Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.07.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur svarað erindi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) þar sem félagið gerði athugasemd við hversu auðvelt væri fyrir flugmenn frá löndum utan Evrópska efna- hagssvæðisins að fá útgefin leyfi til að fljúga ís- lenskum flugvélum. Í svari ráðuneytisins segir að berist íslenskum flugmálayfirvöldum beiðni um fullgildingu erlendra skírteina sé þeim „skylt að af- greiða þær á jafnréttisgrundvelli og óheimilt er að mismuna eftir þjóðerni.“ Í erindi FÍA var bent á að tugir íslenskra at- vinnuflugmanna væru án atvinnu og var spurt hvort rétt væri að draga úr slíkum fullgildingum á meðan það ástand varði. Í svari ráðuneytisins kem- ur fram að við fullgildingu þjóðarskírteina sem gef- in voru út innan EES-svæðisins sé farið eftir reglu- gerð um gagnkvæma viðurkenningu á flugstarfaskírteinum sem gefin eru út á svæðinu. Þegar um fullgildingu á skírteinum útgefnum af ríkjum utan Flugöryggissamtaka Evrópu (JAA) sé að ræða, gildi reglugerð útgefin af Flugmálastjórn Íslands. Óeðlilegt að Flugmálastjórn gefi út atvinnuleyfi Jóhann Þ. Jóhannsson, formaður FÍA, hafði ekki séð svarið þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. „Eins og horfir við núna er búið að segja hátt í 50 flugmönnum hjá Flugleiðum upp frá því í fyrra- haust. Margir þeirra hafa haldið vinnunni en liðlega 20 úr þeirra hópi hafa ekki fengið vinnu hjá Flug- leiðum aftur og eru í vinnu annars staðar.“ Hann segir að þeir hafi þurft að ráða sig á samninga sem gerðir séu við erlendar áhafnaleigur, t.d. hjá flug- félaginu Atlanta. Það séu engan veginn jafn góðir samningar. Þegar íslensk flugmálayfirvöld gefi út íslenskt flugskírteini geti viðkomandi flugmenn sjálfkrafa farið að vinna á flugvélum skráðum á Íslandi. „Ég hef t.d. amerískt flugskírteini, en get ekki farið til Ameríku og farið að fljúga. Ég verð að fá atvinnu- leyfi til að geta unnið þar.“ Jóhann segir að félagið muni nú senda fyrirspurn til félagsmálaráðuneytis- ins og Vinnumálastofnunar og spyrja hvort það sé með vitund þeirra að Flugmálastjórn gefi út at- vinnuleyfi til þegna utan EES-svæðins. Fyrst leitað til íslenskra flugfélaga FÍA óskaði einnig í erindi sínu til samgönguráðu- neytisins eftir upplýsingum um flug milli Íslands og Karíbahafsins með tékkneska leiguflugfélaginu Travelservice, á vegum ferðaskrifstofunnar Heims- ferða. Í svari ráðuneytisins segir að leiguflugið sé háð leyfi Flugmálastjórnar og að stofnuninni hafi hvorki borist umsókn Travelservice né söluaðila þeirra hér á landi til þessa flugs. Andri Már Ingólfs- son, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir að verið sé að ganga frá umsókninni, hún ætti að berast Flugmálastjórn í lok þessa mánaðar, en ferðirnar hefjast ekki fyrr en í nóvember. „Travelservice hef- ur flogið fyrir okkur í tvö ár þannig að Flugmála- stjórn þekkir vel til flugfélagsins. Það hefur flutt um 8.000 Íslendinga til Prag,“ segir Andri Már. Hann segir að fyrst hafi verið leitað eftir að fá flug með íslenskum aðilum í Karíbahafið en hvorki Flugleiðir né Atlanta hafi getað leyst verkefnið. „Í þeim tilfellum þegar enginn íslenskur aðili getur veitt þessa þjónustu er venjan sú að leita annarra aðila sem geta leyst verkefnin af hendi.“ Aðspurður hvort hann telji óeðlilegt að ákveðnar ferðir séu auglýstar áður en búið er að fá leyfi fyrir fluginu segir Andri Már að það sé vel þekkt í ferða- geiranum. „Ef við fengjum ekki leyfi fyrir þessu flugi myndum við einfaldlega fá annað flugfélag til að leysa þetta flug af hendi. Flugáætlanir eru oft auglýstar áður en búið er að ganga frá endanlegum umsóknum til flugmálayfirvalda. Það er vel þekkt úti um allan heim.