Morgunblaðið - 22.03.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 9
Klassískar dragtir
Sportlegar dragtir
Kjólar og ferðadress
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Snyrtistofan Guerlain,
Óðinsgötu 1, sími 5623220.
Tilboð
á litun, vaxi og
förðun til 4. apríl
Sími 553 3366
www.oo.is
Opið laug. 11-16 20 gerðir - 19 litir 15 gerðir - 9 litir7 gerðir - 11 litir TILBOÐ m. 20% afsl.
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Baðinnréttingar
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Tilboðsverð
Hreinlætistæki!
Sumarfatnaður
Fermingargjafir
Skartgripir
Snyrtivörur o.fl.
Alltaf útsala
Verslun Kays
Austurhraun 3, Gbæ/Hfj.
sími 555 2866
Lokað 28/3 — 2/4
Kays, Argos, Panduro
pöntunarlistar
Meira úrval,
lækkað verð
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt
úr gildi frávísunarúrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur í
máli nokkurra eigenda að
Kringlunni gegn Rekstrar-
félagi Kringlunnar og
Reykjavíkurborg vegna
tveggja rúllustiga sem fjar-
lægðir voru í Kringlunni árið
2001. Er þess krafist að stig-
arnir verði settir upp aftur.
Hefur Hæstiréttur með
dómi sínum lagt fyrir héraðs-
dómara að taka málið til efn-
ismeðferðar.
Í dóminum kemur m.a.
fram að varnaraðilinn
Reykjavíkurborg hafi ekki
hnekkt því að sóknaraðilar,
umræddar eigendur að
Kringlunnar, geti haft lög-
varða hagsmuni af því að fá
varnaraðilann skyldaðan til
að ljá atbeina sinn til að koma
fram breytingum á húsinu,
þ.e. að setja stigana upp aft-
ur.
Hvað snerti varnaraðilann
rekstrarfélag Kringlunnar
taldi Hæstiréttur ekki tilefni
til að vísa málinu frá dómi
þar sem m.a. varnaraðilinn
tók einn ákvörðun um að fjar-
lægja rúllustigana. Fyrst svo
háttaði til er hann jafnframt
bær um að svara einn til saka
í málinu án þess að sóknarað-
ilum beri lögum samkvæmt
að beina kröfum sínum um
leið að öðrum eigendum húss-
ins.
Rúllustigar
í Kringlunni
Rúllustiga-
máli vísað
heim í
hérað á ný
NEYÐARSVEIT Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins, sem ásamt
áhöfn á TF-LÍF, þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, bjargaði tveimur fjall-
göngumönnum úr snjóflóði á laug-
ardag, hefur verið starfrækt í
tæpan áratug. Sveitin hefur á að
skipa 6 mönnum á hverri vakt og
gengur einnig undir heitinu fjalla-
björgunarsveit SHS. Sveitin hefur
til umráða sérútbúinn fjalla-
sjúkrabíl með dráttarspili og al-
hliða búnað til björgunar utan al-
faraleiða. Sveitin hefur það að
markmiði að komast á vettvang
slysa og hlúa að sjúklingum til
fjalla eða þar sem erfitt getur verið
að ná til þeirra. Um 30 félagar í
SHS eru virkir meðlimir sveit-
arinnar og hafa sótt sérhæfð nám-
skeið þar að lútandi. Sveitin vinnur
náið með undanförum björgunar-
sveita SVFÍ og heldur einnig æfing-
ar með Landhelgisgæslunni.
Morgunblaðið/Júlíus
Neyðarsveitarmenn SHS, sem tóku þátt í björguninni í Esjunni, f.v.: Óli
R. Gunnarsson, Þórður Bogason, Höskuldur Friðriksson, Heiða B. Inga-
dóttir, Bernódus Sveinsson, Haukur Grönli og Friðrik Höskuldsson,
stýrimaður á TF-LÍF. Á myndina vantar Brynjar Þór Friðriksson.
Neyðarsveit SHS