Morgunblaðið - 24.01.2002, Side 1

Morgunblaðið - 24.01.2002, Side 1
19. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 24. JANÚAR 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í gær að hann hefði farið fram á það við þingið að það sam- þykkti hátt í fimmtíu milljarða doll- ara aukningu á útgjöldum til hern- aðarmála, vegna herfararinnar gegn hryðjuverkum. Þetta er mesta aukn- ing á hernaðarútgjöldum í Banda- ríkjunum í tvo áratugi, eða síðan Ronald Reagan sat í Hvíta húsinu og Bandaríkjastjórn var helst upptekin af Sovétríkjunum og kalda stríðinu, að því er The New York Times greindi frá. Ef þingið verður við beiðni forset- ans fær varnarmálaráðuneytið hátt í 380 milljarða dollara í sinn hlut á fjárlagaárinu sem hefst fyrsta októ- ber. Alls munu fjárlögin hljóða upp á tvær billjónir (milljónir milljóna), með rúmlega hundrað milljarða halla. Útgjaldaaukningunni til hermála á að verja til að hækka laun her- manna, fjölga nákvæmnisvopnum og byggja eldflaugavarnir, sagði Bush. „Það mun kosta sitt að kaupa þessi tæki, en þegar varnir þessa stórkost- lega lands eru annars vegar er ekki hægt að spara neitt.“ Kom ekki á óvart Tilkynning Bush kom ekki á óvart, þar eð búist hafði verið við því að hann færi fram á aukin framlög til varnarmálaráðuneytisins. En ekki eru margir mánuðir síðan fjárlaga- höfundar töluðu um að vænta mætti afgangs næstu árin. Bush sagði ennfremur að hann hefði farið fram á að ráðnir yrðu 30 þúsund öryggisverðir á flugvelli og starfsmönnum alríkislögreglunnar yrði fjölgað um 300. Forsetinn fundaði með leiðtogum demókrata og repúblíkana í þinginu og fullvissaði þá um, að hann hefði „alls engan áhuga“ á að nýta herför- ina gegn hryðjuverkum sjálfum sér til pólitísks ávinnings. Engar fregnir bárust af viðbrögðum þingmann- anna. Horfur á að halli verði á fjárlögum Bandaríkjanna á næsta ári Mesta aukning hernaðarút- gjalda í 20 ár Washington. AP. RUSLAN Ponomariov, 18 ára Úkraínumaður, stígur af sviðinu í Moskvu í gær þar sem hann varð heimsmeistari Alþjóðaskák- sambandsins (FIDE) í skák, eftir að hann gerði jafntefli við landa sinn Vassilí Ivansjúk. Ponomariov er yngsti maðurinn sem orðið hefur heimsmeistari karla í skák, en Maia Chiburdanidze frá Georgíu varð heimsmeistari kvenna 17 ára 1978. Ponomariov, sem varð alþjóð- legur meistari 14 ára, dugði jafn- tefli í þessari sjöundu skák einvígis síns við Ivansjúk til að sigra með fjórum og hálfum vinningi gegn tveimur og hálfum. Ivansjúk bauð jafntefli í 18. leik, og þáði Ponom- ariov boðið, þrátt fyrir að vera með betri stöðu. Síðan 1993 hefur skákheimurinn verið klofinn í tvær fylkingar og keppir hvor um sig um heimsmeist- aratitil. Það var þáverandi heims- mestari, Garrí Kasparov, sem sagði sig úr FIDE og stofnaði Samtök at- vinnuskákmanna. Þau voru lögð niður fimm árum síðar. Ponom- ariov mun mæta Kasparov í fyrsta sinn í næsta mánuði á Linares- skákmótinu á Spáni. Auk þeirra verða meðal keppenda Ivansjúk og fráfarandi heimsmeistari FIDE, Indverjinn Viswanathan Anand. Ponomariov er sjöundi stiga- hæsti skákmaður heims, og er fyrsti Úkraínumaðurinn sem vinn- ur heimsmeistaratitil FIDE. Stiga- hæstu skákmennirnir eru þeir Kasparov og Vladimír Kramník. Kasparov varð heimsmeistari FIDE 22 ára 1985. 18 ára heims- meistari AP Moskvu. AFP.  