Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR stigið er inn íLaugarnesskóla blasirvið bráðfallegur arki-tektúr Einars Sveinsson-ar frá fjórða áratugnum. Sá stíll felst mjög í fortíðarskoðun og sterkum og nýtanlegum form- um. Endurreisnarhugsunin endur- fæðist þar í leit húsameistarans að hinni grísku fullkomnun og sam- hljóminum í forminu. Nytsemi og einfaldleiki haldast í hendur og skapa látlausa fegurð hússins, ein- falda en skýra, bjarta og lifandi. Í sumar kveður Jón Freyr Þórarins- son þessa fallegu byggingu. Hann hefur verið skólastjóri Laugarnes- skóla síðustu 28 ár, yfirkennari í 8 ár og kennari við skólann í 9 ár þar á undan. Áður en Jón Freyr hóf kennslu við Laugarnesskóla hafði hann setið þar á skólabekk í sex ár. Líf hans hefur þannig verið samtvinnað lífi skólans. Frá nemanda til kennara Jón Freyr heilsar mér glaðlega með þéttu handabandi og mér verður strax ljóst að hann og skól- inn tengjast sterkum böndum. Þarna fer bjartur og lifandi maður, endurreisnarmaður af gamla skól- anum. Jón fylgir mér gegnum sögu skólans og segir mér frá upphafi ferils síns. „Ég kem í skólann þegar ég er 8 ára, flyt hingað í Langholtshverfið sem var kallað Kleppsholt á þeim tíma og er hér til 14 ára aldurs í sex ár í skólanum. Ég á mjög góð- ar minningar héðan úr skólanum. Eitt skiptið, fyrsta árið mitt, átti ég að læra kvæði hjá góðum kenn- ara, og ég var latur við það, svo ég var látinn sitja eftir af því að ég hafði ekki lært kvæðið nógu vel. Árið eftir var ég mjög duglegur að læra kvæði og stóð ekkert fyrir því.“ Þessi kennari var ennþá kennari við skólann þegar Jón var orðinn yfirkennari og þótti Jóni það stundum dálítið neyðarleg staða. „Ég skammaðist mín stundum en um leið var það alltaf svolítið spaugileg staða, að vinna með kennaranum sem ég hafði slugsað hjá forðum. En ég á fjölda góðra minninga héðan úr skólanum, sér- staklega síðustu árin þegar ég var unglingur, það var mjög gaman. Krakkarnir léku sér meira úti en þau gera núna. Það var miklu meiri leikur, við vorum alltaf eitt- hvað að gera, hópurinn saman. Það var náttúrulega heilmikið félagslíf í því. Núna eru tólf ára krakkar hættir að leika sér úti. Stelpurnar hanga bara inni. Það virðist miklu minni leikur í krökkum núna. Þarna vorum við frjálsari. Það var heldur ekki eins mikið af skipu- lögðum íþróttum þá.“ Margir mætir menn hafa lært við Laugarnesskóla. Þar má meðal annarra telja Markús Örn Antons- son útvarpsstjóra, Garðar Cortes söngvara, Brynju Benediktsdóttur leikkonu, Ragnar Arnalds alþing- ismann og Styrmi Gunnarsson rit- stjóra Morgunblaðsins. Þeir tveir síðastnefndu gengu í skólann sam- tíða Jóni Frey. Þrísetinn skóli Jón Freyr tók landspróf frá Gaggó Aust og lagði síðan leið sína í kennaraskólann. „Ég var ekkert sérstaklega með það í huga að fara í Kennaraskól- ann. Ég var óákveðinn með fram- tíðina. Á sumrin var ég í bygginga- vinnu hjá frænda mínum sem var trésmíðameistari. Mér datt í hug að fara bara þá leið því faðir minn var smiður líka. En einhvern veg- inn varð það úr að Gunnar Guð- mundsson yfirkennari, fyrrverandi kennari minn, hvatti mig til þess að fara í Kennaraskólann því að ég var ekki til í að fara í menntaskól- ann. Ég var frekar tilbúinn að fara í Kennaraskólann.