Morgunblaðið - 21.12.2001, Blaðsíða 64
UMRÆÐAN
64 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er með mikl-
um ólíkindum að
hlusta á forsætisráð-
herra þjóðarinnar
státa sig ítrekað af
frábærum árangri í
stjórn efnahagsmála
og við rekstur ríkis-
sjóðs. Í þessari grein
verður sýnt fram á
hversu mikil og af-
drifarík mistök hafa
verið gerð við stjórn
efnahagsmála og að
Davíð Oddsson hefur
markvisst fylgt mark-
miðinu um báknið
kjurrt.
Báknið vex
Á mynd 1 er sýnt hvernig tekjur
og gjöld hins opinbera hafa vaxið
frá árinu 1992.
Eins og sjá má hafa umsvif hins
opinbera vaxið gífurlega hröðum
skrefum á undanförnum árum,
þannig hafa útgjöldin vaxið um
tæplega 50% síðastliðin 8 ár, sem
er um fjórðungs vöxtur á föstu
verðlagi. Þess má geta að hér er
einungis verið að tala um ríkissjóð,
en á þessum tíma hafa mörg stór
verkefni flust frá ríki til sveitarfé-
laga, s.s. eins og grunnskólinn, og
einnig hafa mörg ríkisfyrirtæki
verið seld. Þetta þýðir að sjálf-
sögðu að vöxturinn er enn meiri að
teknu tilltiti til þessa.
Allt í góðu lagi?
Nú kynnu menn að ætla að þessi
þróun væri í góðu lagi þar sem
ríkissjóður hefur haldið sér réttum
megin við strikið frá 1997 og hefur
einnig getað greitt niður skuldir á
tímabilinu. En skoðum nú hvernig
stendur á hinum auknu tekjum
ríkissjóðs. Á mynd 2 er sýnt
hvernig skuldir heimila og fyrir-
tækja hafa vaxið frá 1993–2000.
Eins og sjá má hafa skuldirnar
vaxið geigvænlega. Heildarskuld-
irnar hafa vaxið um tæp 140% frá
1993 og skuldir heimilanna hafa
vaxið úr 116% af ráðstöfunar-
tekjum 1993 í 160% árið 2000. Það
ætti öllum að vera ljóst að slík
skuldaaukning getur ekki haldið
áfram mikið lengur og nú líður að
skuldadögum.
Þessi mikla skuldaaukning er
ein megin skýringin á tekjuauka
ríkissjóðs og þar með
góðæri hans. Gera má
ráð fyrir að megninu
af þessari skulda-
aukningu sé ráðstafað
hér innanlands og má
ætla að ríkissjóður fái
a.m.k. um 20% af
þessari skuldaaukn-
ingu í tekjur. Þess má
geta að tekjur ríkis-
sjóðs eru um 42% af
vergri landsfram-
leiðslu og því er þetta
varlega áætlað. Þetta
þýðir að viðbótar-
tekjur ríkissjóðs
vegna útlánaaukning-
ar gætu hafa numið tæpum 50 ma.
kr. á síðasta ári, en af mynd 2 sést
að útlánaaukningin nam rúmum
240 ma. kr. í fyrra. Því er krist-
altært að tal forsætisráðherrans
um ráðdeild í rekstri hins opinbera
er innantómt hjal. Nú liggur ljóst
fyrir að ríkissjóður stendur
frammi fyrir miklum niðurskurði
þegar fyrirtækin og heimilin fara
að greiða niður skuldir. Þessu til
staðfestingar má nefna að fyrstu 8
mánuði þessa árs var sjóðstreymi
ríkissjóðs neikvætt um tæpa 7 ma.
kr. auk þess sem skuldir hans hafa
aukist um rúma 8 ma. kr. For-
sætisráðherra hefur nú ekki bein-
línis gengið á undan með góðu for-
dæmi og nægir þar að nefna 20%
fjölgun ráðherra í upphafi kjör-
tímabilsins og 100 milljóna kr.
framúrkeyrslu við endurbætur á
Þjóðmenningarhúsinu. „Eftir höfð-
inu dansa limirnir“, á hér vel við
og því er ástandið eins og það er.
Hvaðan koma peningarnir?
Á mynd 3 er sýnt hvernig við-
skiptahallinn hefur þróast frá 1994
og allt fram á spá fyrir næsta ár.
Eins og sjá má hefur viðskipta-
hallinn verið gríðarlegur síðustu
ár og á slíkur halli sér engin for-
dæmi í sögu landsins. Í afbragðs
grein í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins, 25.3. 2001, sýndu Jón
Helgi Egilsson og Kári Sigurðsson
fram á með óyggjandi hætti að frá
og með árinu 1999 virkaði hávaxta-
stefna stjórnvalda ekki til að
draga úr þenslu heldur hvatti til
hennar. Þar með var grunnurinn
að hinum mikla viðskiptahalla
lagður, spákaupmennska með er-
lend lán var stunduð grimmt, m.a.
vegna tryggingarinnar sem vik-
mörk hennar sköpuðu, og krónan
styrktist um tíma. Þetta má einnig
orða þannig að stjórnvöld hafi fals-
að gengið með vaxtahækkunum til
að halda verðbólgu í skefjum þó að
ljóst væri að útflutningsatvinnu-
vegir stæðu ekki undir að skapa
jafnvægi í utanríkisviðskiptum.
