Morgunblaðið - 10.07.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.07.2001, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Magnús Þor-geirsson fæddist í Króki í Grafnings- hreppi 9. sept. 1920. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi þriðjudaginn 3. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Anna Magnúsdóttir, f. 12. ágúst 1892 á Villingavatni í Grafn- ingshreppi, d. 27. jan. 1988, og Þorgeir Þórðarson, sjómaður og bóndi, f. 12. maí 1891 að Kröggólfs- stöðum í Ölfushreppi, d. 16. maí 1971. Þorgeir og Anna bjuggu í rúman aldarfjórðung að Háteigi í Garðahverfi en síðar í Hafnarfirði. Þau eignuðust fjögur börn. Tvo drengi misstu þau í frumbernsku og fósturdóttir þeirra lést barnung af slysförum. Systir Magnúsar er Ragnhildur Þorgeirsdóttir, f. 1. feb. 1922. Hún dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði. Eiginmaður hennar var Sæmundur B. Helgason, f. 23. okt. 1916, d. 3. júlí 1998. Eftirlifandi eiginkona Magnúsar er Ingibjörg Þorleifsdóttir, f. 5. sep. 1924. Þau gengu í hjónaband 1. júní 1952. Foreldrar Ingibjargar voru Þor- leifur Friðrik Friðriksson, sjómað- ur og bóndi, f. 8. sept. 1891 á Kjör- vogi í Árneshreppi, d. 12. okt. 1964, og Hjálmfríður R. S. Hjálmarsdótt- ir, f. 18. mars 1896 á Gjögri í Árnes- hreppi, d. 15. júlí 1973. Þau Magnús Thorlacius, f. 15. ágúst 1987, og Björk, f. 2. okt. 1991. 5) Snorri Magnússon, íþróttakennari og þroskaþjálfi í Garðabæ, f. 28. jan. 1960, eiginkona hans er Elín Stein- ey Kristmundsdóttir, nemi í flug- umferðarstjórn, þau eiga tvíbura- dæturnar Berglindi og Steineyju, f. 26. ágúst 1990. Magnús ólst upp hjá foreldrum sínum og systur í Háteigi í Garða- hverfi. Hann gekk í Bjarnastaða- skóla á Álftanesi, síðan í Flensborg, Iðnskólann í Hafnarfirði og í Vél- skóla Íslands. Hann stundaði sjó- mennsku og ýmis störf í Hafnar- firði, Ólafsvík og víðar til 24 ára aldurs en hóf þá iðnnám. Hann varð vélvirki árið 1947 og vélstjóri með sérstök rafmagnsréttindi árið 1951. Á námstímanum vann hann í Vél- smiðjunni Kletti hf. í Hafnarfirði og víðar, m.a. í Síldarverksmiðjunni í Djúpuvík á Ströndum þar sem hann kynntist eiginkonu sinni. Þau Magnús og Ingibjörg hófu búskap árið 1951 í Andakílsárvirkjun í Borgarfirði þar sem Magnús var vélstjóri í 11 ár. Árið 1962 flutti fjölskyldan til Akraness þar sem þau hjónin bjuggu í 34 ár. Á Akra- nesi starfaði Magnús fyrst við járn- smíðar í Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf., var síðan vélstjóri á hvalbát, togara og við síldveiðar en hóf störf í Sementsverksmiðjunni árið 1966 og starfaði þar sem vél- stjóri til ársins 1990. Síðan 1995 hafa þau hjón búið í Boðahlein 20 í Garðabæ. Magnús kom að félags- málum, var ungur virkur í ung- mennafélagshreyfingunni, sinnti stéttarfélagsmálum, söng í kór o. fl. Útför Magnúsar verður gerð frá Garðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. og Ingibjörg eignuðust fjóra syni en fyrir átti Ingibjörg eina dóttur: 1) Hjálmfríður Ragn- heiður Sveinsdóttir, skólastjóri í Vest- mannaeyjum, f. 2. des. 1948. Faðir Hjálmfríð- ar var Sveinn Guð- mundsson frá Naust- vík í Árneshreppi, byggingameistari í Reykjavík, f. 14. apríl 1923, d. 4. nóv. 1991. Hjálmfríður á þrjú börn og tvær sonar- dætur: Magnús Friðrik Valgeirsson, f. 5. sept. 1968, vél- stjóri í Vestmannaeyjum, maki hans er Dagný Guðmundsdóttir, Ingibjörg Eyborg, verslunarmaður í Reykjavík, f. 29. okt. 1973, og Sig- rún Bjarnadóttir, f. 29. okt. 1988. 2) Þorgeir Magnússon, sálfræðingur á Álftanesi, f. 28. des. 1951, eigin- kona hans er Erla Guðjónsdóttir skólastjóri, þau eiga tvær dætur og einn dótturson, Brynju fréttamann, f. 14. nóv. 1974, og Þóru Margréti nema, f. 24. feb. 1980. 