Morgunblaðið - 14.08.2002, Side 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2002 33
ar. Bauð hann mig strax velkominn í
fjölskylduna. Minnist ég þess hve
hann var hress og jákvæður. Uppfrá
því heimsóttum við hann á hverju
sumri með sonum okkar og var til-
hlökkunin alltaf mikil hjá barnabörn-
unum að hitta Sigga afa. Alltaf var
mannmargt á heimili hans og gat
maður alltaf treyst á að heitt væri á
könnunni og boðið uppá kökur bak-
aðar af honum sjálfum.
Árið 1993 flutti hann til Reykjavík-
ur og uppfrá því urðu samverustund-
ir okkar fleiri. Þá fór hann að dvelja
hjá okkur á aðfangadag. Þykir mér
mjög vænt um þau jól sem við áttum
saman.
Það sem ég minnist hans einna
helst fyrir er hvað hann var duglegur
og atorkusamur. Hann var með stórt
heimili og sá hann um það upp á eigin
spýtur eftir að hann skildi við seinni
konu sína. Hann gekk í öll störf heim-
ilisins og var í fullri vinnu með því.
Karlmönnum í dag myndi þykja ansi
mikið á sig lagt ef þeir þyrftu að
ganga í gegnum það sama og hann.
Dagurinn hjá honum var fullskipaður
frá því snemma á morgnana þangað
til seint á kvöldin en þegar maður
hitti hann var það ekki að sjá á hon-
um. Hann var þrátt fyrir allt þetta
alltaf hress og jákvæður og tilbúinn í
að gefa sér tíma til að spjalla.
Síðastliðin tvö ár dvaldi hann á
Elliheimilinu Grund og heimsótti ég
hann oft þangað. Sat ég þar hjá hon-
um og spjallaði við hann.
Vil ég votta börnum hans og fjöl-
skyldum þeirra samúð mína og bið að
guð sé með þeim á þessum sorgar-
stundum.
Gunnar Halldór Gunnarsson.
Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur
og búinn að fá hvíldina þína. Við eig-
um eftir að sakna þín mikið og þó að
við skiljum ekki enn alveg að við fáum
hvorki að sjá þig né heimsækja aftur
þá vitum við að nú líður þér betur og
þú ert ekki veikur lengur. Nú ertu
orðinn engill og getur alltaf fylgst
með okkur og passað okkur. Þakklát-
ust erum við fyrir allar þær góðu
minningar sem þú skilur eftir þig og
þá skilyrðislausu ást og hlýju sem við
fundum alltaf hjá þér þegar við heim-
sóttum þig. Þær minningar munum
við varðveita í hjartanu og svo eigum
við svo margar myndir til að skoða
með mömmu og pabba sem hjálpa
okkur að muna þig . Við munum aldr-
ei gleyma þér. Takk fyrir allt, elsku
afi, og sofðu rótt.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
(Ásmundur Eir.)
Þín
Sigrún Erla og Aron Þormar.
Ég á margar góðar minningar um
þig, afi minn. Einu sinni varst þú að
passa mig í fimm daga, þú varst að
fara inn á Blönduós og þá settirðu
bleiuna öfugt á mig og snerir röng-
unni á buxunum út.
Þegar ég var eldri fórum við fjöl-
skyldan oft til þín og fengum sultu-
köku og þú steiktir fyrir mig pönnu-
kökur og ég var alltaf að byggja hús
úr spilunum þínum. Mér hefur alltaf
þótt mjög vænt um þig, elsku afi
minn.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Hvíl í friði, afi minn.
Kolbrún Ósk.
Elsku Siggi afi. Nú ertu horfinn úr
lífi mínu og ég sakna þín mikið. Ég
sakna þess að koma í heimsókn og fá
góðar kökur og sérstaklega pönnu-
kökurnar þínar sem ég dýrkaði. En
nú fæ ég það aldrei aftur. Ég er glöð
þín vegna að þú sért farinn þótt ég
eigi ekki eftir að jafna mig á þessu.
Ég sá þig ekki oft en þau skipti sem
ég sá þig fannst mér alltaf svo gaman
og ég gat aldrei beðið eftir að koma
aftur. En nú ertu hlaupandi um allt
og líður örugglega vel og ert örugg-
lega að fylgjast með öllum börnunum
þínum og barnabörnunum. Ég sakna
þín mjög.
