Morgunblaðið - 18.07.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.07.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 13 Í GREINARGERÐ sem vinnuhópur um varðveislu og frágang fornminja við Aðalstræti hefur sent borgarráði kemur meðal annars fram að gert er ráð fyrir að hefja fornleifauppgröft í Víkurgarði í haust og megi búast við að leifar eldri kirkjubygginga sé að finna í vestasta hluta garðsins. Er- indinu var frestað á borgarráðsfundi í síðustu viku en borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram bókun þar sem meðal annars er vikið að uppgreftri í Víkurgarði. Segir þar að saga Aðalstrætis sé afar merkileg og einstök í miðri höfuðborg og haga beri öllu skipulagi með tilliti til þess að þar hafi minjar um elstu byggð í Reykjavík fundist. „Víkurkirkjugarður er mikilvæg- ur hluti minjaheildar í Aðalstræti. Það er óvirðing við garðinn og rask- ar meginmarkmiðum eðlilegrar minjavörslu á svæðinu að ráðast þar í framkvæmdir vegna aðgengis að fornminjum sem hafa fundist við Að- alstræti,“ segir þar. Þá segir að það hljóti að vera álita- mál hvort það falli að markmiðum minjavörslu á þessum merka stað að reisa þar ný hús í dulargervi gamalla húsa. Þá ítreka borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fyrri tillögur sínar um að leitað verði fleiri hugmynda um varðveislu og sýningu fornminja í Aðalstræti. Í bókun Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, vegna sama máls er vísað í tillögu um endurskoð- un deiliskipulags suðausturhluta Grjótaþorps þar sem Ólafur óskar eftir að áhersla verði lögð á verndun fornminja og aðgengi að þeim, sem hafi forgang í skipulaginu en ekki þarfir hótelbyggjenda og fram- kvvæmda á þeirra vegum. Nauðsynlegt að grafa til að svæðið teljist fullkannað Í bréfi sem Guðný Gerður Gunn- arsdóttir borgarminjavörður ritar borgarráði segir að ljóst sé að til þess að svæðið umhverfis rúst land- námsskála teljist fullkannað þurfi að grafa frekar til austurs undir götu- stæði Aðalstrætis. Í áætlunum um uppbyggingu á lóðunum sé gert ráð fyrir að taka þurfi upp götuna og þá þurfi að rannsaka það svæði. Á heimasíðu Reykjavíkurpró- fastsdæma er saga kirkjugarða í Reykjavík rakin í stuttu máli. Segir þar um kirkjugarðinn við Aðalstræti að kirkja hafi risið við höfðingjasetr- ið í Reykjavík eftir að kristni var innleidd á Þingvöllum árið 1000. Tal- ið er að Þormóður sonur Þorkels mána hafi látið reisa kirkju framan við bæ sinn og gert grafreit um- hverfis hann. Staður þessi var þar sem nú er horn Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Segir þar að Víkur- garður hafi síðar verið nefndur Fóg- etagarðurinn og hann hafi enst Reykvíkingum í rúm 800 ár. Var hann 40x80 metrar að flatarmáli þegar hætt var að nota hann árið 1838. Þá segir þar að ætla megi að jarðneskar leifar 30 kynslóða Reyk- víkinga hvíli í garðinum. D-listi leggur fram bókun vegna uppgraftar í Víkurgarði Segja framkvæmdirnar óvirðingu við garðinn Morgunblaðið/Sverrir Gamli kirkjugarðurinn við Aðalstræti hafði enst Reykvíkingum í rúm 800 ár þegar hætt var að nota hann árið 1838. Ætla má að jarðneskar leifar 30 kynslóða Reykvíkinga hvíli í garðinum. Reykjavík FRAMKVÆMDIR standa nú yfir vegna undirbúnings að gerð hring- torgs á Vesturlandsvegi skammt frá Skálatúni. Framkvæmdir hófust síð- astliðið haust en ráðgert er að hringtorgið verði tilbúið í byrjun október. Hámarkshraði á vegarkafl- anum er nú 50 km/klst. en brögð hafa verið að því að ökumenn aki vel yfir hámarkshraða um svæðið. Þorsteinn Sigvaldason, deild- arstjóri tæknideildar hjá Mos- fellsbæ, segir verkið hafa tekið jafn langan tíma og raun ber vitni þar sem ákveðið hafi verið að hafa ekki jarðvegsskipti í vegstæðinu heldur ná fram langtíma sigi með fargi. Hann segir að fargið þurfi að vera að lágmarki þrjá mánuði ofan á götunni til að ná fram réttu sigi. Síðastliðið haust var sigi náð sunnan megin við Vesturlandsveg. Eftir áramót var fargið flutt yfir norðan megin við brautina og er ráðgert að fargið þurfi að standa til 1. september. Þegar því er lokið verður mölin flutt á brott og hring- torg útbúið en áætluð verklok eru 1. október n.k. Búið er að ganga frá samkomulagi við Íslenska að- alverktaka um lokafrágang hring- torgs að sögn Þorsteins. Hann segir brögð að því að öku- menn aki á allt að 70 - 80 km hraða um svæðið. Vel sé frá svæðinu geng- ið og augljóst að einhverjir notfæri sér það. Hann undirstrikar þó að skýrt sé kveðið á um leyfilegan há- markshraða við framkvæmd- arsvæðið. Framkvæmdir við Vesturlandsveg Unnið að gerð nýs hringtorgs Morgunblaðið/Sverrir Brögð eru að því að ekið sé vel yfir leyfilegum hámarkshraða á svæðinu. Mosfellsbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.