Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 2
Handknattleikslandsliðið mætir Grikkjum/C1 „Hef fengið stuðning,“ segir Guðjón Þórðarson/C1 4 SÍÐUR8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is  Punt um páska/B1  Mæðgin með bíó í blóðinu/B2  Hárgreiðsla – Eins og ójöfn línurit/B4  Af mannavöldum/B6  Auðlesið efni/B8 Sérblöð í dag FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar tölur um upplag Morg- unblaðsins VIÐ skoðun á upplagi Morgun- blaðsins síðari helming liðins árs, júlí til desember 2001, í samræmi við reglur Upplags- eftirlits VÍ, var staðfest að meðaltalssala blaðsins á dag var 54.687 eintök. Sama tímabil árið 2000 var meðaltalssalan 55.439 eintök á dag. Upplagseftirlit Verslunar- ráðsins annast einnig eftirlit og staðfestingu upplags prent- miðla fyrir útgefendur, sem óska eftir því og gangast undir eftirlitsskilmála. Trúnaðar- maður eftirlitsins er löggiltur endurskoðandi. Morgunblaðið er eina dag- blaðið sem nýtir sér þessa þjón- ustu nú. Hélt hnífi að hálsi af- greiðslustúlku TVEIR menn frömdu vopnað rán í söluturninum Vídeóspól- unni við Holtsgötu í gærkvöldi og var talið að þeir hafi komist á brott með um 50.000 krónur í reiðufé. Annar þeirra hélt hnífi að hálsi afgreiðslustúlkunnar á meðan hinn lét greipar sópa. Mennirnir voru með e.k. lambhúshettur á höfði þegar þeir ruddust inn í söluturninn í gærkvöldi. Afgreiðslustúlkan kallaði á aðstoð með því að ýta á neyðarhnapp sem tengdur er stjórnstöð Securitas og barst tilkynning um ránið klukkan 22.08. Mikið lið lögreglu fór á staðinn og stóð leit að ræningj- unum enn yfir þegar Morgun- blaðið fór í prentun. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. til að greiða konu 100.000 krónur í miska- bætur vegna ummæla sem hann lét falla um hana í fjölmiðlum árið 1999. Jón Steinar hafði varið föður hennar sem hún sakaði um kynferðisbrot. Hæstiréttur vísaði á hinn bóginn frá dómi kröfu um að viðurkennt yrði að Jón Steinar hefði brotið góða lög- mannshætti þar sem krafan þótti í senn of óljós og óákveðin til að lagt yrði mat á hana. Faðir konunnar var sakfelldur í héraði en sýknaður í Hæstarétti af meirihluta réttarins. Í kjölfar sýknu- dómsins var mikið fjallað um málið í fjölmiðlum og tók Jón Steinar virkan þátt í þeirri umræðu. Í dómnum segir að meðal þess sem þurfi að taka tillit til við mat á um- mælum Jóns Steinars sé að í um- ræðunni hafi verið vegið harkalega að föður konunnar sem skömmu áður hafi verið sýknaður af alvarlegri ákæru. Hæstiréttur komst á hinn bóginn að þeirri niðurstöðu að Jón Steinar hafi bakað sér bótaábyrgð vegna ummæla sem hefðu falið í sér ólögmæta mein- gerð gagnvart konunni. Ummælin sem hann var dæmdur fyrir lét hann falla í útvarpserindi á Bylgjunni og í viðtali við dagblaðið Dag. Að mati dómsins hafi hann viðhaft orð í útvarp- inu sem yrðu ekki skilin öðruvísi en svo að konan hefði borið föður sinn röngum sakargiftum. Bent er á að þrátt fyrir sýknudóm Hæstaréttar hafi því ekki verið slegið föstu að fram- burður hennar væri rangur. Í dag- blaðsviðtalinu var m.a. haft eftir Jóni Steinari að konan hefði orðið uppvís að því að bera kennara sinn röngum sök- um um kynferðislega áreitni en haft var eftir móður stúlkunnar að henni hafi verið vísað úr skólanum í eina viku af þeim sökum. Ummæli Jóns Steinars varðandi þetta atriði hefðu falið í sér fullyrðingar umfram það sem gögn málsins gáfu tilefni til. Auk bótanna þarf Jón Steinar að greiða 300.000 krónur í málskostnað. Áfall fyrir tjáningarfrelsið Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. sagði í samtali við Morgunblaðið að dómur Hæstaréttar væri að sínu mati heil- mikið áfall fyrir tjáningarfrelsið í land- inu og ylli sér vonbrigðum. Hæstirétt- ur hafi snúið út úr orðum sínum um að hann hafi fullyrt að stúlkan hefði haft uppi rangar sakargiftir á hendur föður sínum, það hafi hann aldrei sagt. „Þarna voru tveir aðilar sem báru mis- munandi um sömu hlutina og auðvitað sjá það allir að annar segir satt og hinn ekki,“ segir Jón Steinar. „Hins vegar fjallaði ég um það hvaða ástæður gætu legið til þess að stúlka gæti borið fram rangar sakir og fyrir það er ég dæmd- ur.