Morgunblaðið - 19.01.2002, Blaðsíða 48
KIRKJUSTARF
48 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTNIR menn biðja fyrir sam-
vinnu kirkna og fyrir einingu
kristninnar.
Sunnudaginn 20. janúar hefst al-
þjóðleg bænavika með guðsþjón-
ustu í Grensáskirkju í Reykjavík kl.
11. Sr. María Ágústsdóttir héraðs-
prestur leiðir samveruna. Eric Guð-
mundsson, forstöðumaður hjá Að-
ventkirkjunni, predikar og
fulltrúar Hvítusunnusafnaðarins,
kaþólsku kirkjunnar og Hjálpræð-
ishersins bera fram Guðs orð og
bænir. Í vikunni á eftir verða bæna-
stundir í kirkjunum kl. 20 og sem
hér segir: Á miðvikudagskvöldinu í
Landakotskirkju, á fimmtudeg-
inum í Herkastalanum og á föstu-
dagskvöldinu í Aðventkirkjunni
eins og verið hefur mörg und-
anfarin ár. Hápunktur bænavik-
unnar verður hátíðarsamkoma í
Fíladelfíu laugardagskvöldið 26.
janúar kl. 20 en þar verður fjöl-
breytt dagskrá með þátttöku
margra kristinna trúfélaga. Sam-
starfsnefnd kristinna trúfélaga,
sem stýrir undirbúningi bænavik-
unnar, býður öllum sem vilja leggja
samvinnu kristinna kirkna lið að
taka þátt samkomunum og bæn fyr-
ir einingu kristninnar. Samstarfs-
nefnd kristinna trúfélaga á Íslandi.
Stofnun Bjöllukórs
Fríkirkjunnar
í Reykjavík
EFTIR messu næstkomandi sunnu-
dag mun Fríkirkjan í Reykjavík
halda kynningarfund um nýjan
Bjöllukór. Stjórnandi Bjöllukórs
Fríkirkjunnar verður Carl Möller,
einn af tónlistarstjórum kirkj-
unnar. Bjöllukórinn verður einnig
hluti af barna- og æskulýðsstarfi
safnaðarins og mun hluti af starfi
Bjöllukórsins taka mið af því. Um-
sjón með þeim lið starfsins hafa
þeir Hreiðar Örn Stefánsson æsku-
lýðsfrömuður og Hjörtur Magni Jó-
hannsson safnaðarprestur. Það er
stefna Fríkirkjunnar að auka og
efla tónlistar- og æskulýðsstarf inn-
an safnaðarins og er stofnun Bjöllu-
kórsins hluti af þessari stefnu. Allir
sem áhuga hafa eru velkomnir á
kynningarfundinn næstkomandi
sunnudag.
Samstarf safnaða
UM nokkurra ára skeið hafa Víði-
staðasókn og Garða- og Bessa-
staðasókn haft með sér samstarf
sem fólgið er í gagnkvæmum
messuheimsóknum eldri borgara í
þessum söfnuðum. Sunnudaginn 20.
janúar kl. 14 munu prestur, kór og
organisti Víðistaðakirkju, ásamt
eldri borgurum þar heimsækja
Vídalínskirkju í Garðabæ.
Sr. Bragi J. Ingibergsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari í guðsþjón-
ustunni og Gaflarakórinn, kór Fé-
lags eldri borgara í Hafnarfirði,
syngur undir stjórn Úlriks Ólason-
ar organista. Úr Víðistaðasókn fer
rúta frá Víðistaðakirkju kl. 13.15,
frá Hrafnistu kl. 13.25 og frá
Hjallabraut 33 kl. 13.35. Þá fer rúta
frá Hleinum kl. 13.40. Erlendur sér
um akstur af Álftanesinu.
Að guðsþjónustu lokinni bjóða
Garða- og Bessastaðasókn upp á
kaffi og stutta dagskrá í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli. Eldri
borgarar í öllum þessum söfnuðum
eru hvattir til að mæta, en samstarf
þetta mælist vel fyrir og hefur auk-
ið kynni fólks á þessu svæði.
Prestarnir.
20 manna hópur
Bandaríkjamanna í
KFUM og KFUK
GÓÐIR gestir verða í KFUM og
KFUK í Reykjavík við Holtaveg á
morgun, sunnudag. Um er að ræða
20 manna hóp frá Bandaríkjunum
sem ferðast á milli herstöðva
Bandaríkjahers til að uppörva og
gleðja kristið fólk í starfsliði hers-
ins. Hann er hér á landi í boði
þeirra bandarísku presta sem
starfa á herstöðinni í Keflavík.
