Morgunblaðið - 30.04.2002, Side 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu
fasteignin Strandgata 49 á Akureyri
Veitingahúsið Pollurinn á Akureyri er nú til sölu. Um er að ræða
fasteign sem er á þremur hæðum. Stærð jarðhæðar er samtals
439,1 fm. 2. hæð er 191 fm salur. Í risi er óinnréttað rými. Húsið
er hluti af svokölluðum Gránuhúsum og er byggt árið 1880. Stað-
setning er góð og umhverfi fallegt. Í húsinu hefur verið rekinn vín-
veitingastaður undanfarin ár. Hér er um að ræða einstakt tæki-
færi fyrir dugmikla aðila. Miklir framtíðarmöguleikar.
Allar frekari upplýsingar veittar
Fasteignasölunni BYGGÐ
Sími 462 1744 og 462 1820,
fax. 462 7746
Um helgina í síma 897-7832 (Björn)
VERULEG aukning varð á útfluttu
magni Fiskmiðlunar Norðurlands á
síðasta ári miðað við árið á undan
eða 47,8% í kílóum talið. Einkum er
það meira af síld og loðnu sem og
frosnum fiski sem skýrir þessa
aukningu að því er fram kom í máli
Valdimars Bragasonar stjórnarfor-
manns á aðalfundi á dögunum.
Fiskmiðlun Norðurlands hóf út-
flutning á þurrkuðum fiskafurðum
til Nígeríu fyrir tíu árum. Á síðasta
ári voru þurrkaðar fiskafurðir um
80% af heildarverðmæti útfluttra
afurða fyrirtækisins sem alls námu
1.927 milljónum króna.
Hagnaður Fiskmiðlunar Norður-
lands nam 18,7 milljónum króna á
liðnu ári. Samþykkt var á aðalfund-
inum að greiða hluthöfum 50% arð.
Rekstur félagsins hefur gengið vel.
Opnuð var skrifstofa í Reykjavík á
síðasta ári og þar starfa tveir menn,
en aðalskrifstofa FN er á Dalvík.
Fyrirtækið tók þátt í stofnun
hausaþurrkunarfyrirtækis í Fær-
eyjum og varð hluthafi í þurrk-
unarfyrirtækinu Herði á Egilsstöð-
um.
Samþykkt var á aðalfundinum að
styrkja tónlistarfólkið og hjónin
Helgu Bryndísi Magnúsdóttur og
Guðmund Óla Gunnarsson um 500
þúsund krónur en þau eru að
byggja tónlistarstofu við hús sitt að
Bakka í Svarfaðardal.
Hilmar Daníelsson framkvæmda-
stjóri FN afhenti styrkinn og gat
þess að mikilvægt væri fyrir byggð-
arlagið að hafa slíka íbúa, en þau
hjónin taka virkan þátt í félagslífinu
heima fyrir þrátt fyrir að vera
störfum hlaðin, enda í hópi virtustu
tónlistarmanna landsins.
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi
Hilmar Daníelsson, framkv.stj. Fiskmiðlunar Norðurlands, ásamt Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara og Guðmundi Óla Gunnarssyni,
stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og kórstjórnanda.
Samþykkt að greiða
hluthöfum 50% arð
Dalvíkurbyggð
Fiskmiðlun Norðurlands jók útflutning á liðnu ári
UPPSAGNIR átta starfsmanna
Símans á Akureyri hafa vakið upp
hörð viðbrögð í bænum en m.a. hefur
Akureyrarbær í hyggju að endur-
skoða viðskipti sín við fyrirtækið og
sagði Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri að langlundargeð manna gagn-
vart fyrirtækinu væri þrotið. Bæjar-
stjóri ræddi þessi mál við forstjóra
Símans fyrir helgi.
