Morgunblaðið - 22.03.2002, Síða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 49
11-11-búðirnar
Gildir 21. mars–2. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Reyktur lax, 25% afsl. á kassa ................ 1.649 2.199 1.649 kg
Grafinn lax, 25% afsl. á kassa ................ 1.649 2.199 1.649 kg
Kea Londonlamb, 20% afsl. á kassa ....... 958 1.198 958 kg
Frosin lambalæri, 10% afsl. á kassa........ 880 978 880 kg
Ali léttreyktar kótil., 20% afsl. á kassa ..... 1.196 1.495 1.196 kg
Rauðvíns helgarsteik, 20% afsl. á kassa .. 1.062 1.328 1.062 kg
Appelsínur ............................................ 125 229 125 kg
Klementínur .......................................... 139 298 139 kg
KRÓNAN
Gildir 21. mars–1. apríl nú kr. áður kr. mælie.
Skafís, 2 ltr ........................................... 339 629 169 ltr
Hjúpaðir kjúklingabitar, 30% afsl. á ks..... 559 798 559 kg
Mexoco helgarsteik, 20% afsl. á kassa .... 1.063 1328 1.063 kg
Hangiframpartur, 20% afsl. á kassa ........ 1.202 1.503 1.202 kg
Reyktar kótilettur, 25% afsl. á kassa........ 1.121 1.495 1.121 kg
Mjúkís .................................................. 319 398 319 ltr
Viennetta vanilla ................................... 399 499 399 st.
Leiðrétt
Eftirfarandi verðtilboð féllu niður í Helgartilboðsramma á neyt-
endasíðu í gær. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
CENTRUM
hefur opnað aftur
á nýjum stað
í Kringlunni
DKNY JEANS
FRENCH CONNECTION
CALVIN KLEIN JEANS
SAINT TROPEZ
CUSTO
Kringlunni, s. 533 1730
OPNUNARTILBOÐ UM HELGINA
Borgaraleg ferming 7. apríl
Vegnar fréttar um fermingar í
blaðinu í gær skal það leiðrétt að
borgaraleg fermingarathöfn í Há-
skólabíói fer ekki fram 6. apríl nk.
heldur sunnudaginn 7. apríl og hefst
kl. 11. Beðist er velvirðingar á mis-
herminu.
LEIÐRÉTT
AÐALFUNDUR Samtaka um
krabbameinsrannsóknir á Íslandi
(SKÍ) var haldinn nýlega, en sam-
tökin voru stofnuð fyrir sjö árum.
Samtökin hafa frá upphafi notið
velveildar GlaxoSmithKline og
Pharmaco, en þessi fyrirtæki hafa
lagt fram fjármagn til SKÍ til þess
að veita ferðastyrki vísindamönn-
um sem starfa við krabbameins-
rannsóknir hér á landi. Styrkirnir
eru ætlaðir til þess að íslenskir vís-
indamenn geti kynnt rannsóknar-
niðurstöður sínar erlendis eða farið
í námsferðir til þess að læra og
flytja inn nýjar rannsóknaraðferðir.
Á aðalfundi SKÍ afhentu Svava
Guðmundsdóttir frá Pharmaco og
Sveinn Skúlason frá GlaxoSmith-
Kline fjóra ferðastyrki, þeim Sig-
urði Ingvarssyni, Katrínu Guð-
mundsdóttur, Sigríði Klöru
Böðvarsdóttur og Öglu Friðriks-
dóttur, segir í fréttatilkynningu.
Svava Guðmundsdóttir frá Pharmaco, styrkþegarnir Sigurður Ingvars-
son, Katrín Guðmundsdóttir, Sigríður Klara Böðvarsdóttir og Agla
Friðriksdóttir, Sveinn Skúlason frá GlaxoSmithKline og Laufey Ás-
mundsdóttir, gjaldkeri Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Íslandi.
Lyfjafyrirtæki styðja
krabbameinsrannsóknir
ELLEFU umhverfis- og náttúru-
verndarsamtök hafa tekið höndum
saman í þeim tilgangi að verðlauna
einstakling fyrir framlag til náttúru-
og umhverfisverndarmála. Markmið
með þessu er að vekja athygli lands-
manna á verkum þeirra sem vinna vel
og ötullega að verndun umhverfis og
náttúru.
