Morgunblaðið - 21.12.2001, Page 70

Morgunblaðið - 21.12.2001, Page 70
70 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                !    "     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. VIRÐULEG frú af Suðurlandi, Guð- rún Jónína Magnúsdóttir, sendir mér tóninn í bréfi til blaðsins 28. nóv. sl., en tilefni bréfs hennar var andsvar mitt við greinum stjórnmálakvenn- anna Ástu Möller og Steinunnar Val- dísar Óskarsdóttur þar sem ég bar upp á þær missagnir og órökstuddar fullyrðingar varðandi svokallaða nektarstaði. Ég gerði mér svo sem engar vonir um það að þær hefðu manndóm í sér til þess að svara skrif- um mínum og styðja þá mál sitt mál- efnalegum rökum og því síður bjóst ég við því frá hendi konu úr íslenskri sveit. Hissa varð ég þó á því hversu kunnug frú Guðrún virðist vera að- stæðum í heimalöndum þeirra dans- meyja sem hjá mér starfa, en sam- kvæmt upplýsingum hennar neyðast þær til starfans vegna sultar og at- vinnuleysis. Hjá mér hafa starfað konur frá Englandi, Skandinavíu, Portúgal, Þýskalandi og nýfrjálsum þjóðum Austur-Evrópu, að ógleymdum kon- um frá Íslandi. Frú Guðrún verður að afsaka að ég gerði mér ekki grein fyr- ir hörmulegu ástandi mála í þessum löndum. En frú Guðrún spinnur lastaþráðinn frekar og kemst að þeirri niðurstöðu (svar hennar við spurningu minni um hvern þyrfti að vernda og fyrir hverjum) að vernda þurfi „þær stúlkur sem neyðast vegna fíknar, fátæktar eða annarra ömurlegra aðstæðna til að vinna á slíkum stöðum“. Það er þokkaleg full- yrðing að starfsfólkið mitt sé soltnir og fátækir fíklar. Þetta er auðvitað klámhögg grillu- fangara, sem annaðhvort af fávísi eða illgirni vill ekki halda uppi málefna- legri umræðu. Frú Guðrún fullyrðir í bréfi sínu að á skemmtistöðum hringi sig stelpur, vart af fermingaraldri, allsberar utan um súlur og troði „aðskotahlutum á ónefnda staði“. Ég segi nú ekki annað en ljótt er ef satt er. Getur frúin kannski upplýst hvar slíka skemmti- staði er að finna? Það getur hún auð- vitað ekki því slíka staði er ekki að finna hér á landi og verður aldrei en málflutningur af þessu tagi segir auð- vitað miklu meira um hugarástand frúarinnar en raunverulegt næturlíf höfuðstaðarins. Það er þó þekkt að fréttir að sunnan verða oft sérkenni- legar þegar þær eru komnar í sveit- ina. Að lokum vil ég, að gefnu tilefni, vegna þess að farandsveinar forðum hafa borist í tal, bæði í bréfi mínu frá 22. nóv. sl. og í bréfi frú Guðrúnar frá 28 s.m., að hún hefur enga þekkingu á aðstæðum þeirra og kjörum. Henni til upplýsingar vil ég benda á ágæta endurminningabók Finns Ó. Thorl- acius, sem var kunnur smiður í Reykjavík á fyrri hluta tuttugustu aldar, Smiður í fjórum löndum (1961), þar sem hann lýsir ágætlega kjörum og aðstæðum iðnsveina sem ferðuð- ust borga á milli með tól sín og tæki. GUÐJÓN SVERRISSON, eigandi og framkvstj. Bóhem. Nektarstaðir – sult- ur, fíkn og fátækt Frá Guðjóni Sverrissyni: STUNDUM velti ég því fyrir mér hvort fylginautar manna eins og græðgi, illska og öfund séu meðfædd- ir eða áunnir. Kapítalið hótar stjórnvöldum ef þau sigla ekki eft- ir áttavita gróða- hyggjunnar. Fáum einstak- lingum og fjöl- skyldum hefur tekist að sölsa undir sig eignir þjóðarinnar vegna andvaraleysis þingfulltrúa hennar. Útlendir auðhringar sjá hagnaðarvon í barnaskap ráðamanna og eru þeir norsku hvað ósvífnastir og hafa reynst okkur viðsjárverðir og dýrir og skipta náttúruperlur ann- arra þjóða þá engu. Járnblendiverk- smiðjan í Hvalfirði er dæmigerð um græðgi þeirra og yfirgang. Á Íslandi er snobbið landlægur fjandi og ein- hver dýrasti löstur fyrir utan vímu- efni og gera menn ólíklegustu hluti til að vera gjaldgengir í snobbaðlinum. Það eru gerðar óraunhæfar og ógn- vænlegar kröfur til samfélagsins þar sem græðgin spilar með snobbinu. Flugumferðarstjórar hafa löngum notfært sér að hafa þumalskrúfu á þjóðinni og látið sig litlu varða hvort henni líkar betur eða verr. Hinsvegar misskilja valdhafar oft hlutverk sitt gagnvart launastéttum og þjóð. Flugumferðarstjórar hafa iðulega látið í veðri vaka að stytting vinnu- tímans væri besta launahækkunin. Því ekki að verða við þessu, hafa fleiri og óþreytta flugumferðarstjóra með sama kostnaði og nú er? En ef græðgin er komin í spilið verður allt torsóttara. Að baki verkfallsboðunar flugumferðarstjóra var skynsemi og samkennd víðsfjarri. Menn sem slík- ar ákvarðanir taka undir svo óvenju- legum kringumstæðum eru úti á þekju. Það ber sjaldan við að ég sé sammála háttvirtum forsætisráð- herra, Davíð Oddssyni, en ég tek undir að þeir hljóti að vera veruleika- firrtir. Flugfélög hafa lognast útaf og önnur ramba á barmi gjaldþrots og flug nú áhættusamara og hvet ég flugumferðarstjóra til að hugsa sinn gang. Íslendingar hefðu orðið að við- undri ef verkfall hefði líðst og átt á hættu að missa störfin úr landi og sitja uppi með flugumferðarstjórana á bótum. Allt þetta hræðir, en skelfi- legust eru þó stjórnvöld sem þrælast á láglaunafólki með óviðunandi skatt- leysismörkum og öðru yfirþyrmandi misrétti. Ranglæti núverandi stjórn- valda gagnvart óbornum, láglauna- fólki og öryrkjum verður ráðgáta næstu kynslóða. ALBERT JENSEN, trésmíðameistari. Hver er veru- leikafirrtur? Frá Alberti Jensen: Albert Jensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.