Morgunblaðið - 22.03.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR
eru almennt sammála um að ytri
leið sé hentugari kostur Sunda-
brautar yfir Kleppsvík og ef
ákvörðun verður tekin um leiðar-
valið á þessu ári má gera ráð fyrir
að bygging Sundabrautar muni
taka um fimm ár og gæti því verið
lokið árið 2007. Ekki kemur til
greina að mati borgarstjóra að
Reykjavíkurborg „skeri á hnútinn“
og bjóði fram auka fjármagn til
þessara framkvæmda. Sunda-
brautin er ekki inni á Samgöngu-
áætlun til ársins 2014 sem sam-
gönguráðherra lagði nýverið fram
og vöknuðu m.a. spurningar um
vegtenginguna á hverfisfundi
borgarstjóra í Grafarvogi á mið-
vikudag. „Við erum að tala um all-
nokkra milljarða og spurningin er
sú hvort Reykvíkingar eigi að
koma ríkinu upp á það að það leiti
ódýrustu lausna þegar við eigum í
hlut,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri, „og ef
leggja þarf sérstaklega í fram-
kvæmdir þá eigi skattgreiðendur í
Reykjavík að borga það sérstak-
lega. Við hljótum að verða að gera
kröfu til þess að við sitjum við
sama borð og aðrir í þessu efni.
Auðvitað munum við reyna það
sem í okkar valdi stendur til að
mæta ríkinu, en við getum ekki
tekið það að okkur, ef svo má
segja, að fjármagna það sem upp á
vantar.“
Sundabrautin, nýtt Rimahverfi á
Landssímalóðinni svokölluðu, lóð
Áburðarverksmiðjunnar og skóla-
mál voru þau málefni sem helst
brunnu á fundargestum á hverf-
isfundinum í Grafarvogi. Borgar-
stjóri fjallaði meðal annars sér-
staklega um íþrótta- og frárennsl-
ismál sem hún sagði að myndu fá
farsælan endi með nýrri dælustöð í
Gufunesi árið 2003. Með þeim
framkvæmdum væri lokið hreins-
un strandlengjunnar í Reykjavík
allt að Kollafirði, verkefni sem
kostað hefur borgina um 6 millj-
arða króna.
Börn hlutfallslega fleiri en í
öðrum hverfum borgarinnar
Ingibjörg Sólrún hóf fundinn á
því að draga fram sérstöðu Graf-
arvogs í borginni. Hverfið er eitt
það fjölmennasta, þar eru tæplega
18 þúsund íbúar og íbúasamsetn-
ingin er ólík því sem gerist í borg-
inni almennt. Aldraðir eru hlut-
fallslega færri en í öðrum hverfum
borgarinnar en börn á aldrinum 0–
12 ára hins vegar fleiri. „Því þarf
að leggja svolítið mismunandi
áherslur í hverfunum eftir því
hvernig íbúasamsetningin er,“
sagði borgarstjóri. Ingibjörg Sól-
rún sagði að þrátt fyrir að 14 leik-
skólar væru reknir í Grafarvogi
væri hverfið, að hennar mati, verr
sett en flest önnur hverfi borg-
arinnar hvað varðaði leikskóla-
pláss. „Hlutfall barna á leikskóla
er lægra hér en í mörgum hverf-
um, vegna þess að hér hefur skort
rými. Það helgast að hluta til að
því, þó að það sé ekki skýringin, að
þegar þetta hverfi var byggt, þó að
það sé ekki gamalt, hefur ekki ver-
ið gert ráð fyrir öllum þeim leik-
skólalóðum sem hér í rauninni
þyrfti.“
Borgarstjóri tíndi til helstu
framkvæmdir sem eru á döfinni í
hverfinu og taldi að kostnaður við
framkvæmdir í hverfinu á vegum
borgarinnar væri um 1 milljaður á
þessu ári. Verið er að ljúka við
margar skólabyggingar svo eru
nýjar byggingar á döfinni, t.d. Ing-
unnarskóli í Grafarholti. Þá nefndi
hún mislæg gatnamót Vestur-
landsvegar og Víkurvegar og nýja
sundlaug fyrir skólasund.