3) Þorleifur Friðrik Magnússon, verslunarstjóri í Reykjavík, f. 30. ágúst 1955, eig- inkona hans er Anna Björg Ara- dóttir, hjúkrunarfræðingur og eiga þau tvö börn, Ara nema, f. 15. apríl 1982, og Ingibjörgu, f. 27. okt. 1988. 4) Viðar Magnússon, húsasmiður í Garðabæ, f. 28. jan. 1960, eiginkona hans er Sigríður Elín Thorlacius, flugfreyja, þau eiga tvö börn, Ólaf Hærra minn guð til þín hærra til þín, enda þótt öll sé kross upphefðin mín. Hljóma skal harpan mín: Hærra minn Guð til þín, hærra til þín. Genginn er góður maður og vinur minn mikill, Magnús Þorgeirsson vél- stjóri. Okkar kynni hófust norður á Ströndum fyrir fimmtíu árum þegar hann var vélstjóri í síldarverksmiðj- unni á Djúpavík við Reykjarfjörð þar sem hann kynntist eiginkonu sinni Ingibjörgu Þorleifsdóttur frá Litla- nesi, fóstursystur minni, sem varð þeim báður til mikillar gæfu og hjónaband þeirra var farsælt. Auðinn eignuðust þau í börnum sínum sem öll hafa komið sér vel áfram á lífsins leið. Magnús Þorgeirsson var sérstakur maður, hjartahlýr, bónþægur og vildi hvers manns vanda leysa. Það reyndi oft á það gagnvart mér þegar ég var að þroskast og verða að manni, þótt fjórtán ár væru á milli okkar áttum við góða samleið. Hann stóð fastur á sínum skoðunum og ég á mínum, en það urðu aldrei vinslit með okkur. Hér á árum áður heimsóttum við hvor annan og kom ég oft á heimili þeirra hjóna, sérstaklega í Andakíls- árvirkjun, þar sem hann var vélstjóri, og einnig á Akranesi þar sem hann endaði starfsferil sinn sem vélstjóri hjá Sementsverksmiðju ríkisins. Við fórum saman hringinn í kringum landið og var það ánægjuleg ferð og gleðirík. Magnús var sérstaklega verklag- inn maður og duglegur, margar ferð- ir kom hann til mín á Hótel Búðir á Snæfellsnesi þar sem ég var mat- sveinn í þrjú sumur. Einnig komu þau hjónin til mín í Hrísey þar sem ég rak veitingastofu. Minningarnar hrannast upp, oft var glatt á hjalla og mörg verkin vann hann fyrir mig sem ber að þakka og tók litla eða enga borgun fyrir. Fyrir allmörgum árum lenti hann í bílslysi og bar þess aldrei bætur. Það var mér mikil gæfa að kynnast Magnúsi Þorgeirssyni sem var mann- bætandi reynsla. Nú að leiðarlokum þakka ég honum og fóstursystur minni alla vinsemd í minn garð. Ég votta þér, Imma mín, og fjölskyldum þínum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Magnúsar Þorgeirssonar. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól, hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól, hljómi samt harpan mín; Hærra minn guð til þín, hærra til þín. (Matthías Jochumsson.) Auðunn Hafnfjörð Jónsson. MAGNÚS ÞORGEIRSSON ✝ Erlendur ÁrniAhrens fæddist 13. október 1913 í Danmörku. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 28. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Georg Ahrens, f. 5. mars 1887, d. 24. maí 1953, og Ingi- björg Erlendsdóttir, f. 1. júlí 1885, d. 16. maí 1968. Systkini Erlendar eru Ágústa María Ahrens, f. 20. nóv. 1917 og Einar Ahrens, f. 31. ágúst 1928, d. 3. desember 1993. Erlend- ur kvæntist 9. maí 1957 eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigríði Bjarnadóttur, f. 3. október 1915. Foreldrar Sigríðar voru Bjarni Grímsson, f. 4. desember 1870, d. 29. ágúst 1944, og Jóhanna Hró- bjartsdóttir, f. 20. nóvember 1879, d. 9. júní 1969. Dóttir Er- lendar og Sigríðar er Ingibjörg Jóhanna, f. 29. janúar 1958, gift Kristjáni T. Sigurðs- syni, f. 14. október 1954. Þeirra synir eru: Sigurður Árni, f. 21. ágúst 1991, og Kristján Ingi, f. 2. október 1993. Sonur Ingibjargar Jóhönnu var Erlendur, f. 6. ágúst 1973, d. 28. maí 1992. Erlendur Árni