Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
f
a
s
t
la
n
d
-
8
1
7
1 FULLT HÚS
SKEIFAN • HRINGBRAUT VI‹ JL • DALSHRAUN HFJ • HVALEYRARBRAUT HFJ • SELFOSS • VESTMANNAEYJAR • HÖFN
LANDIÐ
Í GAMLA miðbænum er hús sem
vekur eftirtekt, einkum vegna fag-
urra steina sem prýða lóðina í
kringum það. Hjónin Þorvaldur
Jósefsson og Ólöf Geirsdóttir hafa
safnað steinum í 10 ár og er mest af
þeim úr nágrenninu en einnig alls
staðar af landinu. ,,Þetta er sameig-
inlegt áhugamál sem byrjaði þann-
ig að eitt sumarið fuku öll blómin
burt sem við vorum búin að planta í
beðið bak við hús. Þá fannst okkur
eins gott að skreyta með grjóti því
það fyki ekki,“ sagði Þorvaldur.
Þau hafa verið ötul við að safna
því allt í kringum húsið eru steinar
af ýmsum stærðum, tegundum og
litum. Þau muna hvaðan helstu
steinarnir eru, þekkja tegundirnar
en hafa ekki tölu á hversu margir
steinarnir eru orðnir. Ólöf málar
einnig á steina sem taka á sig ýms-
ar myndir. Þorvaldur segist hafa
næmt auga fyrir fallegum og sér-
kennilegum steinum og þegar hann
er að keyra sér hann oft stein ein-
hvers staðar uppi í fjallshlíð sem
hann má til með að sækja. ,,Ég hef
stundum orðið hrædd þegar hann
hleypur upp einhvern bratta, sér-
staklega að hann komist ekki aftur
niður,“ segir Ólöf. Steinasafnið hef-
ur vakið áhuga ferðafólks sem
staldrar gjarnan við húsið og skoð-
ar og tekur myndir. Einn farar-
stjóri hefur leyfi til þess að koma
með erlenda hópa í garðinn til
þeirra að skoða.
Þorvaldur var nýkominn heim af
sjúkrahúsi þegar fréttaritara bar
að garði. Hann lenti í bílslysi um
helgina þegar sjúkrabíll ók inn í
hliðina á bílnum sem hann var á.
Sem betur fer voru meiðsl hans
ekki alvarleg. En var Þorvaldur
með steina í bílnum eða að skima
eftir grjóti þegar slysið varð?
,,Nei,“ segir Þorvaldur ,,ég var að
koma ofan úr hesthúsum.“ Hesta-
mennska er annað aðaláhugamálið
hans og víst er að þau hjón gætu
skreytt garðinn sinn með verð-
launabikurum sem gæðingarnir
hans hafa unnið til á hestamótum.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Ólöf Geirsdóttir og Þorvaldur Jósefsson fyrir framan húsið sitt.
Steinarnir laða að
erlenda ferðamenn
Borgarnes
VERÐ hlutabréfa tók dýfu á mið-
vikudag. Fyrst lækkaði bandaríski
markaðurinn en í kjölfarið lækkuðu
nær allir markaðir heimsins. Það er
helst íslenski markaðurinn sem
ekki varð dýfunnar var, því hér
hækkuðu hlutabréf um 0,3%. Ólíkt
íslenska hlutabréfamarkaðnum hafa
nær allir markaðir heimsins átt í
erfiðleikum síðustu mánuði og fjár-
festar hafa haft fátt til að gleðjast
yfir. Með lækkuninni á miðvikudag
náðu markaðirnir í Bandaríkjunum
lægra gildi en þeir hafa náð í mörg
ár. Nasdaq-vísitalan lækkaði um
2,5% og hefur ekki verið lægri frá
því í maí 1997 og S&P 500 vísitalan
náði lægsta gildi frá því í október
sama ár eftir að hafa lækkað um
3,4% yfir daginn, en S&P 500 er
breið vísitala sem endurspeglar
markaðinn í heild vel.
Í gær rétti Nasdaq aðeins úr
kútnum aftur og hækkaði um 2,11%
auk þess sem smávægileg hækkun
varð á S&P 500 vísitölunni.
Jafnvirði landsframleiðslu Þýska-
lands hefur tapast á árinu
Sé litið á markaðsvirði fyrirtækj-
anna hafa 2.400 milljarðar Banda-
ríkjadala tapast það sem af er
þessu ári, eða sem samsvarar um
fjórðungi landsframleiðslunnar þar
í landi á einu ári. Einnig má líta
þannig á að meira en öll landsfram-
leiðsla Þýskalands í ár hafi tapast á
bandarískum mörkuðum frá ára-
mótum. Wilshire-heildarmarkaðs-
vísitalan bandaríska er breiðasti
mælikvarði á hlutabréf þar í landi
og í lok miðvikudags var hún í
lægsta gildi frá 8. október 1998. Á
mælikvarða þessarar vísitölu náði
markaðurinn hámarki 24. mars
2000, en hefur lækkað um 41% síð-
an, eða um 7.000 milljarða dala að
markaðsvirði. Markaðurinn er nú
metinn á rúma 10.000 milljarða
dala.
