Morgunblaðið - 18.07.2002, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 63
DAGBÓK
Tilboðsdagar
10-70% afsláttur
Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu
Barnamyndatökur verð frá kr. 6.000
Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma,
aðrar stækkanir að eigin vali,
með allt að 50% afslætti
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Tilboð í júlí og ágúst
Nýjar vörur daglega
PAS kvenbuxur st. 36-56 .......verð kr. 1.990
FRANSA kvenbolir ...........verð kr. 600-900
VILA kvenpeysur ..........verð kr. 700-1.500
herrabuxur .........verð kr. 500-1.500
GABBA herrapeysur .......verð kr. 700-1.500
herrajakkaföt ....verð kr. 3.900-7.900
STÓRMERKJAVARASTÓRÚTSALAN
Opið virka daga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Heildsölulagersalan
Laugavegi 82 Nýtt
kortatím
abil
Kringlunni, sími 553 2888
Útsalan
í fullum gangi
Meiri verðlækkun
NÝTT KORTATÍMABIL
Ottó Guðjónsson
lýtalæknir
Hef opnað stofu í Læknahúsinu, Domus Medica sími 563 1060 og
Læknasetrinu, Þönglabakka 1 sími 567 7700
ÍSLAND mætti Ísrael í
töfluleik í 16. umferð EM, en
þá lágu þjóðirnar hlið við
hlið í 7 og 8. sæti. Ísraelar
náðu strax góðri forystu
þegar legan reyndist þeim
hagstæð í tveimur slemmu-
spilum og unnu leikinn 24-6.
Bjarni Einarsson vakti
undrun töfluskýrenda og
jafnvel nokkra aðdáum fyrir
baráttugleði sína í þessu
spili leiksins:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K765
♥ DG
♦ G10743
♣87
Vestur Austur
♠ D32 ♠ 984
♥ 104 ♥ Á8752
♦ K ♦ 9652
♣ÁKD5432 ♣10
Suður
♠ ÁG10
♥ K963
♦ ÁD8
♣G96
Á báðum borðum vakti
suður á 15-17 punkta grandi
í annarri hendi.
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Podgur Stefán Kalish Steinar
-- -- Pass 1 grand
Pass ! Pass Pass
Pass vesturs er skynsam-
legt á þessum hættum og
Ísraelar uppskáru 200 fyrir
vörnina í einu grandi. Þröst-
ur Ingimarsson sagði líka
pass á hinu borðinu, en þar
átti Bjarni eftir að tjá sig:
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Þröstur Aviram Bjarni Barel
-- -- Pass 1 grand
Pass ! Pass 2 tíglar !? Pass
3 lauf Pass Pass Pass
Innákoma Bjarna sýndi
kerfisbundið tígul og hálit.
Þröstur hafði aðeins áhuga á
einum lit og sagði þrjú lauf.
Það var ekki sú þróun sagna
sem Bjarni hafði í huga, en
hann passaði og var bæði
feginn og undrandi þegar
enginn doblaði. En Þröstur
komst ekki hjá því að gefa
fimm slagi og Ísraelar fengu
50 og 6 IMPa fyrir spilið.
En það verður seint sagt
um Bjarna að hann sé hug-
laus spilari.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
LÍFSKJÖR SKÁLDSINS
Athvarfið mitt er: óhreyft ból,
úrræði: gráturinn,
myrkur hússins: mín sálarsól,
sætleiki: skolturinn,
aðalmeðulin: örvænting,
andgiftin: freistingar,
leirpollavatnið: lífhressing,
læknirinn: þjáningar,
huggunartölur: hræsni og spé,
hjúkrunin: þögn og fúllynde,
trúnaðarstyttan: tálgirðing,
tilfluktið: dómurinn,
framfærsluvonin: foreyðing,
fyrirheit: rotnunin.
Vinirnir sitja sjúkan kring:
Satan og veröldin.
Bólu-Hjálmar
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir hugrekki þótt
þú farir leynt með það og
metnaði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert óviss hvernig þú eigir
að deila einhverju með vini í
dag, hvort sem það eru pen-
ingar, ábyrgð eða sameigin-
leg eign. Spurðu sjálfa(n) þig
hvað sé sanngjarnt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnst þú þurfa að fela
eitthvað fyrir yfirmanni eða
manneskju í valdastöðu í dag.