Hópurinn mun halda námskeið fyr-
ir unga leiðtoga í KFUM og KFUK
kl. 16–18, sex manna hljómsveit
(band) mun leika á almennri sam-
komu í húsinu kl. 17, auk þess sem
félagi úr hópnum mun halda ræðu
dagsins. Á sama tíma sjá aðrir úr
hinum stóra hópi um barna-
samkomu í kjallarasal hússins. Að
samkomu lokinni er boðið upp á
heitan mat á fjölskylduvænu verði.
Á Vökunni um kvöldið kl. 20.30
mun hópurinn halda tónleika. Allir
eru hjartanlega velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Námskeið um
trúarbrögð
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
gengst fyrir námskeið um nokkur
trúarbrögð mánudagskvöldin 21.
og 28. janúar kl. 20–22. Námskeiðið
kallast „Hverju trúa þau?“ og verð-
ur leitast við að gefa nokkra innsýn
í trúarkenningar og tilbeiðsluhætti
helstu trúarbragða heims fyrir ut-
an kristindóminn, þ.e. einkum gyð-
ingdóms, islam, hindúasiðar og
búddhadóms. Fyrirlesari verður
Gunnar J. Gunnarsson, lektor við
KHÍ. Námskeiðið verður haldið í
húsi KFUM og KFUK við Holtaveg
og er námskeiðsgjald 1.800 kr.
Skráning er í síma 588 8899 til kl.
13 mánudaginn 21. janúar.
Prófastur í heimsókn
í Háteigskirkju
SR. JÓN Dalbú Hróbjartsson pre-
dikar í messu í Háteigskirkju á
morgun, sunnudag. Þátttaka hans í
messunni er einn liður í vísitasíu
hans en svo nefnist á kirkjumáli op-
inber heimsókn prófasts til kirkna í
prófastsdæmi hans. Háteigskirkja
er næststærsta sóknin í Reykjavík-
urprófastdæmi vestra en alls til-
heyra níu kirkjur prófastsdæminu.
Í vísitasíu felst að prófastur heim-
sækir söfnuðinn til þess að kynnast
starfsfólki og kynna sér starfsemi
safnaðarins. Heimsókn prófasts
hefst í barnaguðsþjónustu klukkan
ellefu, en hún er í umsjón sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur og Guðrúnar
Helgu Harðardóttur. Klukkan tvö
tekur prófastur svo virkan þátt í
messu safnaðarins, en það er sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir sem
þjónar fyrir altari og kirkjukór Há-
teigskirkju syngur undir stjórn
Douglas A. Brotchie. Að lokinni
messu heldur prófastur fund með
sóknarnefnd og starfsfólki. Fund-
urinn er opinn öllum safnaðar-
meðlimum.
Samvera á vegum
fjölskyldufræðslu
í Neskirkju
FJÖLSKYLDUFRÆÐSLA Nes-
kirkju býður til samveru í safn-
aðarheimili kirkjunnar sunnudag-
inn 20. janúar 2002 kl. 20. Þar mun
Sæmundur Hafsteinsson, for-
stöðumaður Félagsþjónustu Hafn-
arfjarðarbæjar flytja erindi og
svara fyrirspurnum. Erindi sitt
nefnir hann:
Sjálfstraust og uppeldi. Sæmund-
ur er sálfræðingur og félagsráð-
gjafi að mennt með réttindi í fjöl-
skylduráðgjöf og hefur auk þess
starfað um árabil við kennslu. Er-
indið ætti að vekja sérstakan áhuga
þeirra sem eru með börn á sínu
framfæri en líka getur það höfðað
til breiðari hóps enda er sjálfs-
traust einstaklinga forsenda fyrir
vellíðan og velgengni á mörgum
sviðum lífsins. Að loknu erindinu
verður gert kaffihlé og loks eru
fyrirspurnir. Dagskránni lýkur
með ritningarlestri og bæn í umsjá
séra Arnar Bárðar Jónssonar.
Dúkkur og bangsar í
Laugarneskirkju
NÚ á sunnudaginn eiga krakkarnir
kirkjuna með okkur fullorðna fólk-
inu því við messu í Laugarneskirkju
kl. 11 kemur trúður í heimsókn,
brúður spjalla og krakkarnir koma
með bangsana eða dúkkurnar sínar
í kirkjuna. Pabbar, mömmur, afar
og ömmur, mætum með börnunum
okkar og eigum góða stund.
Alþjóðleg bæna-
vika og samvinna
kirkna
Morgunblaðið/Arnaldur
Háteigskirkja í Reykjavík.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14:00.
Sr. Tómas Guðmundsson, fyrrverandi pró-
fastur, segir frá einu og öðru. Allir vel-
komnir. Umsjón sr. Frank M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir,
spurt og svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Hvalsneskirkja.
Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Kirkjuskólinn kl. 11, í dag.
