Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.06.2001, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. V i ð s k i p t a h u g b ú n a ð u r á h e i m s m æ l i k v a r ð a Borgar túni 37 Sími 569 7700W W W. N Y H E R J I . I S Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á www.postur.is Veit Pósturinn hvar þú býrð HÚSFYLLIR var í Hallgríms- kirkju við upphaf kirkjudaga á föstudagskvöld þar sem fór fram fjölbreytt kvöldvaka. Biskup Ís- lands, Karl Sigurbjörnsson, setti kirkjudagana og meðal viðstaddra voru forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og félags- málaráðherra, Páll Pétursson. Viðamikil dagskrá var í allan gærdag og sagði sr. Bernharður Guðmundsson, verkefnisstjóri kirkjudaganna, tilgang þeirra vera að skapa vettvang fyrir frjó- ar umræður og nýjar hugmyndir. Þá væri kirkjan að bjóða til sam- tals og samveru við þjóðina. Að- spurður sagði hann að boðið væri upp á samtals 60 málstofur þar sem fjallað væri um margvísleg málefni. Málstofan um trú og efa í textum írsku hljómsveitarinnar U2 hafði verið mjög vel sótt sem og málstofa um móttöku innflytjenda og líðan heyrnarlausra. Sr. Bernharður lagði sérstaka áherslu á barnadagskrána þar sem m.a. var boðið upp á ævintýraheim sjávarins og kirkjuþing unglinga. Aðspurður sagði hann svolítið erfitt að henda reiður á fjöldanum þar sem dagskrá kirkjudaganna færi fram á fjórum stöðum; í Iðn- skólanum, Vörðuskóla, Hallgríms- kirkju og í tjaldi fyrir framan kirkjuna en ljóst væri að vel hefði tekist til. „Stemmningin er mjög góð, það er gleði í loftinu.“ Kirkjudögum lauk í gærkvöldi og inntur eftir því hvort kirkju- dagar verði haldnir að ári segir hann að venjan erlendis sé að halda dagana á tveggja til þriggja ára fresti og vonast hann til að svo verði einnig hér á landi. Morgunblaðið/Golli Börnin tóku líka þátt í kirkjudögum og hér er verið að segja þeim söguna af sköpun heimsins. Gleði á kirkjudögum MIKILL erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum á árlegri Jóns- messugleði í bænum aðfaranótt laug- ardags. Lögreglan hafði afskipti af sex líkamsárásum og hafa kærur þeg- ar verið staðfestar í fjórum þeirra. Ein árásanna var fólskuleg þar sem maður var sleginn í götuna og spark- að í höfuð hans liggjandi. Í tveimur tilfellum var um nefbrot að ræða. Óvenjumikil ölvun var í bænum á föstudagskvöldið og aðfaranótt laug- ardags, sérstaklega á meðal unglinga. Einn var grunaður um ölvunarakstur. Sex líkams- árásir í Eyjum „Í Morgunblaðinu á föstudag komu fram vísbendingar um að málefni Norðuráls væru að þokast í rétta átt og einnig hafa menn ekki verið bjartsýnni í annan tíma um framkvæmdirnar fyrir austan. Það er því ljóst að menn eru ekki að tala um neitt hrap í hagvexti,“ segir Davíð í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann vísar til þess að ný þjóð- hagsspá um 1,5% hagvöxt á næsta ári sé mjög varfærin vegna þess að þar sé ekki gert ráð fyrir þessum framkvæmdum. Átti sjálfur viðræður við aðila „Við fylgjumst náið með þeim við- ræðum sem fara fram um þessa stóru fjárfestingarmöguleika,“ segir Davíð. „Ég hef sjálfur átt viðræður við aðila án þess að frá því hafi ver- ið skýrt og auðvitað á það sama við um fleiri ráðherra, einkum þá sem málið snertir beint, og við leggjum öll það mat á stöðuna að fjárfest- ingar hafi aldrei verið nær okkur hvað þetta varðar heldur en nú.