“ Þegar Jón Freyr lauk námi við Kennaraskólann hafði hann sam- band við Gunnar Guðmundsson, yfirkennara Laugarnesskóla, sem bauð honum að taka að sér kennslu við skólann. „Gunnar var geysilega sterkur persónuleiki og virtur maður. Hann hefur á marg- an hátt verið minn örlagavaldur.“ Oft er rætt um það álag sem kennarar sæta í dag, en Jón var ekki öfundsverður af sínu fyrsta ári í kennslu í þrísetnum skóla með 1500 nemendum. „Ég hef stundum sagt söguna af því þegar ég kom hérna fyrsta daginn og Gunnar yfirkennari seg- ir við mig að nú skuli ég koma og taka bekk. Ég vissi svo sem ekkert hvað ég átti að gera. Ég á að taka bekk klukkan níu og það er átta ára bekkur sem ég á að byrja á. Síðan held ég nú að það sé ekkert meira, því það var óákveðið hvað ég átti að kenna mikið, því að ég var stundakennari. En nei, ég á að taka annan bekk og það var níu ára bekkur og ég tek hann og þeg- ar ég skila honum er mér afhentur þriðji bekkurinn og ég byrja sem sagt á því að kenna þremur bekkj- um í skólanum fyrstu mánuðina hér í skólanum. Ég var umsjón- arkennari þriggja bekkja og nú kvarta menn yfir einum bekk og vilja helst ekki gera neitt annað. Almennt var reglan þá að kenna tveimur bekkjum, en að kenna þremur var náttúrulega heilmikil yfirvinna.“ Auðvitað gerir Jón sér grein fyr- ir því að álagið á kennara nú á dögum er síst minna en það var áður. Bæði hefur eðli kennara- starfsins breyst og kennslan öll. Einnig hefur skólastjórastarfið tekið mjög miklum breytingum frá því Jón Freyr tók við störfum sem skólastjóri fyrir 28 árum. Stjórn- unar- og skrifstofuvinna tengd skólastjórastarfinu hefur aukist til muna, auk þess sem fjárhags- ábyrgð og kröfur um meiri sam- skipti hafa aukist. Þessar breyt- ingar valda því, að skólastjórinn hefur mun minni tíma til að kynn- ast og vera með sjálfum nemend- um skólans. Því þykir Jóni mikill missir að. „Já, ég sé eftir þeim tíma. Ég sé eftir því að hafa ekki þann tíma sem ég hafði áður til að fara inn í bekkina og hitta krakkana svolítið. Til dæmis fór ég alltaf tvisvar á ári inn í bekkina og las upp öll nöfnin og lét þau segja mér símanúmer og heimilisföng til að sjá hvort þau væru rétt. Nú er enginn tími til að gera slíkt. Það gerir skrifstofu- stjórinn eða ritarinn núna. Það sem hjálpar mér er það að ég hef sjálfur stjórnað morgun- söngnum. Ég hef gert það í all- mörg ár. Þá er ég sýnilegur alla daga. Ég hef heyrt kennara tala um þegar nemendur koma úr öðr- um skólum og þeir verða alveg hissa og spyrja „Skólastjórinn? Er hann í þessu? Er hann að syngja?“ Það er eitthvað sem þau hafa ekki vanist. Skólar hafa almennt ekki þá aðstöðu að geta haft morgun- sönginn á hverjum degi eins og við. Ég veit um skóla sem eru með morgunsöng, en hafa hann ekki svona reglulega eins og hjá okkur. Mér finnst það óskaplega mikils virði fyrir mig, en hvort ég ráðlegg nýjum manni að fara þá leið, það er önnur saga.“ Jón Freyr hlær dátt að hugmyndinni og augljóst er að hann tekur lífinu ekki of há- tíðlega. Söngur fyrir lífið Söngstundirnar í Laugarnes- skóla eru einstakt fyrirbæri. Þá koma allir nemendur og kennarar skólans saman að morgni og hefja daginn á algerri þögn, sem er síð- an fylgt eftir með kraftmiklum söng áður en haldið er til skóla- stofa. Það var Ingólfur Guðbrands- son sem átti veg og vanda að því að söngstundirnar voru teknar upp og hafa margir landsþekktir tón- listarmenn stýrt þeim í gegnum tíðina, til dæmis Guðfinna Dóra Ólafsdóttir og Stefán Edelstein. Mörg landskunn