fluttist ungur að árum til Ís- lands, hann var trésmíðameistari að mennt og vann lengst af í Sög- inni hf í Höfðatúni. Útför Erlendar fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Mörg látlaus ævin lífsglaum fjær, sér leynir einatt, góð og fögur, en Guði er hún allt eins kær, þótt engar fari af henni sögur. Svo dylst og lind und bergi blá og brunar tárhrein, skugga falin þótt veröld sjái’ ei vatnslind þá, í vitund Guðs hver dropi er talinn. (Steingrímur Thorsteinsson.) Blessuð sé minning föður míns. Ingibjörg Jóhanna. Eins og nóttin tekur við af deg- inum tekur dauðinn við af lífinu og þetta er eitt af því fáa sem við get- um verið nokkuð viss um. Þrátt fyr- ir þessa vitneskju kemur dauðinn okkur alltaf jafn mikið á óvart og kemur alltaf jafn illa við okkur. Við venjumst því aldrei að þeir sem okkur þykir vænt um hverfi úr lífi okkar. Okkur setur hljóð, við dok- um við og finnum svo vel hve skilin milli lífs og dauða eru þunn. Við átt- um okkur á því að það sem er í dag verður kannski ekki á morgun. Það voru svona hugsanir sem þutu í gegnum huga minn þegar ég frétti að hann Erlendur, maður Sigríðar móðursystur minnar, væri látinn. Þessi hægláti og yfirvegaði maður sem aldrei lét mikið á sér bera var svo skyndilega horfinn fyrir fullt og allt. Ég fylltist eftirsjá því ég hélt eins og svo margir, að ég hefði næg- an tíma til að heimsækja hann og njóta samskipta við hann. Svo reyndist ekki því miður. Ég verð að viðurkenna að frá því að ég var barn fannst mér alltaf eitthvað sér- stakt og framandi við Erlend og kom þar margt til. T.d. var íbúðin í Skólastræti, sem hann og Sigga frænka bjuggu í, alveg frábær. Hún var í tvílyftu húsi og á neðri hæð- ERLENDUR ÁRNI AHRENS É g þekki ungan mann sem gengur mikið í skyrtum. Hann vill vera vel til fara, ekki síst í vinnunni, og af þeim sökum þarf hann að geta gengið að hreinum og straujuðum skyrtum vísum. Á hverjum morgni. Nú á þessi maður konu, og þar með kynni einhver að halda að skyrtumálum hans væri borgið. Það er hins vegar ekki svo einfalt (lesist: gamaldags). Unga konan vinnur líka úti, saman standa þau í barnauppeldi og hafa í stuttu máli öðrum hnöppum að hneppa en skyrtuhnöppum. Skyrtunum sinn- ir hins vegar kona úti í bæ, sem tekur að sér að þvo og strauja. Og ekki nóg með það, heldur kemur hún sjálf og sækir flík- urnar, skilar þeim svo upp að dyrum á herðatrjám og í plasti; hrein- um, stroknum og straujuðum. Ég þekki unga konu sem býr í stórri, fallegri íbúð ásamt manni sínum og barni. Í íbúðinni er gam- alt trégólf sem handleggur er að þrífa og er það gert samvisku- samlega á hverjum föstudegi. Þar eru hins vegar hvorki á ferð konan, maðurinn né barnið – í húsið kem- ur kona utan úr bæ og skúrar fjal- irnar, auk þess að gera hreint að ýmsu öðru leyti. Hjónin í stóru íbúðinni eru ung og frísk og gætu sjálfsagt sem best skúrað gólfin sín sjálf. Sama gildir um parið með skyrturnar; það á straujárn og strauborð og kann áreiðanlega til verka í kringum lín- ingar og kraga. En þótt ungt fólk kunni og geti, er ekki þar með sagt að það nenni. Það nennir bara því sem það kýs. Það nennir til dæmis ekki að eyða dýrmætum frí- stundum sínum í tímafrek og leið- inleg verk eins og að skúra og strauja. Nógu langir eru nú vinnu- dagarnir samt, fjarri heimilinu. Nei, ungt fólk í dag vill heldur sinna börnunum, hitta vini, heim- sækja ættingja, gera framtíð- arplön, ferðast, kela, slæpast, spássera og gera hvaðeina annað sem ungu fólki í blóma lífsins er tamast. Eðlilega. Og fyrst það er til fólk úti í bæ sem býður fram krafta sína við hreingerningar, hvers vegna ekki að þiggja þá krafta? Þannig aðstoð berst að vísu