“ Í viðtalinu segir Davíð að tilefni kunni að gefast til vaxtalækkunar vegna breyttra aðstæðna í geng- ismálum. „Án þess að ég ætli að fara að gefa fyrirskipanir, sem ég hef ekki lengur heimild til, getur verið að bankinn ætti að hugleiða vaxtalækkun fyrr en síðar að minnsta kosti,“ segir forsætisráð- herrann. Klaufaskapur í bankakerfinu olli gengislækkun í maí Davíð segist telja að klaufaskap- ur í bankakerfinu hafi valdið því að gengið lækkaði verulega í maí. Skyndilega hafi komið inn á gjald- eyrismarkaðinn fyrirmæli um að út- vega milljarða króna til að borga af lánum Fiskveiðasjóðs. „Mér finnst að í þessu litla kerfi okkar hefði átt að láta vita með tveggja mánaða fyrirvara eða svo um svona hluti þannig að hægt væri að útbúa þetta og undirbúa og það myndi ekki hafa önnur áhrif á viðskipti dagsins. Þetta finnst mér klaufaskapur í bankakerfinu. Af þessum sökum lækkar gengið umtalsvert og þegar það gerist skapast vantrú sem leiðir til þess að gengið fellur kannski enn frekar,“ segir Davíð. Hann segir að samráðshópur við- skiptabankanna og Seðlabankans vinni nú að því að koma í veg fyrir að tæknilegir annmarkar lítils gjaldeyrismarkaðar ýti undir geng- issveiflu af þessu tagi. Davíð Oddsson forsætisráðherra um viðræður við erlenda fjárfesta í áliðnaði Erlendar fjárfesting- ar aldrei nær en nú  Engar pataðgerðir/10 DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að í viðræðum hans við erlenda fjárfesta hafi komið fram upplýsingar sem valdi bjart- sýni hans á að stækkun Norðuráls á Grundartanga og bygging álvers og virkjana á Austurlandi gangi eftir. til að skoða málið gaumgæfilega á næstu tveimur árum. Albert lagði þó áherslu á að hér væri horft áratugi fram í tímann. Orkuöflun fyrir næstu kynslóð „Þetta er ekkert sem er rétt hand- an við hornið. Hugmyndin er einfald- lega sú að kanna möguleika á orku- vinnslu af mun meira dýpi en áður hefur verið. Líklegt er að það myndi þýða umtalsvert meiri afköst og hugsanlega lengri endingu háhita- svæðanna en orkufyrirtækin eru allt- af að horfa langt fram í tímann til að sjá fyrir næstu skref vegna orkuöfl- unar fyrir næstu kynslóð,“ segir Al- bert. Á 4.000–5.000 m dýpi er þrýstingur orðinn mjög mikill en Albert segir að borað hafi verið niður á þetta dýpi á nokkrum stöðum í heiminum. Mörg háhitasvæði séu hins vegar til undir sjó á tveggja til þriggja km hafdýpi með svipaða eiginleika og háhitakerfi hér á landi hafi á þriggja til fimm km dýpi. Segir hann Ísland eina landið þar sem unnt yrði að ráðast í djúp- borun á þurru landi til að skoða hlið- stæður við slík háhitakerfi. Orkufyr- irtækin eru nú að kanna grundvöll slíkrar djúpborunar hvort heldur yrði á Reykjanesi, Hengilssvæðinu eða við Kröflu. Rætt á ráðstefnu eftir helgina Ekki er til búnaður hérlendis til að bora niður á 4–5 km. Jarðboranir hf. geta dýpst borað niður á um 3.000 metra. Kostnaður við um 2.000 m djúpa borholu er allt að 200 milljónir króna. Fjárhagsáætlun fyrir djúp- borun liggur ekki fyrir en Albert seg- ir ljóst að kostnaður hlypi á hundr- uðum milljóna ef ekki milljarði. Fjallað verður um möguleika djúp- borunar á Íslandi á ráðstefnu á morg- un og þriðjudag þar sem íslenskir og erlendir sérfræðingar bera saman bækur sínar. VERIÐ er að kanna hagkvæmni þess að bora eftir orku á háhitasvæðum á Íslandi á mun meira dýpi en verið hefur til þessa eða niður á um 4.000 til 5.000 metra. Til þessa hefur orkan verið sótt á um tvö þúsund metra dýpi. Með djúpborun af þessum toga er talið mögulegt að ná mun meiri orku og til lengri tíma en fengist hef- ur með núverandi borholum en ljóst er að kostnaður við eina slíka borholu hlypi á nokkur hundruð milljónum króna. Hugmyndin er enn þá á algjöru frumstigi en með þessu eru orkufyr- irtæki að hugsa nokkra áratugi fram í tímann. Hópur íslenskra sérfræðinga hef- ur síðustu mánuði undirbúið þessa hagkvæmniathugun í samvinnu við erlenda sérfræðinga. Í hópnum sitja Guðmundur Ómar Friðleifsson frá Orkustofnun, Björn Stefánsson frá Landsvirkjun, Einar Gunnlaugsson frá Orkuveitu Reykjavíkur og Albert Albertsson frá Hitaveitu Suðurnesja. Albert tjáði Morgunblaðinu að tryggðar hafi verið 30 milljónir króna Kanna borun eftir orku á tvöfalt meira dýpi en verið hefur Kostnaður hleypur á hundruðum milljóna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.