Að þessu verkefni standa Félag um
verndun hálendis Austurlands,
Fuglaverndarfélag Íslands, Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag, Land-
vernd, Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands, Náttúruverndarsamtök
Austurlands, Náttúruverndarsamtök
Íslands, Náttúruverndarsamtök
Vesturlands, Samtök um náttúru-
vernd á Norðurlandi, Sól í Hvalfirði
og Umhverfisverndarsamtök Íslands.
Úthlutunarnefnd skipa að þessu
sinni Guðrún Agnarsdóttir læknir,
Ingvar Birgir Friðleifsson forstöðu-
maður jarðhitaskóla Sameinuðu þjóð-
anna og Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Hlutverk úthlutunarnefndar
er að velja einstakling sem hefur með
framsýni og verkum sínum með af-
gerandi hætti stuðlað að betri nátt-
úru- og umhverfisvernd hér á landi
og/eða alþjóðlega. Viðurkenninguna
hlýtur einn einstaklingur. Stefnt er að
því að viðurkenningin verði afhent við
hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Þessi viðburður verður í tengslum
við hátíðarhöld í tilefni af degi um-
hverfisins 25. apríl n.k.
Úthlutunarnefnd óskar eftir tillög-
um um einstakling sem vegna verka
sinna og athafna á undaförnum árum
er þess verðugur að hljóta þessa við-
urkenningu. Æskilegt er að tilnefn-
ingu fylgi stutt greinargerð þar sem
færð eru rök fyrir henni. Tillögur
skulu sendar skrifstofu Landverndar,
Ránargötu 18, 101 Reykjavík og skal
umslagið merkt „Viðurkenning – til-
nefning“. Frestur til að skila tillögum
er til 8. apríl, segir í fréttatilkynningu.
Óska eftir tilnefningum
HEYRNAR- og talmeinastöð Íslands
verður með opið hús á morgun, laug-
ardaginn 23. mars, kl. 13–16, í húsa-
kynnum stöðvarinnar á Háaleitis-
braut 1, Valhallarhúsinu.
Þar mun starfsfólk HTÍ kynna þær
breytingar sem orðið hafa á starfsem-
inni á undanförnum mánuðum. Sýnd
verða heyrnartæki og hjálpartæki
fyrir heyrnarskerta, kynntar verða
heyrnarmælingar og veitt fagleg ráð-
gjöf, segir í fréttatilkynningu.
Opið hús hjá
Heyrnar- og
talmeinastöðinni LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi er varð
á bifreiðastæði framan við hús nr. 4
við Tjarnargötu, miðvikudaginn 20.
mars á milli kl. 14 og 14.20.
Þar mun hafa verið bakkað fram-
an á svarta BMW fólksbifreið sem
lagt var þar í bifreiðastæði og fór
tjónvaldur, sem talinn er hafa ekið
rauðri Ford Econoline sendibifreið,
af vettvangi. Þeir sem upplýsingar
geta veitt um málið eru vinsamlega
beðnir um að hafa samband við lög-
regluna í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
AÐALFUNDUR Félags yfirlækna
á heilsugæslustöðvum, sem haldinn
var 1. mars sl., samþykkti eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur Félags yfirlækna á
heilsugæslustöðvum haldinn í Hlíða-
smára 8, Kópavogi, hinn 1. mars
2002 lýsir áhyggjum sínum vegna
skerðingar á þjónustu sem boðuð
hefur verið hjá Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins.
Yfirlæknum heilsugæslustöðva er
vel ljóst það mikilvæga og ómetan-
lega starf sem unnið er á Greining-
arstöðinni. Yfirlæknarnir sjá fram á
mikla erfiðleika fjölmargra skjól-
stæðinga heilsugæslustöðva ef fer
fram sem horfir.
Yfirlæknar heilsugæslustöðva
hvetja ríkisvaldið til að hlúa að því
ágæta starfi sem fram fer á Grein-
ingarstöðinni..
Vilja hlúa að
Greiningarstöð
♦ ♦ ♦