Morgunblaðið - 22.03.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 51
DAGBÓK
Garðatorgi, sími 565 6550
Nýkomnir
polyester stuttermabolir
kr. 2.698
Polyester síðbuxur m. teygju í mittið
kr. 3.498
Ég vil þakka öllum þeim, sem glöddu mig á
85 ára afmæli mínu þann 27. febrúar sl.
Margrét Sigurjónsdóttir,
Vesturgötu 28.
Fermingarnáttföt
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Náttskyrtur - Sloppar
Mikið úrval
AÐALFUNDUR GEÐHJÁLPAR
Aðalfundur Geðhjálpar árið 2002 verður
haldinn á Túngötu 7, Reykjavík,
laugard. 23. mars nk. og hefst kl. 14.
DAGSKRÁ:
Aðalfundarstörf í samræmi við 5. gr. laga Geðhjálpar.
Kjör 3 stjórnarmanna af 7 fer fram til tveggja ára í stað þeirra sem ljúka
stjórnarstörfum á árinu. Vísast í þessu sambandi í 3. gr. laga félagsins þar
sem segir: Félagar geta orðið allir þeir einstaklingar er áhuga hafa á og
styðja vilja tilgang félagsins. Kosningarétt og kjörgengi í félaginu hafa
fullgildir félagsmenn. Fullgildir félagsmenn teljast þeir er skráðir hafa verið í
félagið mánuði fyrir aðalfund.
Félagar sem enn eiga ógreidd félagsgjöld eru hvattir til að greiða þau fyrir
fundinn. Ef greiðsluseðlar eru glataðir, skal bent á að inna má greiðslu af
hendi í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi inn á reikning Geðhjálpar
nr. 1150-26-50238, kt. 531180-0469.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Geðhjálpar, Túngötu 7,
101 Reykjavík, í síma 570 1700.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
Stjórn Geðhjálpar.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert einbeittur, áhuga-
samur og kraftmikill og nýt-
ur virðingar annarra. Sam-
bönd þín munu dýpka
á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leyndar kenndir geta brotist
upp á yfirborðið í dag og
breytt lífi þínu. Aukinn skiln-
ingur á því hvað snertir þig
veitir þér meiri sjálfstjórn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu ekki að telja aðra á
þitt mál í dag. Þér gæti virst
mikilvægt að allir séu þér
sammála en það er það ekki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Valdabarátta við yfirboðara
þína er óhjákvæmileg í dag.
Þú getur helst forðast þetta
með því að halda þig til hlés
og reyna að verjast löngun
þinni til að bregðast við því
sem aðrir segja.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Rannsóknarvinna getur skil-
að þér góðum árangri í vinnu
í dag. Hæfileiki þinn til að
komast að hinu sanna getur
leitt til óvæntrar en traustrar
niðurstöðu sem getur skipt
máli í framtíðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Deilur við börn um sameig-
inlegar eignir geta orðið að
rifrildi. Reyndu að koma í veg
fyrir þetta með því að sýna
umburðarlyndi og þolinmæði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir átt erfitt með að ná
samkomulagi við einhvern í
dag. Annar ykkar er haldinn
þráhyggju varðandi ein-
hverja hugmynd og neitar að
sleppa tökunum á henni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn hentar vel til að
taka á leyndarmálum eða
feimnismálum. Þú hefur þörf
fyrir að skyggnast undir yf-
irborðið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú gætir komist að hneyksl-
is- eða leyndarmálum í dag.
Allt sem tengist skemmtana-
iðnaði og ferðamannaþjón-
ustu virðist grunsamlegt eins
og stendur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það leitar eitthvað á huga
þinn sem þú kærir þig ekkert
um. Það minnir mest á lag-
línu sem þú losnar ekki við.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Samtöl við aðra geta hjálpað
þér við að komast til botns í
einhverju í dag. Þú getur
fengið svör við öllu því sem
þig langar til að vita ef þú
spyrð réttra spurninga.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það gæti komið þér á óvart
að komast að því að einhver
er fjáðari en þig grunaði.
Ekki láta þetta slá þig út af
laginu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðastu átök í dag. Þú átt
ekki möguleika á sigri og
munt sennilega skapa þér
óvild.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Eddie Kantar er snjall
spilasmiður. Þrautir
hans eru ekki endilega
þungar, en leyna þó oft á
sér og hafa iðulega hag-
nýtt gildi. Hér er þraut
eftir Kantar:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 1085
♥ G10
♦ Á72
♣KDG92
Suður
♠ KDG97
♥ KD6
♦ K94
♣63
Suður spilar fjóra
spaða eftir þessar sagn-
ir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand *Pass 2 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
* Kröfugrand.
Útspil vesturs er tígul-
drottning. Hvernig er
best að spila?
Til að byrja með er
nauðsynlegt að taka
fyrsta slaginn á ásinn í
borði og reka strax út
hjartaásinn. Þetta er
nokkuð augljóst, því ella
nær vörnin að byggja
upp tígulslag. En þrautin
er rétt að byrja. Gerum
ráð fyrir því að austur
taki síðari hjartaslaginn
á ásinn og spili tígli.
Kóngurinn á þann slag
og síðan er tígli hent nið-
ur í háhjarta. Allt geng-
ur að óskum, enn sem
komið er. En hver er svo
næsti leikur?