ekki ókeypis, það kostar að láta strjúka úr skyrtum og skrúbba íbúðir. En ef unga fólk- ið lifir á góðæristímum og metur að auki frítímann til fjár, er ekkert því til fyrirstöðu að það dragi upp budduna. Dæmin tvö hér að framan eru langt í frá einstök. Ég þekki marga fleiri sem fá ókunnugt fólk heim á hlað eða inn á gólf til þess að vinna verk sem lengst af hafa verið talin í verkahring heimilisfólks. Slá blett- inn, þvo gluggana, gera skatt- skýrsluna. Mála girðinguna. Sjálf fer ég stundum með bílinn minn á bílaþvottastöð og horfi á vaska drengi spúla þjóðvegaryk af fann- hvítum fák mínum. Á bensínstöðv- unum bið ég svo menn með merkt- ar skyggnishúfur að dæla á tankinn. Ég nenni ekki að gera þetta sjálf; ég kann, ég get, en ég hef ekki tíma. Ég hef áður fjallað um það á þessum vettvangi hvernig tæknin hefur á undanförnum árum aukið okkur leti sem aldrei fyrr, með vinnusparandi tækjum, fjarstýr- ingum og sjálfvirkum græjum af ýmsum toga. Mér verður hins veg- ar æ ljósara að fleira en tæknin ein ýtir okkur í þessa átt. Við kaupum ekki bara tæki til að vinna fyrir okkur, við leigjum okkur sífellt oft- ar lifandi staðgengla til þess að sinna verkunum, stórum og smáum. Passa börnin, bursta skóna, stytta skálmar, byggja hús- in, halda veislur... Sumir láta meira að segja aðra lesa fyrir sig bæk- urnar – leigja sér hljóðbækur til þess að geta notað tímann til ann- ars meðan þeir hlusta... Svo eru það þeir sem láta aðra lakka á sér táneglurnar og plokka augnabrún- irnar... Þá eru ónefndir þeir sem láta aðra sjá um heimilisbókhaldið, þeir sem halda au-pair-stúlkur árið um kring og þeir sem fá einka- þjálfara heim til sín, í stað þess að fara sjálfir í heilsuræktarstöðv- arnar... Mætti hér lengi áfram telja. Sennilega er það aldrei út- breiddara en á góðæristímum, að fólk kaupi þjónustu annars fólks til þess að spara sér tíma og vinnu. Eðlilega. Þegar upp kemur verk sem enginn á heimilinu nennir að vinna, er jú einfaldast að láta ein- hvern annan gera það – þótt það þurfi að borga honum fyrir. Af peningum á fólkið nefnilega nóg, en mínúturnar vaxa ekki á trján- um. Sei, sei, svona eru tímarnir breyttir. Við erum komin langan veg frá sjálfsþurftarbúskapnum sem eitt sinn var stundaður í hverjum kofa landsins. Þar var smjör strokkað, lestur kenndur og plögg saumuð, allt undir sama þaki. Ef ljár laskaðist var hann lagaður í skemmunni, ekki sendur á verkstæði. Ef aur slettist á ljó- ragler var farið út með dulu, ekki kallað á gluggaþvottamann. Gert var við skæðin í baðstofunni, ábreiður þvegnar í bæjarlæknum, kartöflur ræktaðar í túnfætinum... Nei, afsakið. Líklega er ósann- gjarnt að vera að draga hér upp ofureinfaldan veruleika og orða- forða sem tilheyra allt öðrum alda- mótum. Auðvitað verður aldrei horfið til slíkra hátta aftur. Til- gangurinn var einungis að benda á þá breytingu sem orðið hefur á hlutverki heimilisins á furðu- skömmum tíma. Heimilið er ekki lengur sjálfbært kerfi, heldur neyslueining sem sækir flest sitt út á við. Út í bæ. Annars vegar til iðn- aðar- og fagmanna – eðlilega – en hins vegar til ósköp venjulegs fólks sem tekur að sér að þvo, bóna, pússa, elda, flytja og byggja fyrir góðærisfólkið. Svo það geti haldið áfram að slæpast. Þegar ég ek út af bílaþvotta- stöðinni á mínum fannhvíta fáki, hef ég bara áhyggjur af einu: Hvernig mun ganga að venja okk- ur af þessum lúxus þegar harðnar í ári? Skúrað fyrir aðra Þegar upp kemur verk sem enginn á heimilinu nennir að vinna, er einfaldast að kaupa einhvern til þess. Af peningum á fólkið nefnilega nóg, en mínúturnar vaxa ekki á trjánum. VIÐHORF Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.