Morgunblaðið - 21.12.2001, Qupperneq 66
UMRÆÐAN
66 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR um ári kom hingað til
lands Arnold Wexler á vegum
áhugahóps gegn spilafíkn, en hann
rekur meðferðarstofnun fyrir
spilafíkla í Bandaríkjunum.
Koma hans hingað til lands var í
raun svar við fyrirlestri sem Ís-
lenskir söfnunarkassar (Rauði
kross Íslands, Landsbjörg og
SÁÁ) höfðu áður staðið fyrir með
erlendum aðila þar sem kostir
spilakassa voru reifaðir.
Í framhaldi af fyrirlestri Wexl-
ers áttu fulltrúar áhugahóps gegn
spilafíkn fundi með forsvarsmönn-
um Íslenskra söfnunarkassa og
Happdrættis Háskóla Íslands.
Ýmsar góðar hugmyndir komu
fram á þessum fundum og lýstu
rekstraraðilar spilakassanna
áhuga sínum á að setja upp merk-
ingar, búa til bæklinga og setja
upp heimasíður þar sem fjallað
yrði um einkenni og afleiðingar
þessarar fíknar. Hugmyndir um að
koma á samstarfi við SÁÁ um að
starfrækja símalínu þar sem hægt
yrði að fá fyrstu aðstoð komu einn-
ig fram og þá lýsti forstjóri Happ-
drættis Háskólans yfir áhuga á að
kosta hingað til lands prófessor
Ladouceur frá Kanada sem hefur
sérhæft sig í meðferð við spilafíkn.
Það er mikið ánægjuefni að síð-
an þá hafa þessar
tillögur meira og
minna komið til
framkvæmda af
hálfu rekstraraðil-
anna.
Það var þó slá-
andi að um svipað
leyti og ráðist var í
framkvæmd þessara
góðu tillagna hófu
Íslenskir söfnunar-
kassar aðra atlögu
að þeim sem vakið
hafa athygli á spila-
fíkn. Að þessu sinni
höfðu þeir látið fyr-
irtæki gera síma-
könnun fyrir sig
sem átti að slá á þær tölur sem
áhugahópur gegn spilafíkn hafði
vakið athygli á um hugsanlegan
fjölda spilafíkla hér á landi. Nið-
urstaða símakönnunar Íslenskra
söfnunarkassa gaf til kynna að
„aðeins 1.700 manns væru haldnir
spilafíkn hér á landi“.
Í fréttatíma Stöðvar 2 var fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins
spurð hvaðan talan 12 þúsund fíkl-
ar væri þá komin. Sagði fram-
kvæmdastjórinn að hún teldi þá
tölu sennilega bara úr lausu lofti
gripna. Sagði hún að þetta væri
einhver tilfinning sem fólk teldi
sig hafa og henni vitanlega hefðu
„aldrei verið gerðar neinar vís-
indalegar rannsóknir eins og
þessi“ þannig að þær tölur væru
ekki byggðar á neinum haldbærum
rökum. Ályktaði framkvæmda-
stjórinn út frá niðurstöðum könn-
unarinnar að vandamálið væri ekki
stórt.
Í leiðara Morgunblaðsins 3. apríl
var fjallað um viðbrögð fram-
kvæmdastjóra Rauða krossins við
niðurstöðum könnunarinnar. Segir
þar: „Því fer [...] fjarri að þessi
niðurstaða sé fagnaðarefni. Eins
og Ögmundur Jónasson alþingis-
maður, sem barist hefur gegn
spilakössunum, benti á í samtali
við Morgunblaðið sl. laugardag, er
óvíst að mælingin sé rétt vegna
þess að ólíklegt er að fólk gefi það
upp í símakönnun að það sé haldið
spilafíkn. En jafnvel þó svo kunni
að vera er niðurstaðan skelfileg.“
Undir þetta tók yfirlæknir SÁÁ
þegar hann mætti fram-
kvæmdastjóra Rauða
krossins í Kastljósinu
og sagðist hann ekki
telja að þetta væri góð
aðferð til að finna
hversu margir spilafíkl-
ar væru í landinu. Sagði
yfirlæknirinn að til þess
að komast að því þyrfti
að gera miklu umfangs-
meiri kannanir en
þessa, enda hafi það
ekki verið megintil-
gangurinn með þessari
könnun heldur „að at-
huga spilahegðun lands-
manna“.
Í lokaritgerð Eddu
Vikar Guðmundsdóttur og Hjör-
dísar Auðar Árnadóttur í sálfræði
við Háskóla Íslands, um áhrif fjár-
hættuspila á ungt fólk, kemur
fram að svo virðist sem tíðni lík-
legrar spilafíknar sé heldur hærri
hérlendis en almennt hefur mælst
erlendis og benda meðal annars á
greiðara aðgengi hér.
Þrátt fyrir að Íslenskir söfnun-
arkassar hafi gefið út fyrr á árinu
að þeir ætluðu sér að hækka ald-
urstakmarkið í spilakassana úr 16
árum í 18 ár skiptir slíkt litlu máli
þegar aðgengið að slíkum vélum er
óheft og eftirlitslaust. Það er með
eindæmum að líknarfélag eins og
Rauði krossinn skuli standa vörð
um þann sóðaskap sem spilakass-
arnir eru. Það er mál til komið að
löggjafinn setji þessari starfsemi
þrengri skorður svo koma megi í
veg fyrir að börn á grunnskóla-
aldri hafi óheftan aðgang að þess-
um maskínum.
Bjarki Már
Magnússon
Spilafíkn
Framkvæmdastjóri
Rauða krossins hefur,
að mati Bjarka Más
Magnússonar, lélegan
málstað að verja.
Höfundur er húsasmiður og í áhuga-
hópi gegn spilafíkn.
Að berja hausnum við steininn
Laugavegur 68, sími 551 7015.
Skyrta
og pils
Vegna mikillar ánægju Íslendinga víðs vegar um heiminn,
bjóða SkjárEinn og mbl.is upp á aftansöng í beinni útsendingu
á aðfangadag. Landsmenn eru því hvattir til að láta vini og
vandamenn vita af þessari hátíðlegu athöfn, sem er nú send út
þriðja árið í röð.
Útsendingin úr Grafarvogskirkju mun hefjast rétt fyrir kl. 18 á
aðfangadagskvöld og er í samstarfi við Símann-Internet. Net-
verjar um heim allan geta því fylgst með íslenskum aftansöng.
Bein útsending
frá aftansöng í
Grafarvogskirkju
FYLGSTU MEÐ ÞVÍ NÝJASTA
Láttu vini og vandamenn
hvar í heimi sem er
vita af aftansöngnum!
! ""#
$
""# %% ! ""# & #""""""""
'(#)!* ""# + #)!* "",-
.""""""+
/
/ & % 0
+0 12"# 2
&3++*&45
2 6 ! 5 5 & 4
6 + +*
7+ ' / #..
8+&4