Ponomariov/53 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti hafnaði í gær gagnrýni Evrópu- sambandsins á meðferð Bandaríkja- manna á föngum sem fluttir hafa verið frá Afganistan til bandarísku herstöðvarinnar við Guantanamo- flóa á Kúbu. Sagði talsmaður forset- ans að Bush teldi meðferðina mann- úðlega, og komið væri fram við fang- ana af virðingu. Engu að síður hefur bandaríski herinn hætt að flytja fanga til Guant- anamo um sinn, að sögn til þess að færi gefist til að stækka búðirnar. Evrópuríki gagnrýndu aðbúnað fang- anna eftir að fulltrúar Rauða krossins heimsóttu búðirnar og bandaríska varnarmálaráðuneytið birti ljósmynd er sýndi hóp fanga í hlekkjum, með bundið fyrir augu, krjúpandi og með eyrnaskjól. Patrick Cox, forseti Evrópuþings- ins, spurði í gær hvort þessi meðferð væri ekki í raun eins konar pynt- ingar. Nú hafa 158 al-Qaeda-liðar og talibanar verið fluttir til Guant- anamo og Banda- ríkjamenn eru með aðra 270 í haldi í og í grennd við Afganistan. Talsmaður Bush sagði að forsetinn liti ekki svo á, að fangarnir væru saklausir uns sekt þeirra sannaðist. Forsetinn teldi enn- fremur, að ef fangarnir gengju lausir myndu þeir halda áfram grimmdar- verkum. „Þetta eru ekki einhverjir sakleysingjar, þetta eru þeir verstu af þeim verstu, og eru í haldi vegna þess sem þeir hafa gert,“ sagði tals- maður Bush. John Walker Lindh, ungur Banda- ríkjamaður sem sakaður er um að hafa barist með al-Qaeda í Afganist- an, kom til Bandaríkjanna í gær- kvöldi undir strangri gæslu alríkis- lögreglumanna. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa lagt á ráðin um morð á bandarískum borgurum. Hann var handtekinn í Afganistan í nóvember í kjölfar uppreisnar hóps talibana sem voru í haldi. Bandarísk- ur leyniþjónustumaður féll í upp- reisninni. Flugvélin sem flutti Lindh frá Afg- anistan lenti á Dulles-flugvellinum rétt fyrir utan Washington um mið- nætti í gær að íslenskum tíma. Áætl- að var að Lindh kæmi fyrir rétt í Washington klukkann 14 í dag. Í dómsskjölum segir alríkislögreglan að Lindh hafi gerst hermaður Osama bin Ladens í júní sl., og hafi bin Lad- en sjálfur þakkað Lindh fyrir að taka þátt í hinu heilaga stríði. Hætt að flytja fanga til Guantanamo um sinn Bush segir meðferð- ina mannúðlega Washington. AFP, AP. John Walker Lindh ÍTALSKIR lögreglumenn á varð- bergi fyrir framan kirkju heilags Frans í Assisi í gær þar sem mikið gekk á við undirbúning fundar Jó- hannesar Páls páfa sem haldinn verður í bænum í dag með fjölda annarra trúarleiðtoga. Auk páfa koma til fundarins leiðtogar músl- ima, gyðinga, búddista, hindúa, shintotrúaðra og fjölda annarra, alls um 200 manns. Tilgangur fund- arins, sem páfi boðaði til í nóv- ember sl., er að biðja fyrir friði í heiminum og fordæma hryðju- verkastarfsemi. Páfi sagði daginn verða helgaðan bænum „fyrir enda- lokum átaka og boðun friðar“. Einkum væri mikilvægt að músl- imar og kristnir kæmu saman og lýstu því yfir við umheiminn að trú megi aldrei verða orsök átaka, hat- urs og ofbeldis. Reuters Beðið í Assisi YASSER Arafat, forseti heimastjórnar Palestínu- manna, fór þess á leit við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær, að Anth- ony Zinni, sérstakur sátta- fulltrúi Bandaríkjastjórnar fyr- ir botni Miðjarðarhafs, verði aftur sendur þangað. Aðstoðar- maður Arafats greindi frá þessu í gær. Hafði Powell hringt í Arafat í Ramallah á Vesturbakkanum, þar sem Arafat hefur dvalið í eiginlegu stofufangelsi síðan þriðja desember sl., en Ísraelar meina honum að fara. Arafat bað Powell um að „senda Zinni hingað fljótt aftur“. Talsmaður utanríkisráðu- neytisins sagði á þriðjudaginn að Arafat yrði að leysa upp samtök öfgasinnaðra Palest- ínumanna, svo sem hann hefði lofað að gera. Palestínskur byssumaður myrti tvo Ísraela og særði hátt í 40 aðra í Jerú- salem á þriðjudaginn. Arafat vill Zinni aftur Gazaborg. AFP.  Yasser Arafat/27

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.