Morgunblaðið - 30.04.2002, Page 59

Morgunblaðið - 30.04.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 59 DAGBÓK Bankastræti 14, sími 552 1555 Þægilegur sportlegur fatnaður Ný sending - Gott verð VELÚRGALLAR Ný sending, nýir litir Stærðir XS - 2XL Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Ertu í vandræðum? Við leysum þau! Stærðir 2XL-7XL Laugavegi 76 sími 552 5425 Vinnufata -búðin STANGAVEIÐI Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs- björgu, unglingar (innan 16 ára ald- urs), og ellilífeyrisþegar úr Reykja- vík og Kópavogi, fengið afhent veiðileyfi án greiðslu. Sumardragtir Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið úrval Kjólar - Blússur Árnað heilla 90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30. apr- íl er níræð Sigríður Bein- teinsdóttir, skáld og hús- móðir á Hávarsstöðum, Leirársveit. Hún er fædd og uppalin í Grafardal, ein af átta skáldmæltum systkin- um. Hún tekur á móti gest- um í félagsheimilinu Heiðar- borg, Leirársveit, miðviku- daginn 1. maí n.k. kl. 15-18. Blóm og gjafir vinsamlegast afþökkuð. 90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30. apr- íl, er níræð Fjóla Þorsteins- dóttir, Karfavogi 23, Reykjavík. Í tilefni dagsins ætlar Fjóla og fjölskylda hennar að taka á móti vinum og ættingjum í Hlégarði, Mosfellsbæ, kl. 16.30–19. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert áreiðanlegur, hefur góðan skilning á reglum, boðum og bönnum og sterka tilhneigingu til að vernda þína nánustu. Á árinu verður áhersla þín á einkalífinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Forðastu allt sem tengist fjár- málum og fjárfestingum í dag. Hæfni þín til að hugsa skýrt þegar kemur að peningum er óvenju lítil. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert óvenju orkulítill í dag og gætir jafnvel átt erfitt með að sinna daglegum skyldum. Virtu þörf þína fyrir hvíld. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú finnur fyrir ófullnægju og gætir brugðist við með því að forðast samneyti við aðra. Taktu þetta ekki alvarlega. Þetta líður fljótt hjá. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur háleit markmið varðandi framtíðina sem geta annað hvort ýtt undir metnað þinn eða dregið úr þér kjark. Minntu sjálfan þig á afrek þín. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ekki taka of mikið mark á yf- irboðurum þínum í dag. Þeir eru líklegir til að ætlast til of mikils af þér eða hreinlega svíkja þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Aðstæður í fjarlægum lönd- um fylla þig vonleysi. Láttu þetta ekki lama þig. Reyndu heldur að nýta þau tækifæri sem gefast til að bæta aðstæð- ur þeirra sem standa þér nær. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekkert er jafn blekkjandi og það að vera ástfanginn. Þú gætir fallið fyrir stórkostleg- um blekkingum í daðri eða ástarmálum í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Forðastu alvarlegar umræður við fjölskylduna. Þú hefur óvenju lítið sjálfstraust og ættir því að forðast aðstæður þar sem þú gætir þurft að verja þig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Aðstæður í vinnunni draga úr þér kjark þar sem þér finnst þér og öðrum misboðið. Reyndu að vera raunsær og nota skynsemina þegar kem- ur að væntingum þínum í vinnunni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Forðastu veðmál, fjárhættu- spil og hvers kyns fjárhags- lega áhættu í dag. Það er áhættusamt að telja sjálfum sér trú um að maður eigi vinn- ingsvon. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Reyndu að hvílast heima fyrir í dag. Þreytan sem hrjáir þig stafar ekki af mikilli vinnu heldur af því hvað þú ert ringlaður. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að vera sérstaklega skýr í öllum samskiptum í dag. Afstaða Neptúnusar ger- ir það að verkum að fólki hættir til að misskilja þig. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson SPILARAR af öllu landinu hittust um helgina í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla til að keppa í Íslandsmótinu í tvímenningi. Mótið var síð- ast haldið í nóvember, en hefur nú endurheimt sinn fyrri árstíma að vori til og verður svo um sinn. Aðal- steinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson voru í sérflokki og unnu yfirburðasigur. Næstir komu feðgarnir Hjalti Elíasson og Eiríkur Hjaltason, en þriðju urðu Ásmundur Pálsson og Guðm. P. Arnarson. Spilin í úrslitunum voru óvenju lif- andi – mikið um langa liti og slemmutækifæri. Svo dæmi sé tekið… Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ D6 ♥ ÁG10986542 ♦ -- ♣63 Vestur Austur ♠ G103 ♠ ÁK8754 ♥ KD ♥ 3 ♦ KD864 ♦ Á752 ♣ÁG4 ♣92 Suður ♠ 92 ♥ 7 ♦ G1093 ♣KD10875 Norður á langan og góðan hjartalit, en ekki sáu þó allir ástæðu til að hamast mikið eftir sterka sagnbyrjnun mótherjanna. Ragnar Her- mannsson var í norður og tók lífinu með ró – nefndi hjartað aldrei á nafn! Jónas P. Erlinsson var í suður, en AV Íslandsmeistararnir í sveitakeppni, þeir Eiríkur Jónsson og Páll Valdimars- son: Vestur Norður Austur Suður Páll Ragnar Eiríkur Jónas -- -- 1 spaði Pass 2 tíglar Pass! 3 hjörtu * Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 6 spaðar Pass Pass Dobl Allir pass Þegar Páll krafði í geim með tveimur tíglum ákvað Ragnar að bíða og sjá hvert spilið stefndi. Eiríkur sam- þykkti tígulinn með „splint- er“ stökki í þrjú hjörtu, en bæði Páll í vestur og Jónas í suður töldu einsýnt að Ei- ríkur væri að „klikka á kerf- inu“ og ætti góð spil með spaða og hjarta. Annað átti þó eftir að koma á daginn. Eftir hefðbundnar slemmuþreifingar stökk Ei- ríkur í sex spaða sem Ragn- ar doblaði til útspils. Jónas spilaði út tígulgosa og Ragn- ar trompaði. Tók svo hjarta- ás og spilaði meira hjarta. Eiríkur sá ekki ástæðu til að stinga frá til að verjast 9-1 legunni í hjarta og henti laufi. Jónas gat því trompað og gefið makker aðra tígul- stungu: þrír niður og 800 í NS. LJÓÐABROT SLYSIÐ Agara gagara nízkunös, nú er hann kominn á heljarsnös, heiminn kvaddi, hamarinn sprakk, hylurinn tók við bagga af klakk, straumurinn bar hann eyrina á, agara gagara jagar á, skrokkurinn gat ei skriðið þá, skjótt leið sálin honum frá og kvað í bergi nurtara kreistum nagar á. Æri-Tobbi 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. d4 Rxe4 6. De2 Rd6 7. d5 Rb8 8. Rxe5 Be7 9. c4 O-O 10. O-O Rxc4 11. Rxc4 b5 12. Bc2 bxc4 Staðan kom upp á öðling- amóti Taflfélags Reykjavík- ur sem lauk fyrir skömmu. Arkitektinn og Fischer-ban- inn Sverrir Norðfjörð (1930) hafði hvítt gegn Kára Sólmundar- syni (1960). 13. d6! cxd6 14. De4 f5 15. Dd5+ Kh8 16. Dxa8 Rc6 17. Ba4 Dc7 18. Rc3! og svartur gafst upp enda fátt til varnar eft- ir 18...Bb7 19. Rd5. Loka- staða efstu manna varð þessi: 1. Hall- dór Pálsson 5 ½ vinning af 7 mögulegum. 2.-4. Sverrir Norðfjörð, Magnús Gunnarsson og Kristján Örn Elíasson 5 v. 5.-6. Halldór Gíslason og Gísli Gunnlaugs- son 4 v. Í hraðskákmóti öð- linga bar Ögmundur Krist- insson sigur úr býtum en Björn Þor- steinsson varð annar. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30. apr- íl, er áttatíu ára Ester Kláusdóttir, fv. safnvörður, Fjarðargötu 17, Hafnar- firði. Hún verður með vin- um og ættingjum á tónleik- um Önnu Pálínu dóttur sinnar í Hafnarborg í kvöld. 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30. apr- íl, er fimmtug Elínbjörg Kristjánsdóttir, Reyni- hvammi 21, Kópavogi. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.