Borgarstjóri kynnti hugmyndir
að skipulagi á lóðinni þar sem
Áburðarverksmiðjan stendur í
Gufunesi og borgin hefur nýverið
fest kaup á fasteignum sem þar
standa. Á svæðinu er gert ráð fyr-
ir 3.200 íbúða byggð auk atvinnu-
húsnæðis og að lóðir verði bygg-
ingarhæfar árið 2006. Á skipulags-
uppdrætti var sýndur möguleiki á
göngubrú frá svæðinu út í Viðey,
„sem gæfi skemmtilega möguleika
og opnaði Viðey sem útivistar-
svæði fyrir Grafarvogsbúa með allt
öðrum hætti en verið hefur. Það
gefur aftur möguleika á þéttari
byggð á Gufunesi.“
Borgarstjóri ræddi um Sunda-
braut í tengslum við Gufunesið og
sagði að framkvæmdir við Sunda-
braut og uppbygging á Gufunesi
yrðu að haldast í hendur.
Breytingar á skipulagi nýs
Rimahverfis eftir íbúafund
Borgarstjóri ræddi um nýtt
skipulag íbúðarbyggðar í nýju
Rimahverfi á Landssímalóðinni,
sem oft hefur verið kennd við
Gufunesradíó. Skipulagstillögur
voru kynntar á íbúafundi í Graf-
arvogi í vetur og voru mjög um-
deildar. Í kjölfarið voru gerðar
töluverðar breytingar á tillögun-
um, háhýsi lækkuð og íbúðum
fækkað. Skipulagstillagan er nú í
auglýsingu og athugasemdafrestur
rennur út 17. apríl. Áður en sá
tími rennur út mun formaður
skipulagsnefndar, Árni Þór Sig-
urðsson, halda kynningarfund í
hverfinu og mun, að sögn borg-
arstjóra, verða tekið tillit til þeirra
athugasemda sem þar kunna að
koma fram við endanlegt skipulag
svæðisins.
Borgarstjóri var spurður af
hverju Reykjavíkurborg hefði ekki
keypt Landssímalóðina á sínum
tíma. „Reykjavíkurborg á engan
forkaupsrétt í þessu efni,“ sagði
Ingibjörg Sólrún. „Við reyndum að
semja um lóðina þegar Landssíma-
málið við Suðurlandsbrautina stóð
sem hæst og reyndum að fá hana í
skiptum fyrir Landssímann. Þegar
það mál gekk til baka gengu þau
lóðamál einnig til baka og lóðin var
seld. Við verðum að játa það að við
höfðum ekki á okkur nægilegan
andvara í því efni.“ Spurt var um
hvernig skólamálum yrði hagað í
nýja hverfinu þar sem Rimaskóli
væri nú þegar einn fjölmennasti
skólinn í borginni. Ingibjörg Sól-
rún sagði að til greina kæmi að
byggja skóla sem myndi hýsa
yngstu deildir alls Rimahverfis, en
eldri börnin yrðu í Rimaskóla.
Framtíðarlönd borgarinnar
í nágrenni Grafarvogs
Borgarstjóri sýndi framtíðar-
byggingarsvæði í nágrenni Graf-
arvogs, og sýndi m.a. frumhug-
myndir að byggð í hlíðum Úlf-
arsfells. „Hvað land varðar, eigum
við Reykvíkingar land langt inn í
framtíðina,“ sagði hún.
Borgarstjóri var spurður hvort
aðrir möguleikar en Geldinganesið
væru í skoðun fyrir höfn. „Reykja-
víkurhöfn er ein stærsta gámahöfn
á Norðurlöndunum,“ svaraði borg-
arstjóri. „Höfnin er gríðarlega
mikilvæg fyrir alla búsetu í land-
inu og atvinnu á þessu svæði. Hún
þarf að eiga sér framtíðarsýn. Eft-
ir 20 ár þarf hún að fara að byggj-
ast upp annars staðar en í Sunda-
höfninni. Ekki hefur verið komið
auga á betri kost en Eiðisvíkina
hingað til. Nú kann vel að vera að
næstu 20 árin finnist annar kostur.
Meðan hann er ekki fyrir hendi er
óðs manns æði að taka þetta hafn-
arsvæði út af skipulagi án þess að
sjá fyrir sér einhverja framtíð.“
Skólamál brunnu á gestum á vel sóttum hverfisfundi borgarstjóra í Fjörgyn
Sérstök aldurssamsetning
kallar á ólíkar áherslur
Áhugasamir fundargestir skoða skipulagsuppdrætti af nýjum hverfum í nágrenni Grafarvogs.
