Morgunblaðið - 19.01.2002, Qupperneq 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 51
ÚTSALA
20-50%
afsláttur
Bláu húsin við Faxafen, Suðurlandsbraut 52, sími 553 6622.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frá-
bærar aðstæður á suðurströnd Spánar í 3 eða 4 vikur á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um
spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Vorin eru fal-
legasti tími ársins á suður-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í
þessum yndislega heimshluta og á báðum áfangastöðum bjóðum
við þér okkar bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 43.005
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flugsæti eingöngu.
Verð kr. 59.900
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Pinar, 3 vikur, 7. apríl.
Skattar ekki innifaldir.
Verð kr. 77.000
M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 7.
apríl, 3 vikur. Völ um aukaviku.
Skattar kr. 2.950, ekki innifaldir.
Vorferðir Heimsferða til
Costa del Sol
og Benidorm
7. og 10 apríl
frá kr. 43.005
Costa del Sol
Verð kr. 51.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Faro, 2 vikur, 8. maí.
Verð kr. 66.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
El Faro, 10. apríl, 4 vikur.
Verð kr. 86.900
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 4 vikur,
10. apríl. Skattar kr. 2.950, ekki
innifaldir.
Benidorm
SAMBAND íslenskra námsmanna
erlendis, SÍNE, hefur sent frá sér
eftirfarandi fréttatilkynningu:
Á fundi stjórnar LÍN, fimmtu-
daginn 17. janúar, gagnrýndi
SÍNE túlkun meirihluta stjórnar
LÍN og framkvæmdastjóra sjóðs-
ins, Steingríms A. Arasonar, á
vinnureglu sjóðsins við útreikning
og uppsöfnun skólagjaldalána
vegna náms erlendis.
SÍNE telur rangt að námsmenn
erlendis og námsmenn á Íslandi
sitji ekki við sama borð þegar
kemur að úthlutun skólagjaldalána
vegna framhaldsnáms. Uppsöfnun
þessara lána á sér stað í íslenskum
krónum hjá námsmönnum á Ís-
landi en í erlendri mynt hjá náms-
mönnum erlendis. Samt sem áður
fá allir þessir námsmenn greidd
lán sín í íslenskum krónum.
Dæmi: Námsmaður tekur skóla-
gjaldalán á árunum 1999–2001 að
upphæð 10.000 Bandaríkjadalir á
ári.
Útreikningar SÍNE: Hér er
miðað við gengi í erlendum gjald-
miðli á hverju ári:
Tafla 1
Útreikningar Lánasjóðs: Hér er
miðað við gengi í júní á árinu 2001:
Tafla 2
Samkvæmt útreikningum SÍNE
er mögulegt að fá lánað fyrir
skólagjöldum öll árin.
Samkvæmt útreikningum LÍN
er möguleiki að fá lán fyrstu tvö
árin en ekki síðasta árið. Heild-
arlánsfjárhæðin verður þó ekki
hærri en 2.222.000 í ISK.
Þessi túlkun sjóðsins gerir
námsmönnum, sem hyggja á nám
erlendis, ekki kleift að skipuleggja
nám sitt til lengri tíma en eins árs
í senn, þar sem gengi krónunnar
hverju sinni hefur mikil áhrif á há-
marksupphæð skólagjaldalána eins
og dæmið hér að ofan sýnir. Há-
mark skólagjaldalána námsmanna
erlendis getur því sveiflast umtals-
vert á milli ára vegna gengisbreyt-
inga þegar reiknireglu LÍN er
beitt. Námsmenn á Íslandi búa
ekki við þetta óöryggi.
Að mati SÍNE er hér um mikla
mismunum þessara tveggja hópa
að ræða hjá stofnun sem gefur sig
út fyrir að tryggja jafnrétti til
náms.
SÍNE segir námsmenn
erlendis beitta órétti
Tafla 1
Lánsfjár- Gengi ISK/ Upphæð Upps. upph. [ISK]
hæð í USD USD (01.06) láns [ISK] mv. gengi hv. árs
1999 10000 73,06 730600 730600
2000 10000 75,18 751800 1482400
2001 10000 103,02 1030200 2512600
Heildarlán veitt 2512600
Á FUNDI bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja á fimmtudagskvöld var
samþykkt með 4 atkvæðum meiri-
hlutans gegn 3 atkvæðum minni-
hlutans að sameina Bæjarveitur
Vestmannaeyja Hitaveitu Suður-
nesja.
Viðræður un sameiningu hafa
staðið í nokkurn tíma milli veitn-
anna og á grunni þeirra viðræðna
lá fyrir samningur um málið.
Samningurinn kveður á um að
Hitaveita Suðurnesja kaupi Bæj-
arveitur Vestmannaeyja með yf-
irtöku á öllum eignum og skuldum
Bæjarveitna og greiði fyrir það
með því að Vestmannaeyjabær
eignist 7% hlut í Hitaveitu Suð-
urnesja. Samningur þessi var bor-
in upp til samþykktar í bæjar-
stjórn og samþykktur með 4
atkvæðum meirihluta sjálfstæðis-
manna en fulltrúar Vestmanna-
eyjalistans greiddu atkvæði á móti
og gerðu grein fyrir afstöðu sinni
með bókun.
