Morgunblaðið - 22.03.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 22.03.2002, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ *   7     7    #     +   &#&       + "      %        "     "       -1*20: :0 8 & '  .@ 3 8 %#  *#    () %#  $@#!'  !() $ 1) %#   3 % !() %#   1  !() $ 7$!() $  () . . $ I. $ !(3 ( $@#! $ !!# %#  - '  $@#! $ !  %#  $ ( () &  * &"  = 1*20-J :0 3   6  +55        $  *   :%*        2  .22 / "     (  *7 *  ;  .9    !  % %& <  7 %  + &#&  '    + "        "       "     =00= =0 :0 ,    7           ='4       $               + ! %#  !@ %  $  #1) %#  .  %#  A@ *#  $   %F %#  $ ( () & ✝ Gunnar MagnúsTheodórsson fæddist í Reykjavík 17. júlí 1920. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 14. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Málfríður Jónsdóttir, f. 25.6. 1896, d. 13.3. 1959, og Theodór Magnússon bakara- meistari, f. 5.11. 1893, d. 7.4. 1972. Theodór og Málfríð- ur eignuðust átta börn: Sigurður og Þórdís Bergljót létust í bernsku, Ellert, f. 1919, d. 1940, og Sigurður Guðmundur, f. 1929, d. 1986. Eftir lifa: Lára, f. 1918, Haraldur, f. 1924, Pálmi, f. 1931, og Magnús Ingi, f. 1929, sem var fóstursonur þeirra. Fyrir átti Theodór soninn Kjartan, f. 1913, d. 1994. Gunnar kvæntist 6. janúar 1954 Jóhönnu Magnúsdóttur, fyrrv. fulltrúa á Skrifstofum ríkisspítalanna, f. 20.7. 1927. Foreldrar hennar voru Ásthildur Jónasdóttir, f. 1888, d. 1968, og Magnús Jóhannsson 1982. Jóhanna eignaðist tvö börn áður: a) Þórunni Ingólfsdóttur, f. 1947, börn hennar eru Stefán Þór Stefánsson, f. 1969, og Margrét Stefánsdóttir, f. 1973. b) Georg Heide, f. 1950, eiginkona hans er Hilda Gerd Birgisdóttir, f. 1956, og eiga þau Ragnhildi Sesselju, f. 1980. Georg Heide á einnig Nönnu Sigrúnu, f. 1967, og Gunnhildi Halldóru, f. 1973. Eftir almenna skólagöngu hélt Gunnar til Kaupmannahafnar þar sem hann var við nám í húsgagna- bólstrun 1938-1942. Eftir það hóf hann nám í innanhússarkitektúr og útskrifaðist frá Kunsthandverk- erskolen árið 1945. Hann starfaði hjá Húsameistara Reykjavíkur- borgar 1945-1954, rak sjálfstæða teiknistofu á árunum 1954 til 1971 og vann hjá Fasteignamati ríkisins 1969-1971. Hjá Skrifstofum ríkis- spítalanna starfaði hann frá árinu 1971 til ársins 1995. Gunnar stund- aði fimleika með Í.R. 1930-35, var í Sundfélaginu Ægi 1934-1938, var í Skátafélaginu Væringjum 1934- 1938 og í Skátafélagi Reykjavíkur 1945-1955. Hann var einn af stofn- endum Félags innanhússarkitekta og var formaður félagsins eitt kjör- tímabil. Hann var einnig meðlimur í Oddfellow-reglunni á Íslandi. Útför Gunnars fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. bóndi, f. 1887, d. 1981. Jóhanna var alin upp á Eskifirði hjá Sesselju Hinriksdóttur, f. 1897, d. 1978, og Georg Pálssyni, f. 1897, d. 1983. Gunnar og Jóhanna eignuðust tvo syni: 1) Gunnar Theodór, f. 1954, d. 1980, kvæntur Steinunni Friðgeirs- dóttur, synir þeirra eru, Friðgeir Örn f. 1975, og Gunnar Magnús, f. 1978. 