Morgunblaðið - 24.01.2002, Qupperneq 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 51
LANDSBANKI Íslands hefur fært
Sveitarfélaginu Árborg húsgögn
að gjöf til að nota í grunnskól-
unum og í félagsmiðstöðvum. Það
sem um ræðir eru ýmis notuð hús-
gögn, m.a. skrifborð, stólar, sófa-
sett og sófaborð.
Þetta gerði bankinn í tilefni
þess að tuttugu ár eru liðin frá
því bankaafgreiðslan við
Tryggvatorg var opnuð á Selfossi.
Fyrstu ellefu árin var bankinn
rekinn undir merki Samvinnu-
bankans en frá árinu 1990 sem
Landsbanki Íslands. Fyrsti útibús-
stjóri var Jón Ólafsson en alls
hafa fimm manns gegnt þeirri
stöðu. Núverandi afgreiðslustjóri
er Margrét Ingþórsdóttir.
Í júlí árið 2000 var stigið skref
til bættrar þjónustu við við-
skiptavini þegar opnað var inn í
Vöruhús KÁ og afgreiðslutími
lengdur, en bankinn er opinn alla
daga frá kl. 9.15–18.30. Hefur
þessi þjónusta mælst vel fyrir hjá
viðskiptavinum enda býður útibú-
ið alla almenna bankaþjónustu.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Fulltrúar Landsbankans og skólanna í Árborg.
Húsgagnagjöf
til skólanna í Árborg
Selfossi. Morgunblaðið.
Yfirlýsing frá
Textavarpi RÚV
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Ágústi
Tómassyni, forstöðumanni Texta-
varps Sjónvarpsins, vegna frétta
Morgunblaðsins af útafakstri á
Öxnadalsheiði:
„Fréttir um að Öxnadalsheiði yrði
sandborin fyrir hádegi laugardaginn
19. janúar síðastliðinn eru ekki
komnar af upplýsingasíðum Vega-
gerðarinnar í Textavarpi Sjónvarps-
ins eins og haft er eftir Sigríði Ingv-
arsdóttur alþingismanni í
Morgunblaðinu í dag og í gær. Upp-
lýsingarnar um sandburðinn eru af
fréttasíðum Textavarpsins og þar
segir reyndar EKKERT um það hve-
nær sandbera ætti. Upplýsingar og
fréttir um færð og veður á vegum
landsins eru birtar með tvennum
hætti á síðum Textavarpsins: Á síð-
um 471 til 489 eru staðlaðar upplýs-
ingar sem berast beint frá Vegagerð-
inni, annars vegar frá
vegaeftirlitsmönnum og hins vegar
frá sjálfvirkum veðurathugunar-
stöðvum og umferðarteljurum.
Starfsfólk Textavarpsins kemur þar
hvergi nærri. Á þessum síðum er
hálka flokkuð í þrjá flokka; hálku-
bletti, hálku og flughálku. Vegagerð-
in segir ALDREI neitt á þessum síð-
um um sandburð. Sjá nánar um
skilgreiningar sem Vegagerðin notar
á færðarsíðunum á síðu 490.
Á fréttasíðum Textavarpsins eru
sagðar fréttir af færð og veðri þegar
slíkt þykir fréttnæmt og er þar byggt
á fréttaöflun fréttastofa Útvarpsins
og Sjónvarpsins. Umræddan laugar-
dagsmorgun var birt frétt á síðu 104
um að ekkert ferðaveður væri á Vest-
fjörðum og að lögreglan á Akureyri
varaði við sérlega mikilli hálku á veg-
um út úr bænum. Þar sagði einnig
orðrétt: „Öxnadalur og Öxnadals-
heiði eru sérlega hálar. Vegagerðin
mun sandbera í dag.“ Upplýsingarn-
ar um sandburðinn fengust frá lög-
reglunni á Akureyri. Ég vek athygli á
því að þarna segir ekkert um nánari
tímasetningu á sandburðinum.
Textavarpið, fréttastofur Ríkisút-
varpsins og Vegagerðin leggja metn-
að sinn í það að flytja nákvæmar og
réttar fréttir og upplýsingar af færð
og veðri á vegum landsins. Þessar
upplýsingar eru þó allar birtar í
trausti þess að ökumenn hagi akstri
eftir aðstæðum.“
Námskeið
um lesröskun
og silfur-
smíði
SILFURSMÍÐI – íslenska víravirk-
ið, byrjenda- og framhaldsnámskeið
í silfursmíði verður haldið í Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla. Byrj-
endanámskeið hefst föstudaginn 25.
janúar kl. 17.30–22 og laugardaginn
26. janúar kl. 9–12. Framhaldsnám-
skeiðið er laugardaginn 26. janúar
kl. 13–17 og sunnudag kl. 9–12.
