Morgunblaðið - 10.07.2001, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 35
✝ Kristinn ÓlafurKarlsson fædd-
ist 10. nóv. 1921 á
Ísafirði. Hann lést á
Landspítala, Foss-
vogi, aðfaranótt 5.
júlí s.l. Foreldrar
hans voru Karl
Kristinsson, f. 20
ágúst 1894 á Ísa-
firði, d. 12. nóv.
1931, og Salóme
Björnsdóttir, f. 9.
sept.1895 í Álftár-
tungu, Álftaneshr.
Mýr., d. 5. júlí 1986.
Kristinn átti fjögur
systkin; Kristínu, f. 19. júlí 1919,
d. 21. apríl 1994, Ólafíu, f. 8. des.
1923, d.10. ágúst 1998, Sigríði, f.
31. maí 1927, d. 2. mars 1941, og
hálfbróður samfeðra, Friðþjóf, f.
31. janúar 1917, d. 9. okt. 1998.
Kristinn kvæntist 21. júní 1947
Ástu Kristinsdóttur, f. 25. sept.
1925 í Hafnarfirði, d. 6. sept.
1994. Börn þeirra eru Lilja, f. 19.
nóv. 1947, gift Þorsteini S. Jóns-
um á Ísafirði og hjá Pétri í
Grænagarði. Fljótlega eftir að
hann kom til Hafnarfjarðar setti
hann upp sitt eigið netaverk-
stæði, í fyrstu var það í leiguhús-
næði í vesturbænum en fljótlega
byggði hann að Hvaleyrarbraut 3
í Hafnarfirði og þar voru mikil
umsvif öll síldarárin. Hann var
jafnframt með fiskverkun í nokk-
ur ár ásamt Bessa B. Gíslasyni.
Hann var einn af stofnendum Sæ-
dýrasafnsins í Hafnarfirði og
vann við safnið í nokkur ár, vann
síðan á netagerðarverkstæði í
Grindavík í um níu ár og fluttu
þau hjónin þá til Grindavíkur, en
fluttu svo aftur til Hafnarfjarðar.
Kristinn vann sem húsvörður í
Glæsibæ í nokkur ár og seinustu
árin vann hann í veiðarfæradeild
Asiaco, þar til fyrirtækið hætti.
Kristinn var formaður félags
netaverkstæðiseigenda í nokkur
ár og var formaður Hestamanna-
félagsins Sörla í mörg ár og heið-
ursfélagi þess félags. Sjómanna-
dagsráð heiðraði hann fyrir vel
unnin störf og Landssamband
veiðarfæragerða heiðraði hann á
sjómannadaginn árið 1998.
Útför Kristins verður gerð frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
syni, þau eiga tvö
börn og fimm barna-
börn, Salóme, f. 22.
júní 1949, gift
Hreiðari Júlíussyni,
þau eiga þrjú börn og
sex barnabörn,
Soffía, f. 2. apríl
1953, gift Guðna S.
Ingvarssyni, þau eiga
tvö börn og fjögur
barnabörn, Anna, f.
7. nóv. 1955, d. 3. jan.
1956, Sigríður Anna,
f. 29. ágúst 1957, gift
Erni Sveinbjörnssyni,
þau eiga þrjú börn,
Ásta Kristín, f. 26. ágúst 1959,
gift Þorsteini Heiðarssyni, þau
eiga þrjú börn, Karl, f. 4. apríl
1961, giftist Sólborgu Steinþórs-
dóttir, þau eiga tvö börn, þau
skildu, sambýlismaður Karls er
Árni Kristjánsson.
Kristinn ólst upp á Ísafirði en
fluttist til Hafnarfjarðar ásamt
móður sinni og frænku árið 1946.
Hann nam netagerð í Iðnskólan-
Elsku faðir minn. Það er svo
margs að minnast og allt eru það
góðar minningar. Það verður tóm-
legt þegar þú verður farinn, það var
alltaf fastur punktur í tilverunni að
koma við hjá þér tvisvar til þrisvar í
viku. Alltaf ljómaðir þú þegar þú
sást okkur koma, það var eins og þú
værir að bíða eftir okkur krökkun-
um, sérstaklega eftir að mamma dó.
Stundum vildir þú vera heima því
það gat einhver komið og ef þú fórst
út var yfirleitt skilinn eftir miði á
borðinu um hvert þú fórst, því öll
börnin voru með lykla og ekki átti að
þurfa að standa úti. Ef þú varst
heima voru dyrnar ólæstar, annars
gátum við bara opnað með lykli.