Eins og áður sagði fylgdu aðrir
markaðir í kjölfarið, Evrópa lækk-
aði á miðvikudag, en markaðir þar
loka á undan þeim bandarísku.
Markaðir í Asíu eru búnir að loka
þegar þeir bandarísku opna, en við-
brögð á þeim mörkuðum næsta
dag, í gær, létu ekki á sér standa
og allir helstu markaðir þar lækk-
uðu. Lækkunarhrinan hélt áfram í
gær á nær öllum helstu mörkuðum.
Og að þessu sinni fylgdi íslenski
markaðurinn með, þó hann lækkaði
minna en flestir, eða um 0,4%.
Skýringarnar á viðkvæmum
markaði í Bandaríkjunum um þess-
ar mundir eru meðal annars þau
bókhaldsmisferli sem aftur og aftur
hafa verið að skjóta upp kollinum
þar í landi. Á miðvikudaginn var
það Qwest Communications sem
skýrði frá því að það væri í rann-
sókn fyrir ólöglegt athæfi og er tal-
ið að í framhaldi af öðrum bók-
haldshneykslum hafi mál Qwest
haft mikið að segja um að fjárfestar
vildu losa sig út af markaðnum. Í
gær bættist lyfjafyrirtækið Bristol-
Myers við þau fyrirtæki sem verð-
bréfaeftirlitið er að rannsaka, en
ekki liggur fyrir nákvæmlega hvers
vegna grunur hefur fallið á það.
Annað sem hjálpaði við að lækka
bréf á mörkuðum á miðvikudaginn
var að Bank of America lækkaði
spár sínar um væntanlegan hagnað
á hlut fyrir General Motors og
Ford Motor. Þó jákvæðar fréttir
hafi borist frá ýmsum öðrum fyr-
irækjum, til að mynda Yahoo, þá
dugði það ekki til að vega upp á
móti þeim neikvæðu fréttum sem
einkenna nú markaðina.
Mikil óvissa á mörkuðum
Fleiri skýringar eru á þessum
lækkandi hlutabréfavísitölum og
má þar nefna að vikuleg mæling at-
vinnuleysis sýndi að nýskráðum at-
vinnulausum fjölgaði. Önnur skýr-
ing er langvarandi veiking
Bandaríkjadals, sem dregur úr trú
manna á hagkerfinu þar, en að vísu
er lækkun hlutabréfaverðs líka
skýring á lækkun dalsins, því hún
dregur úr fjárfestingum í Banda-
ríkjunum og þar með kaupa útlend-
ingar síður dali. Þarna eru því víxl-
verkandi áhrif sem talið er að eigi
rót sína að rekja til mikils viðvar-
andi viðskiptahalla sem ekki nýtur
lengur stuðnings af því að banda-
rísk hlutabréf séu spennandi fjár-
festing.
En þetta er að vísu ekki alveg
svona einfalt og ekki eru allir þeirr-
ar skoðunar að óskynsamlegt sé að
fjárfesta í Bandaríkjunum nú. Sum-
ir halda því fram að Bandaríkja-
markaður sé nú loks orðinn spenn-
andi á ný fyrir fjárfesta vegna þess
að eftir þá miklu lækkun sem orðið
hafi á markaðnum séu bréfin á hon-
um nú á sanngjörnu verði. Traust
fjárfesta vegur hins vegar enn
þyngra en útreikningar á sann-
gjörnu verði, því þegar traustið á
fyrirtækjunum skortir, og eftir sí-
endurtekin bókhaldshneyksli og
bókhaldssvik er víst að traust fjár-
festa á markaðnum hefur minnkað
mikið, þá er þrátt fyrir verðlækk-
unina ekki víst að fjárfestar telji
bréfin á sanngjörnu verði. Miðað
við áframhaldandi verðlækkun
hlutabréfanna telja fjárfestar
greinilega að enn sé ekki komið
nóg og bréfin verði að lækka enn
meira til að vega upp á móti þeirri
auknu óvissu sem nú er á mark-
aðnum, en helsta skýring hennar er
að öllum líkindum hve mörg fyr-
irtæki hafa orðið uppvís að, eða
liggja undir grun um, að hafa haft
rangt við í upplýsingagjöf til fjár-
festa.
Bandarískir markaðir
í fimm ára lágmarki
!"
#
$%
&#
&'()' *
+,
"-.//
+*0)
1// 1//1
1// 1//1
1// 1//1
1// 1//1
2
+3 *
*
%45*'66%
) 2 " $ + & ) % # % ) )
) 2 " $ + & ) % # % ) )
) 2 " $ + & ) % # % ) )
) 2 " $ + & ) % # % ) )