2) Hinrik, f. 1960, kvænt- ur Guðrúnu Sigurðardóttur. Þau eiga Jóhönnu, f. 1984, og Gunnar Theodór, f. 1995, og áður eignaðist Guðrún Örn Skúlason, f. 1975, d. 1994, og Vigdísi Skúladóttur, f. 1978. Gunnar eignaðist tvær dæt- ur: a) Jette Dissing, f. 1945, maki Kjeld Dissing, f. 1944. Þau eiga þrjú börn, Mikkel, f. 1972, Mads, f. 1978, og Mariane, f. 1979. b) Unnur Müller-Bjarnason, f. 1952, maki Valdimar Bjarnason. Börn þeirra eru Ragnheiður Sara og Rakel Ýrr, f. 1976, og Róbert Kári, f. 1980, d. Hann Gunnar frændi er dáinn. Hann hefur gengið þau spor sem honum voru ætluð í þessu lífi. Gunnar var móðurbróðir minn og næstur móður minni í aldri í systkinahópn- um. Þau systkinin voru samrýnd og leiðir þeirra lágu þétt saman alla tíð. Gunnar hefur því verið hluti af minni tilveru frá barnæsku. Gunnar átti því láni að fagna að ná háum aldri og var hann lengst af við góða heilsu. Þau Nanna höfðu lag á því að njóta dags- ins og stundanna og gera eldri árin viðburðarík. Ég minnist frænda míns sem glaðværs manns, sem var glett- inn og oft stríðinn en umhyggjusam- ur og hjálplegur þegar á þurfti að halda. Ég veit að hann gat verið fast- ur fyrir, en sú hlið sneri aldrei að mér. Ég minnist frænda, sem oft leit inn, sendi okkur krökkunum kort og gjafir frá útlöndum, sem var sjaldgæf vara um miðja síðustu öld. Þegar við stofnuðum okkar heimili héldust tengslin og minnist ég sérstaklega heimsóknar á námsárum okkar Óla, en þá komu þau saman mamma og pabbi og Nanna og Gunnar og voru hjá okkur í nokkrar vikur. Við ferð- umst um alla Skandinavíu og var það ógleymanleg ferð. Ég vil fyrir hönd foreldra minna þakka Gunnari samfylgdina og allar ánægjustundirnar sem þau áttu sam- an. Gunnar var þeim stoð og stytta við húsbygginguna, teiknaði Lang- holtsveginn, en í því góða húsi bjuggu þau lengst af. Hin síðari ár hafa þau fjögur notið þess að eiga heilsu og þrek til að ferðast, stunda leikhús og rækta vináttu. Við systkinin og foreldrar okkar kveðjum Gunnar með söknuði og þökkum honum tryggð við okkur öll. Hugurinn leitar nú til Nönnu og fjöl- skyldunnar allrar með óskum um guðsblessun og styrk þeim til handa á erfiðum stundum. Málfríður D. Gunnarsdóttir. „Eitt sinn verða allir menn að deyja“ segir í ljóði Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar. Dauði Gunnars kom okkur á óvart, líklega vegna þess að hann hafði áður gengið í gegnum mikil veikindi, náð sér vel á strik aftur. Hann bar sig allt- af vel og kvartaði ekki. Lífslöngun Gunnars var mikil, en nú hefur Guði fundist tími hans kominn og hann vera búinn að ljúka sínu verki hér á jörðu. Ég var sex ára þegar ég kynntist Gunnari, en þá kvæntist hann móður minni. Við vorum þá tvö systkinin, ég og Deddi, og bjuggum öll á þessum tíma hjá fósturforeldrum mömmu. Ekki hefur verið auðvelt fyrir Gunnar að takast á við það verkefni sem hans beið. Gerðar voru miklar kröfur til hans, eðli aðstæðna sam- kvæmt, en prúðmennska hans var alltaf til staðar. Árin liðu, Gunnar Theodór og Hin- rik fæddust, farið var í útilegur, veiði- ferðir svo eitthvað sé nefnt. Segja má að ég hafi ekki alveg flutt inn á heimili þeirra mömmu fyrr en ég var komin á þrettánda ár, sem var viðkvæmur aldur. Þá var þetta orðin sex manna fjölskylda og í mörg horn að líta. Það má segja um Gunnar að hann