Morgunblaðið - 24.06.2001, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.06.2001, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. ÞESSI mynd var tekin 17. júní árið 1974 af eiginmanni mínum, Páli Ragnarssyni. Maðurinn minn spurði föð- ur þeirra góðfúslega hvort hann mætti mynda þessar tvær yndislegu dætur hans og var það leyfi veitt með ánægju. Myndin er tekin á Arnarhóli og situr faðir þeirra á bak við þær í gras- inu. Ef einhver getur gefið mér upplýsingar, vinsam- legast skrifið til Hanne Ragnarsson, Suðurhlíð, Rauðahús, 101 Reykjavík. Um hundahald ÉG las greinar eftir svo- kallaða dýravini í Velvak- anda 14. júní sl. og 20. júní sl. Ég vil minna þessa hundavini á að kosið hefur verið um hundahald í Kópa- vogi og Reykjavík og því hafnað á báðum stöðum. Eins og fram kemur í greininni viljið þið hunda- eigendur fá að hafa ykkar dýr í friði. En hefur ykkur dottið í hug að við sem kus- um á móti hundahaldi, meirihluti kjósenda, viljum fá að vera í friði fyrir laus- um hundum á göngustíg- um, útivistarsvæðum og jafnvel á útihátíðum þjóð- arinnar. Vitið þið að við sem búum við göngustíga borgarinnar horfum á marga hundaeigendur á hverjum degi ganga fram hjá og eru fleiri hundar lausir en í bandi. Á vorin þegar snjóa leysir er lóðin mín eins og hundaklósett. Hver haldið þið að hreinsi það? Fenguð þið ekki hundaleyfið gegn vissum skilyrðum? Er ekki eitt skilyrðið að hafa hann alltaf í bandi á almannafæri? Finnst ykkur ekki of marg- ir hundsa það? Eða finnst ykkur þið ekkert þurfa að fara eftir reglum sem ykk- ur finnst asnalegar? Má senda hundinn inn í næsta garð til að gera þarfir sínar og líta undan á meðan? Hvort sem ég er með of- næmi eða ekki fyrir hund- um (enda finnst mér hundaeigendum ekkert koma við af hverju fólk er á móti hundum) myndi ég aldrei búa í sama húsi og hundur, því að hann er ekki á bak við lokaðar dyr allan daginn. Honum er auðvitað hleypt út og er hann þá oft laus og fer út í sameiginleg- an garð og gerir sínar þarf- ir þar. Hver hreinsar það upp? Þið hundaeigendur ætlist til að við hin elskum hundana ykkar og getið ekki skilið að við höfum takmarkaðan áhuga á þeim. Ég vil fá að njóta úti- veru án þess að hitta hund- inn þinn. Ég á alltaf eftir að þakka forstöðumanni Laugardalsgarðsins fyrir að þar get ég verið viss um að hitta ekki hunda. Enda fer ég oft þangað og finnst það vera griðastaður okkar sem kjósum að vera laus við að hitta hundinn þinn. Þið, sem kusuð á móti hundahaldi eins og ég, hugsið um það fyrir næstu kosningar hvaða flokkur stendur við það sem meiri- hluti kjósenda samþykkti gegn hundahaldi, það er að hundahald er bannað nema með vissum skilyrðum. Hundaeigendur verða að fara eftir þeim reglum, sem þeim eru settar, þegar þeir sækja um að hafa hund. Í næstu kosningum skulum við kjósendur, sem erum andvígir hundahaldi, at- huga hvaða flokkur virðir okkar skoðanir varðandi hundahald. Mín skoðun er sú að herða eigi lög um hundahald og einnig viður- lög við brotum á þeim. Húsmóðir á Kársnesinu. Dýrahald Kettlinga vantar heimili SEX vikna fallegir kett- lingar fást gefins á góð heimili. Þeir eru kassavan- ir. Upplýsingar í síma 899- 1908, 699-4772 eða 567- 5485. Kettlingur týndist í Hafnarfirði KETTLINGUR, norskur skógarköttur, loðinn, hvít- ur, svartur og grádroppótt- ur týndist frá Hólabraut 6, Hafnarfirði. Þeir sem hafa orðið varir við hann hafi samband í síma 865-1493. Læða týndist í Seláshverfi GRÁBRÖNDÓTT og hvít læða, 10 mánaða og mikið loðin, týndist 20. júní frá Reykási í Seláshverfi. Hún er með bláköflótt hálsband sem er merkt og bjöllu. Hennar er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 567-7512 eða 861-3157. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Kannast einhver við stúlkurnar? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 æringjana, 8 konungur, 9 vatt, 10 þegar, 11 gabba, 13 flýtinn, 15 hóp, 18 menntastofnana, 21 iðkað, 22 stólarnir, 23 svikull, 24 andstæða. LÓÐRÉTT: 2 erfð, 3 þarma, 4 fara laumulega með, 5 kroppa, 6 skilningarvit, 7 vangi, 12 kusk, 14 dæmd, 15 vatnsfall, 16 skeldýr, 17 báturinn, 18 mikið, 19 stríð, 20 hina. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 vilpa, 4 spæta, 7 lipur, 8 eitil, 9 sef, 11 aðal, 13 anar, 14 Yggur, 15 torf, 17 tjón, 20 grá, 22 kopar, 23 líð- ur, 24 arnar, 25 tarfa. Lóðrétt: 1 velja, 2 loppa, 3 aurs, 4 stef, 5 ættin, 6 aular, 10 elgur, 12 lyf, 13 art, 15 tákna, 16 ræpan, 18 jaðar, 19 narta, 20 grær, 21 álít. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Arina Arctica kemur og fer í dag. Laugarnes og Dellach koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Bilbao kemur í dag. Dimas, Verseborg og Brúarfoss koma á morgun. Mannamót Aflagrandi og Hraun- bær. Miðvikudaginn 27. júní verður farin sum- arferð til Sandgerðis lagt af stað frá Afla- granda kl. 12.30 og frá Hraunbæ kl. 13. Ekið verður til Sandgerðis að Hvalsneskirkju og hún skoðuð, síðan farið um höfnina að Fræðasetr- inu, leiðsögumaður Reynir Sveinsson, for- stöðumaður Fræðaset- ursins, ekið um Garð til Keflavíkur kaffiveit- ingar hjá öldruðum í Keflavík. Nánar upplýs- ingar og skráning í Afla- granda, sími 562-2571, og Hraunbæ, sími 587- 2888. Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10 boccia, kl. 14 félags- vist, kl. 12.30 baðþjón- usta. Árskógar 4. Á morgun kl. 9–12 opin handa- vinnustofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30–16.30 opin smíða- stofan/útskurður, kl. 13.30 félagsvist, kl. 10– 16 púttvöllurinn opinn. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 almenn handavinna, kl. 9.30–11 morgunkaffi/dagblöð, kl. 10 samverustund, kl. 11.15 matur, kl. 15 kaffi. Farið verður upp á Akranes fimmtudaginn 28. júní kl. 13. Byggð- arsafnið skoðað og kaffi drukkið á Dvalarheim- ilinu Höfða. Ekið verður heim um Hvalfjörð. Upplýsingar og skrán- ing í síma 568-5052 fyrir miðvikudaginn 27. júní. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, sími 554 1226. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð, kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 11.30 matur, kl. 13 handavinna og föndur, kl. 15 kaffiveitingar. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Á morgun mánudag verð- ur félagsvist kl. 13:30. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli þriðjudögum kl. 14 til 16. Haustferðin 1. okt. nk. til Prag, Brat- islafa, Búdapest og Vín- ar, kynning verður mið- vikudaginn 27. júní nk. kl. 14 greiða þarf þá staðfestingargjald. Or- lofið á Hótel Reykholti í Borgarfirði 26.–31. ágúst nk. Skráning og allar upplýsingar í Hraunseli, sími 555- 0142. Göngufólk, athugið að það þarf að færa morg- ungönguna aftur til laugardags og verður því næsta ganga laug- ardagin 30. júní nk. rúta frá Firðinum kl. 9:50 og Hraunseli kl. 10. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10 til 13. Matur í hádeg- inu. Sunnudagur: Síð- asta félagsvist fyrir sumarfrí kl. 13.30. Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda kl. 19 fyrir framhald og byrj- endur kl. 20.30. Mið- vikudaginn 27. júní fara Göngu-Hrólfar út í Við- ey með Viðeyjarferj- unni. Mæting í Kletta- vör, Vatnagörðum, kl. 12.50 og hafa með sér nesti. Umsjón Ingvar Björnsson. Dagsferð 10. júlí Þórsmörk– Langidalur. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir og Pálína Jónsdóttir. Dags- ferð 14. júlí Gullfoss– Geysir–Haukadalur. Leiðsögn Sigurður Kristinsson og Pálína Jónsdóttir. Eyja- fjörður– Skagafjörður– Þingeyjarsýslur, 6 dag- ar, 26.–31. júlí. Ekið norður Sprengisand til Akureyrar. Farið um Eyjafjarðardali, Svarf- aðardal, Hrísey, Sval- barðsströnd o.fl. Ekið suður Kjalveg um Hveravelli til Reykja- víkur. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir. Eigum nokkur sæti laus. Ath.: Vegna mikillar aðsókn- ar í hringferð um Norð- austurland viljum við biðja þá sem eiga pant- að að koma og greiða inn á ferðina sem fyrst. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 fh. í síma 588-2111. Upplýsingar á skrif- stofu FEB kl. 10 til 16 í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilaslalur opinn kl. 15.30 almennur dans hjá Sigvalda, allir vel- komnir. Myndlistarsýn- ing Gunnþórs Guð- mundssonar stendur yfir. Veitingar í kaffi- húsi Gerðubergs. Mið- vikudaginn 27. júní, ferðalag í Húnaþing vestra, hádegishressing í Víðigerði, Vatns- neshringurinn ekinn, m.a. staldrað við í Klömbrum, Tjörn, Illugastöðum og á fleiri stöðum. Kaffiveitingar á Hvammstanga með eldri borgurum. Allir velkomnir. Skráning hafin. Allar upplýsingar um starfsemina á staðn- um og í síma 575-7720. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á morgun kl. 9–16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 14 félagsvist. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9.30–12. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postulínsmálun, perlusaumur og korta- gerð, kl. 10 bænastund, kl. 13 hárgreiðsla, kl. 13.30 til 14.30 göngu- ferð. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, kl. 13 spil- að. Norðurbrún 1. Á morg- un verður fótaaðgerða- stofan opin kl. 9–14, bókasafnið opið kl. 12– 15, ganga kl. 10. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9 dagblöð og kaffi, fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 almenn handavinna, kl. 10–11 ganga Halldóra og Sig- valdi, kl. 11.45 matur, kl. 12.15–13.15 dans, kl. 13.30–14.30 dans, kl. 14.30 kaffi. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan og hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund og almenn handmennt, kl. 10 fóta- aðgerðir, kl. 11.45 mat- ur, kl. 13 leikfimi og frjáls spil, kl. 14.30 kaffi. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánudög- um í Seltjarnar- neskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁA Síðu- múla 3–5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laug- ardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis eru með fundi alla mánu- daga kl. 20 á Sól- vallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Safnaðarfélag og kirkjukór Áskirkju Sumarferð verður farin í tilefni 25 ára afmælis félagsins, sunnudaginn 1. júlí, lagt af stað frá Áskirkju kl. 9, ekið um göngin til Akraness, messað í Akraneskirkju kl. 11 hádegisverður snæddur á Hótel Barbró skoðunarferð um Akranes með við- komu á Byggðarsafninu á Görðum, ekið heim um Hvalfjörð. Þátttaka til- kynnist fyrir 29. júní til Kirkjuvarðar Áskirkju, sími 588-8870, Guðrúnar sími 553-0088 eða Þór- önnu sími 568-1418 og 892-4749. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60, mánudaginn 25. júní kl. 20. Guðlaugur Gunn- arsson kristniboði sér um fundarefni. Allir karlmenn velkomnir. Brúðubíllinn Brúðubíllinn verður á morgun kl. 10 við Vest- urgötu og kl. 14 við Vesturberg. Í dag er sunnudagur 24. júní, 175. dagur ársins 2001. Jónsmessa. Orð dagsins: En sæl eru augu yðar, að þau sjá, og eyru yðar, að þau heyra. (Matt. 13, 16.) Víkverji skrifar... EKKERT varð af keppni í spjót-kasti á Miðnæturmóti ÍR í frjálsíþróttum á Laugardalsvelli á þriðjudaginn var, 19. júní. Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir formanni frjálsíþróttadeildar ÍR: „Þegar við komum á staðinn var til- kynnt að spjótkast yrði ekki leyft á aðalvellinum og það var búið [að] leggja dúk yfir aðalvöllinn til að vernda knattspyrnuvöllinn.“ Hann segir að starfsmenn hafi hins vegar verið búnir að útbúa bráðabirgða- kastsvæði á æfingasvæði frjáls- íþróttamanna, „en við töldum það ekki löglegt og að auki hættulegt fyr- ir keppendur. Því varð að sleppa því að keppa í spjótkasti, sem er óheppi- legt því spjótkast var ein af grein- unum í stigakeppninni.“ Frjálsíþróttamenn voru að vonum óhressir með þessar málalyktir. x x x VÍKVERJI hefur undir höndumbréf frá áhugamanni um íþrótt- ir og raunar föður stúlku sem hugðist keppa í spjótkasti á umræddu móti. Hann tekur fram að bréfið megi nota sem blaðagrein og það verði sent til fólks sem sé nafngreint þar, til Frjálsíþróttasambandsins, Morgun- blaðsins, DV, RÚV og ef til vill fleiri. Hann segist meðal annars ekki gera upp á milli íþróttagreina og enga fordóma hafa í garð neinnar þeirra. Þetta kvöld, 19. júní, á sjálfan kvennadaginn, hafi hann farið til að fylgjast með dóttur sinni keppa með- al fremstu spjótkastara landsins. „Amma stúlkunnar var mætt á þjóð- arleikvanginn á 76 ára afmælisdegi sínum til að fylgjast með barna- barninu í fylgd þriggja stúlkna sem einnig eru barnabörn hennar. Þetta var sem sagt hátíðisdagur í lífi ömm- unnar. Veðrið var með skársta móti og allar aðstæður hinar bestu til að kasta spjóti. Ég átti jafnvel von á ár- angri sem væri til frásagnar.“ En þar sem dúkur var dreginn yfir völlinn og fánastatíf og grjóthnull- ungar voru á atrennubraut spjót- kastsins hefði verið greinilegt að ekki yrði keppt í umræddri grein. „Amman staldraði við í 10 mínútur og fór síðan heim til að sinna afmæl- isgestunum. Sem betur fer varð sá sem réð þessu ekki á vegi hennar.“ Bréfritari segir Knattspyrnusam- bandið, sem fengið hafi Laugardals- völlinn til frjálsra afnota fyrir nokkr- um árum, virðast geta komið fram við aðrar íþróttagreinar eins og því sýnist. „Fyrir þá sem ekki vita betur þá er Laugardalsvöllurinn eina boð- lega aðstaða frjálsíþróttamanna í Reykjavík. Þar stunda þeir sínar æf- ingar og ég veit ekki til þess að frjáls- íþróttamót séu haldin á öðrum velli í Reykjavík.“ Síðan setur hann fram nokkrar spurningar: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ert þú sátt við að þessar konur séu móðgaðar svona freklega á þessum hátíðisdegi kvenna og getur þú bætt aðstöðu þeirra? Björn Bjarnason. Er einhver von til þess að konur geti orðið landi okk- ar til sama sóma og íþróttafólkið sem þú hreifst svo af í San Marino um daginn ef þeim er boðið upp á svona framkomu? Eggert Magnússon. Ætlar þú og þitt fólk hjá KSÍ að halda áfram að koma fram við frjálsíþróttafólkið eins og það sé annars flokks á þjóð- arleikvanginum? Davíð Oddsson. Svona gera menn ekki, eða hvað finnst þér um þetta? Íþróttafréttamenn. Hafið þið ekk- ert annað að segja okkur íþrótta- áhugafólki en fréttir af blöðrusparki? Víkverji bíður spenntur eftir svör- unum og hvort aðstaða frjálsíþrótta- manna batnar í höfuðborginni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.