Morgunblaðið - 19.01.2002, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 19
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
65
26
01
/2
00
2
Útsala
Pottaplöntur
20 - 60% afsláttur
40% afsláttur
Gjafavara
20-50% afsláttur
Pottar
499 kr.
Blómaáburður 1L
149 kr.
Mold 5L
198 kr.
20% afsláttur
Kartöflur 2 kg
Kryddjurtir
799 kr.
Túlípanar 10 stk.
20-30% afsláttur
Silkiblóm
Friðarliljur
599 kr.
Stofuaskur
499 kr.
Orkideur
1999 kr.
Drekatré stór (tvö í potti)
999 kr.
Bonsai tré
999 kr.
Verðdæmi:
Allar pottaplöntur
á útsölu
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Dagskrá:
Ávarp heiðursgests: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri.
Veislustjóri: Einar Thoroddsen, læknir.
Minni karla: Agnes Bragadóttir, blaðamaður.
Minni kvenna: Séra Pálmi Matthíasson.
Skemmtiatriði: 4 klassískar.
Happdrætti: Glæsilegir vinningar.
Dans: Hljómsveitin Grái fiðringurinn.
Miðar og borðapantanir í Víkinni
í símum 581 3245 og 896 7285.
Nefndin
Þorrablót Víkings
verður haldið laugardaginn 2. febrúar nk.
í Víkinni og hefst kl. 19:00.
SAMKOMULAG hefur tekist við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja um
kennslu skjólstæðinga Byrgisins í
endurhæfingarsambýlinu Rock-
ville á Keflavíkurflugvelli og
hefst kennsla í byrjun næstu
viku. „Þetta er langþráður áfangi
og verður námið áhrifaríkur þátt-
ur í endurhæfingarprógrammi
Byrgisins,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Til að byrja með verður kennt
tvo daga í viku, tvo tíma í senn.
Kennd verður samfélagsfræði þar
sem nemendur
takast á við
ýmis félagsleg
verkefni og
hljóta þjálfun í
samskiptum.
Menntamála-
ráðuneytið hef-
ur sýnt já-
kvæða afstöðu
til þessa verk-
efnis, að því er fram kemur í til-
kynningunni, og ef vel tekst til
með þennan áfanga bætast fleiri
námsgreinar við áður en langt
um líður. Í þessum fyrsta náms-
hópi verða um 15 nemendur, og
eru þeir á aldrinum 18–60 ára.
„Námið er forgangsverkefni
meðal endurhæfingarverkefna í
Rockville og fátt byggir eins upp
sjálfstraust og sjálfsímynd og
góður námsárangur. Þessi til-
högum mun gerbreyta framtíð-
armöguleikum þeirra einstak-
linga sem til Byrgisins leita, en
þeir eru að mestum hluta ör-
yrkjar eða á framfæri Félags-
þjónustunnar.
Flestir þeirra hafa horfið frá
námi á unglingsárunum, margir
hafa verið án atvinnu áratugum
saman,“ segir í fréttatilkynningu
frá Byrginu.
Rockville
Kennsla að hefjast í Byrginu
MARKAÐS- og atvinnuráð
Reykjanesbæjar hefur falið fram-
kvæmdastjóra Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofu bæjarins
(MOA) að kynna bæjaryfirvöldum í
Grindavík og Vogum helstu verk-
efni skrifstofunnar.
Eftir að MOA sendi frá sér verk-
efnalista var bókað í bæjarráði
Grindavíkur að starfsemin sneri
orðið alfarið að Reykjanesbæ og
því óraunhæft að önnur sveitar-
félög kosti reksturinn. Hrepps-
nefnd Vatnsleysustrandarhrepps
tók undir þessa skoðun.
Markaðs- og atvinnuráð Reykja-
nesbæjar telur að bókun bæjar-
ráðsins sé á misskilningi byggð.
Frá upphafi hafi MOA unnið að
fjölmörgum verkefnum fyrir fyr-
irtæki og einstaklinga í öllum
sveitarfélögunum á Reykjanesi en
þau séu sum hver trúnaðarmál.
Var Ólafi Kjartanssyni fram-
kvæmdastjóra falið að kynna yf-
irvöldum í Grindavík og Vogum
þau verkefni sem unnið hefur verið
að síðustu misserin.
Verkefni
MOA kynnt
í Grindavík
Reykjanesbær
TVEIR voru fluttir á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja eftir árekst-
ur tveggja bíla á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Hafnavegar
á áttunda tímanum í gærmorgun.
Bílarnir komu úr gangstæðum
áttum og lentu saman þegar annar
beygði inn á Hafnaveg. Ekki er
vitað til þess að hálka hafi verið á
veginum. Meiðsli fólksins eru
minniháttar, samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Keflavík. Bíl-
arnir voru stórskemmdir eftir
áreksturinn og fluttir í burtu með
kranabíl.
Minniháttar
meiðsl
í árekstri
Reykjanesbraut
NÝR löndunarkrani sem keyptur
verður fyrir Grindavíkurhöfn kost-
ar 2,8 milljónir kr., án virðisauka-
skatts.
Á hafnarstjórnarfundi voru fyrir
skömmu lögð fyrir tilboð í lönd-
unarkrana. Ákveðið var að kaupa
krana frá Framtaki hf., fullbúinn
með innbyggðri dælustöð.
Keyptur
nýr löndunar-
krani
Grindavík
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