Ekki hafa samviskubit, við
þurfum öll að eiga leyndar-
mál á stundum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú myndir vilja vera alls stað-
ar annars staðar en í vinnunni
í dag. Þú vilt flýja skyldurnar
og vanann svo þú getir notið
ævintýra og skemmtunar
annars staðar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú nýtur þess að láta þig
dreyma um einhvern á róm-
antískan hátt í dag. Hvort
sem draumar þínir snúast um
Cary Grant eða Audrey
Hepburn, Brad Pitt eða
Jennifer Lopez, þá langar þig
að flýja til draumaheima.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þrátt fyrir eðlislæga leiðtoga-
hæfileika þína ertu ótrúlega
trúgjörn manneskja á stund-
um. Láttu ekki blekkjast í
dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er ekki heiðarlegur
við þig í dag í vinnunni. Sýndu
þessari manneskju umburð-
arlyndi því að hún gæti verið
að reyna að fela eigin mistök.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er auðvelt að blekkja
sjálfa(n) sig þegar mann
langar að einhver sé hrifinn
af manni. Gættu þín að vera
heiðarleg(ur) við sjálfa(n) þig
í dag því annars verður þú
fyrir vonbrigðum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú skalt tala skýrt við alla í
fjölskyldunni í dag. Hætta er
á ruglingi og blekkingu í
einkalífi þínu í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn í dag er afleitur til
að samþykkja eitthvað mikil-
vægt eða að skrifa undir
samning.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til að kaupa eitt-
hvað sem styður draumóra
þínu um það hver þig langar
til að vera.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er hætt við að þú hverfir
inn í draumaheima í dag og
gleymir raunveruleikanum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér er eðlislægt að verja
meiri tíma til dagdrauma en
flestir aðrir. Þar sem allir eru
í draumaheimum í dag, þá ert
þú nánast uppi í skýjunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6. Be2 e5
7. O-O Rc6 8. d5 Re7 9. b4
Rh5 10. He1 f5 11. Rg5 Rf6
12. Bf3 c6 13. Db3 Kh8 14.
Hd1 fxe4 15. Rcxe4 cxd5 16.
cxd5 Rf5 17. Bb2 Rxe4 18.
Rxe4 Rh4 19. Be2 Hf4 20. f3
Db6+ 21. Kh1 Bf5 22. Bd3
Hf8 23. Bc1
Staðan kom upp á
öðru bikarmóti
FIDE sem lauk fyrir
skömmu í Moskvu.
Rustam Kasimdzha-
nov (2674) hafði
svart gegn Etienne
Bacrot (2653).
23...Rxg2! 24. Kxg2
24. Bf4 kom til álita
en færi svarts fyrir
skiptamuninn eru þó
umtalsverð eftir
24...Rxf4. Í fram-
haldinu reynist sókn
svarts of þung.
24...Hxf3! 25. Dc4 Ekki
gekk upp að leika 25. Kxf3
þar sem eftir 25...Bxe4 yrði
hvítur mát. 25...Hxd3 26.
Hxd3 Hc8 27. Dxc8+ Bxc8
28. Bd2 Bf5 29. He1 Db5 30.
Hde3 Dxd5 31. Bc3 Bh6 32.
H3e2 Dd3 33. Ba1 Bxe4+
34. Hxe4 Kg8 35. Bxe5 dxe5
36. Hxe5 Bf8 37. b5 Bd6 38.
He8+ Kf7 39. H8e4 Dxb5
40. h4 Dd5 41. H1e2 b5 42.
Kf1 b4 43. H4e3 Dh1+ 44.
Kf2 Bc5 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 18.
júlí, er sextugur Erling
Ólafur Sigurðsson, hesta-
maður, Hraunbæ 24,
Reykjavík. Erling og eigin-
kona hans, Kolbrún Frið-
riksdóttir, taka á móti vin-
um og vandamönnum
föstudaginn 19. júlí í Félags-
heimili Fáks í Víðidal frá kl.
20–23.
80 ÁRA afmæli. N.k.laugardag 20. júlí er
áttatíu ára Ingibjörg Árna-
dóttir frá Odda í Borgar-
firði eystra, nú til heimilis
að hjúkrunarheimilinu
Garðvangi, Garði. Af því til-
efni tekur hún og fjölskylda
hennar á móti gestum á af-
mælisdaginn 20. júlí frá
kl.16–18 í samkomusal
Garðvangs í Garði.
BRÚÐKAUP. Hinn 6. apríl
sl. voru gefin saman í hjóna-
band í Sydney þau Kristín
Helga Þorsteinsdóttir og
dr. Volker Metzler. Þau eru
búsett í Þýskalandi.
Morgunblaðið/Emilía
Þessir duglegu drengir söfnuðu flöskum og gáfu andvirði
þeirra, 1.208 kr., til styrktar Rauða krossi Íslands. Þeir
heita Atli Óskar Fjalarsson og Bjarki Þór Arnarsson.
Hlutavelta
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
NESTISKÖRFUR
2ja og 4ra manna körfur
frá kr. 8.500 án fylgihluta
frá kr. 22.900 með öllu