Allir hvattir til að mæta.
Útskálakirkja
Safnaðarheimilið Sæborg.
Kirkjuskólinn kl. 14, í dag.
Allir hvattir til að mæta.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Í kvöld er
brauðsbrotning. Reynir Valdimarsson, pre-
dikar.
Safnaðarstarf
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu.
HRAFNISTA: Guðsþjónusta kl. 15.30.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börn-
um sínum. Organisti Pálmi Sigurhjart-
arson. Guðsþjónusta kl. 14. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob
Ág. Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Æðruleysismessa kl. 20.30. Karl Sig-
urbjörnsson, biskup Íslands, prédikar. Sr.
Anna S. Pálsdóttir leiðir stundina, sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir leiðir fyrirbæn, sr. Jakob
Ág. Hjálmarsson flytur lokaorð. Anna S.
Helgadóttir og Bræðrabandið sjá um tón-
list.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Samkirkjuleg guðsþjónusta kl. 11 við upp-
haf bænaviku um einingu kristinna
manna. Prestur sr. María Ágústsdóttir og
ræðumaður Eric Guðmundsson frá Að-
ventkirkjunni. Lesarar eru Guðný Gunn-
arsdóttir, fulltrúi kaþólsku kirkjunnar, Ari
Guðmundsson, fulltrúi hvítasunnumanna
og Hilmar Símonarson frá Hjálpræð-
ishernum. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir
sönginn, en organisti er Árni Arinbjarn-
arson. Allir velkomnir. Minnt er á bæna-
stundir í vikunni framundan og samkomu í
Fíladelfíu á laugardagskvöldið 26. jan. kl.
20 þar sem beðið verður fyrir einingu krist-
inna manna.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Messa kl. 14. Sr. Halldór Gröndal
messar. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Umsjón barnastarfs Magnea
Sverrisdóttir. Organisti Hörður Áskelsson.
Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa
kl. 14. Prófastur, sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son, vísiterar söfnuðinn og prédikar í
messunni. Organisti Douglas A. Brotchie.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI HRINGBRAUT: Guðsþjón-
usta kl. 10.30. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Jón
Hjörleifur Jónsson flytur hugvekju á upp-
hafsdegi bænaviku fyrir einingu kristinna.
Kristbjörg Klausen og Einar Klausen
syngja. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Barnastarfið
hefst í kirkjunni en börnin fara síðan í
safnaðarheimilið ásamt Gunnari og
Ágústu. Kaffisopi og djús eftir messu.
Myndlistarsýning með verkum Ásgerðar
Búadóttur og Kristjáns Davíðssonar verð-
ur í kirkjunni frá 19. janúar.
LAUGARNESKIRKJA: Kærleiksmessa kl.
11. Að þessu sinni messum við alfarið á
forsendum barnanna. Kór Laugarnes-
kirkju leiðir messusönginn undir stjórn
Bjarna Jónatanssonar organista. Hrund
Þórarinsdóttir, djákni, sr. Bjarni Karlsson
og hópur sunnudagaskólakennara þjóna
saman ásamt fulltrúum úr lesarahópi
kirkjunnar og fermingarbörnum. Mikill
söngur, trúður heimsækir og brúður
spjalla og guðspjallið flutt með myndum.
Fullorðnir hvattir til þátttöku ekki síður en
börnin. Messukaffi. Guðsþjónusta kl. 13 í
Dagvistarsalnum, Hátúni 12. Þorvaldur
Halldórsson syngur, Bjarni Karlsson, Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn og Guðrún
K. Þórsdóttir þjóna ásamt hópi sjálf-
boðaliða. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Örn
Bárður ónsson. Organisti Reynir Jón-
asson. Kór Neskirkju syngur. Molasopi
eftir messu. Sunnudagaskólinn kl. 11.
8–9 ára starf á sama tíma. Alfa II kl.
12.30.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Hvetjum
börnin til að koma og eiga ánægjulega
stund. Umsjón Arna Grétarsdóttir. Sr. Sig-
urður Grétar Helgason.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík:
Sunnudagurinn 20. janúar 2002
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta klukkan
11. Að vanda verður farið að gefa önd-
unum brauð eftir messu.
Umsjón með tónlist hafa þau Anna Sigga
og Carl Möller. Allir velkomnir.
Eftir messuna verður kynningarfundur um
Bjöllukór Fríkirkjunnar í Reykjavík. Stjórn-
andi hins nýja Bjöllukórs er Carl Möller.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykjavík. Sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti: Pavel Manásek. Kirkjukórinn
syngur. Prestur: Þór Hauksson. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu. Nýtt efni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa á sama tíma. Léttar veit-
ingar í safnaðarheimilinu á eftir messu.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús B. Björnsson. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju A-
hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama
tíma.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur: Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti: Lenka Mátéová.
Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu á
sama tíma í umsjón Elínar Elísabetar Jó-
hannsdóttur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Bjarna Þór
Bjarnasyni. Kór Grafarvogskirkju syngur
ásamt Barna- og unglingakór kirkjunnar.
Stjórnendur: Oddný Þorsteinsdóttir og
Hörður Bragason organisti. Að lokinni
guðsþjónustunni verður fundur með for-
eldrum fermingarbarna í Engja- Folda-,
Hamra- og Húsaskóla. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón: Ása, Bryndís, Hlín og
Jóhanna Ýr. Organisti: Guðlaugur Vikt-
orsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13 í Engja-
skóla. Sr. Vigfús Þór Árnason. Umsjón:
Ása, Bryndís, Hlín og Jóhanna Ýr. Org-
anisti: Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Taize-messa kl. 11. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
Sungnir verða Taize-sálmar að franskri fyr-
irmynd. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti, Jón Ólafur
Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta í Linda-
skóla kl. 11. Barnaguðsþjónusta í Hjalla-
kirkju kl. 13. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudögum kl. 18. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kór Kópavogskirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng. Kirkja heyrnarlausra
kemur í heimsókn og tekur þátt í guðs-
þjónustunni ásamt presti heyrnarlausra
sr. Miyako Þórðarson. Organisti Julian
Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Krakkaguðsþjónusta kl.
11. Sögur, söngur og nýr límmiði. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Þorvaldur Hall-
dórsson sér um tónlistina. Sr. Ágúst Ein-
arsson flytur hugvekju.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgun-
guðsþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Friðrik Schram fjallar um „kenn-
ingu Jesú um siðferðismál í Fjallræðunni“.
Samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyr-
irbænir. Gestir: Donald Stewart, banka-
stjóri og fjármálaráðgjafi frá Bandaríkj-
unum, og Carol kona hans. Friðrik Schram
predikar. Allir hjartanlega velkomnir.
Alfa kynning þriðjudagskvöldið 22. jan. kl.
20. Alfaskráning hafin í s. 567-8800. Nýj-
ar greinar á heimasíðunni: www.kristur.is
KLETTURINN: Kl. 11 almenn samkoma
fyrir alla fjölskylduna. Mikil lofgjörð og til-
beiðsla. Allir velkomir.
FÍLADELFÍA:
Brauðsbrotning kl. 11, ræðumaður Svan-
ur Magnússon. Almenn samkoma kl.
16.30, lofgjörðarhópur Marita leiðir söng.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 11 sam-
kirkjuleg Guðþjónusta í Grænsáskirkju. Kl.
19.30 bæn kl. 20 Hjálpræðissamkoma
kafteinn Trond Are Schelander talar.
Mánudagur: kl. 15 Heimilasamband Liv
Krøte talar. Allir velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 16.30. Bænastund fyrir
samkomu kl. 16. Ræðumaður: Björg R.
Pálsdóttir. Lofgjörð og fyrirbænir. Þriðjud.:
Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil
lofgjörð og Orð Guðs rætt. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Sunnudagur 20. - 27. janúar 2002
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30 (hámessa).
Messa á ensku kl. 18.00. Virka daga
(mánud.-föstud.): Messa kl. 18.00.
Miðvikudagur 23. janúar kl. 20.00: Bæna-
stund í tilefni alþjóðlegrar bænaviku
fyrir sameiningu kristinna manna.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Sunnudaginn 20. jan.: Messa á pólsku kl.
15.00. Laugardaga: messa á ensku
kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
17.00. Miðvikudaga: Messa kl. 20.00.
Hafnarfjörður - St. Jósefskirkja: Sunnu-
daga: Messa kl. 10.30. Miðvikudaga:
Messa kl. 18.30.
St. Barbörukapella, Keflavík: Sunnu-
daga: Messa kl. 14.00.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnu-
daga: Messa kl. 10.00.
Grundarfjörður: Sunnudaginn 20. janúar:
messa kl. 17.00.
Ólafsvík: Sunnudagur 20. janúar: messa
kl. 14.30.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl.
16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Laugardaga: Messa kl. 18.00.
KFUM og KFUK v/Holtaveg:
Samkoma kl. 17. 20 manna hópur gesta
frá Bandaríkjunum munu sjá að mestu um
samkomuna. Einn úr þeirra hópi mun
halda ræðu dagsins og sex manna
hljómsveit mun leika nokkur lög fyrir
samkomugesti. Hluti af hópnum fer í
heimsókn á barnasamkomuna og býður
upp á margt mjög athygilsvert. Boðið er
Guðspjall dagsins:
Er þér biðjist fyrir.
(Matt. 6.)