Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 9
Eddufelli 2
sími 557 1730
Bæjarlind 6
sími 554 7030
Opið mán.—fös.
frá kl. 10—18 og lau. 10—15.
Stakir
jakkar
og
nýjar
vörur í
hverri
viku
ÓÐINSGATA 7 562-8448
Jóla
stimplarnir
komnir
Gerum jólakortin sjálf
Nýji listinn á tilboði
Opið á laugard. 10-14
Glæsilegar nýjar
ullardragtir
með pilsum og síðbuxum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
NÝTT FRÁ OZONE
Buxur, bolir, peysur
Stærðir 40-54
Opið virka daga
frá kl. 10—18
laugardaga
frá kl. 10—14
Antíkmessan 2001
Sölusýning í Perlunni
til 21. október
Opið frá kl. 11-18
Skólavörðustíg, s. 698 7273
Gili, Kjalarnesi, s. 892 3041
Guðmundur Hermannsson,
úrsm., Bæjarlind, s. 554 7770
Klapparstíg, s. 896 3177
Hverfisgötu, s. 695 7933
30%
afslát tur
0-12 ára
Laugavegi 56, s. 552 2201
Sæt búð
með sál
fyrir þig
í 19 ár
GERT er ráð fyrir því að Strand-
arkirkja í Selvogi verði framvegis
á forræði kirkjuráðs og að henni
verði skipuð sérstök stjórn, sam-
kvæmt tillögu sem lögð hefur verið
fram á kirkjuþingi. Strandarkirkja
hefur til þessa fallið undir sérstök
lög nr. 50 frá 1928 sem kveða á um
að forræði hennar sé á hendi
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
en ráðherra hefur nýlega óskað
eftir að stjórnsýsla Strandarkirkju
verði færð til þjóðkirkjunnar.
Sr. Hreinn Hjartarson, einn full-
trúa á kirkjuþingi, mælti fyrir til-
lögunni og tjáði hann Morg-
unblaðinu að ráðuneytið hefði
óskað eftir þessari breytingu í
framhaldi af setningu nýrra laga
um starf þjóðkirkjunnar sem höfðu
m.a. í för með sér aukið vald og
aukna ábyrgð kirkjunnar á eigin
málum. Hreinn segir nýjar reglur
um Strandarkirkju engu breyta
um stöðu hennar sem sóknarkirkju
Strandarsóknar og fellur kirkjan
undir Þorlákshafnarprestakall.
Fá sóknarbörn
en miklar eignir
Sóknarbörn eru aðeins liðlega
tugur en kirkjan á miklar eignir
vegna áheita sem henni hafa borist
gegnum árin. Árið 1999 námu
áheit og gjafir til kirkjunnar 4,7
milljónum króna og á síðasta ári
voru þau 2,9 milljónir.
Tillagan hefur fengið umfjöllun
sóknarnefndar, prófasts og sókn-
arprests og nýtur stuðnings
þeirra.
Kirkjuráð skipar þriggja manna
stjórn Strandarkirkju til fjögurra
ára í senn samkvæmt tillögunni.
Stjórnin á að leggja árlega starfs-
og rekstraráætlun fyrir kirkjuráð
og annast daglega stjórn og rekst-
ur kirkjunnar og ráða starfsfólk.
Segir Hreinn að gert sé ráð fyrir
að heimamenn sinni stjórn kirkj-
unnar en hlutverk kirkjuráðs verði
meira á sviði langtímamála.
Hann sagði brýnt fyrir Strand-
arkirkju að geta starfað eftir þess-
um nýju reglum, mörg mál bíði,
einkum er varði framtíðarskipan
fjármála og ýmis mál er tengist
landi kirkjunnar, svo sem veiði-
réttindi.
Stjórnsýsla Strandar-
kirkju fari til kirkjuráðs
Ljósmynd/Jón H. Sigmundsson
Færa á forræði Strandarkirkju frá ráðuneyti til kirkjuráðs.