Morgunblaðið - 24.01.2002, Qupperneq 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Útsalan
er hafin
Hlíðasmára 17,
Kópavogi, sími 564 6610
verslun.strik.is/allirkrakkar
Barnarúm, baðborð, kommóður,
tvíburavagnar og kerrur
Kl
ippstopp
2
8
.FEB R Ú AR
20
0
2
Garðabær
Gott raðhús í Garðabæ, gjarnan á einni hæð m. fjórum herbergjum og
góðum stofum, óskast.
Þingholt
200-300 fm einbýlishús í Þingholtum óskast.
Vesturborgin
Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í vesturborginni.
Einbýlishús í
Grafarvogi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 180-250 fm steinhúsi á einni hæð.
Einbýlishús í smáíbúðahverfi
og Fossvogi óskast
Höfum trausta kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum á þessum svæðum.
Sérhæð óskast
120-160 fm sérhæðir óskast. Æskileg staðsetning: Vesturbær, Hlíðar,
Þingholt, Fossvogur eða Kringlusvæðið.
Gistihús óskast
Höfum verið beðnir að útvega gistihús með 10-20 herbergjum.
Einbýlishús í Skerjafirði
eða Fossvogi óskast
Höfum kaupanda að 180-250 fm einbýlishúsi á einni hæð í Skerjafirði
eða Fossvogi.
102-160 fm íbúð í
lyftuhúsi óskast
Æskileg staðsetning: Klapparstígur, Skúlagata eða Kirkjusandur.
Atvinnuhúsnæði óskast
Höfum kaupendur að ýmiss konar atvinnuhúsnæði, t.d. 100-200 fm skrifstofu-
og verslunarplássum. Einnig höfum við sterka fjárfesta sem óska eftir stórum
eignum sem eru í útleigu.
ATHUGIÐ!
Þetta er aðeins sýnishorn úr kaupendaskrá okkar. Vegna líflegrar sölu í janúar
vantar mun fleiri tegundir af íbúðar- og atvinnuhúsnæði á söluskrá. Skoðum og
verðmetum samdægurs.
EIGNIR ÓSKAST TIL KAUPS
ÁKVEÐNIR KAUPENDUR
Höfum ákveðna kaupendur að nokkrum stórum
einbýlishúsum, raðhúsum og íbúðum nú þegar
KONFEKTVERSLUNIN Leon-
idas í Smáralind selur samnefnt
konfekt frá Belgíu og heldur
námskeið fyrir almenning um
konfektgerð. Hægt er að kaupa
eða leigja mót til konfektgerðar í
versluninni og nálgast allt hrá-
efni og segir Almar Halldórsson,
einn eigenda Leonidas, að efni-
viðurinn sé seldur í litlum ein-
ingum sem henta einstaklingum.
Almar segir um að ræða „alvöru
súkkulaði og ekta hráefni til
konfektgerðar“ sem einstak-
lingar hafi ekki getað nálgast
með þessum hætti fyrr.
Konfektnámskeiðin eru haldin
í versluninni og er stefnt að því
að minnast Valentínusardags,
dags elskendanna, í næsta mán-
uði segir Almar ennfremur. Yf-
irskriftin verður konfekt og ást
og verða ýmsar uppákomur á
döfinni að hans sögn.
Morgunblaðið/Kristinn
Hægt er að kaupa hráefni til konfektgerðar hjá Leonidas.
Konfektgerð hjá Leonidas
BLÓMALAGERINN á Smáratorgi
hefur nú verið starfræktur í rúman
mánuð og hafa viðtökur verið með
mestu ágætum, segja þeir Þorvaldur
Snorrason og Jóhann Sigurðsson,
tveir þriggja eigenda þessarar fyrstu
lágvöruverðsverslunar í blómasölu á
Íslandi. Verslunin er rekin af eigend-
um þriggja garðyrkjustöðva, Greinar
í Hveragerði, Reykjadals í Mosfells-
sveit og Rósarinnar ehf. í Hvera-
gerði, og segja þeir Þorvaldur og Jó-
hann að þeir geti boðið við-
skiptavinum sínum allt að 50% lægra
vöruverð en hefðbundnir blómasalar,
og sé lágu verði náð með hagræðingu
í ræktuninni og milliliðalausum
viðskiptum þar sem blómin komi
beint frá bóndanum til viðskiptavina
án tilkomu dreifingaraðila eða heild-
sala.
„Markmið stofnunar og starf-
rækslu verslunarinnar var að gefa al-
menningi kost á því að kaupa blóm á
miklu hagstæðara verði en fólk á að
venjast. Blómabændur hafa gert
þetta í allri Evrópu um áratuga
skeið, bæði í svona búðum eins og við
erum með og svo auðvitað á útimörk-
uðum þar sem blómasalar eru algeng
sjón. Þar er líka ekki litið á blóm sem
munaðarvöru eins og gert er hér á
landi,“ segir Þorvaldur. Jóhann tek-
ur undir orð Þorvalds og segir hefð
fyrir því á Íslandi að blóm séu nær
eingöngu keypt til hátíðarbrigða og
almennt líti fólk á blóm sem gjafa-
vöru.
