Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 53
„FYLLIST þú gleði, er einhver ann-
ar verður farsæll?“ Með þessari
spurningu opnar hin 28 ára gamla Al-
anis Morissette nýjustu breiðskífu
sína, Under Rug Swept. Margir eru á
því að með þessari plötu hafi Mor-
issette náð að rétta feril sinn af á nýj-
an leik, farsældin blasi því aftur við
og aðdáendur hafi því ríka ástæðu til
að gleðjast.
Eftir að hafa slegið þvílíkt í gegn
árið 1995 með plötu sinni, Jagged
Little Pill, þótti Morissette nauðsyn-
legt að gíra sig niður á næstu plötu,
og gaf því út hina innhverfu, næsta
vísvitandi ósöluvænlegu plötu,
Supposed Former Infatuation Junk-
ie (’98). Ætti titillinn að vera nægileg
sönnun um þessar fyrirætlanir henn-
ar. En almenningur vildi ekki sjá
slíkar þreifingar og sökk platan, í
markaðslegu sem listrænu tilliti.
Platan nýja hefur aftur á móti víð-
ast hvar fengið góða dóma, m.a. á
þessum síðum þar sem staðhæft er
að: „Under Rug Swept verður örugg-
lega ekki sópað undir mottuna eins
og síðustu plötu.“
Fjörutíu milljónir
Alanis Morissette fæddist árið
1974 í Ottawa í Kanada og hóf ung
þátttöku í þarlendum afþreyingar-
iðnaði. Tíu ára var hún einn af stjórn-
endum þáttarins You Can’t Do That
on Television og árið 1985 kom út
fyrsta plata hennar, smáskífan „Fate
Stay with Me“, sem hún tók upp fyrir
fé það sem henni hafði áskotnast fyr-
ir dagskrárgerðarvinnuna. Þegar
hún var fjórtán ára náði hún svo
samningum við MCA/Canada og
fyrsta breiðskífan, Alanis, kom út ár-
ið 1991, dansvæn poppplata, blönduð
heilnæmum skammti af ballöðum.
Gerði hún það bara nokkuð gott,
seldist t.a.m. í yfir 100.000 eintökum í
heimalandinu. Eins og sjá má á Al-
anis sér því tónlistarlega fortíð, líkt
og samlandi hennar Celine Dion, sem
menn eru ekki að flagga neitt nema
tilneyddir. Ári síðar, eða 1992, kom
út samskonar plata, Now Is the
Time. Líkt og fyrirrennarinn gerði
hún engar gloríur utan landamær-
anna.
Alanis fluttist þá til Los Angeles
hvar hún kynntist lagasmiðnum Glen
Ballard (sem m.a. samdi „Man in the
Mirror“ fyrir Michael Jackson).
Þetta var í ársbyrjun 1994, þegar Al-
anis stóð á tvítugu. Í sameiningu hóf-
ust þau handa við að smíða reiknilík-
anið sem gaf af sér Jagged Little Pill,
hinn eiginlega „frumburð“ Moriss-
ette. Á plötunni má heyra í reiðri,
ungri konu sem lætur síður en svo
traðka á sér og þegar þessari afstöðu
er blandað við haglegar og grípandi
rokk/popplagasmíðar, ótrúlega rödd
Alanis og brattar textasmíðar er út-
koman stórsigur. Platan seldist enda
í milljónum eintaka og gerði söng-
konuna í sviphendingu að stór-
stjörnu. Þess má þá geta að plötur
Morissette hafa í dag selst í yfir
fjörutíu milljónum eintaka.
Þrjátíu lög
Haustið 1998 kom áðurnefnd
Supposed Former Infatuation Junk-
ie út, hvar ruglað var óhóflega mikið í
formúlunni góðu og féll gripurinn
þess vegna í helst til grýttan jarðveg.
Árið eftir var þó bætt úr með ágætri
plötu, hinni órafmögnuðu Alanis
Unplugged.
Biðin eftir nýju plötunni er því bú-
inn að vera nokkuð löng og ströng
eða heil fjögur ár. Flestir sammælast
þó um að á henni hafi Alanis rétt úr
kútnum, og horfið aftur til fyrri af-
reka. Og það gerir hún ein og óstudd
en í þetta sinnið er Ballard gamli
fjarri góðu gamni.
Þess má að lokum geta að Alanis
var heldur en ekki í stuði er að plötu-
vinnunni kom og samdi heil þrjátíu
lög og af þeim tók hún upp tuttugu og
fimm. Vænta má útgáfu á þessu efni
síðar á árinu.
Alanis Morissette gefur út Under Rug Swept
Svo lengi
lærir sem
lifir
Þriðja „alvöru“ plata
Alanis Morissette kom
út í endaðan febrúar.
Arnar Eggert
Thoroddsen reifar af
tilefninu feril stúlk-
unnar, sem er nokkuð
langur, þótt hún sé
ung að árum.
arnart@mbl.is
Alanis í dag, hárprúð að vanda.
Fyrsta smáskífa Alanis, „Fate
Stay With Me“, frá árinu 1985.
Sýnd á klukkustunda fresti alla helgina
Toppmyndin í USA í dag. Stærsta opnun ársins í USA
Nýjasta sýnishornið af Star Wars EP2 sýnt á undan myndinni
Almennur
harmonikudansleikur
verður haldinn á Breiðinni, Akranesi,
laugardagskvöldið 23. mars frá kl. 22—02
Þú ert aðeins rúman hálftíma að aka frá Reykjavík til Akraness.
P.S. Á Breiðinni er stórt og gott dansgólf.
Miðaverð 1000 kr. Stjórn Duna.