Morgunblaðið/Ásdís
„Göngubrú frá Gufunesi og yfir í Viðey gæfi skemmtilega möguleika og
opnaði Viðey sem útivistarsvæði fyrir Grafarvogsbúa með allt öðrum
hætti en verið hefur,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
m.a. á hverfisfundi í Grafarvogi í vikunni.
Grafarvogur
EINAR Jón Ásbjörnsson varði
doktorsritgerð sína við Háskólann í
Nottingham, Englandi, hinn 24.
október síðastliðinn. Ritgerðin ber
heitið „Dispers-
ion of grain re-
finer particles in
molten al-
uminium“.
Fjallar hún um
dreifingu á
kornasmækk-
unarefni í bráðnu
áli, en því er
bætt í álbráðina
til þess að bæta
eiginleika álsins
eftir útsteypingu. Einnig fjallar
hún um innri efnisbyggingu mis-
munandi kornasmækkunarefna og
tengslin milli hennar og hegðunar
þeirra í álbráðinni.
Aðalleiðbeinendur Einars voru
Graham McCartney, prófessor við
Háskólann í Nottingham, og Þor-
steinn Ingi Sigfússon, prófessor við
Háskóla Íslands. Andmælendur í
doktorsvörninni voru þeir John
Campbell, OBE, prófessor við Há-
skólann í Birmingham, og dr. And-
rew Kennedy frá Háskólanum í
Nottingham. Töldu þeir nið-
urstöður Einars mjög athyglisverð-
ar.
Verkefnið var fjármagnað af Ís-
lenska álfélaginu í Straumsvík og
London & Scandinavian Metals
Ldt. í Englandi. Verkefnið var unn-
ið í þremur löndum, á Íslandi, í
Bretlandi og í Sviss.
Verkefnið skiptist í þrjá hluta. Í
fyrsta hluta var gert tölulegt líkan
af útsteypingu á áli, sem sýndi
streymi álbráðarinnar í rennu frá
biðofni að steypuvél ásamt dreif-
ingu kornasmækkunarefnis í ál-
bráðinni. Meginniðurstöður úr
þessum hluta voru að korna-
smækkunarefnið nær að dreifast
vel um álbráðina á skömmum tíma.
Líkanið sýndi auk þess áhrif mis-
munandi hönnunar á rennum á
dreifinguna og í kjölfarið var rennu
að útsteypingarvél breytt vegna
niðurstaðna úr straumfræðilík-
aninu.
Annar og stærsti hluti verkefn-
isins fólst í því að skoða innri efn-
isbyggingu mismunandi gerða af
títanbóríð (TiB2) og títankarbíð
(TiC) kornasmækkunarefnum. Þar
kom í ljós, að mikill munur er á
efnisbyggingu og óhreinindamagni
í mismunandi kornasmækkunar-
efnum. Síðan voru gerðar tilraunir
með að leysa þau upp í álbráð á
rannsóknarstofu og gera stöðugar
mælingar á magni og stærðardreif-
ingu þeirra í álbráðinni. Hægt var
að finna samsvörun milli þessara
þátta og kekkjunarhraða korna-
smækkunarefnisins í bráðinni.
Fundust agnir, sem mældust allt
að 100 mm í þvermál, en það er
mun meira en áður var talið líklegt.
Lokahluti verkefnisins fólst í því
að sannreyna niðurstöður verkefn-
isins í vinnslulínu álvers. Fóru þær
tilraunir fram í Chippis í Sviss. Þar
fengust mikilvægar staðfestingar á
niðurstöðum úr fyrri hlutum verk-
efnisins.
Einar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1988. Hann lauk CS-prófi frá véla-
verkfræðideild Háskóla Íslands ár-
ið 1993 og M.Sc.-prófi frá sömu
deild árið 1996. M.Sc.-ritgerðin
fjallaði um ál í kísiljárnsfram-
leiðslu. Vinna við doktorsverkefnið
hófst 1996. Jafnframt vinnu við
doktorsverkefnið starfaði Einar
sem verkefnastjóri á Iðntækni-
stofnun Íslands frá 1999 til 2001.
Einar leggur nú stund á frekari
rannsóknir í Svíþjóð.
Einar á einn son, Ásbjörn. For-
eldrar Einars eru dr. Ásbjörn Ein-
arsson efnaverkfræðingur og Jóna
Guðbrandsdóttir.
Einar Jón
Ásbjörnsson
Doktor
í dreifingu á
kornasmækk-
unarefni í
bráðnu áli