Morgunblaðið - 24.01.2002, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 27
Síðustu dagar útsölunnar
SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á
MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 12.00-18.00
LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00-16.00
Nú er tækifæri
til að gera góð
kaup
60% afsláttur
af öllum skóm
SHIMON Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, svaraði í gær spurningum
fulltrúa á þingi Evrópuráðsins í
Strassborg. Viðstödd samkundu
þessa var Lára Margrét Ragnars-
dóttir, formaður íslensku sendi-
nefndarinnar.
Lára Margrét sagði í samtali við
Morgunblaðið að þingfulltrúum
hefði verið efst í huga sá vítahringur
blóðhefnda og hryðjuverka sem nú
einkenndi ástandið í Ísrael og á sjálf-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
„Mér þótti afstaða Peres ekki hafa
tekið breytingum frá því sem áður
var. Hann var sérstaklega spurður
um aðgerðir Ísraelshers á undan-
liðnum dögum. Sagði hann að þar
væri um viðbrögð að ræða við
hryðjuverkum og Ísraelar gætu ekki
brugðist við með öðrum hætti því
ekki væri um sýnilega eða einkenn-
isklædda óvini að ræða,“ sagði hún.
Að sögn Láru Margrétar var Per-
es jafnframt spurður hvort ekki væri
erfitt fyrir hann og flokk hans,
Verkamannaflokkinn, að sitja í nú-
verandi ríkisstjórn. Sagði Peres að
kjósendur hefðu ekki veitt flokknum
umboð til forustu í síðustu þingkosn-
ingum og því hefðu menn þurft að
meta stöðu sína. Niðurstaðan hefði
orðið sú að flokknum bæri að leitast
við að hafa jákvæð áhrif á þróun
mála í Ísrael og því hefði verið afráð-
ið að ganga til samstarfs við Ariel
Sharon forsætisráðherra.
Tilbúnir til
friðarumleitana
„Peres lýsti því yfir að Ísraelar
væru tilbúnir til að freista þess að
hefja á ný friðarumleitanir,“ sagði
Lára Margrét. „Hann bætti því hins
vegar við að til þess að það reyndist
gerlegt þyrfti Yasser Arafat [forseti
sjálfstjórnar Palestínumanna] að
treysta stöðu sína sem leiðtogi. Ara-
fat yrði að stöðva hryðjuverkin og
öðlast trúverðugleika að nýju. Tím-
inn væri naumur.“
Lára Margrét kvaðst aðspurð ekki
skynja það svo að Ísraelar mættu
vaxandi andúð á vettvangi Evrópu-
ráðsins sökum framgöngu sinnar
gagnvart Palestínumönnum. Peres
hefði verið vel tekið. „Hér sem ann-
ars staðar er fólk einfaldlega slegið
sökum þeirra skelfilegu atburða sem
nú ríða yfir nánast á degi hverjum í
Ísrael og á sjálfstjórnarsvæðunum.“
Shimon Peres svarar spurningum þings Evrópuráðsins
Yasser Arafat þarf
að treysta tök sín
Lýsti Ísraela tilbúna til friðarumleitana, að sögn
formanns Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins
AP
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra Ísraels, á fundinum í gær.
KÓLUMBÍSK nunna hefur verið
dæmd í 14 ára fangelsi fyrir morðið
á reglusystur sinni í klaustri í höf-
uðborginni Bogota. Málið þykir af-
ar óvenjulegt og hefur vakið mikla
athygli í Kólumbíu, að því er fram
kemur á fréttavef BBC.
Lík nunnunnar Luz Amparo
Granada fannst í vegarkanti fyrir
utan Bogota í nóvember 1999. Líkið
var svo illa útleikið að það tók lög-
regluna fimm mánuði að bera
kennsl á það; skotsár voru á höfð-
inu, fæturnir höfðu verið höggnir
af og búkurinn var brunninn.
Granada tilheyrði reglu sem rek-
ur klaustur í Candelaria, gömlu
hverfi í miðborg Bogota, þar sem
glæpamenn, fíkniefnaneytendur og
vændiskonur halda til. Granada
sinnti hjálparstarfi meðal undir-
málsfólks í hverfinu og varð þekkt
fyrir það, en auk þess var hún áber-
andi fyrir sitt rauða hár og bláu
augu, sem eru sjaldgæf sjón í Kól-
umbíu. Grunsemdir beindust því
fljótt að því að undirheimalýður í
Candelaria bæri ábyrgð á morðinu.
En saksóknurunum í málinu
fannst það ekki alveg koma heim og
saman. Töldu þeir hugsanlegt að
morðið hefði verið framið í klaustr-
inu sjálfu og var systir Leticia Lop-
ez, sem dvaldi í næsta herbergi við
Granada, hneppt í gæsluvarðhald
vegna gruns um aðild að málinu.
Lopez neitaði allri sök og var hún
látin laus eftir að hafa setið í gæslu-
varðhaldi í 17 mánuði, þar sem
nægar vísbendingar fundust ekki
fyrir sekt hennar.
Saksóknararnir vildu þó ekki
gefast upp og við nánari leit fund-
ust örlitlir blóðblettir milli við-
arborða á gólfi herbergis Granada,
en það hafði verið hreinsað ræki-
lega og málað upp á nýtt eftir
morðið. Lögreglan í Bogota bjó
ekki yfir nægilegri tækni til að
rannsaka málið nánar og var þá
leitað á náðir bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI. Tæknimenn frá
stofnuninni beittu háþróuðum
tæknibúnaði til að gegnumlýsa
gólfborðin og málninguna á veggj-
unum og komu þá stórar blóð-
slettur í ljós. Jafnframt mátti
greina slóð á gólfinu sem benti til
þess að lík Granada hefði verið
dregið úr herbergi hennar til bak-
dyra klaustursins.
Ekki er fyllilega ljóst hvaða
ástæða lá að baki morðinu, en vitað
er að spenna hafði ríkt milli nunn-
anna tveggja. Mun Lopez hafa mis-
líkað frjálslynt viðhorf Granada
gagnvart vændiskonunum og götu-
lýðnum sem hún umgekkst og veitti
aðstoð.
Nunna dæmd fyrir
morð á reglusystur