“ Varðandi ásakanir stúlkunnar á hendur kennara sínum , hafi hann hlíft henni við því að greina efnislega frá ásökunum því hann hafi talið að það gæti gengið of nærri stúlkunni en nú hafi Hæstiréttur ákveðið að ganga miklu lengra og segja efnislega frá málinu. Fordæmisgildi Sif Konráðsdóttir hrl., lögmaður konunnar, segir að forsendur dóms- ins sýni fram á að þrátt fyrir að kröfu um að viðurkennt yrði að Jón Steinar hefði brotið gegn góðum lögmanns- háttum hafi verið vísað frá dómi, sýni forsendur dómsins fram á að Jón Steinar hafi brotið af sér sem lögmað- ur með ummælum sínum um að kon- an hafi borið rangar sakargiftir á föð- ur sinn. Dómur Hæstaréttar hljóti að hafa fordæmisgildi. Hann sé jafn- framt áfellisdómur yfir úrskurðar- nefnd lögmanna sem komst að þeirri niðurstöðu að Jón Steinar hefði ekki brotið gegn konunni. Ummæli lögmanns fólu í sér ólögmæta meingerð BYRJAÐ er að leggja gervigras í fjölnota íþróttahúsið í Smáranum í Kópavogi og á verkinu að ljúka í byrjun apríl, en að lokinni mat- vælasýningu í húsinu í lok apríl verður það vígt formlega með viðhafnarhátíð. Kópavogsbær stendur að bygg- ingunni. Framkvæmdir hafa gengið samkvæmt áætlun, en hús- ið er um 9.200 fermetrar að stærð og er áætlaður kostnaður hátt í fimm hundruð milljónir króna. Jón Júlíusson, íþrótta- fulltrúi í Kópavogi, segir að gervigrasið kosti um 30 milljónir króna eða álíka mikið og það kostaði á völlinn fyrir rúmum áratug. Um sé að ræða þriðju kynslóð gervigrass sem sé mun líkari venjulegu grasi en fyrri tegundir. Áður hafi verið gúmmí- motta undir grasmottunni en nú sé gúmmí komið upp í grasið, sem sé lengra en áður eða fimm cm í stað þriggja cm áður. Morgunblaðið/Kristinn Gervigras lagt í fjölnota íþróttahúsið í Smáranum SNARPAR umræður voru um mál- efni stjórnarformanns Strætó bs. í ut- andagskrárumræðu á fundi borgar- stjórnar í gær. Gagnrýndi Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi D- listans, að ekki hafi verið sagt frá samningi um sérfræðiaðstoð frá Skúla Bjarnasyni hrl., stjórnarfor- manni Strætó bs., í undirbúningi stofnunar byggðasamlagsins. Vísaði borgarstjóri gagnrýni hans á bug og sagði fjarri að um einhvers konar leynisamning hefði verið að ræða. Guðlaugur sagði ekkert benda til þess að sérfræðiaðstoðin sem keypt var hafi ekki verið fyrir hendi hjá embættismönnum borgarinnar. Gagnrýndi hann að samningurinn hafi verið undirritaður aðeins fjórum dögum fyrir fyrsta stjórnarfund stjórnarinnar og sagði ljóst að halda hafi átt þessum samningi leyndum fyrir borgarfulltrúum og stjórn Strætó bs. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að borgarráð hefði heimilað að keypt yrði að sérfræði- ráðgjöf í tengslum við undirbúning stofnunar byggðasamlagsins. Sagði hún að ákveðið hafi verið að auglýsa eftir nýjum framkvæmda- stjóra fyrir byggðasamlagið en bæj- arstjórarnir á höfuðborgarsvæðinu hefðu ákveðið að í millitíðinni yrði gengið til samninga við Skúla til að koma fyrirtækinu af stað. Eftir að Guðlaugur hafði ítrekað spurningu sína um hvort fleiri menn tengdir Reykjavíkurlistanum sætu í sambærilegum störfum innti borgar- stjóri hann eftir hvort hann teldi að um einhverja tiltekna einstaklinga væri að ræða. Hún sagði sér ekki vera kunnugt um slíka samninga en hins vegar væri sjálfsagt að fletta því upp í bókhaldi stofnana borgarinnar til að svara fyrirspurninni. Borgarstjóri sagði málflutning Guðlaugs aumkunarverðan og hann bæri keim örvæntingar. „Allt í einu er reynt að hlaupa upp til handa og fóta til þess að búa til einhverja samsvör- un í borgarstjórn Reykjavíkur við Landssímamálið.“ Hún sagði fjarri að um einhvern leynisamning væri að ræða enda hefðu allir bæjarstjórarnir á höfuðborgarsvæðinu og fleiri aðilar vitað af honum. Morgunblaðið innti Ingibjörgu Sól- rúnu að loknum fundi eftir því hvers vegna samningurinn hefði ekki verið kynntur stjórn Strætó bs. strax í upp- hafi. „Okkur datt það bara ekki í hug,“ sagði hún. „Við ákváðum að fá Skúla til þessa verks og gera hann að starfandi stjórnarformanni, fólum þessum tveimur embættismönnum að gera þennan samning og litum svo á að við hefðum umboð til að vinna þetta verk.“ Aðspurð hvers vegna ekki hafi ver- ið beðið með að gera samninginn þar til búið væri að skipa stjórnina sagði Ingibjörg að ekki hefði staðið til að skipa pólitískan stjórnarformann. „Skúli hefði ekki tekið verkið að sér upp á þau býti. Við urðum að ganga frá ráðningunni því annars hefði hann ekki setið í stjórnarformannsstóli þegar stjórnin kom saman.“ Utandagskrárumræða um málefni Strætó bs. í borgarstjórn í gær Hart deilt um samningsgerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.