Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 57
STJÖRNUKISI varð til árið 1996.
Meðlimir höfðu þá verið í hinum
ýmsu rokksveitum fram að því, en
helsti undanfari Kisans var sveitin
Silverdrome. Hin nýstofnaða sveit
sigraði svo glæsilega í Músíktilraun-
um 1996 og sama ár kom út forláta
þriggja laga tíutomma, hvít að lit,
sem nefnist Veðurstofan. Í kjölfarið
fóru meðlimir að týna tölunni en árið
1997 kom stuttdiskurinn Geisla-
veisla út. Árið 1999 kom út smáskífa
með laginu „Flottur sófi“ ásamt end-
urhljóðblöndunum á nefndu lagi. Og
síðan – ekkert. Þar til nú að fyrsta
breiðskífan lítur dagsins ljós.
Plötur sem aldrei koma út
Til að ræða þessi tímamót eru
komnir til viðtals þeir Bogi Reynis-
son bassaleikari, Gunnar Óskarsson
gítarleikari og Úlfur Chaka Karls-
son söngvari. Aðrir í sveitinni eru
þeir Gísli Már Sigurjónsson sem
leikur á gítar og hljómborð og Ari
Þorgeir Steinarsson trymbill.
Það hefur verið beðið eftir plöt-
unni nýútkomnu um nokkurt skeið
og því eðlilegast að inna viðstadda
eftir skýringum. Bogi verður fyrir
svörum.
„Platan byrjaði að verða til er við
ákváðum að byggja eigið hljóðver
(sem heitir Veðurstofan, í höfuðið á
tíutommunni góðu). Sú vinna hófst
fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári. Við rák-
um endahnútinn á þá byggingu með
því að taka upp plötu. Við tókum
hana upp í desember á síðasta ári.
Úlfur fór svo út til Spánar og hefur
verið þar lungann af árinu. Á meðan
krukkuðum við í lögunum – með
góðri hjálp Netsins. Ég og Swell,
svissneski upptökumaðurinn okkar,
vorum í Sviss; Úlfur á Spáni og rest-
in heima á Íslandi.“
Stjörnukisi hefur gengið í gegnum
nokkrar mannabreytingar í gegnum
tíðina, og hafa t.a.m. ófáir barið húðir
hjá sveitinni.
„Við byrjuðum með tuttugu í
hljómsveitinni,“ segir Úlfur, og held-
ur þann sið í heiðri að rokkurum beri
ávallt að svara með útúrsnúningi og
spaugi. „Þeir hafa svo smám saman
verið að tínast út!“
Bogi segir plötuna nýju vissulega
hafa verið lengi í gerjun.
„En lögin eru öll ný. Þetta er ekki
gamla efnið okkar sem er búið að
vera að safnast saman í mörg ár. Það
má frekar segja að við höfum misst
af tveimur plötum sem komu aldrei
út (kímir). Og þær eru bara farnar
og koma aldrei út.“
Pukur
Þeir félagar gefa lítið út á framtíð-
aráætlanir, nú þegar þessi áfangi er í
höfn.
„Núna er bara þessi plata í hausn-
um á okkur og við ætlum að sinna
henni næstu tvo, þrjá mánuði,“ segir
Bogi. „Við erum byrjaðir að pukrast
aðeins með nýtt efni, og næsta plata
verður allt öðruvísi en þessi. Þá ætl-
um við að nýta okkur hljóðverið í
botn.“
Hljóðverið er rekið sem almennt
hljóðver, og tónlistarmenn eiga þess
kost að taka þar upp.
„Það hefur vantað svona hljóðver
á Íslandi,“ segir Bogi. „Hljóðver með
sæmilegan metnað sem er ekki fá-
ránlega dýrt.“
„Það er líka mikilvægt að þeir sem
eru að taka upp geti tengst þeim sem
eru að vinna með þeim,“ segir Gunn-
ar.
Að lokum er aftur vikið að plöt-
unni nýju. Bogi segir að þeir hafi lent
fremur snemma á þeirri hugmynd
sem á bak við hana stendur.
„Þetta er í rauninni beint fram-
hald af fyrstu útgáfunni af Stjörnu-
kisa, það er sú sveit sem vann Mús-
íktilraunir,“ segir Bogi. „Eftir þær
tókum við algera u-beygju en fórum
svo í raun heilhring og lentum aftur
á sama stað, að gera harða rokktón-
list eftir okkar höfði, sem hefur aug-
ljós höfundareinkenni okkar.“
Stjörnukisi heldur útgáfutónleika
í kvöld í Iðnó til að fagna útgáfunni.
Stundin
er runnin
upp
Hljómsveitin Stjörnu-
kisi er tilbúin með
fyrstu breiðskífuna sína,
Góðar stundir. Arnar
Eggert Thoroddsen
kannaði þetta mál.
Morgunblaðið/Arnaldur
Stjörnukisi á góðri stundu: (f.v.) Gunnar Óskarsson, Úlfur Chaka Karls-
son, Gísli Már Sigurjónsson og Bogi Reynisson. Á myndina vantar
„tromm“Ara Þorgeir Steinarsson sem var vant við látinn.
arnart@mbl.is
Stjörnukisi gefur út Góðar stundir
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
1/2kvikmyndir.com
Radíó X
Rás 2 1/2HK DV
Sýnd kl. 8. B.i 16.
Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.
Þegar pabbinn neitar að borga enn eitt
skólaárið fyrir son sinn, tekur partýdýrið
Van til sinna ráða...
Sýnd kl. 10.10.
Sýnd kl. 6 og 10.
1/2
kvikmyndir.is
kvikmyndir.is
Framhjáhald getur verið
spennandi en líka
stórhættulegt. Magnaður
erótískur spennutryllir
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
SV.MBL
HK.DV
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 8.
Martin Lawrence er trítilóður og tímavilltur
Í fyndnustu mynd ársins
...í topp
formi.
Ótrúleg bardagaatriði.
Slagsmál og grín.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 400
FRUMSÝNING
Sandra Bullock í spennumynd
sem tekur þig heljartaki!
Þeir búa til leik
sem hún þarf að
leysa.. takmarkið
er hinn fullkomni
glæpur.
Úr smiðju Jerry Bruckheimer (ConAir, The Rock) kemur þessi
magnaða sumarsprengja undir leikstjórn Joel Schumacher.
(Batman, Forever, 8mm)
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Vit 393.
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd í lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Vit 400
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 395.
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
SG DV
18 þúsund áhorfendur
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 393.
HL Mbl
Sýnd kl. 3.45. Ísl. tal. Vit 389.Sýnd kl. 3.45. Íslenskt tal. Vit 358.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 398
1/2
Kvikmyndir.is
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
SÍMI 587-8900 ÁLFABAKKI www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
38
ÞREP
ÚTSALA
opið frá 10-18 / laugavegi 49 / sími 561 5813