Morgunblaðið - 21.12.2001, Síða 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LITLIR drengir voru flengdir fyrir
að leika sér; bændur voru fangels-
aðir fyrir að erja akurinn í stað
þess að vinna kauplaust við að reisa
mosku og stúlkurnar földu sig í
fjósinu þegar þær heyrðu, að menn
með túrban væru að koma.
Íbúarnir í litlu þorpunum í Log-
ar-héraði, tiltölulega gróðursælli
sléttu fyrir sunnan Kabúl, sluppu
yfirleitt sæmilega við trúarof-
stækið, sem réð ríkjum í Kabúl og
öðrum borgum Afganistans, en
hinn langi refsivöndur talib-
anastjórnarinnar lét þá samt ekki
óhirta fremur en aðra. Nú, þegar
búið er að reka burt talibanana,
þorir fólkið að segja sögu sína.
„Þeir sögðu okkur að byggja
mosku í stað þess að vinna á ökr-
unum og við spurðum á hverju við
ættum að lifa. Þá sögðu þeir, að Mú-
hameð spámaður hefði bundið stein
um mitti sér þegar hann var hungr-
aður og það ættum við að gera,“
sagði Gul Din, 65 ára gamall bóndi í
þorpinu Merzakhel. „Talib-
anaforingjarnir voru vel haldnir en
þeim var alveg sama hvort við hefð-
um eitthvað að éta.“
Navid, 14 ára skýrleikspiltur í
Jilga, sagði, að trúarlögreglan
hefði bannað honum og félögum
hans að skemmta sér við vinsælan
leik, sem felst í því að berja saman
hnetum. Í skólanum var uppáhalds-
vísindakennari Navids rekinn burt
og í staðinn skipaður múslímskur
klerkur, sem kunni ekkert nema
Kóraninn.
„Þegar talibanarnir voru nærri,
þorðum við ekki út úr húsi nema
með bænahúfuna á kollinum. Áður
hafði ég góða kennara en talib-
anakennararnir kunnu ekki neitt.
Skólinn hafði verið mitt líf og yndi
en nú kveið ég fyrir hverjum degi,“
sagði Navid.
Talibanarnir stóðu á gati
Sumir þorpsbúanna fundu leiðir
til að sporna við yfirgangi talib-
ananna, einkum ef þeir voru frem-
ur velmegandi og höfðu sterka fé-
lagslega og trúarlega stöðu. Í Jilga
búa svokallaðir Sadatar, múslímar,
sem segjast geta rakið ættir sínar
til Múhameðs, og hefur margt af
þessu fólki getið sér gott orð í við-
skiptum og fræðimennsku. Þegar
talibanarnir reyndu að setja sinn
eigin múlla eða klerk yfir þorps-
samfélagið, þá réðu Sadatar sinn
eigin klerk, frjálslyndan, mennta-
ðan, 29 ára gamlan mann, sem var
svo vel að sér í íslömskum fræðum,
að talibanarnir stóðu á gati.
„Ég var nú ekkert að rífast við
þá, kvað þá bara í kútinn með skyn-
samlegum rökum. Þeir hötuðu mig
og reyndu að klekkja á mér með
prófi en ég stóðst það ágætlega. Þá
létu þeir mig í friði,“ sagði Moham-
med Ali, ungi klerkurinn.
Í Jilga tókst þorpsbúunum að
koma í veg fyrir, að talibanar lok-
uðu skóla, sem rekinn var af al-
þjóðlegri hjálparstofnun, en íbú-
arnir í Puhl-I-Kandhari voru ekki
jafnheppnir.
Hálfur klerkur,
hálfur villutrúarmaður
„Það var ekki hægt að rökræða
við þá. Hefðum við mótmælt og
kannski nefnt stúlknaskóla á nafn,
hefðum við verið barin og kölluð
kommúnistar,“ sagði Sulieman,
fyrrverandi dýralæknisnemi.
Oft var gamansemin eina vörnin
og fólkið skemmti sér við að segja
sögur af ruddalegum, ómenntuðum
og heimskum talibönum. Sulieman
segir til dæmis söguna af farþega í
leigubíl, manni í vestrænum klæðn-
aði, sem kom að einni eftirlitsstöð
talibana. Bílstjórinn lánaði farþeg-
anum túrbanann sinn og vörðurinn
leyfði þeim að halda áfram ferðinni
eftir að hafa komist að þeirri nið-
urstöðu, að farþeginn væri „hálfur
klerkur og hálfur villutrúarmað-
ur“.