hafi verið einn af þessum „þúsund þjala smiðum“. Allt lék í höndum hans og allt gerði hann af mikilli natni, útsjónarsemi og smekkvísi, hann hugsaði vel um umhverfi sitt, enda ber heimili þeirra mömmu vitni um það. Gunnar var ákaflega mikið snyrtimenni og fagurkeri var hann mikill. Þung voru sporin okkar þegar Gunnar Theodór lést í Þýsklandi árið 1980 og aðstæður leiddu til þess að hann var jarðsettur þar. Ég veit að Gunnar var aldrei sáttur við þá ráð- stöfun, en smátt og smátt lærðist honum að lifa með því. Margar voru ferðir hans og fjölskyldunnar til Bed- erkesa til þess að blessa leiðið og heiðra minningu Gunnars Theodórs. Í einni þeirra voru íslenskir steinar úr stuðlabergi settir á leiðið til merk- ingar með áletruninni: Trú, von og kærleikur, en þau þrjú orð voru hon- um ofarlega í huga. Gunnar var börnunum mínum tveimur góður afi og aldrei fundu þau annað en að hann væri þeim blóð- skyldur. Hann var ávallt reiðubúinn til þess að rétta mér hjálparhönd og sé ég hann fyrir mér þar sem hann situr og pússar silfrið mitt, festir hnapp á pelsinn minn, burstar skóna mína, setur áklæði á stólana mína og svo mætti lengi telja. Mér er sérstaklega minnisstætt hve hann var glaður þegar hann fékk tækifæri til þess að leiða mig upp að altarinu árið 1968 og hve hann gerði það með miklum glæsibrag. Hann studdi mig á sinn þögula hátt og fékk ég oft notið skilnings hans og stuðnings í lífsins ólgu sjó. Gunnar lagði mikla áherslu á að fara á hátíðarfund og árshátíð í Odd- fellow-stúkunni sinni aðeins 5 dögum áður en hann lést, þrátt fyrir lasleika sinn og höfðu þau mamma boðið mér með. Hann var glaður og stoltur það kvöld eftir að hann hafði tekið við við- urkenningu fyrir störf sín í þágu regl- unnar. Þá dönsuðum við síðasta vals- inn, síðasta valsinn, sem mér þykir svo undur vænt um og sem ég mun geyma í minningunni. Ég, Stefán Þór, Margrét, Þórunn Birna og Gabríel Þór kveðjum í dag góðan fósturföður, frábæran afa og langafa. Við eigum ljúfar minningar um hann, minningar sem við munum geyma í hjarta okkar. Elsku Gunnar minn, þakka þér fyrir allt sem þú hefur verið mér og mínum. Hvíl þú í friði. Þín Þórunn. GUNNAR M. THEODÓRSSON Enginn veit sína æv- ina fyrr en öll er, hvar, hvenær og hvernig dauðinn dúnkar upp á veit enginn og oftar en ekki kemur hann óvænt og er óþægileg- ur fyrir þá sem áfram lifa. Eðlilega. Þegar Gústaf (Toj Vala Juha) hringdi og tjáði mér að þú værir all- ur setti mig hljóða, þú hringdir nokkrum dögum áður og ætlaðir að líta fljótlega á nýja heimilið okkar Anas. Óréttlátt? Já, mér þykir þetta sannarlega hið argasta óréttlæti og get ekki að því gert, Valur, að hugsa: Hvers vegna „þú“ sem varst svo mikill eðalmaður, hvers manns hug- ljúfi sem gerðir allt fyrir alla? Það þarf ekki dauða þinn til að mér verði hugsað til allra þeirra stunda er við höfum átt saman. Nei, því frá því er ég fyrst hitti þig, sem er þokkalega langt síðan, hefi ég oft hugsað til þín, þú varst ávallt svo elskulegur. Mjög oft hafa minningamyndirnar komið í huga minn þar sem þú ert með Emblu mína, það var ekki lítil vináttan sem maður sá að ríkti mill- um ykkar. Góðvild