lög hafa einnig verið ort fyrir söngstundirnar og frumfluttar þar. Til dæmis má nefna hinn sígilda jólasálm Bjart er yfir Betlehem. Þessar söng- stundir eru Jóni mjög mikilvægar og telur hann að þær byggi upp aga og virðingu nemenda fyrir hver öðrum og hæfileikann til að standa og vera hljóð, því að nú á dögum sé sá hæfileiki næstum út- dauður. Annar kostur söngstund- anna er sá, að börnin útskrifast úr skólanum með heila söngbók í höfðinu. Einn blaðamanna Morg- unblaðsins sem gekk í Laugarnes- skóla segist enn kunna lög eins og „Land míns föður“ og „Hver á sér fegra föðurland“ utanbókar og þakkar það söngstundunum í Laugarnesskóla. Gildi slíkrar þekkingar er ómetanlegt fyrir lífið og segir Jón Freyr afar mikilvægt, að fólk búi að ríkri sönghefð þegar það fer út í lífið. Einnig er það hefð að einn dag í viku er brugðið út frá venjunni og hver bekkur fær einn slíkan dag til að flytja leikþátt eða skemmtiatriði fyrir skólann. Þetta segir Jón einnig mjög hollt fyrir börnin. Í upphafi voru söng- stundirnar mjög stífar og kom það fyrir tvisvar á fyrsta ári Jóns, að hann þurfti að grípa stúlkur sem féllu í yfirlið vegna þess hversu stíft þær stóðu. Eftir að Jón tók við fóru söngstundirnar þó að ein- kennast af meiri léttleika og gleði. Söngstundirnar eiga sér einnig sínar spaugilegu hliðar og Jón Freyr hefur ekki farið varhluta af þeim. „Ég hef nú varla þorað að segja kennurunum frá því þegar það hefur komið fyrir mig að ég kann kannski nokkurn veginn text- ann, en lít svo í söngbókina og fer allt í einu að lesa vitlausa línu, af því að ég hef ekki fylgst með í bók- inni. Svo syng ég hástöfum ein- hverja vitleysu, en það heyrir það náttúrulega enginn því allir eru að syngja. Svo hlæ ég náttúrulega inni í mér, reyni að láta lítið á bera.“ Hann hlær glaðlega og horf- ir út í blíðviðrið fyrir utan gluggann. „Annað skemmtilegt at- vik átti sér stað á 65 ára afmælinu mínu. Þá höfðu kennarar og nem- endur undirbúið söngstundina öðruvísi en söngskráin átti að vera. Þetta vissi ég ekki og gerði mig kláran fyrir Eldgömlu Ísafold. Síð- an gef ég merki um að við skulum Morgunblaðið/Billi Jón Freyr Þórarinsson, skólastjóri Laugarnesskóla, kveður í sumar skólann sem hann hefur numið og starfað við næstum alla ævi. Dansað gegnum lífið Jón Freyr Þórarinsson lætur í sumar af störfum sem skólastjóri Laugarnesskóla eftir 45 ára feril við skólann. Svavar Knútur Kristinsson ræddi við hann um líf hans og starf í skólanum, sam- kennara, nemendur og dansinn. Jón Freyr Þórarinsson fæddist 5. apríl 1936 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórarinn Wíum tré- smiður og Vilborg Þórólfs- dóttir húsmóðir. Jón Freyr kvæntist árið 1957 Matthildi Guðnýju Guð- mundsdóttur kennara og eiga þau tvö uppkomin börn. Jón Freyr tók landspróf frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar árið 1952 og lauk kennaraprófi árið 1956 frá Kennaraskóla Íslands. Hann var kennari við Laugarnes- skóla árin 1956–65, yf- irkennari við Laugarnes- skóla 1965–73 og skólastjóri Laugarnesskóla árin 1973– 2001. Jón Freyr hefur verið virkur í félagsstarfi alla ævi og meðal annars setið í stjórn Þjóðdansafélags Reykjavíkur, Barnavina- félagsins Sumargjafar og Lúðrasveitarinnar Svans. Hann hefur einnig unnið margþætt störf í þágu kenn- arasamtakanna. Jón Freyr Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.