Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 24
NAGLA- og naglabandanæring frá
Trind inniheldur hvorki olíu né fitu og
er hvort heldur sem er fyrir neglur á
fingrum og tám. Naglanæringin
styrkir negl-
urnar og
kemur í veg
fyrir að þær
þorni upp og
klofni. Nagla-
bandanær-
ingin varnar
því að naglabönd og húðin í kringum
þau þorni og hjálpar til við eðlilegan
vöxt. Leiðbeiningar á íslensku. Inn-
flytjandi: S. Gunnbjörnsson ehf.
Naglabanda-
og naglanær-
ing frá Trind
NÝTT
NEYTENDUR
24 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 31. okt. nú kr. áður kr. mælie.
Mónu krembrauð, 40 g .......................... 69 80 1.730 kg
Mónu kókosbar, 50 g ............................. 45 55 900 kg
Góu risahraun, 75 g............................... 59 70 790 kg
Appollo konfekt, 110 g .......................... 99 120 900 kg
Pringles snakk, 200 g ............................ 229 270 1.150 kg
Egils Kristall, ½ l.................................... 110 130 220 l
Kexsm. muffins m. súkkul.b. 400 g ......... 329 380 830 kg
11–11-búðirnar
18.-24. okt. nú kr. áður kr mælie.
SS skólakæfa, 200 g ............................. 158 198 790 kg
SS hangiálegg, 2x8 sn. .......................... 2.255 2.819 2.255 kg
SS kalkúnaálegg, reykt........................... 1.918 2.398 1.918 kg
Nóa kropp, 150 gr ................................. 169 209 1.126 kg
Viennetta caramel ................................. 479 599 737 l
Viennetta súkkul./mint/lem./van. .......... 499 669 767 l
Viennetta jarðarberja ............................. 535 669 823 l
FJARÐARKAUP
Gildir til 20. okt. nú kr. áður kr.
Svínahnakki verde ................................. 989 nýtt 989 kg
Úrb. reykt folaldakjöt ............................. 599 899 599 kg
Svínakótilettur....................................... 798 899 798 kg
Dynamo þvottaefni, 4,1 kg ..................... 698 798 170 kg
Libero tvöfaldur bleiupk.......................... 1.498 1.798 1.498 pk
Cheerios, 567 g .................................... 348 389 613 kg
HAGKAUP
Gildir 18.-28. okt nú kr. áður kr. mælie.
NY stroganoff í bk .................................. 1.596 1.878 1.596 kg
NY piparsteik ( fillet) .............................. 1.783 2.098 1.783 kg
Kalkúna úrb. bringur m. skinni ................ 1.899 2.147 1.899 kg
Kalkúna steikur/sneiðar......................... 1.999 2.250 1.999 kg
Chicago Town Supreme Pizza .................. 399 519 399 pk
Snyders Olde Tyme Pretzels 425 ............. 258 366 258 pk
Classico Ital. Sausage w/pepp ............... 369 419 369 pk
Del. M. sósa garlic&onion 751 ............... 159 209 159 pk
NETTÓ
Gildir meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie.
Nautahakk fitusk. 8–12%....................... 599 879 599 kg
Rjómatöggur, 200 g............................... 99 124 495 kg
Kakótöggur, 200 g................................. 99 124 495 kg
Hnetusúkkulaði, 200 g........................... 199 209 995 kg
Rúsínusúkkulaði, 200 g ......................... 199 229 995 kg
Rjómasúkkulaði, 200 g .......................... 199 229 995 kg
Hríssúkkulaði, 200 g.............................. 199 209 995 kg
Lakkrístöggur 200 g............................... 99 124 495 kg
NÓATÚN
Gildir 19.–22. okt. nú kr. áður kr. mælie.
Ferskir kjúklingaleggir ............................ 449 895 499 kg
Fersk kj.læri án mjaðmabeins ................. 649 1.064 649 kg
SS kokkteilpylsur, eftir vigt...................... 678 848 678 kg
Heinz baunir, 1 dós................................ 59 68
Heinz spaghettí, 1 dós ........................... 79 90
Brauðsalöt frá Eðalfiski, 200 g................ 149 198 149 ltr
Baguett brauð, 1 stk .............................. 139 199
NÝKAUP
Gildir 18.–21. okt. nú kr. áður kr. mælie.
Ísl. matvæli, piparlax ............................. 1.499 2.099 1.499 kg
Vilkó vöfflumix, 500 g ............................ 249 319 498 kg
Nói hjúplakkrís, 200 g ........................... 149 189 745 kg
Ben&Jerry’s ís 473 ml, 6 teg. ................. 549 699 1.160 l
Nings grillkjúklingur, grjón+sósa.............. 790 1.230 790 pk
Nings tveggja rétta combo+núðlur........... 990 1.480 990 pk
SAMKAUP
Gildir 18.–21. okt nú kr. áður kr. mælie.
Kalkúnn ................................................ 699 1.195 699 kg
Eldfugl Buffaló vængir ............................ 860 1.075 860 kg
Ali hunangskótilettur .............................. 1.349 1.798 1.349 kg
Pripps, 0,5 l .......................................... 79 89 158 l
Carlsberg léttöl, 0,5 l ............................. 89 98 178 l
Ríó kaffi, 450 g ..................................... 299 423 664 kg
Eldfugl hunangslæri ............................... 860 1075 860 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 31. okt. nú kr. áður kr. mælie.
