Morgunblaðið - 24.01.2002, Page 31

Morgunblaðið - 24.01.2002, Page 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 31 JÓN Nordal er eitt okkar mestu tónskálda. Hann er jafnframt eitt þeirra tónskálda sem mest hafa stuðlað að uppgangi íslenskrar kór- menningar í okkar samtíma, með því að semja – kannski ekki mörg – en afar góð – kórverk, stór sem smá. Það var því vel til fundið af Tón- skáldafélagi Íslands að heiðra Jón Nordal með sérstökum kórtónleik- um á Myrkum músíkdögum þar sem gat að heyra fimm ný og nýleg kór- verk Jóns, samin á árunum 1995– 2001. Kórinn sem söng, Hljómeyki, undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar er ekki ókunnugur kórverkum Jóns því að mörg þeirra hefur hann frum- flutt og sungið oftar en einu sinni og hafa þá Sumartónleikar í Skálholti oft verið vettvangur frumflutnings. Hvort sem það hefur verið tilviljun eða ekki var ljósið eins konar þema tónleikanna en verkin voru Lux mundi, eða Ljós heimsins, við texta úr Jóhannesarguðspjalli; þrjár þjóð- lagaútsetningar úr kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum í Dýra- firði; Ljósið sanna, við sálm sem eignaður er Bjarna Jónssyni Borg- firðingaskáldi; Trú mín er aðeins týra við hluta ljóðs Jóns Helgasonar, Á sjúkrahúsinu; og loks Requiem, sem var elst þeirra verka sem flutt voru á tónleikunum og Hljómeyki söng fyrir nokkrum árum inn á geisladisk sem Íslensk tónverkamið- stöð gaf út ásamt fleiri kórverkum Jóns. Kórtónlist Jóns Nordal ber með sér sterk höfundareinkenni tón- skáldsins. Þéttur hljómavefur er ein- kennandi; en þótt tónlistin sé þannig byggð upp af lóðréttum einingum hljómanna og hómófónískum stíl er hljómaferlið sjálft þó jafnframt sá drifkraftur sem kveikir lárétta, eða lagræna, framvindu tónlistarinnar. Ómstríður eru miklar og mikilvægur þáttur í samfelldu ferli hljómanna. Kórinn er eitt hljóðfæri, ein rödd, einn rómur og minnir jafnvel á forn- grískan leik, þar sem fjöldinn talar einum rómi. Þótt tónlist Jóns beri í sér svipmót nýrra tíma er þar samt að finna fornan streng, einhverja æð sem tengir núið við það gamla – eða kannski væri réttara að segja æð sem líkt og eldsúla í eldfjalli hleypir steinblóði löngu liðinna tíma aftur upp á yfirborðið og gerir það nýtt. Lux mundi, sem Jón Nordal samdi fyrir Dómkórinn árið 1996, er yfirmáta fallegt verk. Hægt og mjúklega leið hljómaferlið áfram með vaxandi styrk og afburðafalleg- um söng Hljómeykis. Þjóðlagaút- setningar við kvæði Ólafs frá Sönd- um voru skínandi perlur þar sem ytri lögin, hæg og stillt, römmuðu inn hraðara og gáskafyllra miðlagið rétt eins og í klassískri formskipan. Ljósið sanna, eða Gæskuríkasti græðari minn, var samið fyrir Hljóm- eyki til flutnings á Sumartónleikum í Skálholti síðasta sumar. Þarna var hljómaskipan mjög þétt og hverri rödd skipt niður í að minnsta kosti tvær. Þessi áttradda hljómur í þéttri og ómstríðri framvindu skapaði hrífandi spennu. Hljómeyki fór á kostum í flutn- ingi verksins og sýndi að enn er þessi gamalreyndi kammerkór í fremstu röð. Trú mín er aðeins týra er verk sem Hljómeyki frumflutti í Reyk- holtskirkju í júní 1999 í tilefni ald- arafmælis skáldsins, Jóns Helgasonar. Þar var enn reynt á þanþol hins hljómræna ferlis í krefj- andi dramatík. Mesta verkið á tónleikunum var Requiem, sem Hljómeyki frumflutti í Skálholti í júlí 1995. Þetta stórbrotna verk getur vart látið nokkurn mann ósnortinn, fegurð þess er slík. Það var mikið gæfu- spor fyrir Hljómeyki að fá Bernharð Wilkinson til liðs við sig á sínum tíma. Hljómeyki hefur sjaldan verið betra, raddirnar jafnari og hljómurinn heilsteyptari. Tæknileg atriði eins og hnífjafnar innkomur, jafnvel í veikasta veika söng, eru ekkert mál og niðurlag hendinga er jafnstílhreint og fag- mannlegt og innkomurnar; – engin aukahljóð; engin auka ess; enginn ójafn andardráttur – allt eins og best verður á kosið. Músíklega hefur Hljómeyki alltaf verið sterkt, enda skipað góðu og músíkölsku tónlist- arfólki sem margt, eða jafnvel flest, á að baki mikla menntun og reynslu í tónlist. Undir stjórn Bernharðs hef- ur tekist að skerpa allt það besta í fari Hljómeykis. Það eina sem verður að finna að er það að textar verkanna skyldu ekki fylgja í efnisskrá. Það er ljóður sem hefði átt að vera auðvelt að leysa. Tónleikarnir voru þó sérstaklega góðir og fallegir og nautn þeim sem hafa yndi af góðri kórtónlist og fal- legum söng. Bergþóra Jónsdóttir Ljósið í myrkri daganna Jón Nordal TÓNLIST Hjallakirkja Hljómeyki undir stjórn Bernharðs Wilkin- sonar flutti kórverk eftir Jón Nordal. KÓRTÓNLEIKAR DAS Blueshorn, þýsk þýðing pró- fessorsins Gert Kreutzer á Trega- horni Gyrðis Elíassonar, fékk á dög- unum lofsamlega dóma í Sueddeutsche Zeitung. Bókina myndskreytir Bernd Koberling en nú stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi sýning á verkum hans. Í umfjöllun blaðsins segir m.a. „Gyrðir Elíasson er töframagnaður impressionisti; sagan sem hann set- ur við upphaf hins hugvitsamlega samansetta bindis er ófeimin við að segja frá „veiðum“ sem tengjst tröll- unum.: „Í Haustmyrkrinu...fá þær ljós sitt“. Stundum verður maður að brynja sig gagnvart ævintýralegu samhengi og melankólískum hug- leiðingum (eiginlega: tilætlunar- semi). En fljótlega grípur maður bókina aftur. Einhvern tíma kemur aftur sumarsaga, með hálfbrenndri bók, sögunni „Pan“ eftir Knut Hamsun; og önnur bókasafnssaga um „Gluggakistubókasafn“: leikrit Tsjekovs, smásögur Sherwoods Anderson, Dægradvöl Gröndals.“ Tregahorn fær góða dóma í Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.