Refsingar talibana voru oft mjög
grimmilegar, fólki var misþyrmt
þannig, að það ber þess aldrei bæt-
ur. Rahimullah, afar brosmildur
maður, segist einu sinni hafa verið í
bíl með tveimur drengjum, sem
varð það á að hlæja að talib-
anahermönnum, sem áttu leið hjá.
Allir farþegarnir voru teknir, settir
í myrkrastofu, bundnir og fætur
þeirra brenndir og barðir.
Flúðu til Pakistans og Írans
Margir af ungu mönnunum í
þorpunum flýðu til Pakistans eða
Írans en börnin og unglingarnir
gátu ekkert farið. Þau og foreldrar
þeirra voru ofurseld valdsstjórn,
sem leit á saklausa barnaleiki sem
synd og undirróður.
„Ég gat aldrei skilið hvers vegna
þeir hötuðu hnetuleikinn. Við höfð-
um svo gaman af honum,“ sagði
Farid Ahmad, 17 ára strákur, sem
einu sinni rétt slapp við handtöku
fyrir að leika sér úti á götu. „En nú
eru þeir farnir, nú getum við leikið
okkur,“ sagði hann með úttroðna
vasana af hnetum.
Washington Post/Pamela Constable
Stúlkunar í Jilga fengu að halda áfram í skólanum vegna þess að íbúarnir stóðu saman gegn þrýstingi talibana.
Barnaleikir voru harð-
bannaðir í ríki talibana
Puhl-I-Kandhari. Los Angeles Times.
’ Talibanaforingj-arnir voru vel haldn-
ir en þeim var alveg
sama hvort við hefð-
um eitthvað að éta ‘
FULLTRÚAR ríkisstjórna
134 landa hétu því í lok fjögurra
daga ráðstefnu, sem haldin var
í Japan, að berjast gegn barna-
klámi og þrælkun barna í kyn-
lífsiðnaði. Þá hétu þeir víðtæk-
ari samvinnu, hertri löggjöf og
auknum stuðningi við börn sem
hafa orðið fyrir misnotkun.
Mannréttindasamtök segja
hins vegar að það þurfi meira
til en fögur fyrirheit til að
bjarga milljónum barna sem
búi við kynferðislega misnotk-
un. Þá segja þau að án fjár-
magns og sérstakra aðgerða
muni barnaþrælkun í kynlífs-
iðnaði halda áfram að blómstra.
Ríkisstjórnir, alþjóðasamtök
og ýmis minni mannréttinda-
samtök tóku þátt í ráðstefn-
unni, en fimm ár eru síðan
fulltrúar 122 ríkisstjórna lýstu
barnaklámi og barnaþrælkun
stríð á hendur.
Ebóla
í Lýðveldinu
Kongó
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) hefur staðfest að ebólu-
sýking sé komin upp í Lýðveld-
inu Kongó, en vírusinn greind-
ist nýlega í Gabon.
Heilbrigðisyfirvöld í löndunum
tveimur leita nú allra þeirra,
sem hafa komist í snertingu við
sýkta einstaklinga, en talið er
að 133 geti hafa smitast í Gabon
og 94 í Lýðveldinu Kongó. Vír-
usinn, sem er banvænn í 50–
90% tilvika, berst einungis á
milli manna með snertingu.
Strandaði við
Álandseyjar
BÚIÐ er að flytja farþega og
áhöfn úr ferjunni Isabella sem
strandaði á Álandseyjum í
fyrrinótt og draga ferjuna til
hafnar í Långnäs á eyjunum.
Engan sakaði við strandið og
ekki komst vatn inn í skipið.
Ísabella strandaði við Álands-
eyjar um miðnættið í fyrrinótt
á leið frá Åbo í Finnlandi til
Stokkhólms. Alls voru 655 far-
þegar og 156 manna áhöfn um
borð. Mjög hvasst var á þessum
slóðum þegar óhappið varð en
ekki er ljóst hvort það var or-
sök strandsins. Farþegarnir,
sem margir sváfu í klefum,
voru vaktir og látnir setjast í
björgunarbáta uppi á þilfari áð-
ur en talið var að hætta á að
skipið sykki væri liðin hjá.
Þak á versl-
unarmiðstöð
hrundi
TUGIR manna slösuðust, sum-
ir alvarlega, og um 50 manns
lokuðust inni þegar þak á Kol-
onnade-verslunarmiðstöðinni
skammt frá Pretoriu í Suður-
Afríku hrundi í gær. Bætt var
nýlega hæð ofan á húsið og var
hún ofan við skautasvellið.