“ Ef um væri að ræða flugfélag sem Flugmálastjórn þekkti ekki til væri hins vegar eðlilegt að sækja um leyfi áður en byrjað er að aug- lýsa ferðirnar. Flugmálayfirvöldum óheimilt að mismuna eftir þjóðerni Svar samgönguráðuneytis við erindi Félags íslenskra atvinnuflugmanna SJÓMANNASAMBAND Íslands telur óviðunandi að varðskipinu Óðni verði lagt og segir jafnframt ljóst að Landhelgisgæslan þurfi meiri fjár- muni til þess að geta sinnt hlutverki sínu sem skyldi. Hjá Landssambandi íslenskra út- vegsmanna (LÍÚ) kveður að vissu leyti við annan tón. Þar á bæ telja menn löngu orðið tímabært að fara yfir hlutverk og starfsemi Landhelg- isgæslunnar frá grunni, ekki sé verið að verja landhelgina að sama marki fyrir útlendingum og áður var og þá þurfi einnig að hafa hliðsjón af því að verkefni Fiskistofu og Gæslunnar skarist töluvert. Of lítið að vera með tvö varðskip Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands, segir að Sjómannasambandið vilji að Gæslan sé sem öflugust og þá ekki síst út frá öryggissjónarmiðum. „Mér finnst of lítið að vera með tvö varðskip því það hefur sýnt sig við gæslustörf, eins og t.d. á Reykjaneshryggnum og vegna loðnuveiða, og síðan sér í lagi við björgunastörf, að það veitir ekki af því að menn ráði yfir þremur skip- um. Það eru auðvitað aldrei nema tvö skip á sjó í einu og eftir breyt- inguna yrði bara eitt skip á sjó og stundum kannski ekki neitt. Mér finnst þetta koma til viðbótar við það að gæslunni séu ekki einu sinni út- vegaðir fjármunir til að koma nætur- sjónauka í þyrluna og það verði ekki gert öðruvísi en með söfnunum. Þetta er alveg óviðunandi með öllu og Gæsluna vantar greinilega meiri fjármuni.“ Sævar bendir á að hlutverk Gæsl- unnar sé nokkuð víðfeðmt, þ.e. hún sjái um löggæslu á sjó, slysavarnir og öryggismál. „Gæslan gerir t.d. skyndiskoðanir á skipum og fer um borð í þau og skoðar ástand þeirra og öryggismál um borð. Það veitir að- hald sem gerir það að verkum að menn hafa hlutina í lagi. Við erum því mjög ósáttir við að það skuli eiga að hverfa frá þessu.“ Uppstokkun trúlega nauðsynleg Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segist vera þeirrar skoðunar að það sé nauðsyn- legt að fara rækilega yfir hlutverk Landhelgisgæslunnar og starfsemi hennar frá grunni, sérstaklega varð- andi veiðieftirlit og þá einnig í tengslum við starfsemi Fiskistofu. Starfsemi Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu skarist að verulegu leyti þótt ákveðin samvinna sé þar á milli. Þetta sé verkefni sem þurfi að ráðast í strax. „Ég tek hins vegar fram,“ segir Friðrik, „að það er auðvitað ekki hægt að segja að þótt það hafi verið þrjú varðskip fyrir 30 árum þurfi svo að vera um aldur og ævi.“ Friðrik bendir á að margt hafi breyst á þessum þremur áratugum; á sínum tíma hafi menn verið að verja landhelgina fyrir útlendingum en það sé gerbreytt núna og erlend skip yfirleitt aðeins á afmörkuðum svæðum á afmörkuðum tímum. „Þá erum við með sjálfvirka tilkynninga- skyldu núna, við erum með Fiski- stofu sem ekki var til, þar sem fjöldi manns starfar. Og auðvitað er það dálítið undarlegt að menn skuli kannski eltast við trillur á varðskip- um með 18 til 20 manna áhöfn. Mín skoðun er því sú að það þurfi að fara heildstætt í þetta og væntanlega stokka allt upp.