Kennarar eru Davíð Jóhannesson
og Karl Davíðsson, gullsmiðir á Eg-
ilsstöðum, sem ferðast hafa um allt
land og á Íslendingaslóðir í Vestur-
heimi til að kenna fólki að smíða
gripi úr víravirki að íslenskum sið.
Lesröskun/dyslexía
Tíu stunda námskeið um lesrösk-
un verður haldið í Fjölbrautaskólan-
um við Ármúla laugardaginn 26. jan-
úar kl. 9–17. Skólinn hefur sérstakan
áfanga sem ætlaður er nemendum
með lesröskun auk þess sem þessir
nemendur hafa sérstakan umsjónar-
kennara.
Áfanginn heitir NAM 193 og verð-
ur kynntur á námskeiðinu og sagt
frá námsgögnum, kennslutækjum og
kennslufræði sem opna leiðir fyrir
nemendur með lesröskun. Fjallað er
um viðhorf nemenda og kennara til
þessarar röskunar og efnt til um-
ræðna meðal þátttakenda um stöðu
þeirra í framhaldsskólum landsins.
Námskeiðið er ætlað framhalds-
skólakennurum. Kennarar eru Elín
Vilhelmsdóttir, Sveinbjörg Svein-
björnsdóttir og Una Steinþórsdóttir,
kennarar við FÁ, og Rannveig Lund
hjá Lestrarmiðstöð KHÍ.
Skráning á námskeiðin fer fram
hjá Framvegis – miðstöð um sí-
menntun í Reykjavík kl. 10–15 nema
föstudaga og á vefnum www.fa.is/
framvegis.
Fræðslufundur
hjá Grikklands-
vinafélaginu
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas heldur fræðslufund í Korn-
hlöðunni við Bankastræti, laugar-
daginn 26. janúar kl. 14.30. Erindi
heldur Clarence E. Glad og nefnist
það Clemens Alexandrinus – Upp-
haf kristinnar trúarheimspeki.
Clarence E. Glad, Ph.D., lauk
cand.theol. prófi frá guðfræðideild
HÍ 1983, BA-prófi í heimspeki og
grísku frá HÍ sama ár og dokt-
orsprófi í Nýja testamentisfræðum
og sögu frumkristni frá Brown-
háskóla árið 1992. Hann hefur
stundað rannsóknir styrktar af
Rannís árin 1991–2001 og verið
stundakennari við HÍ 1993–1999,
Fulbright-styrkþegi við Brown-há-
skóla árið 1995–1996, lektor við
Kaupmannahafnarháskóla 1997–
1998 og rannsóknarstyrkþegi Al-
exander S. Onassis-stofnunarinnar
í Aþenu árið 2000. Hann er nú
sjálfstætt starfandi fræðimaður í
ReykjavíkurAkademíunni, segir í
fréttatilkynningu.
Fjórar málstof-
ur um sveitar-
stjórnarmál
Í TILEFNI af sveitarstjórnarkosn-
ingunum í vor verða málstofur á veg-
um stjórnmálafræðiskorar Háskóla
Íslands tileinkaðar sveitarstjórnar-
málum. Málstofurnar verða haldnar
í hádeginu annan fimmtudag hvers
mánaðar í Odda, stofu 201 frá kl.
12.05-13:
24. janúar. Lífsgæði og samkeppn-
ishæfni í borg framtíðarinnar. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri.
14. febrúar. Félagsauður íslenskra
sveitarfélaga: Hversu rík eru þau?
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands.
14. mars. Ánægðir íbúar – hver er
lykillinn? Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ.
11. apríl. Sveitarstjórnarkosning-
ar 2002. Ólafur Þ. Harðarson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands.
Fyrirspurnir að erindum loknum.
Allir velkomnir, segir í frétt frá
stjórnmálafræðiskor Háskóla Ís-
lands.
Rannsóknar-
stofnun í
hjúkrunarfræði
MÁLSTOFA dr. Guðrúnar Krist-
jánsdóttur og Helgu Bragadóttur
verður 25. febrúar kl. 12.15–13 í
stofu 6 í Eirbergi.
Málstofa Helgu Jónsdóttur verður
28. janúar kl. 12.15–13 í stofu 6 í Eir-
bergi og nefnist „Sérhæfð hjúkrun-
armeðferð langveikra“, segir í
fréttatilkynningu.
