Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gasol® Heimsendingarþjónusta ÍSAGA nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Heimsendingargjald er kr. 500,- Afgreiðslan Breiðhöfða 11 er opin virka daga frá kl. 8 til 17. 800 5555 Hluti af Linde Gas Group ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 Sími 577 3000 • Fax 577 3001 www.aga.is IS A -2 43 .1 – ÍD E A 199kr. COKE 2 l KOSTAR MINNA BANDARÍKJASTJÓRN hefur fallið frá kröfu sinni um varanlega friðhelgi bandarískra friðargæslu- liða fyrir Alþjóðlega sakamáladóm- stólnum, sem tekur til starfa á næsta ári, og lagt til að þeir verði aðeins friðhelgir í eitt ár. Er þetta veruleg tilslökun af hálfu Bandaríkjastjórnar, sem hafði sætt gagnrýni fjölmargra ríkja vegna afstöðu sinnar, og til- lagan er talin auka líkurnar á því að málamiðlunarsamkomulag náist um málið í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Nokkrir fulltrúanna í öryggis- ráðinu fögnuðu tillögu Bandaríkja- manna en sögðu hana ófullnægj- andi. Margir þeirra voru þó mjög fegnir því að Bandaríkjastjórn væri nú tilbúin að semja um málamiðl- unarlausn. „Við erum allir mjög ánægðir með þá uppbyggilegu afstöðu Bandaríkjamanna að vinna að minnsta kosti með öðrum aðildar- ríkjum,“ sagði Jagdish Koonjul, sendiherra Máritíus. „Þetta er góðs viti, miðað við síðustu tvær vikur, þegar þeir vildu ekki einu sinni ræða Alþjóðlega sakamála- dómstólinn. Ég tel að við séum að ná settu marki.“ Sendiherra Bretlands, Jeremy Greenstock, formaður öryggisráðs- ins, sagði að tillaga Bandaríkja- stjórnar væri „sanngjarnur grunn- ur undir viðræður“ og að málið yrði rætt frekar fyrir luktum dyr- um. Deilt á Bandaríkin á opnum fundi Sendiherra Bandaríkjanna, John Negroponte, bar fram tillöguna eft- ir opinn fund í ráðinu þar sem Bandaríkjastjórn sætti gagnrýni nær 40 ríkja fyrir að krefjast var- anlegrar friðhelgi bandarískra frið- argæsluliða. Aðeins Indland, sem hefur einnig hafnað aðild að dóm- stólnum, studdi afstöðu Banda- ríkjastjórnar. Bandaríkjamenn höfðu hótað að binda enda á friðargæslu Samein- uðu þjóðanna í Bosníu á mánudag- inn kemur ef krafa þeirra yrði ekki samþykkt. Stuðningsmenn saka- máladómstólsins sökuðu Banda- ríkjastjórn um að stofna í hættu friði og stöðugleika víða um heim, frá Balkanskaga og Austur-Tímor til Mið-Austurlanda og Afríku, þar sem Sameinuðu þjóðirnar eru með friðargæslulið. Rannsóknir og lögsóknir verði bannaðar í eitt ár Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur það hlutverk að dæma í mál- um einstaklinga sem grunaðir eru um alvarlegustu glæpi gegn mann- kyninu, það er hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði. Rómarsamþykktin um dómstólinn tók gildi 1. júlí og 76 ríki hafa fullgilt hana. Bandaríkjastjórn berst gegn því að hægt verði að lögsækja banda- ríska hermenn fyrir glæpi sem kunni að verða framdir í ríki sem hefur fullgilt Rómarsamþykktina, þótt Bandaríkin hafi ekki fullgilt hana. Hún óttast að Bandaríkja- menn verði dregnir fyrir dómstól- inn í pólitískum tilgangi, en stuðn- ingsmenn dómstólsins segja að í Rómarsamþykktinni séu ákvæði sem komi í veg fyrir pólitískar lög- sóknir. Samkvæmt nýrri tillögu Banda- ríkjastjórnar verður bannað að hefja „rannsóknir eða lögsóknir“ á hendur friðargæsluliðum frá ríkj- um, sem hafa ekki fullgilt Róm- arsamþykktina, í eitt ár. Stefnt verði síðan að því að framlengja bannið í eitt ár í senn eins lengi og nauðsyn krefji. Orðið friðhelgi er ekki notað í tillögunni. Richard Grenell, talsmaður fastanefndar Bandaríkjanna hjá SÞ, segir að eitt ár sé nægur tími til að kalla bandaríska friðargæslu- liða heim eigi þeir á hættu að verða lögsóttir, þannig að ekki verði hægt að leiða þá fyrir dómstólinn. Bandaríkjastjórn