Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 39
á sérhæf- m barna- mi við það theimilis- erfiðustu g fækkun anleg. theimilis- a þau ein- u til með- barna- t að losa a nýtt bú- ga, nýta sem taka ri tíma og fastarf á m. Sterk komið frá lutaskrif- tarfi. eytingum er nauð- a ráðgjöf- ráðgjöf á sýnir að áðgjöf en n sinn oft- num væri unarverk- em fengið a á einni ýnt gildi eru þetta öf á borg- Stuðningur heim Annar liður í breyttri áherslu borgarinnar í þessum málum er að Félagsþjónustan hefur nýlega byrjað með nýtt úrræði sem nefnist „Stuðningurinn heim“. Starfsemin er til húsa á Sólvallagötu 10. Um er að ræða þjónustu sem felur í sér til- boð til foreldra eða forráðamanna sem tímabundið þurfa stuðning og ráðgjöf við uppeldi barna sinna. Fer sá stuðningur fram á heimilum viðkomandi fjölskyldna. Eftir að fjölskyldan hefur notið stuðnings heima hjá sérhæfðu starfsfólki getur komið í ljós að hún þurfi meiri kennslu og er þá mögu- leiki á tímabundinni dvöl í íbúð á Sólvallagötu. Umsóknir um þetta úrræði koma frá ráðgjöfum á borg- arhlutaskrifstofunum og Fé- lagsmiðstöðinni Miðgarði í Grafar- vogi. Á Sólvallagötu vinna fjórir sérhæfðir starfsmenn auk for- stöðumanns. Lára Björnsdóttir, félagsmála- stjóri í Reykjavík, segir að með breytingunum hafi fjármagn til málaflokksins verið fært til. Mark- miðið sé að nýta peningana betur, fækka vistheimilisplássum en fjölga samt úrræðunum til hags- bóta fyrir börnin. „Við viljum koma í veg fyrir að börn fari inn á stofnanir þar sem unnið er á vöktum. Það er ekki heppileg ráðstöfun og rannsóknir hafa sýnt það, ekki síst á litlum börnum. Auðvitað er ekki alltaf hægt að koma í veg fyrir það en við erum að reyna að vinna gegn því með þessum hætti. Okkar fremsta skylda er að styðja fjölskyldurnar í sínu uppeldishlutverki en ef við teljum okkur ekki geta sinnt eft- irspurninni með öðrum hætti mun- um við bæta við einkaheimilum,“ segir Lára. Fleiri tilvik tengd fíkniefnaneyslu Sigrún Óskarsdóttir, forstöðu- maður vistheimilisins á Laugarás- vegi og tengiliður við einkaheim- ilin, telur of snemmt að segja til um reynsluna af þeim úrræðum sem eru í boði eftir að áherslum hefur verið breytt. Veturinn verði að líða til að nýtingin á nýjum úrræðum komi betur í ljós. Hún segir reynsl- una af einkaheimilunum mjög góða, enda hafi verið ákveðið að fjölga þeim. Á vistheimilum verði þó áfram erfiðari málin, þar sem skorti á um samvinnu við forsjáraðila eða for- eldra, til að greina vandann og bjóða kennsluvistanir og jafnvel að foreldrar dvelji í íbúð vistheimilins til að njóta leiðsagnar starfsmanna um uppeldi barna sinna. „Við finnum klárlega fyrir því að þeim tilfellum fjölgar þar sem eit- urlyfjaneysla foreldra kemur við sögu. Málin eru þá öðruvísi og erf- iðari viðfangs. Í hverju tilviki reyn- um við að sjálfsögðu að leysa mál þannig að börnin geti verið hjá sín- um foreldrum. Þetta er alltaf reynt til hins ítrasta en því miður er það ekki alltaf niðurstaðan,“ segir Sig- rún. Ríki og sveitarfélög hafa með sér verkaskiptingu um rekstur stofn- ana fyrir börn. Skiptingin er þann- ig að ef vandi barna er vegna eigin háttsemi eða hegðunar þeirra, s.s. vímuefnaneysla eða brotahneigð, þá er ríkinu ætlað að koma til móts við þau með rekstri meðferðar- heimila fyrir börn og unglinga. Ef vandinn er fyrst og fremst fólginn í erfiðum heimilisaðstæðum, eins og ef foreldrar sinna ekki eða van- rækja börn sín, þá er það sveitarfé- laganna að sjá til þess að einhver úrræði séu tiltæk. Féllst ekki á tillögu um flutn- ing málaflokksins til ríkisins Þessi verkaskipting ríkis og sveitarfélaga hefur sætt gagnrýni og nefnd, sem félagsmálaráðherra skipaði fyrr á þessu ári, skilaði af sér drögum að nýju frumvarpi til barnaverndarlaga og lagði m.a. til að færa rekstur þessara vistheimila frá sveitarfélögunum til