Mínar fyrstu minningar um okkur
saman voru þegar við vorum að
keyra suður með sjó á Grána gamla,
en það var vörubíllinn þinn, ég held
sá fyrsti sem þú eignaðist.
Þú varst stundum að keyra
steypurör fyrir frændfólk þitt í
Pípuverksmiðjunni snemma á
morgnana og fékk ég að koma með
ef ég var vöknuð, sem var oftast. Við
sungum alltaf mikið í þessum ferð-
um, ég var þá bara 5 og 6 ára. „Sá ég
spóa“ minnir mig alltaf á þennan
tíma, við sungum það mikið og tví-
raddað.
Ég var með þegar fyrstu kindurn-
ar voru keyptar á uppboði í Kald-
árselsrétt og man ég hvað ég var
montin þegar pabbi var alltaf með
hæsta boðið. Þegar pabbi var að
alast upp þá voru foreldrar hans með
kindur sem algengt var í þá daga.
Afi drukknaði á sundunum við
Ísafjörð þegar pabbi var 10 ára. Þá
var hann að selflytja kindur. Eftir
það vann pabbi mikið til að aðstoða
mömmu sína með heimilið. Ég held
að það hafi blundað í pabba að vera
bóndi, þegar mest var held ég að bú-
stofninn hafi verið um 60 kindur og
svo eignaðist hann líka nokkra
hesta.
Hann var mikill dýravinur og
barnavinur, alltaf máttu börnin, síð-
ar barnabörnin og jafnvel óviðkom-
andi börn koma með honum að gefa.
Til marks um það hvað dýrin hænd-
ust að honum þá var nóg fyrir pabba
að kalla á kindurnar þá komu þær
hlaupandi til hans. Pabbi var mjög
minnugur á öll kennileiti og var
mjög gaman að ferðast með honum,
hann og mamma komu með okkur til
Ísafjarðar sumarið 1993 og var Vest-
fjarðahringurinn allur farinn. Við
stoppuðum á Ísafirði í nokkra daga.
Það þurfti enga ferðahandbók, pabbi
vissi hvað allt hét um leið og komið
var á Vestfirðina og sagði hann svo
skemmtilega frá.
Ég man sunnudagsmorgnana,
kjötlyktina og allan laukinn sem þú
hrúgaðir á, því alla sunnudags-
morgna eldaði pabbi, þá mátti
mamma sofa út og hvíla sig.
Ég man hvað var gaman að fá þig
og mömmu í heimsóknir þegar ég
bjó erlendis og þegar þú fórst með
fiskimönnunum í Harbour Grace að
veiða loðnu, þá varstu með netanál-
ina í vasanum. Ef það þyrfti að bæta
þá varst þú tilbúinn að redda.
Ég gæti haldið endalaust áfram en
ég ætla að enda með bæninni sem þú
kenndir okkur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Takk fyrir allt, þú varst einstakur,
við munum geyma allar minningar
og varðveita. Guð geymi þig, pabbi
minn.
Þín dóttir,
Salóme.
Í dag kveðjum við elskulegan afa
minn og langafa barna minna, fjór-
um árum fyrir áttræðis afmælisdag-
inn hans. Mínar fyrstu minningar
um þig, afi minn, og hana ömmu eru
þegar þið bjugguð á Suðurgötunni í
Hafnarfirði, það var alltaf gaman að
koma til ykkar, stundum fengum við
Bóbó bróðir að gista, þá fórum við
kannski með upp í hesthús,við gátum
líka farið upp á loft og verið hjá kan-
ínunum svo gátum við líka dundað
okkur við að búa til tindáta úr vélinni
sem þú varst með upp á lofti. Það var
alltaf svo margt hægt að gera hjá
ykkur að ég man aldrei eftir atviki
þar sem við vorum skömmuð fyrir
eitthvað sem við ekki máttum.
Ég safnaði frímerkjum eins og svo
margir aðrir, alltaf var skúffan í for-
stofuherberginu hjá þér full af frí-
merkjum, aldrei mátti taka allt, en
alltaf eitthvað, aldrei man ég eftir að
þú gerðir upp á milli okkar barna-
barnanna. Allir krakkarnir í kringum
Suðurgötuna vissu hver þú varst, þú
varst svo mikill barnakarl.
Síðan eftir að við fluttum út til
Kanada þá komu þú og amma til okk-
ar í heimsókn. Sumarið 1986 þá kom
ég til Íslands í þrjár vikur, ég man
alltaf hvað það var sérstakt að fara
með þér og ömmu vestur þar sem
hann Kalli var að vinna, þú þekktir
hvert einasta fjall og hvern hól og
sögur í kringum allt saman.