þín og mann- gæska kom aldrei eins sterkt í ljós og þegar þú varst að dúllast með hana. Þú varst ekki bara barngóður, þú varst góður í gegn við allt og alla og ég spurði Gústaf: Hvernig ferð þú nú að, búinn að missa þína hægri þúsund þjala hönd? Já, við erum mörg sem nú horfum á eftir þér og finnum sem aldrei fyrr hve stórkost- legur þú varst. Dagfarsprúður mað- ur, stundum hávær á góðum stund- um en aldrei sá ég þig skipta skapi. VALUR ARNAR MAGNÚSSON ✝ Valur ArnarMagnússon fæddist í Reykjavík 21. janúar 1944. Hann lést laugar- daginn 9. mars síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Kópa- vogskirkju 18. mars. Ávallt sama blíðalogn- ið, fallega skakka bros- ið þitt, skemmtilegur talandinn, röddin og það var unun að heyra þig hlæja. Mikið gref- illi sakna ég þín og nú verður ekkert, aldrei, þetta sem við, ég og þú, töluðum um og það þykir mér hundfúlt! Ég er í rauninni öskrandi ill yfir dauða þínum, sjálfsagt vegna þess hvernig hann bar að, en huggun mín gegn harmi þessum er: Íslensk eyðimörk flöt, tómleg, ljót finnst mér meiri partur fólksins hér vera. Illa þrífst þar blómið sem á þann eina tilgang að vera til hamingjusamt og njóta þess að vera blóm, illgresið vill kæfa vindurinn fella en sólin vermir sólin elskar regnið vökvar heldur lífi í blóminu og blómið áttar sig á að það er tilgangur með veru þess hér og brátt gleðst það yfir tilveru sinni ljómar mót sólinni nýtur regnsins lífsins, það stendur upp úr breiðir úr sér fjölgar sér hefur gert sér grein fyrir tilgangi sínum brosir sofnar það koma önnur blóm og skreyta veg illgresis þessa lands. (B. Hrafnar.) Gústaf hringdi og bað mig fyrir kveðju, hann er miður sín og trúir ekki frekar en svo margir aðrir að þú sért farinn fyrir fullt og allt. Þær eru ófáar stundirnar sem við áttum í Árbænum hjá honum, öll glimrandi matarboðin og ávallt var kátína, engin rifrildi, ekkert vesen. Já, það er samstilltur hópur sem mætir þar, hópur sem einkennist af innilegri vináttu, laus við hræsni og rúmar ekkert svínarí og þar varst þú skær- asta stjarnan, ekki spurning, og verður áfram í hugum okkar. Valur, það er enginn eins og þú, missirinn er því meiri, tómarúmið víðara og sorgarskýið stærra og svartara, því dauði þinn var eins óréttlátur og frekast getur verið. Það er erfitt að kveðja þig, erfitt að horfast í augu við þessa hræðilegu staðreynd, erf- itt að vera ekki reið, um leið er það auðvelt að vera þakklát fyrir að hafa kynnst þér. Orðið „kærleikur“ mein- ing þess og merking eins og ég skil það, kom skýrt fram í fari þínu. Við sendum móður þinni, börnum, afabörnum, systkinum og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Blómin hvert á fætur öðru, fölna og falla í lífi hörðu, dauðinn spyr ekki’ um aldur né drauma og drottnar einvaldur. Sjáandi fólki er lífið unaður, látleysi ríkir, lítill er munaður á mælikvarða manns í dag, margfalt unir sínum hag. (B. Hrafnar.) Elsku Valur, hafðu alla mína þökk og barna minna fyrir allt, það er mikill missir að þér. Bryndís, Hafþór, Þorri, Embla.  Fleiri minningargreinar um Val Arn- ar Magnússon bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.