Pipp piparmintusúkkulaði....................... 49 75
Cavendish&Harvey brjóstsykur................ 199 255
Trópí í flösku, 300 ml ............................. 99 115 330 l
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Októbertilboð nú kr áður kr. mælie.
Egils orka, 0,5 ltr. .................................. 129 150 258 l
Kaffi Gevalia, 250 g............................... 165 195 660 kg
Lakerol, 3 teg. ....................................... 65 85 65 pk
ÞÍN VERSLUN
Gildir til 24. október nú kr. áður kr. mælie
Lambalæri ............................................ 799 998 799 kg
Oetker pítsur, 350 g............................... 349 429 977 kg
Oetker kartöflumús, 330 g...................... 279 298 1.137 kg
Hatting pítubrauð, 400 g........................ 119 147 297 kg
Heinz tómatsósa, 680 g......................... 149 165 208 kg
Family Fresh sjampó.............................. 189 223 189 stk
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Piparlax með 28% afslætti. Lækkað verð á bleium. Kjúklingur víða á tilboðsverði.
HELGARTILBOÐIN birtast með
nýju sniði á neytendasíðu í dag og er
takmarkið í framtíðinni að gefa eins
ítarlega mynd og kostur er af verð-
tilboðum matvöruverslana, þema-
dögum, kaupaukum og öðru sem
neytendum kemur til góða. Athugið
að verðtilboð gilda í mislangan tíma
og ýmist frá fimmtudegi eða föstu-
degi.
Ekki vildu allar verslanir senda
inn tilboð að þessu sinni en fram-
haldið ræðst af almennri þátttöku.
Bónus opnar nýja verslun í
Kringlunni um helgina, nánar tiltek-
ið klukkan tíu á laugardagsmorgun,
og er verslunin þar sem Habitat var
áður. Ýmis opnunartilboð verða í
versluninni, að sögn Guðmundar
Marteinssonar, framkvæmdastjóra
Bónuss.
Nóatún efnir til þemadaga
helgina 19.–22. október undir yfir-
skriftinni „brunch“ en þar er átt við
þá hefð að blanda morgunverði og
hádegisverði saman í eina máltíð,
sem þekkt er í Bandaríkjunum og
Evrópu.
Miðast tilboðsvörur Nóatúns-
verslananna um helgina við þá teg-
und matar sem að öllu jöfnu er neytt
í „brunch“, að sögn Sólmundar
Oddssonar, markaðsstjóra Nóatúns.
Hagkaup efnir líka til amerískra
daga, þeir hefjast í dag og standa
fram til 28. október. Sigurður Reyn-
aldsson, innkaupastjóri mat-
vöru, segir að af þessu tilefni
verði „mikið um tilboð og nýj-
ungar“ í versluninni. „Meðal
nýjunga er „TGI Friday’s“
skyndimatur, sem tengist nýj-
um veitingastað í Smáralind.
Einnig verður Ben&Jerry’s,
mest seldi ísinn í Bandaríkj-
unum, á sérstöku tilboðs-
verði,“ segir hann. Fleiri nýj-
ungar eru reyktur kjúklingur,
sem ekki hefur verið boðið
upp á áður, að sögn Sigurðar, og
„ekta“ amerísk svínarif, sem seld
eru til upphitunar.
„Ennfremur verða 7 bandarískar
uppþvottavélar dregnar út meðan á
amerískum dögum stendur. Hepp-
inn viðskiptavinur gæti unnið Flór-
ídaferð fyrir 4 með flugi og gistingu
frá Flugleiðum og 30 viðskiptavinir
fá sendar matarkörfur frá þeim sem
að dögunum standa,“ segir hann að
endingu.
Þemadagar og
ný Bónusversl-
un í Kringlunni
Tilboð, nýjungar og ýmsar uppákomur í matvöruverslunum næstu daga
HOLLUSTUVERND ríkisins, Ár-
vekni, Heilbrigðiseftirlit Reykjavík
ur, Löggildingarstofa og Rauði
kross Íslands hafa látið
vinna bækling um
köfnunarhættu vegna
sælgætis og smáhluta
og rétt viðbrögð vegna
aðskotahlutar í hálsi.
Bæklingnum verður
dreift í alla leikskóla,
auk þess sem hann mun liggja
frammi á heilsugæslustöðvum, en í
honum er að finna ábendingar og
upplýsingar til foreldra og forráða-
manna barna hvað skuli varast þegar
sælgæti og smáhlutir eru annars
vegar.
Bæklingur um
skyndihjálp
FRÉTTABRÉF Pottagaldra er
komið út. Útgáfan er í bókarformi og
að venju er fróðleik og uppskriftum
blandað saman í bók-
inni. Miðja bókarinnar
er tileinkuð börnunum
og nefnist Galdrabók
fyrir krakka.
Bókinni er dreift í
matvöruverslanir um
land allt.
Galdrabók
Pottagaldra