Þessum erlendu lánum var svo
haldið stíft að landanum, sem illu
heilli er veikur á svellinu þegar
gylliboð um lántökur eru annars
vegar, og er þar komin ein megin
skýringin á skuldaaukningu heim-
ila og fyrirtækja undanfarinn ára.
Davíð áttar sig
Það er engu líkara en að Davíð
Oddsson hafi lesið greinina og átt-
að sig á villu síns vegar. Því
skömmu síðar var hann búinn að
afsala sér stjórn á vaxta- og geng-
ismálum til Seðlabankans,
en frumvarp þess efnis
hafði verið í smíðum í
langan tíma. Þegar Seðla-
bankinn afnemur svo vik-
mörkin og krónan fellur,
sem var augljóst að hlaut
að gerast, kennir Davíð
Oddsson af stórmennsku
sinni Seðlabankanum,
markaðsaðilum, kennurum
og sjómönnum um.
Í þessu samhengi er
skondið að rifja upp að
þegar krónan styrktist
verulega í upphafi ársins
2000, sem var sem fyrr
segir vegna spákaup-
mennsku, varaði Davíð
menn við að bera krónuna
saman við evruna sem
hefði „gjörsamlega runnið
á rassinn“. Nú er ljóst að
ekki er nóg með að krónan
sé runnin á rassinn heldur
er hún sennilega ofan í
holu, hverja Davíð er þó
góðu heilli að mestu hætt-
ur að moka.
Vitleysan heldur áfram
Nú er það Seðlabankinn
sem heldur áfram hávaxta-
stefnunni, að eigin mati til
að draga úr verðbólgu. Ég
auglýsi hér með eftir
lærðri grein frá þeim fé-
lögum Jóni Helga og Kára
sem gæti haft titilinn:
Hvenær veldur vaxta-
hækkun verðbólgu? Eins
og sjá má á mynd 2 eru
fyrirtækin í landinu orðin
gífurlega skuldsett og erf-
itt er að sjá að þau geti
annað en velt fjármagns-
kostnaðinum út í verðlagið.
Þá virðist Seðlabankinn lít-
ið spá í viðskiptahallann,
sem samkvæmt hans eigin
spá verður gífurlegur í ár
og á næsta ári, en heldur
þess í stað áfram að reyna
að falsa gengið með háum
vöxtum, en þar sem trú-
verðugleiki bankans er
nánast á þrotum gengur
það ekki lengur og krónan
heldur áfram að síga.
Því miður er það svo að
það eru engir aðrir en við, íbúar
þessa lands, sem munum súpa
seyðið af þessari óstjórn undanfar-
inna ára. Sorglegast er þó að eng-
in von er til þess að ráðamenn
þjóðarinnar læri eitthvað af þess-
um mistökum, þar sem þeir við-
urkenna ekki að þau hafi átt sér
stað og nóg er af afsökunum til að
grípa til þegar harðnar á dalnum.
Við Íslendingar munum því líklega
búa við það um ókomin ár að
stjórnvöld magni upp sveiflurnar í
hagkerfinu.
Heimildir: Allar myndirnar eru unnar
upp úr gögnum sem nálgast má á heima-
síðu Seðlabankans og eru þau á verðlagi
hvers árs.
Helgi
Hjálmarsson
Efnahagsmál
Því miður er það svo,
segir Helgi Hjálm-
arsson, að það eru engir
aðrir en við, íbúar þessa
lands, sem munum súpa
seyðið af þessari óstjórn
undanfarinna ára.
Höfundur er verkfræðingur.
Hátt hreykir
Davíð sér
Allt til jólanna
í Hólagarði
HERRAFATA OUTLET
BÆJARLIND 1, (VIÐ HLIÐINA Á SPAR)
FULLT HÚS AF NÝJUM VÖRUM.
JAKKAFÖT............ 8.990 kr.
PEYSUR .............. 2.990 kr.
BOLIR ................. 1.190 kr.
BUXUR ............... 2.490 kr.
ÞUNNIR JAKKAR . 1.990 kr.
SKYRTUR ............ 1.990 kr.
BELTI .................. 990 kr.
BINDI ................. 990 kr.
ÚLPUR ................ 5.990 kr.
FRAKKAR ............ 6.990 kr.
LEÐURJAKKAR ....15.990 kr.
SKÓR .................. 3.990 kr.
VESTI ................. 1.990 kr.
Opið fram að jólum:
Föstudag frá kl. 14-19
Laugardag frá kl. 13-18
Sunnudag frá kl. 13-18