Gagnrýnin hefur einkum beinst að
því hvernig að uppsögnum var staðið
og hvort til þeirra hefði þurft að
koma. Jóna Þrúður Jónatansdóttir
er ein þeirra sem sagt var upp störf-
um hjá Símanum nú nýverið. Hún
hafði starfað hjá fyrirtækinu í tæp 32
ár og átti eftir um 5 ára starf áður en
að eftirlaunum kæmi. Fleiri úr hópi
þeirra sem sagt var upp eiga einnig
að baki langan starfsaldur hjá fyr-
irtækinu. Ekki var að þessu sinni
hróflað við fólki sem margt ætti mjög
skamman starfsaldur að baki hjá
Símanum að sögn Jónu.
Eins og þruma
úr heiðskíru lofti
Hún segist nú vera að átta sig á
þeim breytingum sem uppsögnin hafi
á líf hennar og upplifa þann sársauka
sem fylgi því að hverfa frá fyrirtæk-
inu með þessum hætti.
Hún sagði uppsögnina hafa komið
eins og þrumu úr heiðskíru lofti. Hún
kom, að beiðni yfirmanns síns, við á
skrifstofu hans örfáum mínútum áð-
ur en vinnudegi lauk og sagðist hafa
farið algerlega grunlaus um erindið á
hans fund. Þar hefði sér fyrirvara-
laust verið sagt upp störfum og að því
búnu boðinn starfslokasamningur.
Hún hefði tjáð honum að hún
þyrfti að skoða málið betur og ræða
við fólk í sínu stéttarfélagi, en henni
sagt að út færi hún ekki fyrr en búið
væri að skrifa undir samninginn. Eft-
ir að búið var að ráðfæra sig við
starfsmannastjóra hefði hún fengið
frest til næsta dags. Henni, sem og
fleirum sem sagt var upp, var einnig
meinað að mæta á vikulegan starfs-
mannafund sem halda átti daginn
eftir að tilkynnt var um uppsagnirn-
ar.
Vísað út eins
og ónýtu drasli
„Mér fannst eins og verið væri að
vísa mér út eins og hverju öðru ónýtu
drasli, þetta var að mínu mati svipað
og þegar fólk tekur til í geymslunni
sinni og fleygir því sem það hefur
ekki lengur not fyrir,“ sagði Jóna
Þrúður.
Hún sagðist halda að ekki hefði
verið ólöglega að uppsögnum staðið,
en fólk setti spurningarmerki við sið-
ferðið sem viðhaft var. Mjög hefði
skort á eðlilega mannvirðingu við
slíkar aðstæður. Eins þótti henni
leitt að sjá forstjóra fyrirtækisins,
Óskar Jósefsson, neita því í Morg-
unblaðinu á laugardag að ranglega
hefði verið staðið að uppsögnum
starfsfólksins.
„Ég hefði viljað sjá hans viður-
kenningu á því að betur hefði mátt
standa að málum, það hefði mátt
gera þetta með öðrum hætti, að meiri
virðing væri borin fyrir manninum,“
sagði Jóna Þrúður.
Þá sagðist hún vita til þess að
mörgum sárnaði að svo væri staðið
að málum hjá fyrirtæki sem væri að
98% í eigu þjóðarinnar.
Uppsagnir starfsfólks á Símanum
vekja hörð viðbrögð
Fleygt út eins
og ónýtu drasli
úr geymslu
EYJAFJÖRÐUR sem vaxtar-
svæði – hvert er hlutverk Ak-
ureyrar? er yfirskrift opins
stjórnmálafundar sem
Byggðarannsóknastofnun boðar
til næstkomandi þriðjudagskvöld,
30. apríl.
Fundurinn verður haldinn í
húsnæði Háskólans á Akureyri,
Norðurslóð við Sólborg, í sal
L-201 og hefst hann kl. 20.
Fulltrúar þeirra flokka og
framboða sem bjóða fram til bæj-
arstjórnar á Akureyri munu
flytja framsöguerindi í tveimur
umferðum. Að lokinni fyrri fram-
sögu gefst fundarmönnum kostur
á fyrirspurnum.
Eyjafjörður sem vaxtarsvæði