Fréttamenn suður-afríska
sjónvarpsins sögðu að mikil
skelfing hefði gripið um sig og
þeir sáu fólk borið á brott á
sjúkrabörum en ekki var vitað
hvort einhver fórst.
STUTT
Berjast
gegn kyn-
lífsþrælk-
un barna
BANDARÍSKIR embættismenn og
afganskir heimildarmenn segja að
nánast allir leiðtogar talibana hafi
lifað af loftárásir Bandaríkjamanna
og ekki enn verið handteknir. Marg-
ir þeirra hafa snúið aftur til átthaga
sinna, gengið til liðs við andstæð-
inga talibana eða laumast yfir
landamærin til Pakistans, að sögn
heimildarmanna dagblaðsins The
New York Times.
Talið er að múllann Abdul Jalil,
sem var aðstoðarutanríkisráðherra
talibanastjórnarinnar, sé hæst setti
talibaninn sem fallið hafi í loftárás-
um Bandaríkjahers. Hann mun hafa
beðið bana á fyrstu dögum loftárás-
anna á Kabúl og nágrenni.
Breska ríkisútvarpið BBC skýrði
frá því í gær að Aminullah Amin,
fyrrum yfirmaður landamæravörslu
talibanastjórnarinnar, hefði verið
handtekinn á landamærunum við
Pakistan. Hann er því fyrsti hátt
setti talibaninn, sem handtekinn er
frá því að veldi talibana hrundi í
Afganistan.
Sögðu skilið við
Mohammed Omar
Margir af helstu samstarfsmönn-
um múllans Mohammeds Omars,
leiðtoga talibana, hafa sagt skilið við
hann. Nokkrir þeirra segjast nú
hafa verið andvígir þeirri ákvörðun
hans að framselja ekki Osama bin
Laden til Bandaríkjanna eftir
hryðjuverkin 11. september.
Wakil Ahmed Mutawakil, utan-
ríkisráðherra talibanastjórnarinnar,
er á meðal þeirra sem sagðir eru
hafa sagt skilið við Mohammed Om-
ar. Heimildarmenn The New York
Times segja að Mutawakil hafi lifað
af árásirnar en vildu ekki svara því
hvort hann væri í Afganistan eða
hefði flúið til Pakistans.
Annar náinn samstarfsmaður Mo-
hammeds Omars, Obaidullah Ak-
ham, varnarmálaráðherra talibana-
stjórnarinnar, lifði einnig af
loftárásirnar.
Mohammed Omar flúði frá
Kandahar fyrr í mánuðinum þegar
borgin féll. „Hann er einangraður
núna og mjög fáir eru hjá honum,“
hefur The New York Times eftir
manni sem tengist nokkrum leið-
toga talibana.
„Mjög fáir leiðtoganna féllu.
Flestir þeirra hafa horfið til ætt-
bálka sinna, aðrir gengið til liðs við
andstæðingana. Það var ekki mikill
vilji til að berjast í þágu arabanna í
al-Qaeda.“
Bandaríska leyniþjónustan telur
að Mohammed Omar sé enn í felum
einhvers staðar í Kandahar-héraði.
Heimildarmenn The New York
Times sögðust ekki vita um afdrif
Osama bin Ladens eða annarra leið-
toga al-Qaeda.
Nánast allir leiðtogar
talibana komust undan
ÓVÆNT vandamál er komið
upp í Danmörku, því að sögn
Jyllandsposten er skortur á
mönnum sem vilja klæðast
rauðum fötum, setja upp sítt,
hvítt skegg og deila út jólagjöf-
um. Svo fór að formaður kaup-
mannasamtakanna í borginni
Kolding varð að fara sjálfur út
á götu í jólasveinabúningi.
Um 150 menn eru í danska
jólasveinafélaginu og fá þeir að
meðaltali 3.500 til 5.500 dansk-
ar krónur fyrir að mæta, eða
allt að 60 þúsund íslenskar. En
þokkaleg laun duga ekki til, svo
mikið hefur eftirspurnin aukist.
Talsmaður félagsins segir að æ
fleiri fyrirtæki og félög efni nú
til jólatrésskemmtana um helg-
ar í desember. Hann hvetur
menn til að fara þegar að panta
jólasveina fyrir jólin 2002.
Alvarlegur
jólasveina-
skortur í
Danmörku