Jæja elsku afi minn, ég vona að nú
líði ykkur ömmu og öllum hinum vel
saman. Ég þakka þér fyrir allt, strák-
arnir Gísli og Jón Árni voru heppnir
að kynnast þér og Garðar líka, þú
varst sá besti.
Við munum öll sakna þín. Ég bið
góðan Guð að styrkja mömmu og
hennar systkini í sorg þeirra. Þitt
barnabarn
Kristín og fjölskylda.
Minn elskulegi afi, erfitt er að
hugsa til þess að núna ertu horfinn
og kemur aldrei aftur, þú sem varst
alltaf svo góður við alla og með stórt
hjarta. En minninguna um þig mun
ég varðveita vel í huga mínum og
mun hún aldrei hverfa það segi ég
vegna þess að ég mun aldrei gleyma
þér.
Ég man eftir nokkrum minnis-
stæðum atriðum sem snertu mig
mjög en eru kannski bara ósköp
venjulegt fyrir aðra.
Minnisstæðast er mér að þegar ég
var lítil þá komstu alltaf til okkar á
hverjum degi og komst alltaf með
litla súkkulaðimola og ég hljóp oft til
þín út í bíl til að fá á undan öðrum.
Margt annað hefur þú gert fyrir mig
og aðra en þetta fannst mér það sem
snerti mig mest.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku afi ég þakka þér fyrir allt.
Díana Ósk.
Nokkur fátækileg orð til að kveðja
mág minn Kristinn Ólaf Karlsson
(Bóbó eins og hann var alltaf kall-
aður) sem látinn er eftir erfið veik-
indi, eflaust hvíldini feginn. Hann
var fæddur og uppalinn á Ísafirði en
fluttist ungur til Hafnarfjarðar og
settist þar að fullur bjartsýni og
stórhug, enda gekk honum vel.
Var lærður netagerðamaður, og
þótti mjög góður í sínu fagi. Hann
var ekki búinn að vera lengi í Hafn-
arfirði þegar hann réðist í það að
byggja stórt verkstæðispláss á
þeirra tíma mælikvarða. Hann hafði
marga menn í vinnu. Mest voru það
sjómenn sem höfðu verið árum sam-
an til sjós.
Reyndust þeir honum góðir
starfsmenn.
Í Hafnarfirði kynntist Bóbó Ástu
systur minni og gengu þau í hjóna-
band árið 1947. Þau eignuðust sjö
börn en misstu telpu nokkura vikna
gamla.
Öll eru börnin vel gerð. Þau hafa
reynst pabba sínum einstaklega vel.
Konu sína missti hann fyrir tæp-
um sjö árum, höfðu þau þá verið gift
í tæp fimmtíu ár.
Bóbó var einstaklega ljúfur maður
og vildi öllum vel. Ég vil þakka Bóbó
fyrir alla hans góðvild í garð foreldra
minna. Ég kveð hann með söknuði
en gleðst jafnframt yfir endurfund-
um hans og Ástu systur.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
ast þér.
(Ingibj. Sig.)
Lilja Kristinsdóttir
KRISTINN ÓLAFUR
KARLSSON
við Nýbýlaveg, Kópavogi
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Skreytingar við
öll tækifæri
Langirimi 21,
Grafarvogi
587 9300
Samúðarskreytingar
Samúðarvendir
Kransar
Kistuskreytingar
Brúðarvendir
Minningarsjóður Karls J. Sighvatssonar
Minningarkort sjóðsins fást á eftirtöldum stöðum:
„Blómaverkstæði Binna“, Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík, sími 561 3030.
„Hljóðfæraverslun Leifs Magnússonar“, Gullteigi 6, 105 Reykjavík, sími 568 8611.
„Framköllun á stundinni“, Ármúla 30, 108 Reykjavík, sími 568 7785.
,
211+>23
,% ?
.
/
< % %"?)*
< %)" %"?)* % '
>* %"?'
" )*
1 $ %"?)* ? '
, $* %"?)* $ (%!
'
%"?'
'%- -( /
2 02
!"#
1
$ '
#
,'
0
00+
>,"@ $ ' $ $ ( )*
$ ? >* '
*? >* ' 0* " -! )*
"#>* ' % - (%+ "
)*
+ %@>* )* 9? )$ ) #'
- -( '%- - -( /
2
"
'
"
3
'
'
+2=203
32
9#
? 6":A
.# !"#/
$
"
!
(
))
4
5
'
)
, *?? ))*
0' + % ,' $ B6? )*
*?, + % ,)* +! +B
? )+ % ,' < # "
+ % ,'
- -( '%- - -( /