Morgunblaðið - 18.07.2002, Side 68

Morgunblaðið - 18.07.2002, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393. Sýnd kl. 4, 5, 6, 7 og 8. Vit 398Sýnd kl. 5.30, 8, 9.30 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 400 1/2 Kvikmyndir.is Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýn d á klu kku tím afr est i Sandra Bullock í spennumynd sem tekur þig heljartaki! Þeir búa til leik sem hún þarf að leysa.. takmarkið er hinn fullkomni glæpur. HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 370. ATH! AKASÝNING KL. 9.30. Frábær gamanmynd fyrir bæði kynin. Hugh Grant hefur aldrei verið betri. S ag a u m s tr ák  1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2  SG DV Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. 20 þúsund áhorfendur www.sambioin.is DV Kvikmyndir.is  Mbl Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8. B. i. 16. V Kvik yndir.is bl Kvik yndir.co Sýnd kl. 6, 8 og 10. Með hinum frábæra Frankie Muniz úr „Malcolm in the Middle“ i i i l l i i l Nú fær Hollywood fyrir ferðina. Frábær og hressileg gamanmynd fyrir alla. Sýnd kl. 8 og 10.20. Bi. 14. Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Curse of the Jade Scorpion Mynd eftir Woody Allen HJÁLP! ÉG ER FISKUR Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 6, 8 og 10. HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. 1/2 Kvikmyndir.is Á NÍU árum hefur hann selt 16 milljónir platna og átt fleiri topp- lög í Evrópu, einn og með Boy- Zone, en flestir aðrir sem hafa tekið sér poppiðjuna fyrir hendur. Hann hefur sungið með Elton John, tekið viðtal við Bowie á Net- inu, verið kynnir á Ungfrú alheimur, Eurovision-keppn- inni og MTV-verð- launaathöfninni, skrifað sjálfsævi- sögu og gert Westlife að stærsta strákabandinu í dag. Allt þetta og samt er Ronan Keating bara 25 ára gamall! Eftir að BoyZone söng sitt síð- asta, á grunsamlega hljóðlegan máta, hefur hann reynt að ýta sólóferlinum úr vör, kannski ekki með eins glæstum árangri og menn spáðu er hann skyggði á fé- laga sína, svo eftir var tekið. En ástæðan er kannski sú að hann hefur ekki valið einföldustu leið- ina. Hann hefur nefnilega aldrei verið þessi dæmigerði stráka- sveitagaur. Hann virðist þroskaðri, jarðbundnari og í flesta staði heil- steyptari náungi en það, þessi tveggja barna harðgifti og heittrú- aði kaþólikki. Og þessi trú á gömlu góðu gildin endurspeglast í tónlist hans sem seint verður sögð sexí eða ögrandi á nokkurn hátt. Kemur því lítið á óvart að hann skuli á annarri plöt- unni sækja nokkuð í bandaríska kántrípoppið, þar sem íhaldssömu gildin eru höfð í hávegum. Með Destination er Ronan Keat- ing trúlega búinn að brenna ákveðnar brýr að baki, við það að glata áhuga unglingsstelpna en á móti að ávinna sér aðdáun hinna eldri og þroskaðri, sem maður hef- ur lúmskt á tilfinningunni að hafi verið ætlunin. En þótt umbúða- laust og heiðarlegt popp eigi allt gott skilið þá eru lagasmíðarnar einfaldlega ekki nógu sterkar til að þessi önnur plata Keatings geti talist spennandi. En ég held samt að ólíkt Gary greyinu Barlow úr Take That þá þurfi Keating ekkert að örvænta. Hann á eftir að gera betri plötu og ávinna sér sess með- al Eltons og hinna í poppaðlin- um. Tónlist Hin gömlu gildi Ronan Keating