Minnihlutinn andvígur
Í bókuninni kemur fram að þeir
telja meirihlutann vilja selja Bæj-
arveitur til að rétta af fjárhag
Vestmannaeyjabæjar sem sé í
ógöngum eftir stjórnartíð meiri-
hlutans og það sé skelfilegt minn-
ismerki um fjármálastjórn sjálf-
stæðismanna að sjá á eftir einu
rótgrónasta fyrirtæki bæjarins til
að bjarga bæjarfélaginu frá fjár-
hagslegu hruni. Þá eru hafðar uppi
efasemdir um tímasetningu sam-
einingar veitnanna og er í því sam-
bandi vísað í að ný raforkulög hafi
ekki verið samþykkt á Alþingi, ný-
ir möguleikar á orkuöflun séu að
opnast í Vestmannaeyjum, m.a.
með beislun vindorku, og vafi leiki
á að heimilt sé að fela hlutafélagi
rekstur vatnsveitunnar. Með hlið-
sjón af þessu geti Vestmannaeyja-
listinn ekki fallist á sölu Bæjar-
veitna en segist tilbúinn að skoða
málið á ný þegar ný raforkulög
hafa verið samþykkt og frekari
möguleikar til orkuöflunar í Eyj-
um kannaðir.
Lýstu yfir
furðu sinni
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins svöruðu bókun minni-
hlutans með því að lýsa yfir furðu
sinni á afstöðu þeirra til málsins
þar sem þeir þættir sem nefndir
væru sem ástæða fyrir andstöðu
við sölu Bæjarveitna, ný raf-
orkulög og rekstur vatnsveitu,
hefðu verið vandlega yfirfarnir af
nefnd sem veitustjórn kaus til
samningagerðar um sameininguna
sem og veitustjóra og vandlega út-
skýrðir og kynntir fyrir bæjar-
fulltrúum. Þá segja sjálfstæðis-
menn í bókun sinni að afstaða
bæjarfulltrúa Vestmannaeyja-
listans sé sem köld vatnsgusa
framan í formann bæjarmálafélags
Vestmannaeyjalistans sem sæti
hafi átt í samninganefnd veitu-
stjórnar og hafi á opinberum vett-
vangi mælt fyrir sameiningunni.
Segja þeir að með afstöðu sinni
séu bæjarfulltrúar Vestmanna-
eyjalistans að taka pólitíska hags-
muni sína fram fyrir hagsmuni
Vestmannaeyjabæjar og íbúa
Vestmannaeyja.
Minnihlutinn svaraði bókun
sjálfstæðismanna með því að segj-
ast telja sig bera hagsmuni Vest-
mannaeyinga fyrir brjósti með af-
stöðu sinni og vísaði til föður-
húsanna öllu tali um pólitíska
hagsmuni.
Að sögn Guðjóns Hjörleifssonar
bæjarstjóra má gera ráð fyrir að
sameining veitnanna eigi sér stað
fyrir næstu mánaðamót þar sem
líklega er tryggur meirihluti fyrir
málinu meðal hluthafa í Hitaveitu
Suðurnesja en málið verður tekið
fyrir á hluthafafundi þar 24. jan-
úar nk. Guðjón sagði að fyrst um
sinn væri ekki að vænta mikilla
breytinga á rekstri Bæjarveitna
þótt eflaust yrðu einhverjar
áherslubreytingar en fyrir lægi að
raforkuverð myndi lækka í Eyjum
fljótlega eftir sameininguna.
Sameining Bæjarveitna Vestmannaeyja við
Hitaveitu Suðurnesja samþykkt
Lækkun á raforku-
verði boðuð í kjölfarið
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
GREININGAR- og ráðgjafar-
stöð ríkisins stendur fyrir nám-
skeiði um heilalömun í Gerðu-
bergi föstudaginn 25. janúar kl.
9–16.
Námskeiðið er bæði ætlað
starfsfólki, t.d. í leikskólum,
grunnskólum og heimilum fyrir
börn, og aðstandendum. Fjallað
verður m.a. um orsakir heilalöm-
unar og viðbótarfatlanir, mat á
þroska, þjálfun og hjálpartæki.
Einnig um samspil hreyfihöml-
unar, hegðunar og almenns
þroska og vandann samfara
áunnu hjálparleysi og mikilvægi
þess að örva frumkvæði barn-
anna.
Markmið námskeiðsins er að
auka skilning á þörfum barna
með heilalömun, efla færni þátt-
takenda til að annast þjálfun,
kennslu og uppeldi þeirra og
skapa sameiginlegan vettvang
fyrir fólk sem vinnur að sömu og
sambærilegum verkefnum.
Á námskeiðinu verður kynnt
nýstofnað félag CP á Íslandi en í
því eru jafnt aðstandendur og
fagaðilar.
Leiðbeinendur verða sérfræð-
ingar hreyfihömlunarsviðs Grein-
ingarstöðvar. Skráning stendur
yfir og eru nánari upplýsingar á
www.greining.is, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeið um heilalömun barna