slær af í deilu um Alþjóðasakamáladómstólinn Fallið frá kröfunni um varanlega friðhelgi Leggur til að bandarískir her- menn verði friðhelgir í eitt ár Sameinuðu þjóðunum. AP. RUDOLPH Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, og Donna Hanover hafa náð samkomulagi um skilnað eftir hatrömm mála- ferli sem æsifréttablöð í borginni höfðu gert sér mat úr. Svo virðist sem Giuliani hafi fengið sig full- saddan á fjölmiðlafárinu því hann samþykkti að greiða Hanover að minnsta kosti 6,8 milljónir dala, andvirði tæpra 600 milljóna króna. Dómari í New York féllst á sátt- ina skömmu áður en réttarhöld í málinu áttu að hefjast. Lögfræðingur Hanover, Helene Brezinsky, sagði að samkvæmt samkomulaginu ætti Giuliani að greiða henni 6,8 milljónir dala auk alls kostnaðar hennar af málaferl- unum. Áður hafði dómari gert Giuliani að greiða Hanover and- virði 1,7 milljóna króna á mánuði í barnameðlög og aðrar fastar greiðslur. „Þetta er stórkostlegur sigur fyrir Donnu og börnin,“ sagði Brezinsky og aðrir lögfræðingar tóku undir það. Einn þeirra sagði þetta „hrikalega góðan samning“ fyrir Hanover. „Hún hefði aldrei fengið svona mikla peninga ef hún hefði haldið málaferlunum áfram.“ Giuliani óskaði eftir skilnaði 20. október 2000 og sakaði Hanover um „grimmd og miskunnarleysi“. Hanover sagði hins vegar að „ódul- ið og alræmt framhjáhald“ hans væri ástæða hjúskaparslitanna. „Þetta er mjög sorglegur dagur en ég finn líka til mikils léttis,“ sagði Giuliani. Reuters Rudolph Giuliani ásamt Donnu Hanover er allt lék í lyndi. Skilnaður- inn varð Giuliani dýrkeyptur New York. AP. SLÖKKVILIÐSMAÐUR sagar í sundur tré sem féll á bíl í Berlín í fyrrinótt. Tvö ungmenni létust á eyju í stöðuvatninu Wannsee er tjöld þeirra urðu undir trjám sem brotn- uðu í ofsaveðri sem skall óvænt á í Berlín og nágrenni. Alls létust sjö manns af völdum veðursins. Vindur fór í 42 metra á sekúndu og fengu lögregla og sjúkralið borg- arinnar yfir tvö þúsund beiðnir um hjálp. Veðurfræðingar höfðu spáð því síðdegis á miðvikudag að vindur yrði mikill, en engin bjóst við því óveðri sem dundi yfir. Segja borg- arstarfsmenn þetta vera versta veð- ur sem komið hafi í borginni í þrjá- tíu ár. AP Sjö létust í óveðri í Berlín MARGIR íbúa japönsku borg- arinnar Ogaki þurftu að flýja heimili sín vegna flóða í gær og komu björgunarmenn á bátum þeim til aðstoðar. Að minnsta kosti fjórir Japanir létu lífið af völdum flóða og storms, leifa fellibyls sem gekk yfir eyjar í Kyrrahafi og kostaði að minnsta kosti 170 manns lífið í Míkrónesíu og á Filippseyjum. Um það bil 165.000 manns þurftu að flýja heimili sín vegna flóðanna í Japan. Vatn flæddi inn í nær 2.000 hús og ár tóku með sér að minnsta kosti sjö brýr sem hrundu í vatnavöxtunum. Skriður féllu á 347 stöðum. Tveir skóladrengir og tveir aldraðir Japanar fórust. Fjög- urra til viðbótar var saknað. Mann- skaðaveð- ur í Japan Tókýó. AP, AFP. FORSETI Suður-Kóreu, Kim Dae- Jung, skipaði í gær nýjan forsætis- ráðherra í uppstokkun hans á rík- isstjórn landsins. Nýi forsætisráð- herrann, Chang Sang, sem er fyrsta konan til að gegna þessu embætti í Suður-Kóreu, er 62 ára gömul og hefur ekki hingað til látið mikið að sér kveða í stjórnmálum. Alls voru sex ráðherrar látnir taka pokann sinn í uppstokkuninni. Talsmaður forsetans segir skipun Sangs bera vott um aukinn þátt kvenna í samfélagi landsins á tuttug- ustuogfyrstu öld- inni. Hann sagði einnig að forsetinn beri mikið traust til hennar þar sem hún sé ekki einung- is fræðimaður og kennari heldur hafi hún einnig sýnt stjórnunarhæfi- leika í sínu fyrra starfi sem skóla- stjóri kvennaháskóla. Kona forsætisráð- herra Suður-Kóreu Seoul. AFP. Chang Sang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.