Morgunblaðið - 02.12.2001, Page 40

Morgunblaðið - 02.12.2001, Page 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                      !"## $%   & ( &  )  '     !" #$   #  %  &$'   ()#$     *# +  ,$'  #$    " ( #- .*) )#$    " / $' #   #$$'  *$)/01 2 3$   . #$   0  $$' ' )44!                                      ! "##$ %    !   &      '  (!          !" # $ %"&'()  *++ #  (  +, *++ $ - +. / ,+"0                                               !" #$% & ' ((  ) &*(%++  + & ' (%++ ,  & ' (%++ -./0 & ' (%++ - -./(( + ' & ' (( 1%  %++ 233/                       !                 ! "  #    ! !  "  !     $%  & "#$  %& '# ( )(  %'# ( )( '   ( '# (  %  !                                                !"         !   "##               !         $ #$% %  %  & %  '  %    ( )& * ( * + ' ,  -. *    )/   %  ' * * / /. " Elsku hjartans Hólmar minn. Það er erfitt að sjá á eftir þér. Margs er að minnast og margs að sakna. Það var eins og tíminn stæði í stað þegar Rene hringdi og sagði að þú værir dáinn. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum, óbærileg sorg og sökn- uður sótti að mér. Ég trúi því ekki að ég eigi ekki eftir að hitta þig í Köben í nýju íbúðinni þinni sem þú varst nýbúinn að festa kaup á og ætlaðir að gera glæsilega. Draumaíbúðin eins og þú sagðir við mig, hátt til lofts og vítt til veggja, stór verönd með glæsilegum garð- húsgögnum. Þú varst svo stórtækur og naust þess að geta loksins veitt þér það sem þig langaði til, ferðaðist um heiminn og lifðir lífinu lifandi. Þú lifðir hratt og kvaddir allt of fljótt. Þú varst vinmargur og tryggur vinur vina þinna. Það eru dapurleg örlög að lifa barn sitt og það fær fullorðin móðir hans nú að reyna. Það var náið og traust samband á milli þeirra og hann var einstaklega góður og nærgætinn við hana alla tíð. Missir hennar er sár. Megi Guð blessa hana og styrkja í þessari miklu sorg. Elsku besti Hólmar minn, takk fyrir allar frábæru samverustundirn- ar. Ég sakna þín. Þín mágkona, Margrét. Það er undarlegt að hugsa til þess að þú sért farinn og að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur fyrr en við hitt- umst í himnaríki. Guð hlýtur að hafa ætlað þér eitthvert stórt verkefni hjá sér þar sem hann tekur þig frá okkur svo snögglega. Ég er ekki almennilega búin að átta mig á þessu og mér finnst bara eins og þú sért ennþá úti í Danmörku og allt sé eðlilegt. Þegar mér var sagt að þú værir dáinn fór ég að hugsa um allar minningarnar sem ég á um þig og ég mun alltaf varðveita þær innst í hjarta mínu. Ég var svo ung þegar þú fluttir til Danmerkur en ég man allt- af þegar þú komst og passaðir okkur systurnar í Ánalandinu og þegar þú gafst okkur eftirminnilegustu jóla- gjöf sem ég hef fengið. Þó að ég hafi ekki hitt þig svo oft eftir að þú fluttir út man ég eftir því hvað þú varst alltaf glaður að hitta okkur fjölskylduna. Þú varst alltaf hlæjandi og í góðu skapi. Ég man ekki eftir þér öðruvísi. Þú varst langtengdastur mér af bræðrum pabba og þú varst okkur meira en frændi og föðurbróðir því að þú og mamma voruð bestu vinir. Ég gleymi því ekki þegar þú hringdir seint á kvöldin og þið töluðuð saman í marga klukkutíma. Ég er viss um að ef þú hefðir lifað lengur hefðum við orðið eins góðir vinir. Þér fannst svo gaman að spjalla við okkur systurnar og þú gafst þér alltaf tíma til þess. HÓLMAR INGI ÞVER- DAL KRISTJÁNSSON ✝ Hólmar IngiÞverdal Krist- jánsson fæddist í Reykjavík 4. apríl 1964. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu í Kaupmanna- höfn 18. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Hólm- fríður Jónsdóttir, f. 15.9. 1920, og Krist- ján Björnsson, f. 26.4. 1919, d. 1.7. 1990. Bræður hans eru Jón Guðmundur Jónsson, Kristján Þverdal Kristjánsson, Björn Þver- dal Kristjánsson og Jónas Þverdal Kristjánsson. Hólmar bjó í staðfestri samvist með Renè Vilar, dönskum manni. Útför Hólmars fer fram frá Grafarvogskirkju á morgun, mánudaginn 3. desember, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Minning- arathöfn um Hólmar fór fram í Kaupmannahöfn 24. nóvember. Ég gleymi því ekki þegar þú tókst á móti okkur fjölskyldunni þegar við komum til Danmerkur sl. sumar. Þegar við nálguðumst fallega sumarhúsið þitt tókstu á móti okkur með stráhatt á höfðinu og íslenska fánann í annarri hendi og þann danska í hinni. Og þú varst skellihlæjandi, kátur og glaður eins og alltaf. Og í hvert skipti sem ég kvaddi þig tókstu alltaf svo þétt utan um mig, ég held ég hafi ekki fengið svona þétt faðm- lag frá neinum öðrum. Þú varst með svo stórt hjarta og vildir engum illt. Þú varst vinur allra og öllum líkaði vel við þig. Ég á margar góðar minningar um þig sem ég ætla að varðveita vel í hjarta mínu. Þú ákvaðst að lifa lífinu lifandi og gerðir það svo sannarlega. Þú kvartaðir aldrei ef eitthvað var að. Ég hefði svo sannarlega viljað hafa þig miklu lengur hjá okkur og ég sakna þín mjög mikið. En svona er nú lífið stundum og því fær maður ekki breytt. Ég veit að þér líður vel og að þú gætir mín. Nú ert þú í himnaríki hjá Guði, Kristjáni afa og litla bróður þínum. Mundu bara, elsku hjartans Hólmar minn, að ég elska þig. Þín frænka, Helga. Elsku Hólmar. Nú ert þú farinn til himna, já þar ert þú. Ég veit að Guð mun passa þig og þú munt einnig passa mig. Þú sem varst alltaf svo góður við alla. Af hverju þurftir þú að falla svona hljótt og fljótt? Það munu allir sakna þín, tár mín og sorg munu aldrei dvína. Núna verður þú engill sem svífur voða hátt og hefur áhyggjur af fáu. Og á hverju kvöldi hvísla ég að þér lágt: Þú ert langbesti frændi sem ég hef átt. Þín frænka, Hólmfríður. Eins og hendi væri veifað varð ver- öldin svo undarlega köld þrátt fyrir blankalogn úti, líkt og náttúran héldi niðri í sér andanum yfir þessari harmafregn. Hann Hólmar vinur minn er dáinn. Farinn á fund feðra sinna í blóma lífsins án nokkurs fyr- irvara. Hólmari kynntist ég sem tíu ára snáða er ég gerðist heimagangur í húsi foreldra hans árið 1974 og höf- um við alla tíð síðan haldið góðu sam- bandi og vináttan styrkst með árun- um þó svo að fjarlægðin í kílómetrum væri yfirleitt mikil á milli okkar. Jarðvist hans Hólmars sótti snemma á brattann. Hann var fædd- ur 4. apríl 1964 með alvarlegan hjartagalla sem gerði að líf hans hékk í bláþræði þar til hann fór í að- gerð til Bandaríkjanna tveggja ára gamall. Bernskuskónum sleit hann á Hjallaveginum í faðmi fjölskyldunn- ar, yngstur af sex bræðrum, sonur hjónanna Hólmfríðar Jónsdóttur og Kristjáns Björnssonar. Það sem einkenndi skapgerð Hólmars framar öðru var léttleikinn, hvað sem á bjátaði í baráttu lífsins var hláturinn alltaf rétt handan við hornið, og brosin blíð var hann óspar á. Hólmar fór sínar eigin leiðir og var aldrei upptekinn af að fara troðnar slóðir. Tvítugur réðst hann í íbúðar- kaup sem okkur er að honum stóðum leist lítið á. En hann vissi hvað hann vildi, pilturinn, og kom sér upp sinni íbúð og vann myrkranna á milli í ösk- unni og oft var hann í bæði götóttum skóm og slitnum úlpum. En hann bara hló og var ánægður með sitt. En undir léttu yfirborði Hólmars leynd- ust djúpar hugsanir og vangaveltur yfir lífinu og tilverunni. 