Morgun-
verðarfundur
Reykjavíkur-
borgar
MORGUNVERÐARFUNDUR
Reykjavíkurborgar í samvinnu við
Borgarfræðasetur um skipulag og
íbúalýðræði og samráð við almenn-
ing í skipulagsmálum verður haldinn
á Grand Hótel föstudaginn 25. jan-
úar kl. 9-10.30.
Erindi halda: Jonathan Davis og
Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Að
loknum erindum verða pallborðsum-
ræður þar sem framsögumenn svara
fyrirspurnum. Fundarstjóri er Jón
Björnsson.
Sólarkaffi
Ísfirðinga-
félagsins
SÓLARKAFFI Ísfirðingafélagsins í
Reykjavík verður haldið í 57. sinn
föstudaginn 25. janúar í Súlnasal
Hótels Sögu. Ísfirðingar fagna end-
urkomu sólar með kaffi og skemmt-
un.
Formaður félagsins, Ólafur
Hannibalsson, setur skemmtunina.
Veislustjóri verður Önundur Jóns-
son yfirlögregluþjónn á Ísafirði,
ræðumaður kvöldsins er Magnús
Reynir Guðmundsson. Geir Ólafsson
flytur nokkur lög og Halli og Laddi
skemmta. Að lokum mun nýja, ís-
firska „súperbandið“ Pönnukökur
með rjóma leika fyrir dansi, hljóm-
sveitina skipa: Rúnar Vilbergsson,
Rúnar Þór Pétursson, Örn Jónsson,
Kolbrún Sveinbjörnsdóttir og Þórar-
inn Gíslason.
Kaupa má miða og taka frá borð á
fimmtudag og föstudag hjá Guðfinni
R. Kjartanssyni í síma en síðan
verða miðar seldir við innganginn,
segir í fréttatilkynningu.
Málfræði-
ráðstefna
RASK-ráðstefna Íslenska málfræði-
félagsins verður haldin í fundarsal
Þjóðarbókhlöðunnar laugardaginn
26. janúar kl. 10. Fundarstjórar:
Guðrún Þórhallsdóttir, Höskuldur
Þráinsson.
Erindi á ráðstefnunni halda: Ei-
ríkur Rögnvaldsson, Auður Þórunn
Rögnvaldsdóttir, Kristín Bjarna-
dóttir, Sigrún Helgadóttir, Margrét
Jónsdóttir, Jógvan í Lon Jakobsen,
Herdís Þ. Sigurðardóttir, Jóhannes
Gísli Jónsson, Haraldur Bernharðs-
son, Guðrún Kvaran og Stefán
Karlsson.
Veitingar verða í boði Íslenska
málfræðifélagsins, segir í fréttatil-
kynningu.
Vínsýningin Vín
og drykkir
í Perlunni
SÝNINGIN Vín og Drykkir 2002
verður haldin í Perlunni dagana
27. og 28. janúar nk. Sýningin
verður opin sunnudaginn 27. jan-
úar frá kl 14-18 og mánudaginn 28.
janúar frá kl. 16-20.
Íslandsmót barþjóna sem fer
fram á sunnudeginum og hefst kl.
15. Keppt verður í blöndun kok-
teila.. Íslandsmeistari verður
krýndur í kvöldverðarhófi eftir
keppnina. Sigurvegarinn keppir
fyrir Íslands hönd á heimsmeist-
aramóti barþjóna sem fram fer í
Blend í Slóveníu næstkomandi
október.
Sýnendur eru frá eftirtöldum
fyrirtækjum: Ölgerðin Egil Skalla-
grímsson, Austurbakki, Karl K.
Karlsson, Globus, Allied Domecq,
Lind, Rolf Johansen & Co, Elgur
hf., Rafkóp-Samvirki og gestir frá
hinum ýmsu víngerðarhúsum
munu kynna vörur þeirra.
Námskeið gegn
reykingum
HEILSUSTOFNUN NLFÍ stendur
fyrir námskeiðum þar sem boðið er
upp á vikudvöl til að hætta að reykja
og takast á við reykleysið. Næsta
námskeið verður haldið 3. til 10.
febrúar.
Þar er m.a. boðið upp á fyrirlestra,
umræður, hreyfingu, svo sem göngu-
ferðir, vatnsleikfimi og línudans.
Auk þessa er áhersla lögð á slökun
og hvíld. Mataræðið er líka tekið fyr-
ir.
Námskeiðin annast hjúkrunar-
fræðingar, íþróttakennarar, sjúkra-
þjálfarar, sjúkraliðar, næringar-
fræðingur og læknar. Þátttakendum
gefst svo kostur á endurkomu og
ráðgjöf að loknu námskeiði. Skrán-
ing er hafin. Ekki þarf beiðni frá
lækni á þessi námskeið, segir í
fréttatilkynningu.
Hveragerði