ríkisins. Horfði nefndin einkum til þess að börn utan Reykjavíkur hefðu ekki aðgang að vistheimilum en vitað væri um nokkra þörf fyrir slíku úr- ræði. Félagsmálanefnd Alþingis var með frumvarpið til meðferðar í sumar og er reiknað með að fé- lagsmálaráðherra muni endurflytja það á Alþingi á næstunni með þeirri breytingu m.a. að halda rekstri vistheimila eða annarra úrræða fyrir börn áfram í höndum sveitar- félaganna. Meðal þeirra sem gagnrýndu þessa tillögu nefndarinnar um flutning til ríkisins, og ráðherra tók þá gagnrýni til greina, var Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri. Hún telur afar brýnt að sveitarfélögin sinni þessari þjónustu frekar en ríkið, þau séu nær aðstæðum og viti betur um þörf fyrir úrræði. „Ég geri mér grein fyrir því að mörg sveitarfélög eru illa í stakk búin til að reka kostnaðarsöm úr- ræði. Það er hægur vandi fyrir rík- ið að styrkja þá sveitarfélögin í gegnum jöfnunarsjóðinn. Ég gat ekki fallist á að okkar heimili í Reykjavík yrðu tekin úr okkar umsjá og farið yrði að vista börn ut- an af landi hér. Mér finnst að hvert sveitarfélag eigi að hafa sitt úrræði. Annars var margt mjög gott í þessu frumvarpi og vonandi nær það fram að ganga,“ segir Lára. ra í fíkniefnaneyslu eða öðrum heimilisvanda erða heimili Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson nda barna sem búa við erfiðar aðstæður. Þess omið fyrir á vistheimili. Myndin er sviðsett. bjb@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 39 KOSIÐ verður um sam-einingu sjö sveitarfé-laga í Þingeyjarsýslu 3.nóvember næstkom- andi. Þau eru Skútustaðahreppur, Reykjahreppur, Aðaldælahreppur, Tjörneshreppur, Kelduneshrepp- ur, Öxarfjarðarhreppur og Húsa- víkurkaupstaður. Að mati samstarfsnefndar sem leggur til að sveitarfélögin verði sameinuð felst meginávinningur sameiningar í að mynda stærri stjórnsýslueiningu með einni stjórn sem hefur meira afl en margar smáar, afl til þess að fylgja þróuninni og bæta aðstöðu íbú- anna til sömu lífskjara og bjóðast annars staðar á Íslandi. Áhersla lögð á að jafna þjónustustigið Athugun samstarfsnefndar hef- ur leitt í ljós að nokkur hagræðing fæst í rekstri með sameiningu sveitarfélaganna, einkum hvað yf- irstjórnina varðar, eða allt að 4–5% af tekjum. Kostnaður við yfirstjórn sveitarfélaganna sjö nam á síðasta ári 80 milljónum króna, en var sama ár á bilinu 50 til 55 milljónir króna í sveitarfélögum af svipaðri stærð. Á móti lækka framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 1,5% af tekjum miðað við núgild- andi reglur en stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og ráðgjaf- arnefnd Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga hafa lýst yfir vilja til að tekjutapið verði bætt. Ekki er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður lækki strax þar sem áhersla verður lögð á að jafna þjónustustig innan sveitarfé- lagsins. Þá bendir nefndin á að miklum breytingum í stjórnsýslu fylgi ávallt einhverjir hnökrar. Samlegðaráhrif náist því vart fyrr en slíkir byrjunarörðugleikar séu að baki. Fram kemur í greinargerð sam- starfsnefndar að litlar stjórnsýslu- einingar eru ólíklegar til að geta tekist á við aukin verkefni sem kalla á sérþekkingu og eru ekki heldur líklegar til þess að stofna eða reka þjónustufyrirtæki, t.d. á orkusviði, eða styðja við atvinnu- uppbyggingu. Fólksfækkun und- anfarinna ár hefur veikt sveitar- félögin svo ekki verður hjá því komist að bregðast við og samein- ing sveitarfélaga er lykilatriðið í því sambandi. Bent er á að sam- keppni sé mikil við höfuðborgar- svæðið og eins sé mikil samkeppni milli landsbyggðarsveitarfélaga. „Við þurfum sameinað átak til mótvægis við „stóru“ sveitarfélög- in á landsbyggðinni og önnur hér- uð til að halda atvinnumálum og þjónustu í því horfi að traust sam- félag geti þrifist,“ segir í grein- argerð nefndarinnar. Verði sameiningin samþykkt verður til 14. fjölmennasta sveitar- félag landsins með 3.785 íbúa, mið- að við tölur um íbúafjölda frá 1. desember 2000. Heildarskatt- tekjur voru tæpar 840 milljónir króna og rekstrargjöldin námu tæpum 780 milljónum króna. Sam- eiginlega vörðu sveitarfélögin um 200 milljónum króna til fram- kvæmda á liðnu ári. Heildarskuldir allra sveitarsjóðanna með lífeyris- skuldbindingum eru um 1.470 milljónir króna en ef fyrirtæki sveitarfélaganna eru tekin með eru heildarskuldir um þrír milljarðar. Miðstöð stjórnsýslunnar verður á Húsavík ef af sameiningu verður en þjónustufulltrúar verða á Kópa- skeri og Reykjahlíð. Þeir verða tengiliðir sveitarstjórnar við aðra starfsmenn sveitarfélagsins og íbúa svæðisins. Lagt er til að níu fulltrúar skipi sveitarstjórn og verður áhersla lögð á að íbúarnir hafi aðgang að fundum hennar án þess að mæta á fundarstað, t.d. með fjarfundabúnaði eða öðrum fjarskiptum. Eins verður lögð á það áhersla að nýta upplýsinga- tækni og tölvusamskipti til að færa stjórnsýslu sveitarfélagsins sem næst íbúunum. Kennt á fjórum stöðum Ein skólanefnd verður í sveitar- félaginu en búist er við að grunn- skólanemendum fækki um allt að 10% á sameiningarsvæðinu á næstu fimm árum, standi íbúa- fjöldi í stað. Haldi fólki hins vegar áfram að fækka verður fækkunin meiri. Varðandi staðsetningu skólahúsnæðis verður miðað við að frá heimilum að minnsta kosti 90% íbúa í hverju skólahverfi sé ekki meira en 30 kílómetra akstur að næsta skóla. Í samræmi við þessa stefnu verður kennt á Húsavík, Hafralæk og í Reykjahlíð. Í Öx- arfirði og Kelduhverfi kemur til greina að sameina alla kennslu í Lundi, en það verður þó ekki gert nema í samráði við íbúa skóla- hverfisins og að slík breyting skili faglegum og fjárhagslegum ávinn- ingi. Ný sveitarstjórn tæki við 9. júní 2002 Sem fyrr segir verður kosið um sameininguna í sveitarfélögunum sjö 3. nóvember næstkomandi. Verði hún samþykkt verður kosið til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi við næstu sveitar- stjórnarkosningar, 25. maí 2002, og ný stjórn tæki við störfum 9. júní það ár. Verði tillagan aftur á móti felld í einu eða tveimur sveitarfélögum af þessum sjö en samþykkt í sveit- arfélögum þar sem búa að minnsta kosti tveir þriðju hlutar íbúa þess svæðis sem kosið var á skulu sveit- arstjórnir þeirra sveitarfélaga sem samþykktu tillöguna ákveða hvort þau sameinast. Kosið um sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu 3. nóvember Íbúar yrðu um 3.800 og skatttekjur um 840 milljónir Fólksfækkun hefur veikt sveitarfélög og sameining er lykil- atriðið í því að sporna gegn þeirri þróun, seg- ir í samantekt Mar- grétar Þóru Þórs- dóttur. Eftir rúmar tvær vikur ganga Þing- eyringar til kosninga um sameiningu sjö sveitarfélaga. <    %  /  '   91 / /1 B ABB FBB GBB HBB CBBB CABB CFBB CGBB 0"       E*5(5 A5FIA FJA IKH ALK CCC LF KI I5HIK )*M +,M +-M .M *M ,M ,M +--M )+M +/M ++M 0M *M ,M ,M +--M )+M +/M ++M 0M *M ,M ,M +--M %* 2/ CLLL # $   ( $ (  ABBB ( $ 2/ ABBB #* -.( (*   5 N=    5  /1 5 ( 5 / " 5 2"     #* -.( (*   5 N=    5  /1 5 ( 5 / " 5 2"  #1"   2 $   3% $   14 5    6"2&  7 8   "        &   =   5   Morgunblaðið/Kristján Skúta siglir út úr Húsavíkurhöfn. f er á. mili fyr- sem var ar nýt- arásvegi anna á kring- eru um einkum ekki . na kost- 80 millj- ri. Þrátt fyrir lokun heimilisins við Hraunberg verður kostnaður vegna málaflokksins svipaður í ár ef ekki meiri.  Það sem af er þessu ári hafa 33 börn verið vistuð á Laug- arásvegi.  Þrjú pláss eru á hvoru einka- heimilinu sem samið hefur verið við í Reykjavík og hafa þau verið fullnýtt.  Verið er að semja við húsráð- endur á einu einkaheimili til viðbótar og til stendur að auglýsa eftir öðru. Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.