Norður
♠ 1085
♥ G10
♦ Á72
♣KDG92
Vestur Austur
♠ 6 ♠ Á432
♥ 843 ♥ Á9752
♦ DG1053 ♦ 86
♣Á1087 ♣54
Suður
♠ KDG97
♥ KD6
♦ K94
♣63
Það virðist blasa við að
stinga tígul og spila svo
trompi. En það má ekki,
því austur mun henda
laufi í þriðja tígulinn og
sækja svo stungu í þeim
lit síðar.
Þessari hættu er hægt
að mæta með því að spila
laufi ÁÐUR en þriðji tíg-
ullinn er trompaður.
Nokkuð lúmskt.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22. mars
er níræð Erika Guðjónsson,
Helgubraut 7, Kópavogi.
90 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 26. mars
verður níræður Jóhann Júl-
íusson, fv. framkvæmda-
stjóri og útgerðarmaður,
Hafnarstræti 7, Ísafirði. Í
tilefni afmælisins tekur
hann á móti gestum í Frí-
múrarasalnum á Ísafirði,
laugardaginn 23. mars nk.
frá kl. 14–17.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Voldugir drottins veðurenglar fjórir
höldum veiti hægan byr,
hef eg þess aldrei beðið fyr.
Ókunnur höfundur
Stiltu ólgustraumana,
stjórnaðu höndum mínum,
taktu guð í taumana
með tignarkrafti þínum.
Ókunnur höfundur
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6 4.
Rc3 cxd4 5. Rxd4 g6 6. Be3
Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 O-O 9.
Bc4 Bd7 10. O-O-O Hc8 11.
Bb3 Re5 12. Kb1 He8 13. h4
h5 14. Bh6 Bh8 15. g4 Rc4 16.
De2 Dc7 17. gxh5 Rxh5 18.
Rdb5 Bxb5 19. Rxb5 Dc6 20.
Hd5 Kh7 21. Bc1 e6
Staðan kom upp á Reykja-
víkurmótinu sem lauk fyrir
skömmu. Skoski stór-
meistarinn og heims-
spekingurinn Jonathan
Rowson (2512) hafði
hvítt gegn Jennifer
Shahade (2302). 22.
Hxh5+! gxh5 23. Bxc4
Dxc4 24. Dxc4 Hxc4 25.
Rxd6 Hvítur fær nú peði
meira og betra endatafl
sem dugði til að knýja
fram sigur. Framhaldið
varð: 25...Hcc8 26. Bg5
f6 27. Be3 a6 28. c4 Hg8
29. Rxc8 Hxc8 30. c5
Hd8 31. Kc2 f5 32. exf5 exf5
33. b4 Bf6 34. a4 Hg8 35.
Hd1 Hg2+ 36. Kb3 Hg3 37.
Hf1 Bxh4 38. Bf4 Hh3 39. b5
axb5 40. axb5 Bg3 41. Bd6
h4 42. b6 Kg7 43. Hd1 Bf2
44. c6 Hxf3+ 45. Kc4 bxc6
46. b7 Ba7 47. Ha1 og svart-
ur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22. mars
er áttræð Petrea Kristjáns-
dóttir, Melabraut 24, Sel-
tjarnarnesi. Hún tekur á
móti gestum á morgun,
laugardaginn 23. mars, á
milli kl. 16-20 á heimili dótt-
ur sinnar, Sigríðar, Hrísa-
teig 45, Reykjavík.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 23. mars, er sjötug
Steinunn Rósborg Krist-
jánsdóttir, Barðarási 14,
Hellissandi. Í tilefni dagsins
tekur hún á móti gestum kl.
16–19 í Félagsheimilinu
Röst, Hellissandi.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22.
mars, er sextugur Móses G.
Geirmundsson, framleiðslu-
stjóri hjá Guðm. Runólfss.,
hf., Grundarfirði, til heim-
ilis að Grundargötu 50,
Grundarfirði. Í tilefni af-
mælisins tekur hann á móti
samstarfsmönnum, ættingj-
um og vinum að Hótel
Framnesi, Grundarfirði,
laugardaginn 23. mars frá
kl. 16-19.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22.
mars, er sextug Ásgerður
Snorradóttir, Lerkilundi
10, Akureyri. Eiginmaður
hennar er Ingvi Þórðarson.
Þau eru að heiman í dag.
FRÉTTIR
FRAMBOÐSLISTA framsóknar-
manna í Ísafjarðarbæ til Bæjar-
stjórnarkosninga 2002 skipa eftirtal-
in:
1. Guðni Geir Jóhannesson Ísa-
firði, 2. Svanlaug Guðnadóttir Ísa-
firði, 3. Björgmundur Guðmundsson
Önundarfirði, 4. Jón Reynir Sigur-
vinsson Ísafirði, 5. Guðríður Sigurð-
ardóttir Ísafirði, 6. María Valsdóttir
Þingeyri, 7. Sigríður Magnúsdóttir
Önundarfirði, 8. Þorvaldur Þórðar-
son Suðureyri, 9. Elías Oddson Ísa-
firði, 10. Hildigunnur Guðmunds-
dóttir Auðkúlu, 11. Jón Reynir
Sigurðsson Þingeyri, 12. Ásvaldur
Guðmundsson Núpi, 13. Gréta Gunn-
arsdóttir Ísafirði, 14. Bergsveinn
Gíslason Mýrum í Dýrafirði, 15.
Hrafn Guðmundsson Ísafirði, 16.
Steinþór Ólafsson Hjarðardal í
Dýrafirði, 17. Þröstur Óskarsson
Ísafirði, 18. Sigurður Sveinsson Ísa-
firði.
Listi framsóknarmanna
í Ísafjarðarbæ