26 ára gamall dreif hann sig til Bandaríkjanna til að víkka sjóndeildarhringinn og er heim var snúið byrjaði hann í hárgreiðslu- námi við Iðnskólann og lauk því námi með sóma. Honum þótti stundum þröngt um sig á Íslandi og umburð- arlyndið í þjóðfélaginu oft meira fög- ur orð en handfastur veruleiki. Fyrir sex árum lagði hann aftur land undir fót og var ferðinni að þessu sinni heit- ið til Danmerkur. Þar fékk hann vinnu við hárgreiðslu og vann sér hylli viðskiptavina og vinnufélaga með viðleitni sinni og færum hand- brögðum. Stuttu eftir komuna til Danmerkur kynntist hann Renè Vil- ar og felldu þeir hugi saman og fóru fljótlega að búa. Svo löggiltu þeir sambúð sína 17. október 1997og var þá glatt á hjalla. Þeir áttu heimili sitt í Kaupmannahöfn og sumarhús á yndislegum stað á Norður-Sjálandi. Þar eyddu þeir helgunum og nutu lífsins langt frá skarkala lífsins og annríki hverdagsins. Síðastliðið sumar fór ég og fjöl- skylda mín í sumarfrí til Hólmars og Renè. Þeir tóku höfðinglega á móti okkur báðir tveir og var unun á að horfa hversu ánægður Hólmar var með tilveruna. Við áttum þarna heila viku saman, þar sem margt og mikið var rætt, og sem ávallt með Hólmar voru það aldrei innantómar umræður um veður og vind. Hann átti það til að kalla mig systur sína, þótti sú nafn- bót hæfa betur en að segja fyrrver- andi mágkona. Hann saknaði mikið Íslands og langaði oft heim. Mamma hans hún Fríða átti stóran hlut í hjarta hans og þótti honum erfitt að búa svo fjarri henni. En seinni part sumars treysti hún sér í langferð og dvaldi þá hjá Hólmari í Danmörku og fékk að sjá íbúðina, vinnustaðinn og sumarhúsið. Síðan komu þau bæði hingað yfir til Noregs og voru hjá mér og einnig Kristjáni bróður Hólmars. Ekki grunaði mig þá að þetta væru okkar Hólmars síðustu samverustundir hér á jörðu. Ég kveð með söknuði góðan vin og bið góðan Guð að vera með sálu hans, Ég og fjöldskylda mín sendum eig- inmanni hans, honum Renè, Hólm- fríði, móður Hólmars, bræðrum hans, Nonna, Stjána, Bjössa og Jón- asi, og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð vera hjá ykkur og gefa ykkur styrk í sorginni. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama; en orðstír deyr aldrei, þeim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Þorbjörg Kristjánsdóttir (Böggý.) Í dag má slökkva á sólinni, pakka saman tunglinu og hleypa úr hafinu því Hólmar vinur minn er dáinn. Á morgun getum við kveikt á sólinni aftur, tekið tunglið upp og látið renna hægt í hafið aftur en ekki í dag, því í dag kveð ég Hólmar vin minn. Vin- átta okkar spannar mörg ár en henni lýkur ekki í dag því hún nær út yfir gröf og dauða. Við tökum upp þráð- inn þegar við hittumst á ný. Ég kveð ástkæran vin minn og sendi Fríðu ömmu, Rene, bræðrum og öðrum aðstandendum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur í sorginni og beri ykkur á örm- um sér. Ég trúi á Guð sem er gjöful og hlý og gefur mér styrk sinn og dug. Guð sem að læknar og gerir allt heilt og græðir minn langþreytta hug. Ég trúi á Guð sem grætur með mér þá guggin ég er bæði og sár. Huggandi Guð sem að huggar mig blítt og hughreystir, þerrar mín tár. Ég trúi á Guð sem að gengur með mér og gleðst yfir lífinu hér, á lífsglaða vinkonu, ljósberann þann sem mér lýsir er héðan ég fer. (Sigríður Magnúsdóttir.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elína Hrund Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.