Destination Polydor Önnur sólóplata þessa með hæfileikana í BoyZone. Þráir ekkert heitara en að vera tekinn alvarlega og vinna Kana á sitt band. Skarphéðinn Guðmundsson HLJÓMSVEITIN Jet Black Joe steig eftirminni- lega inn á sjónarsviðið á nýjan leik í fyrra, eftir um 5 ára hlé. Það var á Eld- borgarhátíðinni alræmdu en til að anna eftirspurn fylgdu í kjölfarið hátt í 10 tónleikar víðsvegar um borg og bæ. Jettararnir kvöddu svo með stæl á stórtónleikum í Kaplakrika og grétu þá trúlega margir við tilhugsunina að þarna hefðum þeir orðið vitni að síðustu andartökum sveit- arinnar. Þeir hinir sömu geta nú þerrað tárin því Jet Black Joe er komin saman aftur og hefur í kvöld tveggja mánaða tón- leikaferð um landið. Í samtali við Morgun- blaðið segir Gunnar Bjarni Ragnarsson að tildrög end- ur-endurkomunnar hafi ver- ið eftirfarandi: „Palli (Páll Rósinkranz) hringir í mig dag einn og stingur upp á því að við komum aftur saman. Þá er ég reyndar á leiðinni að fara að gera eitthvað allt annað en ákvað samt að slá til.“ Eftirlíking af Jet Black Joe Áhöfn Jet Black Joe er sú sama og í fyrra en þeir Gunnar Bjarni og Páll Rós- inkranz eru þeir einu sem voru í hinni upprunalegu hljómsveit. Auk þeirra leika Vínylmennirnir Kristinn og Guðlaugur Júníussynir og Þórhallur Bergmann. Nýtt lag sveitarinnar hef- ur trúlega náð til eyrna áhugasamra en það hefur verið leikið ótt og títt í út- varpi og sjónvarpi síðustu daga. „Já, það stóð alltaf til í fyrra að gefa út nýtt efni en ekkert varð úr því. Nú í ár var svo leiðin greiðari fyrir þar sem enginn okkar er samningsbundinn annars staðar. Við ákváðum því að gefa út lagið sem heitir „Won’t Go Away“ og mætti segja að það sé svona eft- irlíking af Jet Black Joe- lagi.“ Eftirlíking af Jet Black Joe-lagi? „Ja, við erum í fyrsta lagi ekki í upprunalegri mynd, þ.e. hljómsveitin. Ég átti þetta lag ásamt mörgum öðrum í fórum mínum en ég hef verið að semja síðan við hættum. Við fórum í gegn- um lögin og fannst þetta líkast því sem Jet Black Joe hafði verið að gera.“ Jet Black Joe boðar þá áherslubreytingu á komandi tónleikaferð að þeir munu einbeita sér meira að lands- byggðinni. Gunnar Bjarni segir þá félaga vera bókaða hverja helgi næstu tvo mán- uðina. Hvað taki við að þeim tíma loknum sé þó ekki á hreinu. „Hvort við tökum upp nýja plötu eða höldum áfram að spila veit ég ekki,“ er eina sem Gunnar Bjarni fæst til að segja um fram- haldið að svo stöddu. Eins og áður sagði hefst tónleikaferðin formlega í kvöld. Verður það á skemmtistaðnum NASA en hljómsveitin Vínyl hitar upp og mun gera svo á öðrum tónleikum Jet Black Joe á komandi mánuðum. Á föstudaginn verður Hreðavatnsskáli tekinn föstum rokkgripum og á laugardaginn er það Sjall- inn á Akyreyri. „Við erum með aðeins fjörugri dagskrá en í fyrra, meira rokk og ról,“ lofar Gunnar Bjarni að lokum. Meira rokk og ról Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Gunnar Bjarni, annar forsprakki Jet Black Joe, lofar meira rokki og róli í sumar. Jet Black Joe endurtekur endurkomuna skarpi@mbl.is STÆRSTA og verst lykt- andi blóm í heimi er nú í fullum blóma í suðurhluta Kaliforníu en það hefur að- eins gerst 15 sinnum áður í Bandaríkjunum. Blómið heitir amorphophallus tit- anum á latínu en er oft kall- að „líkblómið“ vegna lykt- arinnar sem það gefur frá sér. Gestir flykkjast nú til Quail-grasagarðsins í Ench- intas í Kaliforníu til að skoða blómið og finna af því lyktina. „Þetta er versta lykt sem ég hef fundið,“ sagði Todd Fritz, 9 ára, og stóð á önd- inni. Dennis Gulyas sagði lykt- ina minna sig á skáp í bún- ingsklefa sem hefði ekki verið opnaður vikum sam- an. „Þetta er lengsta leið sem ég hef farið til að finna vonda lykt,“ sagði Gulyas sem býr í San Diego í 32 km fjarlægð. Blómið er upprunnið frá Indónesíu. Það blómstrar aðeins nokkrum sinnum á lífsleiðinni en þegar þau gerist gefa þau frá sér mikla ólykt í um það bil átta klukkustundir til að laða að sér skordýr. Blómið getur orðið 2,7 metra hátt áður en það blómstrar. Breski nátt- úrufræðingurinn David Attenborough hefur kallað það stórstjörnu jurtarík- isins. Líkblómið fannst fyrst árið 1878 í regnskógum Súmötru og var þá flutt til Lundúna. Þegar það var fyrst sýnt opinberlega blómstraði það og afhjúpaði reðurlíka súlu sem hneyksl- aði breskan almenning. Líkblóm var fyrst sýnt í Bandaríkjunum árið 1937 og síðan hafa slík blóm að- eins blómstrað 15 sinnum þar í landi. Verst lykt- andi blóm í heimi AP Þessi djarfi ljósmyndari hlýtur bara að hafa ver- ið með kvef. ÞEGAR talað er um að hljómsveitir fari hringferð um landið detta manni helst í hug poppsveitir sem standa fyrir gleði og glaumi, á stórum dansstöðum. Djasskvartettinn Carnival stingur því óneitanlega í stúf en í kvöld hefur hann einnar og hálfrar viku yfirreið í kringum landið og er fyrsti viðkomustaður Stykkis- hólmur. Sveitina skipa þeir Ómar Guðjónsson (gítar), Helgi Sv. Helgason (tromm- ur), Eyjólfur Þorleifsson (saxófónn) og Þorgrímur Jónsson (kontrabassi). „Þetta er ekki hugsað sem gróðamylla,“ segir Eyjólfur. „Aðallega er þetta hugsað sem menningarinnlegg en svo erum við auðvitað að skapa okkur verkefni. Það er ekki endalaust að gera hér í bænum.“ Dagskráin verður samsett úr söngleikjalögum, erlend- um og innlendum. „Lög eftir Gershwin, Cole Porter, Jón Múla o.s.frv.,“ upplýsir Óm- ar. „Lög sem t.d. Sinatra og Monroe gerðu fræg. Við tök- um þessar perlur og leikum okkur með þær.“ Þeir félagar segja að mest séu þetta litlir staðir, þannig að nálægðin við áheyrendur verði góð. Þeir segja að vissulega hafi verið talsvert maus að klambra túrnum saman en á móti séu þeir af- ar spenntir og bjartsýnir; þetta sé ævintýri sem án efa verði gaman að takast á við. Svona er svo dagskráin  fim. 18. júlí, kl. 21. Sjáv- arpakkhúsið, Stykkishólmi.  fös. 19.7. kl. 22.30. Krákan, Grundarfirði.  lau. 20.7. kl. 15. Við árbakkann, Blönduósi.  lau. 20.7. kl. 21.30. Allinn, Siglufirði.  sun. 21.7. kl. 21. Deiglan, Akureyri.  mán. 22.7. kl. 20.30. Hafnarbarinn, Þórshöfn.  þri. 23.7. kl. 20.30. Blúskjallarinn, Neskaup- stað.  mið. 24.7. kl. 21.30. Café Nielsen, Egilsstöðum.  fim. 25.7. kl. 22.00. Hótel Höfn, Hornafirði.  fös. 26.7. kl. 21.00. Kristján X, Hellu.  lau. 27.7. kl. 21.00. Hafnarborg, Hafnarfirði.  sun. 28.7. kl. 21.00. Básinn, Selfossi/Ölfusi. Djasskvartettinn Carnival fer í hringferð Sannkall- aðir djass- geggjarar Morgunblaðið/KristinnCarnival-menn, klárir í rúntinn. F.v. Þorgrímur, Eyjólfur, Helgi og Ómar. arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.