„Það hafa orðið litlar sem engar
framfarir í þessum geira í um tuttugu
ár og umbætur í blómasölu því löngu
orðnar tímabærar,“ segir Jóhann.
Hann segir blóm lengi hafa verið
verðlögð allt of hátt og síðustu sex ár
hafi orðið stökk í álagningu. „Algengt
verð á stakri rós út úr blómabúð er á
bilinu 400 til 590 krónur en verðið til
bóndans er aðeins 130 til 150 krónur.
Við sleppum hlut milliliða og náum
verði stakrar rósar niður í 295 krón-
ur,“ segir hann og bætir við að vöru-
verð lágvöruverðsverslunarinnar sé
að meðaltali 40 til 50% lægra en í öðr-
um verslunum og skili samt betra
bændaverði heim. Þeir Jóhann og
Þorvaldur segja þetta skipta stéttina
miklu máli þar sem samdráttur sé í
starfi blómabænda og rekstrarerfið-
leikar hafi aukist jafnt og þétt síðustu
ár. „Þessi landbúnaðargrein stendur
illa að vígi, afkoman er lítil og blóma-
bændur eru aðþrengdir í rekstri sín-
um. Það er margt sem spilar þar inn í
en ekki síst dreifingarkerfið þar sem
bændur taka til dæmis á sig öll sölu-
afföll sem geta numið 30 til 40% af
hverri sendingu. Kostnaður við raf-
orkuverð gerir líka allt rekstrarum-
hverfið erfiðara en það þyrfti að
vera,“ segir Jóhann og kveður það
ánægjulegt að taka þátt í því að
brjóta upp hefðbundið form blóma-
verslunar. Þeir félagar segjast hafa
fengið jákvæð viðbrögð frá starfs-
bræðrum sínum en óánægjuraddir
hafi hins vegar heyrst frá dreifing-
araðilum og nokkrum blómasölum.
„Við erum auðvitað með lægra
þjónustuþrep en aðrar blómabúðir
og því lítum við alls ekki svo á að við
séum að taka viðskipti frá lúxus-
blómaverslunum, þær verða alltaf til
enda þjóna þær öðrum tilgangi. Við
sáum smugu á markaðnum og lítum
hreinlega á okkur sem viðbót inn í
flóruna, og teljum að Íslendingar
muni bara kaupa meira af blómum
með tilkomu svona lágvöruverðs-
verslunar, lægra verð jafngildir
meira magni,“ segir Jóhann en
blómakaup Íslendinga eru í dag að-
eins um þriðjungur þess sem þekkist
á Norðurlöndum.
„Við erum auðvitað að taka tölu-
verða áhættu með þessum rekstri
þar sem þetta hefur ekki verið gert
áður hér á landi og engin reynsla
komin á formið. Þetta hefur samt far-
ið mjög vel af stað og við vonumst til
að geta í fyllingu tímans opnað fleiri
verslanir á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Þorvaldur og bætir við að auð-
vitað sé það neytandinn sem ráði
ferðinni þar sem samstaða ræktenda
og neytenda sé grundvöllur lágvöru-
verslunar. „Við stefnum ótrauðir
áfram og ætlum alla leið!“
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Þeir Jóhann Sigurðsson og Þorvaldur Snorrason blómabændur segja landbúnaðargreinina standa illa og að
breyta þurfi söluformi blóma. Hagræðing í ræktun og fækkun milliliða skili miklu.
Milliliðalaus
blómaviðskipti
40 til 50%
lægra vöruverð
til neytenda
ANNA Eðvaldsdóttir, ljósmóð-
ir og hjúkrunarfræðingur, hef-
ur opnað ráðgjafarsímalínu
sem veitir ráðgjöf um meðferð
ungbarna. Ráðgjöfin aðstoðar
foreldra við að finna lausn
vandamála og bendir á hvert
skal leita ef barnið verður
veikt. Einnig er veitt ráðgjöf
um hvaða kostir eru í boði á
meðgöngu, í fæðingu og sæng-
urlegu og leitað að lausn við
vandamálum sem upp geta
komið.
Einnig er veitt ráðgjöf varð-
andi getnaðarvarnir. Ráðgjöfin
er með fasta símatíma milli 9.30
og 11.30 alla virka daga auk
þess að svara á öðrum tíma
þegar tök eru á. Hringt er í
símatorg og kostar mínútan 99
kr. Lesið er inn á símsvara á
hverjum degi til að upplýsa
nánar hvenær opið er, segir í
fréttatilkynningu.
Ráðgjöf um
meðferð
ungbarna