“ Hugmyndir dómsmálaráðuneytis um að leggja varðskipinu Óðni Nauðsynlegt að fara yfir hlut- verk Gæslunnar frá grunni HJÓLBÖRUR eru til margs brúk- legar og nýtast auðveldlega sem hægindastóll ungum og þreyttum erfiðismanni. Það var samt enga sorg eða sút að sjá í andlitum erf- iðismannanna í þessum unglinga- vinnuflokki sem tók sér miðdegis- pásu við Miklubraut í góða veðrinu. Vinnutíminn er frá níu til hálf- fjögur og þau segja þetta stundum vera nokkuð harða vinnu og lítt skemmtilega í úrhellisrigningu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lúnir erfiðismenn FULLTRÚARÁÐ Sambands íslenskra sparisjóða hefur sent frá sér ályktun um framtíð sparisjóðanna þar sem fram kemur að yfirtökutilboð fimm stofnfjáreigenda í SPRON sé ógnun og aðför að starfsemi og tilvist sparisjóðanna í landinu. Fundur fulltrúaráðsins í gær lýsti yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem fram koma í ályktun stjórnar sam- bandsins frá 27. júní sl. Segir að yfirtökutilboð fimm stofn- fjáreigenda í SPRON sé ógnun og aðför að starfsemi og tilvist sparisjóðanna í landinu. Þá segir m.a. í ályktuninni: „Fulltrúaráðið leggur þunga áherslu á að Alþingi hefur á síðustu árum ítrekað lýst vilja sínum til þess að styrkja og efla sparisjóðina sem einn af hornsteinum fjármálaþjónustu í landinu. Það var skýr vilji löggjafans að viðhalda tilgangi sparisjóðanna og sérstökum tengslum þeirra við starfs- svæði sín. Um leið voru þeim opnaðir möguleikar á að efla eiginfjárstöðu sína m.a. með breytingu yfir í hlutafélags- form ef þeir sæju sér hag í því. Þau viðskipti með stofnfjár- bréf sem gert er ráð fyrir í til- boði Búnaðarbankans og nokk- urra einstaklinga til stofn- fjáreigenda í SPRON eru í beinni andstöðu við lagafyrir- mæli, sem leggja bann við því að stofnfjárbréf séu keypt eða seld nema á fyrirfram ákveðnu verði er miðast við endurmetið nafnvirði þeirra samkvæmt verðlagsvísitölu. Nái þessi at- laga fram að ganga er þeirri hættu boðið heim að umtals- verður hluti eiginfjár spari- sjóðanna hverfi á næstu mán- uðum úr samfélagseign um leið og viðskiptabankarnir munu öðlast yfirráð yfir margfalt meiri fjármunum í sparisjóða- kerfinu en greitt er fyrir. Sú niðurstaða væri með öllu óvið- unandi.“ Ógnun og aðför að starfsemi sparisjóð- anna MEÐALTALSSALA Morgunblaðs- ins á dag frá janúar til júní var 53.916 eintök, samkvæmt upplags- eftirliti Verslunarráðs Íslands, en var 54.963 á sama tíma í fyrra. Upplagseftirlit VÍ annast einnig eftirlit og staðfestingu upplags prentmiðla fyrir útgefendur, sem eftir því óska og gangast undir eft- irlitsskilmála. Trúnaðarmaður eftir- litsins er löggiltur endurskoðandi. Morgunblaðið er eina dagblaðið sem nýtir sér þessa þjónustu. Meðaltalssala Morgunblaðs- ins 53.916 ein- tök á dag BÚIÐ er að opna Dyngjufjallaleið og þar með eru allir hálendisvegir í um- sjón Vegagerðarinnar opnir. Upplýsingar um opnun fjallvega birtast á kortum Vegagerðarinnar og Náttúruverndar ríkisins og eru þau birt á fimmtudögum meðan ein- hverjir fjallvegir eru lokaðir. Einnig veitir þjónustudeild Vegagerðarinn- ar (s. 1777) nánari upplýsingar um ástand vega. Allir hálendis- vegir opnir ♦ ♦ ♦ HELGI Jóhannesson, lögmað- ur Fréttablaðsins, segir ekki rétt að DV hafi höfðað mál gegn Fréttablaðinu. Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Óla Birni Kárasyni, aðalritstjóra og einum eigenda útgáfufélags DV, að DV hefði stefnt Fréttablaðinu og rit- stjórum blaðsins fyrir að hafa notað ljósmyndir DV án leyfis. Þegar Fréttablaðið hefði farið af stað hefði verið gerður samn- ingur þess efnis að DV sinnti ljósmyndun fyrir Fréttablaðið en DV hefði rift samningnum um sl. áramót þar sem engin greiðsla hefði borist og krafist væri tæplega 19 milljóna króna í bætur. Helgi segir að hvorki hafi verið birt stefna né þing- fest mál. Notkun Fréttablaðs- ins á myndunum hafi verið byggð á samningi sem kunni að vera túlkunaratriði og þá verði tekið á því. Ekki höfðað mál enn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.