Hvíl í friði, elsku afi. Ástar- og
saknaðarkveðjur.
Eva Björk.
Elsku afi. Einu sinni fékk litla syst-
ir mín heilahimnubólgu og ég var í
pössun hjá afa. Þegar ég kom til hans
bökuðum við saman pönnukökur.
Einu sinni kom ég með barbídót og
við lékum barbí saman. Um kvöldið
eldaði afi plokkfisk.
Einu sinni fórum við í Nóatún og
afi gaf mér nammi. Þegar við komum
heim til hans fórum við að spila veiði-
mann og það var gaman. Svo varð afi
svo veikur að hann fór á Grund. Þá
komum við oft til hans. Hann var allt-
af að gefa okkur súkkulaði, rauðan
sykurlausan ópal og kökur. Svo varð
hann veikur og fór á sjúkrahús. En
svo kom sá tími að afi fór frá okkur og
þá var ekkert gaman.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu,
ljúfi Jesú, að mér gáðu.
(Ásmundur Eir.)
Elsku afi, þú verður alltaf í hjarta
mínu. Guð geymi þig, afi minn.
Þitt barnabarn
Guðlaug Helga Kolbeinsdóttir.
Elsku afi, takk fyri allar góðu sam-
verustundirnar sem við áttum sam-
an. Við eigum eftir að sakna þín.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Hvíl í friði afi okkar
Daníel Evert og
Ísak Orri.
Elsku afi. Okkur langar að segja
þér, elsku afi, hvað við söknum þín
mikið því það var alltaf svo gott að
heimsækja þig, fyrst á Ásvallagötuna
og fá ískalda mjólk og kökur. Svo átt-
ir þú til svo mikið nammi sem er svo
gott. Þegar þú fluttir á Grund þá
varstu alltaf að stinga upp í okkur
súkkulaði og rauðum sykurlausum
ópal sem þú geymdir í náttborðs-
skúffunni þinni. Við geymum þig í
hjarta okkar, elsku afi. Megi englarn-
ir vaka yfir þér.
Þín barnabörn
Hafdís og Alexander.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
!
" #
$
#
%&!
!%'!()!
! "
# " "$ " %&
'"
(! # " "
'" &
) *( $# " ) &
'!$ ! # "
&$* * +
, -
.
/" %(!"0
*1
(!
$
%*!
!%(!()!
,2"$ 3"
"-' $ " & ! ! ! "
'!$ / " " " /( &
4 " "
- !5"" & ,$ -" 6! "
* &$! $ * +
+,
78 44 *3' "$! " "
& &!9:
#-
&!
!
$
%*!
!%)!()!
.
-
-
+/
/ " 3
! $"
;
! $& '!$
3
"
#
! $&
<" "
5' "
! $& /&!* 3& '""
-"
! $"
/ "
! $" '!$" %'!&
(
! $" "$ ;3 "$ &
"$ (
! $& ,$' "
! $ 6!
! $& / "
! "
!
! $" )$'" !5 &
!5
! $" ) "$ &
! $& 4 "$ ""
#";&
* &$! $* +
0
1
++
1
++
; ,/.
'!5&$$ "=>
'?%( 5 %
2 /3
/
%'!
!%(!()!
"$ & "%
,$' "% "
&
! )$'" "%
%& " '@ "% / "( % 3'!"
&$* * +
/
. ,4
8.44,
3A"
!(B!
!'""* CD
/
%4!
!
" +. $3&+
5
/
E
F
44
6/71
-
%(!
8
#
,/
!"/ +;&
-" $" '?"&
;B ''?"&
. '"'?"&
;+! &
! / "( ! &
'$ 1 &$* +
1
7,-E;
1! "G
'?%( 5 %
/
9
1/
/ 71
%4!
'?' "
- ?(!
! &
' ""
,$
! "
" &
2"$ - $
! " !? $ &
% "+ !! & "$ $ ! "
* * &$* * * +
5
/
,
6
4 ! $ CD
'?%( 5 %
/
%%!
!
" #
: #
%&!
!%*!))!
6! B"!
" ;& &
"$ 3/ "*( $;"
& " !!;&
' ;" +