. Og kvenfólkið má þola að kjólar þess séu metnir með sömu atvinnu- mannsaugunum. En hvernig hefur svo fyrri sig- urvegurum vegnað? Ferill Mattilu er áður nefndur en þýska sópran- söngkonan Anja Harteros sigraði 1999. Búið var að ráða hana áður en að keppninni kom, en núna syngur hún á Salzborgarhátíðinni, við óp- eruna í München undir stjórn Zubin Mehta og fer á fjalir Metropolitan- óperunnar undir stjórn James Levi- nes á næstu árum. En það eru reyndar ekki aðeins sigurvegararn- ir, sem keppnin hefur komið áfram, því mörgum af þeim sem hafa kom- ist í úrslit hefur gengið vel síðan. En þeir sem ekki komast til Card- iff geta líka fræðst um eitt og annað í þessum harða en heillandi heimi með því að kíkja á slóð keppninnar: www.bbc.co.uk/wales/cardiffsinger- 01/ og heyra brot úr keppninni. Sami tenórinn fékk aðalverðlaunin og ljóðaverðlaunin Söngvakeppni óperusöngvara í Cardiff er mikilvægur pallur fyrir söngvara, segir Sigrún Davíðsdóttir, en þótt aðeins söngv- arar með einhverja reynslu komist yfirleitt áfram þar eru þó undantekningar. Marius Brenciu sd@uti.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.