Morgunblaðið - 24.01.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.01.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ 1 dagur í Slava! Miðasala opin alla virka daga kl 13-17 og fram að sýningu sýningardaga. Sími 4621400. www.leikfélag.is „Þetta er alveg æðislegt færi,“ sagði hann. Stærsta skíðalyftan á Norð- urlöndum á liðnu ári Stólalyftan nýja sem er af gerðinni Doppelmayr er fjögurra sæta og er afkastageta hennar mun meiri en þeirrar sem hún nú leysir af hólmi. Sú gamla flutti um 450 manns á klukkustund en þessi nær að flytja allt að 2.000 manns á sama tíma. Ferðin upp, um 1.000 metra leið tekur 6 mín- útur og er það nokkru skemmri tími en fólk á að venjast, en 8–10 mínútur tók að jafnaði að fara upp með þeirri gömlu. Stólalyftan í Hlíðarfjalli er sú stærsta sem fyrirtækið setti upp á Norð- urlöndunum á síðasta ári. „Fólk er vant að taka því ró- lega í röðinni við lyftuna og eins að nota tímann á leiðinni upp til að spjalla, en nú tekur þetta allt svo stuttan tíma að menn hafa engan tíma til að sinna spjallinu. Það er allt hér á helmingi meiri hraða en var og fólk er svona að átta sig á því,“ sagði Guðmundur Karl. Kristján Þór Júlíusson bæj- arstjóri var einn hinna óþreyju- fullu skíðamanna sem beðið hafa eftir nægum snjó í fjallið en hann notaði hádegishléið og skellti sér á skíði. Hann kvaðst afar ánægð- ur með nýju lyftuna en bæj- arstjóri náði að renna sér tvær ferðir áður en skyldan kallaði á ný. Gert ráð fyrir straumi að sunnan Stólalyftan var sú eina á skíða- svæðinu sem opin var í gær, en Guðmundur Karl sagði að í dag yrði einnig opnað í Hólabraut og þá vænti hann þess að um helgi yrði hægt að opna allar lyftur. „Við munum reyna að setja allt í fullan gang um helgi,“ sagði hann. Veðurspá fyrir helgina er áægt og bjóst forstöðumaðurinn við að fjöldi fólks yrði á skíða- svæðinu þá. Fjöldi fyrirspurna hefur borist, einkum af suðvest- urhorni landsins þar sem enn er ekki nægur snjór fyrir hendi. „Ég er viss að það það verður stöð- ugur straumur að sunnan og merki það bara á þeim símtölum sem við höfum fengið síðustu daga,“ sagði Guðmundur Karl, en hann sagði að fólki þætti lítið mál núorðið að bregða sér norður á skíði. „Þessi fyrsti dagur hjá okkur lofar góðu um framhaldið,“ sagði Guðmundur Karl bjartsýnn en hann telur að Hlíðarfjall muni nú á ný skipa sér í flokk með eftir- sóttustu skíðasvæðum landsins. „ÞETTA gekk allt saman eins og í sögu,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíð- arfjalli, en skíðasvæðið var opnað um hádegi í gær, í fyrsta sinn á þessum vetri. Óhætt er að segja að áhuga- samasta skíða- og brettafólkið hafi verið í hátíðarskapi af þessu tilefni enda var við sama tæki- færi hægt að nýta sér glænýja stólalyftu, sem sett var upp á haustdögum. Guðmundur Karl sagði að allt að 300 manns hefðu komið í fjall- ið þennan fyrsta skíðadag ársins og það teldist þokkalegur hópur á þessum tíma, þ.e. eftir hádegi á miðvikudegi. Skíðafærið æðislegt „Það er greinilegt að margir hafa verið í startholunum og skellt sér af stað um leið og við opnuðum,“ sagði hann. Það var ekki sami hátíðarblærinn yfir veðrinu, snjó kyngdi niður fyrri- hluta dagsins, en heldur fór að draga úr þegar á leið daginn. Skíðafæri er eins og best verður á kosið að sögn Guðmundar Karls og vegna ofankomunnar renndu menn sér í hnéhæðar lausamjöll. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, Guðmundur Karl Jóns- son, forstöðumaður Skíðastaða, og Guðmundur Jakobsson, formaður alpagreinanefndar Skíðasambands Íslands, í startholunum. Morgunblaðið/Kristján Glaðbeittir skíða- og snjóbrettamenn í nýju stólalyftunni í Hlíðarfjalli hugsuðu gott til glóðarinnar að renna sér í púðursnjó – algjöru drauma- færi í Hlíðarfjallinu, skíðaparadís Norðlendinga, í gær. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað í fyrsta sinn í vetur Allt að 300 manns mættu í hátíðarskapi Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyri, dansar niður skíðabrekk- una í Hlíðarfjalli, á eftir honum koma þeir Sigmundur Sigurjónsson og Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða. Skemmti- ferðaskip fyrirferð- armikil í sumar SKEMMTIFERÐASKIP verða fyr- irferðarmikil á Pollinum við Akur- eyri næsta sumar, því alls hafa verið boðaðar komur 35 skemmtiferða- skipa á tímabilinu. Þetta eru heldur fleiri skipakomur en undanfarin fjögur ár og sami fjöldi og sumarið 1997. Árin 1995 og 1996 voru komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar 38 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Í ár stefndi í met í komufjölda en þegar hafa fjögur skip hætt við að koma til bæjarins. Hins vegar stefnir í met í komu farþega næsta sumar með skemmtiferðaskipum, sem hafa sí- fellt verið að stækka. Pétur Ólafsson skrifstofustjóri Hafnasamlags Norðurlands, sagði að reiknað væri með 19–20 þúsund far- þegum með skemmtiferðaskipunum næsta sumar, sem væri það markmið sem menn hefðu sett sér fyrir þrem- ur árum. Hann sagði að afbókanir skipanna fjögurra hefðu komið í kjöl- far hryðjuverkaárásanna í Banda- ríkjunum þann 11. september sl. Þá væri ekki víst að skipin sem koma yrðu öll fullbókuð eins og undanfarin ár, vegna áðurnefndra atburða. Að láta tölurnar tala NÁMSKEIÐ sem sem heitir „Að láta tölurnar tala – lestur og túlkun tölfræðilegra upplýsinga,“ verður haldið á vegum símenntunarsviðs Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri og er það ætlað almenningi og öllum þeim sem hafa áhuga á fréttum og vilja skilja vissan frétta- flutning betur, jafnt þeim sem starfa við að vinna úr tölfræðilegum upp- lýsingum. Á námskeiðinu er farið yfir grunn- atriði tölfræðinnar og túlkun tölu- legra upplýsinga. Meðal þess sem skoðað verður er hvort tölur tali sínu máli, hvort sama sé hvernig sagt er frá niðurstöðum, hvort súlurit geti verið villandi og hvernig gera eigi skoðanakannanir og ýmislegt fleira í sambandi við þær. Námskeiðið byrjar 18. febrúar, en einnig verður kennt 20., 25., og 27., sama mánaðar í Þingvallastræti 23 á Akureyri. Kennari er Kjartan Ólafs- son, sérfræðingur RHA. Sögustaðir og handverk MINJASAFNIÐ á Akureyri gengst fyrir dagskrá á safninu fyrsta sunnu- dag í hverjum mánuði fram á vor og kennir þar margra grasa. Sigurður Bergsteinsson minja- vörður Norðurlands eystra mun fjalla um minjar og landslag sunnu- daginn 3. febrúar kl. 14.30, en safnið er opið frá kl. 14–16. Margrét Björgvinsdóttir safn- kennari og Ragnheiður Kjærnested bókasafnsfræðingur flytja fjalla um Munkaþverá í dagskrá fyrsta sunnu- daginn í mars. Fyrsta sunnudag í apríl verður út- saumsdagur á Minjasafninu. Sæunn Þorsteinsdóttir safnvörður sýnir út- saum úr Fjörðum og kennir sporin. Skoðunarferð verður um Gásir og Möðruvelli fyrsta sunnudag í maí. Þátttakendur koma á eigin bílum að Gásum þar sem Guðrún Kristins- dóttir safnstjóri annast leiðsögn. Síðan verður ekið að Möðruvöllum þar sem sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir sóknarprestur rekur sögu staðarins. Minjasafnið NÝVERIÐ var opnuð ný hársnyrti- stofa á Akureyri, Amber hárstofa. Hún er til húsa í Hafnarstræti 92 (Bautahúsið) þar sem Herrabúðin var áður. Eigendur Amber eru þær Ingibjörg Jóhannesdóttir og Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir, sem báðar hafa starfað á hársnyrtistofum á Ak- ureyri um árabil. Á Amber er boðið upp á alla al- menna hársnyrtiþjónustu fyrir bæði kynin og áhersla lögð á persónulegt og þægilegt andrúmsloft. Þá er þetta ein af fáum hásnyrtistofum hérlend- is sem fengið hafa umboð fyrir ítalska vörulínu sem nefnist Dávines og eru þær vörur til sölu á stofunni. Kappkostað var að hanna innrétt- ingar stofunnar þannig að þær hæfðu þessu virðulega húsi. Bauta- húsið er eins og margir vita eitt af elstu húsum bæjarins, reist af Egg- erti Laxdal kaupmanni, sem fékk lóðinni úthlutað vorið 1902. Ný hár- snyrtistofa í Hafnar- stræti Ingibjörg Jóhannesdóttir og Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.